Morgunblaðið - 29.10.1999, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1999 27
Mahathir
gæti borið
vitni
DÓMARINN í máli Anwars
Ibrahim, fyrrverandi aðstoðar-
forsætisráðherra Malasíu,
heimilaði
verjendum
hans í gær
að sækjast
eftir hand-
tökuskipun
á hendur
forsætisráð-
herranum
Mahathir
Mohammad.
Það er því
líklegt að Mahathir neyðist til
að bera vitni fyrir réttinum.
Kasakar
banna geim-
skot Rússa
STJÓRNVÖLD í Kasakstan
lögðu í gær bann við öllum
geimskotum Rússa frá skot-
pallinum í Baikonur, eftir að
óhapp varð við geimskot að-
faranótt fimmtudags. Geim-
flaug af gerðinni Proton brot-
lenti þá á kasöksku landsvæði,
en henni var ætlað að flytja
rússneskan fjarskiptagervi-
hnött á sporbaug um jörðu.
Utanríkisráðherra Kasakstans
hefur sent stjórninni í Moskvu
bréf, þar sem hann Iýsir yfir
„alvarlegum áhyggjum vegna
síðasta óhappsins, og ástands
rússneskra geimvísinda“. Ka-
sakar afléttu í ágúst banni við
geimskotum Rússa, sem sett
var í júlí eftir að sprenging
varð þess valdandi að hættu-
legt eldsneyti lak út.
Belo vill gera
Wiranto
ábyrgan
CARLOS Belo, biskup á Aust-
ur-Tímor og friðarverðlauna-
hafi Nóbels, hvatti í gær til
þess að Wiranto hershöfðingi,
yfirmaður indónesíska herafl-
ans, yrði látinn sæta ábyrgðar
vegna grimmdarverkanna á
Austur-Tímor. Sagði hann í
viðtali við AP-fréttastofuna að
alþjóðlegur dómstóll ætti að
dæma í máli hans.
Víetnamar
skutu á filipp-
eyska flugvél
VÍETNAMSKIR hermenn
skutu fyrr í þessum mánuði á
eftirlitsflugvél filippeyska
hersins yfir Spratlys-eyjum,
sem bæði ríkin gera tilkall til.
Utanríkisráðherra Filippseyja
skýrði frá þessu í gær, og
sagði að stjórnvöld í Manila
hefðu sent yfirvöldum í Hanoi
hörð mótmæli.
Segjast hafa
fellt 368
skæruliða
í YFIRLÝSINGU frá ind-
verska hernum í gær er fullyrt
að tekist hafi að brjóta niður
baráttuþrek múslimskra að-
skilnaðarsinna í Kasmír-héraði
með þriggja mánaða gagn-
sókn, sem hafi orðið 368
skæruliðum að bana. Tekið er
fram að meirihluti þeirra hafi
verið „erlendir málaliðar".
Mahathir
Mohammad
_______ERLENT_______________
ESB-ríkin þurfa að sætta sig
við meirihlutaákvarðanir
Hclsinki. Reuters.
AÐILDARRÍKI
Evrópusam-
bandsins (ESB)
verða að sætta sig
við að meirihluta-
atkvæðagreiðslur
verði meginreglan
við töku ákvarð-
ana á vettvangi sambandsins; þetta
sé nauðsynleg ráðstöfun áður en til
fyrirhugaðrar fjölgunar aðildarrikja
kemur. Þetta er haft eftir Romano
Prodi, forseta framkvæmdastjórnar
ESB, í nýju blaðaviðtali.
Finnska viðskiptadagblaðið Ta-
loussanomat hafði í gær eftir Prodi að
neitunarvaldið
sem hvert aðild-
arríki hefði, hefði
nú þegar lamandi
áhrif á starf sam-
bandsins.
„Neitunarvald-
ið skilar ekki
neinu þegar 15 aðilar, sem taka eiga
ákvörðun, sitja við Samningaborðið,
hvað þá þegar þeir eru orðnir 20 eða
30. Það yrði gersamlega ótækt,“
tjáði Prodi blaðinu.
„Það þai'f að takmarka neitunar-
valdið verulega áður en til stækkunar
[sambandsins] kemur. Það verður að
vera hægt að taka ákvarðanir með
vegnum meirihluta,“ sagði hann.
Fjölgun jafnvel árið 2002
Prodi sagði að sum ríkjanna í Mið-
og Austur-Evrópu, sem sækjast eftir
aðild, gætu fengið inngöngu jafnvel
svo snemma sem árið 2002. „Fræði-
lega er mögulegt að þau fái aðild
strax þá,“ sagði hann.
Aðildarviðræður standa nú þegar
yfir við Tékkland, Eistland, Ung-
verjaland, Pólland, Slóveníu og Kýp-
ur, og er þess vænzt að viðræður
hefjist við sex önnur ríki álfunnar
snemma á næsta ári.
A i M i i í - /-
VIÐ5KIPTAHUGBÚNAÐUR
Fjárhagsbókhald
Sölukerfi
Viðskiptamanna
kerfi
Birgðakerfi
Tilboðskerfi
Verkefna- og
pantanakerfi
Launakerfi
Tollakerfi
Vaskhugi ehf. Síðumúla 15 -Sími 568-2680
Aðeins
3 dagai
Rýmum fyrir
jólavörunum og
seljum mikið af
pottaplöntum með
ÍO Rósir
Rósavöndwr
afslætti
ó meðan birgðir
endast