Morgunblaðið - 29.10.1999, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1999 25
vöru sem þarf að fjöldaframleiða í
miklu magni. Stefnt er að því að
vöruþróuninni ljúki í febrúar á
næsta ári.
Þekkir frumkvöðla-
hlutverkið vel
Guðmundur Þór er raunar ekki
ókunnur frumkvöðlahlutverkinu,
því hann stofnaði Sæplast hf. á sín-
um tíma, sem í dag er eitt fyrir-
tækja á aðallista Verðbréfaþings
Islands, og er markaðsvirði þess
um 900 milljónir króna í dag. Guð-
mundur seldi hlut sinn í fyrirtæk-
inu, en er nú aftur kominn í nýs-
köpun í plastiðnaðinum með
stofnun GL ehf.
„Okkur líst mjög vel á verkefnið
„Vöruþróun" og fyrirkomulag
þess. Fyrir frumkvöðla er mjög
gott að fá faglega aðstoð við að af-
marka betur og skilgreina mikil-
væga þætti vöruþróunarferlisins,
ásamt fjármögnuninni. Það er mun
líklegra til að skila árangri en þau
„steinsteypulán" sem áður buð-
ust,“ segir Guðmundur Þór.
Hann segir að ekki sé ætlunin að
GL ehf., framleiði sjálft plasthluti í
hinni sjálfvirku hverfisteypuvél,
heldur er ætlunin að selja vélina til
fyrirtækja hér á landi og erlendis
sem notað gætu slíkt tæki. Að sögn
Guðmundar er gert ráð fyrir því að
ein hverfisteypuvél muni kosta um
30 milljónir króna.
Áhersla á markaðsþáttinn
frá upphafi
„í umsóknarferlinu metum við
fyrirtækið, viðskiptahugmyndina
og það hverjir standa þar á bak
við,“ segir Anna Margrét. „Við
leggjum upp úr að vera með tvenns
konar aðstoð. Annars vegar er það
fjárstuðningur, og hins vegar er
það vöruþróunarferlið sem Iðn-
tæknistofnun hefur verið að þróa á
undangengnum tíu árum. I því
ferli er hugmyndin skilgreind mjög
vandlega, verkefnið greint í verk-
þætti og útbúin framkvæmda-,
tíma- og kostnaðaráætlun. Fyrir-
tækin eru leidd í gegn um þetta
ferli.“
Hún segir að einnig sé strax frá
upphafi lögð mikil áhersla á vænt-
anlega markaðssetningu þar sem
gerðar séu markaðsgreiningar og
markaðsáætlanir. „Okkar metnað-
ur er nefnilega að varan seljist
„Það eru ýmsir aðrir en nemend-
ur sem hafa gaman af að skoða
svona, þetta fjallar um rekstur fyr-
irtækja og viðskipti. Þessar bækur
mínar hafa nú verið notaðar til
kennslu víða, þannig að þetta er
áhugavert fyrir ýmsa. En þetta er
fyrst og fremst kennslubók í upp-
hafi náms í þessum fræðum. Það er
umgjörð bókarinnar, hún er öll sett
upp með þeim hætti, myndir, skýr-
ingadæmi og annað.“
Fjallað um fullkomna
samkeppni
Bókin er tæpar 240 bls. og er
henni skipt í 6 kafla þar sem fjallað
er um grunnatriði markaðsforma
og fullkomna samkeppni, einka-
sölu, fákeppni og einkasölusam-
keppni, markaðsmál, skipulag og
stjómun, fjármál og fjárfestingar
og að lokum framleiðsluáætlanir,
upplýsingaöflun og rekstrareftirlit.
I bókinni eru 50 litmyndir til skýr-
ingar efninu og 30 skýringardæmi.
Henni er ætlað ásamt fyrri bók höf-
undar, „Þættir í rekstrarhag-
fræði“, sem kom út í 2. útgáfu nú í
haust, að mynda eina heild.
Höfundur bókarinnar, dr. Agúst
Einarsson, hefur verið prófessor í
rekstrarhagfræði við Háskóla Is-
lands frá árinu 1990 og sat á Al-
þingi frá 1995 til 1999. Hann hefur
átt sæti í stjórnum fjölmargra fyr-
irtækja, stofnana og samtaka og
var m.a. formaður bankaráðs
Seðlabanka Islands og deildarfor-
seti viðskipta- og hagfræðideildar
Háskóla Islands.
Bókaklúbbur atvinnulífsins hef-
ur gefið út fjölmargar bækur og
ritraðir um viðskipta- og hagfræði
og hefur nú lagt inn á nýjar brautir
í útgáfu.
Bókina er að finna á slóðinni:
www.hi.is/Iagustei
þegar verkefni lýkur,“ segir Anna
Margrét.
„Það getur orðið þannig hjá
frumkvöðlum að þeirra markmið
sé að finna upp nýjungina, en
markaðssetningin sitji á hakanum.
Það er þvi nauðsynlegt að hafa
þennan þátt verkefnisins með,“
segir Guðmundur Þór.
Björgvin Njáll Ingólfsson, for-
stöðumaður Impru, segir að styrk-
veiting tO þeirra sem taka þátt í
vöruþróunarverkefninu sé fólgin í
ráðgjöf og verkefnisstjórnun sem
íyrirtæki njóti á tímanum.
