Morgunblaðið - 29.10.1999, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1999 31
LISTIR
TON1.IST
Háskólabfó
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
Á efnisskrá voru Lieder eines
fahrenden Gesellen og tíunda sin-
fónian eftir Mahler. Einsöngvari:
Raimo Laukka. Stjórnandi: Petri
Sakari. Fimmtudagurinn 28. októ-
ber 1999.
ÞAÐ er margt svipað með far-
andsveininum í Lieder eines fahr-
enden Gesellen eftir Mahler og
skáldinu í Vetrarferð Schuberts. I
báðum verkunum eru svik „elsk-
unnar“ ástæðan fyrir því að hinn
svikni vill syngja sig burt frá
öllu. Mahler er 23 ára þegar
hann semur þetta verk og í því
er að finna þann stíl, sem á eft-
ir að einkenna tónverk hans.
Ljóðin semur Mahler í alþýð-
legum stíl og að því leyti til er
það sérkennilegt, hversu þeim
svipar til ljóðanna í Des Knab-
en Wunderhorn, sem hann
kynntist hálfum áratug seinna.
Þessi tónlist er samin í skugga
Wagners og það má svo sem
finna eitt og annað skylt með
tónmáli þeirra, sérstaklega í
öðrum söngnum, þar sem text-
inn er „Syng, syng! Fagur og
ljómandi!!, þó í heildina hafi
Mahler reynt að forðast bólg-
inn rithátt Wagners.
Þetta er fögur tónlist, ljúfar
tónlínur, sem voru fallega fluttar
af Raimo Laukka, ágætum söngv-
ara, er söng verkið af öryggi en
án nokkurra átaka eða tilbrigða í
túlkun.
Aðalefni tónleikanna var sú tí-
unda, svanasöngur Mahlers, sem
honum auðnaðist ekki að ljúka
I hinu
óræða
hljómflæði
Petri
Sakari
Gustav
Mahler
Áshildur
Haraldsdóttir
við. Aðeins tveir þættir voru frá-
gengnir, svo að flytja mætti og
var það gert 12. október. 1924, í
Vín en raddskráin hafði þá verið
lesin yfir af Ernst Krenek. Nú-
verandi gerð verksins, fimm
þættir, var unnin til flutnings af
Deryck Cooke og var gerð hans
fyrst flutt í BBC útvarpinu, 19.
desember 1960 en á konsert var
sinfónían svo flutt af Lundúnasin-
fóníunni 13. ágúst 1964, undir
stjórn Berthold Goldschmidt.
Þetta er stórbrotið verk, sem
var að mörgu leyti vel flutt, þó
annar þátturinn, hinn grófi
Lándler kafli, væri ekki í jafn-
vægi, órólegur, og flytjendur ekki
samtaka, svo að útkoman var á
köflum einum of gróf. Þá háði það
hljómsveitinni, að á móti nærri
tvöfaldri skipan blásturshljóða
var strengjasveitin t.d. aðeins 14 í
fyrstu fiðlu, sem væri gott á móti
einfaldri blásarasveit (2222, 423
túba en ekki 4454, 544 túba). Til
þess að halda í við þetta stóra
blásarasveit hefði verið mátulegt
að það væru 24-28 í fyrstu fiðlu
og aðrir strengir í hlutfalli við það
og þá hefði hinn stórsinfóníski
hljómur, þar sem tónlínur
strengjanna hefðu náð hinu
hljómandi flæði án áreynslu, á
móti hljómstyrk blásaranna, og
sinfónían þá hljómað eins og
Mahler hugsaði verkið. Stórt
og mikilúðlegt.
Þrátt fyrir þetta var margt
mjög fallega gert og tveir síð-
ustu þættirnir sérlega áhrifa-
miklir, undir stjórn Petri Sak-
ari. Nokkrh' einstaklingar í
hljómsveitinni áttu fallega
leiknar tónlínur, Sigi'ún Eð-
valdsdóttir, Richard Talkow-
sky, Ásgeir H. Steingrímsson
og fleiri en sérstaklega var
flautueinleikur Áshildar Har-
aldsdóttur hrífandi.
