Morgunblaðið - 29.10.1999, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 29.10.1999, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1999 23 VIÐSKIPTI Hagræðing og uppsagnir hjá norska stórfyrirtækinu Norsk Hydro Stefnt að því að fækka fyrir- tækjum í óskyldum rekstri Ósló. Morgunblaðið. NORSKA stórfyrirtækið Norsk Hydro hefur ákveðið að selja frá sér ýmsa starfsemi í Noregi og getur það haft áhrif á atvinnu nærri 3.000 manna. Hefur rekstur fyrirtækisins ekki gengið vel að undanförnu að álframleiðslunni frátalinni. Hér eft- ir verður áherslan á meginstoðimar í rekstrinum, olíu- og orkufram- leiðslu, léttmálma og ýmsar vörur fyrir landbúnað. Meðal þeirra fyrirtækja, sem Hydro vill selja, em Fundo í Hoyanger, sem framleiðir hluta í bfla, og Hydro Seafood, stærsta eld- isfyrirtæki í heimi. Svo er einnig með olíuefnavinnsluna, en önnur fyrirtæki em ýmist til sölu eða verið er að leita að meðeigendum. Auk þessa er verið að spara og hagræða í rekstrinum á öllum sviðum og mun það vafalaust leiða til einhverra uppsagna, einkum í skrifstofu- og stjómunarstöðum til að byrja með. Þær aðgerðir, sem þegar hefur ver- ið gripið til, munu líklega bæta rekstrarstöðuna um 10 milljarða ísl. kr. á þessu ári, en stefnt er að því að hún batni enn um 15 milljarða kr. á næstu tveimur áram. Hjá Hydro er nú aðaláherslan á olíuna eins og kaupin á Saga Petro- leum sýna best. Auk þess er vonast til, að fyrirtækið komist yfír ein- hvern eignarhlut ríkisins í olíu- og gaslindum á norska landgranninu, en um það verður bitist við Statoil. Góð afkoma í álinu Best hefur gengið í álinu, jafnt í vinnslunni sem í öðram umsvifum með þá afurð, en framtíð landbún- aðardeildarinnar er í raun dálítið óviss. I Evrópu er verið að draga úr framleiðslu í landbúnaði og offram- boð er á áburði. I þessari grein vinna alls um 6.500 manns hjá Norsk Hydro. Ymsir sérfræðingar og frétta- skýrendur í Noregi efast um, að Egil Myklebust, aðalforstjóri Norsk Hydro, komist upp með allar spam- aðaraðgerðirnar og benda á, að fyr- irtækið sé að 44% í ríkiseigu. Stjómmálamennimir eða stjómvöld hverju sinni hafi því mikil áhrif inn- an fyrirtækisins, sem er einn af stærstu vinnuveitendum í Noregi. Ekki sé víst að þau taki uppsögnum hundruða að ekki sé talað um þús- unda manna með þegjandi þögninni. Óbreytt áform um álver við Reyðarfjörð Garðar Ingvarsson, fram- kvæmdastjóri orkusviðs Fjárfest- ingarstofunnar, segist ekki telja að ný og breytt rekstrarstefna Norsk Hydro hafi nein áhrif á áform fyrir- tækisins um að reisa hugsanlega ál- ver við Reyðarfjörð. „Ég var að tala við Jostein Flo hjá Norsk Hydro fyrir klukkutíma eða svo og það var ekki neitt á hon- um að heyra að einhverjar breyt- til útlaada -auövelt dö mund SÍMINN www.simi.is ingar verði á áforam þeirra um upp- byggingu hér. Þeir menn innan fyr- irtækisins sem hliðhollir eru fram- kvæmdum hér verða áfram í æðstu stöðum þó breytingar eigi sér stað í yfirstjóm fyrirtækisins," sagði Garðar í gær. íslensk stjórnvöld, Landsvú-kjun og norska stórfyrirtækið Norsk Hydro undirrituðu í lok júní sam- starfsáætlun um hugsanlega bygg- ingu álvers við Reyðarfjörð. Sagði Garðar að það sem gerast ætti samkvæmt áætluninni fyrir 1. nóvember yrði á tíma, en þá skal framathugunum vegna byggingar álvers lokið í megindráttum, einnig minnisblaði um innviði hennar. Samstarfsáætlunin kvað á um viðræðuáætlun til 11 mánaða en í lok þess tíma, eða fyrir 1. júní á næsta ári, verður endanleg ákvörð- un um byggingu álvers tekin. Samkomulagið byggir á því að virkjanaleyfi Landsvirkjunar vegna Fljótsdalsvirkjunar verði óbreytt. Tap Básafells 850 mil|jónir króna BÁSAFELL hf. hefur sent Verð- bréfaþingi Islands afkomuviðvöran og þar segir að afkoma félagsins hafi verið mun lakari en áður var gert ráð fyrir. Tap af reglulegri starfsemi fé- lagsins er yfir 600 milljónir króna samkvæmt bráðabirgðauppgjöri fyrir rekstrarár félagsins sem er frá september 1998 til ágúst 1999. Samkvæmt bráðabirgðauppgjörinu era aðrir liðir neikvæðir um allt að 250 milljónir og er heildartap fé- lagsins á rekstrarárinu þvi um 850 milljónir króna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.