„Það er stofnaður verkefna-
stjórnunarhópur. I þeim hópi eru
lykilaðilar, jafnvel utanaðkomandi
sérfræðingar, sem koma að vöru-
þróuninni," segir Anna Margrét.
Anna Margrét og Björgvin Njáll
segja að vonast sé eftir að eitthvað
af þeirri þekkingu sem lykilaðil-
amir komi með inn í ferlið verði
eftir hjá fyrirtækinu og komi að
góðum notum síðai'.
Aðspurður segir Björgvin Njáll
að forystumenn verkefnisins búist
við að fá 24 fyrirtæki í vöruþróun-
arverkefnið. „Við teljum það styrk
verkefnisins að menn þurfi ekki
allir að fá hugmynd að nýrri vöru á
sama tíma ársins og umsóknar-
frestur er um þátttöku í verkefn-
inu. Það vill svo til að hugmyndir
kvikna á mismunandi tímum árs,
og við höfum umsóknarfrest
nokkrum sinnum á árinu,“ segir
Björgvin.
„Við viljum gjarnan hafa fjöl-
breytileika í þessum verkefnum.
Við höfum mikinn áhuga á fyrir-
tækjum í þjónustu, til dæmis í
ferðaþjónustu, en ekki aðeins í iðn-
aði,“ segir Anna Margrét þegar
spurt er hvernig fyrirtæki þau von-
ist eftir að fá í verkefnið. „Verkefn-
ið „Vöruþróun" er opið öllum at-
vinnugreinum," segir Björgvin
Njáll.
Fjölþætt hlutverk Impru
Impra sér um framkvæmd nokk-
urra verkefna sem fjármögnuð eru
af Nýsköpunarsjóði. Þau eru þjón-
usta við frumkvöðla og uppfinn-
ingamenn, frumkvöðlastuðningur
(styrkir og áhættulán), hugmynda-
samkeppnin Snjallræði, „skrefi
framar" sem er rekstraraðstoð fyr-
ir stjórnendur minni fyrirtækja, og
loks verkefnið „Vöruþróun".
Auk þessara verkefna sem unnin
eru í samvinnu við Nýsköpunar-
sjóð rekur Impra alþjóðamiðstöð,
Kynningarmiðstöð Evrópurann-
sókna, þjónustu við konur í at-
vinnurekstri, aðstoð við uppfinn-
ingamenn og frumkvöðla, aðstoð
við gerð framleiðslu og samstarfs-
samninga og vefinn www.impra.is
á Netinu þar sem finna má upp-
lýsingar um alla þá þætti sem tald-
ir eru upp hér.
Síðast en ekki síst rekur Impra
Frumkvöðlasetur þar sem mögu-
legt er að fóstra níu fyrirtæki og
aðstoða þau á veginum til arðbærs
rekstrar, en aðstoðað er við stofn-
un og rekstur einstakra fyrirtækja
í allt að fimm ár. Að sögn Björg-
vins Njáls Ingólfssonar, forstöðu-
manns Impra, hafa sjö nýsköpun-
arfyrirtæki nú þegar komið sér
fyrir í Framkvöðlasetrinu, en þau
eru ekki þátttakendur í vöraþróun-
arverkefninu, hvað sem framtíðin
mun bera í skauti sér.
OPIÐ HÚS A LAUGARDAG
ÞETTA ER
SPURNING
UM FRELSI
• Átt þú eftir að ganga frá þínum lífeyrismálum fyrir 1998?
• Vilt þú fræðast um þín lifeyrisréttindi?
• Ættir þú að leggja fyrir í viðbótarlífeyrissparnað?
• Hvernig getur þú uppfyllt lögbundna skyldu þína?
• Kemst þú aldrei til að ræða við ráðgjafa á vinnutíma?
Svörin færð þú á laugardaginn 30. október því milli
kl. 12 og 16 verður opið hús hjá Frjálsa lífeyrissjóðnum
að Laugavegi 170. Ráðgjafar sjóðsins veita upplýsingar
um lífeyrisréttindi og möguleika í lífeyrissparnaði. Þú
getur fengið útreikning sem sýnir hvernig lífeyrisréttindi
þín verða við starfslok. Sérfræðingar okkar fjalla um
lífeyrismál og boðið verður upp á veitingar. Einnig
gefst kostur á að ganga frá lífeyrisgreiðslum fyrir árið
1998 til þess að uppfylla skilyrði ríkisskattstjóra.
Láttu sjá þig á laugardaginn!
Fyrirlestrar á laugardag
Kl.13:00
Kl.14:30
Af hverju 2% viðbótarsparnaður?
Brynhildur Sverrisdóttir
Hvernig tryggi ég mér góðan lífeyri?
Guðlaugur Þór Þórðarson
FRJALSI
LÍFEYRISSJÓÐURINN
- elsti og stsersti $éreigtuirl1)'eyri$sjöóiir landsim
Frjálsi lífeyrissjóöurinn er í vörslu Fjárvangs hf., Laugavegi 170, sími 540 50 60, fax 540 50 61.