Þrátt fyrir að ýmislegt
mætti finna að, var flutningur-
inn í heild mjög góður, sér-
staklega þar sem hljómsveitin
þarf ekki líða fyrir misræmi í
hljómstyrk hinna einstöku
hljóðfærahópa og þá var „Mahler
hjá okkur“, í sínu sínu stórkost-
lega óræða hljómflæði, sem
hvorki er hamið af tíma né rúmi,
eins og hinn hljómandi eilífi al-
geimur, sem fær manninn til að
staldra við, hlusta og undrast
mikilleik hans.
Jón Ásgeirsson
Djasstón-
leikar á Sól-
oni Islandusi
HLJÓMSVEIT Tenu Palmer, Cruci-
ble, heldur tónleika í Sölvasal Sólon-
ar Islandusar sunnudagskvöldið 31.
október. Þetta eru fjórðu tónleikarn-
ir í tónleikaröð Múlans á þessu
haustmisseri.
Á tónleikunum verður fléttað sam-
an rafmögnuðum og órafmögnuðum
hljóðum við túlkun á lögum bæði eftir
Tenu og aðra. Þar má m.a. nefna tón-
list Péturs Grétarssonar við Atlants-
haf Laxness, Balkanesque og ýmis-
legt fleira. Hljómsveitina skipa: Jó-
hann Jónannsson á farfisaorgel,
Kjartan Valdimarsson á píanó, fend-
er Rhodes, hljómborð og harmon-
ikku, Matthías M.D. Hemstock á
trommur og slagverk, Pétur Hall-
grímsson á gítara og Tena Palmer
þenm' raddbönd. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 21 og aðgangseyrir er 1.000
kr., 500 kr. fyrir nemendur og eldri
borgara.
Viskíbörnin
kynnt
Á VEITINGASTAÐNUM Keisaran-
um verður útgáfuteiti vegna bókar-
innar Viskíbörnin á morgun kl. 15.
Bubbi Morthens flytur nokkur lög,
Hjalti Rögnvaldsson leikari les upp
úr bókinni og söngkonan Andrea
Gylfadóttir og gítarleikarinn Eðvarð
Lárusson flytja djasstónlist.
Bókin Viskíbörnin er ævisaga
alkóhólistans Jack Erdmann, skrifuð
af honum sjálfum og ljóðskáldinu
Larry Kearney. I bókinni er lýsing á
vanda einstaklinga og fjölskyldna
sem flækt eru í viðjar alkóhólisma,
segir í fréttatilkynningu.
mmm
Rammi úr gegnheilli, lútaðri furu.
3 stærðir.
Sporöskjulaga,
st. 44 sm breiður x 66sm hár
Flíshanskar
Hlýir og fallegir hanskar í barna- og
fullorðinsstærðum.
Parið
aðeins:
Úrval af geisladiskastöndum
A. Geisladiskastandur fyrir 24 diska....
B. Geisladiskastandur fyrir 12 diska....
C. Borðstandur fyrir 25 diska..........
D. Krómaður borðstandur fyrir 24 diska.
E. í beyki á vegg fyrir 45 diska.......4
Gólfstandur
fyrir 32 + 4 tvöfalda diska
Skóhilla
Flíssloppar fyrir dömur og herra
Það jafnast ekkert á við að fara í dúnmjúka og
þægilega flíssloppa eftir baðið eða bara til að
hafa það notalegt.
Smératorgi 1
200 Kópavogl
510 7000
Skelfunnl 13 Noröurtanga 3
108 Reykjavík 600 Akureyri
568 7499 462 6662
Reykjavlkurvegl 72
220 Hafnarfjörður
565 5560
Holtagörðum v/Holtaveg
104Roykjavík
588 7499
Verðaðeins: