Morgunblaðið - 29.10.1999, Side 34
34 FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Listasafn fslands
Rómantík
Asgríms
og verk
Súmmara
I SAL 2 í Listasafni Islands verður opnuð sýn-
ing á myndum Ásgiíms Jónssonar úr Skafta-
fellssýslpm í dag, föstudag, kl. 17. Sýningin
nefnist I landi birtunnar og hefur að geyma um
40 myndir sem Asgrímur málaði á ferðum sínum
um Vestur- og Austur-Skaftafellssýslur sumurin
1910-12 og 1927. Flestar eru myndirnar unnar
með vatnslitum, og hafa margar þeiri’a ekki ver-
ið sýndar á opinberum vettvangi frá því að As-
gn'mur sýndi þær á sýningum sínum á fyrri
hluta aldarinnar.
Ásgrímur Jónsson er einn þeirra málara sem
lögðu grunn að landslagshefð í íslenskri myndl-
ist á fyrstu áratugum þessarar aldar og sá mál-
ari íslenskur sem mesta rækt hefur lagt við gerð
vatnslitamynda. Á ferðum sínum um Skaftafells-
sýslur málaði hann fjölda vatnslitamynda sem
eiga sér enga hliðstæðu í íslenskri myndlist, seg-
ir í fréttatilkynningu. Snortinn af hinu einstæða
landslagi, víðum sjóndeildarhringnum og birt-
unni sem stafar af jöklunum, túlkaði hann róm-
antíska sýn á landið þar sem náttúran er upp-
hafin og tignarleg.
Landslag og myndir, 1969, eftir Krislján
Guðmundsson, er eitt verkanna á sýningu
Súmmara í Listasafni Isiands.
í tilefni sýningarinnar hefur verið gefin út bók
með grein um þennan myndaflokk í list Ásgríms
eftir Júlíönu Gottskálksdóttur listfræðing. Bók-
ina prýða yfir 40 litmyndir.
Nánar verður fjallað um sýninguna í Lesbók á
morgun en hún stendur til 28. nóvember.
Fimm Súmmarar
Sýning á verkum fimm félaga SÚM-hópsins,
sem allir stóðu að opnun Gallerís SÚM fyrir 30
árum síðan, verður opnuð í stóra salnum í Lista-
safni Islands á morgun, laugardag. Þeir sem
eiga verk á sýningunni eru Jón Gunnar Ái-nason,
Magnús Tómasson, Hreinn Friðfinnsson og
bræðumir Kristján og Sigurður Guðmundssyn-
ir.
I febrúar á þessu ári voru 30 ár liðin frá því að
Gallerí Súm var opnað með sýningu Sigurðar
Guðmundssonar. Að stofnun þessa sýningarsal-
ar stóðu nokkrir ungir listamenn, sem myndað
höfðu með sér samtökin SÚM fjómm árum áður.
Stofnendur SÚM voru þeir Jón Gunnar Árna-
son, Sigurjón Jóhannsson, Hreinn Friðfinnsson
og Haukur Dór Sturluson, en fljótlega bættust
fleiri í hópinn. Þar á meðal vom þeir bræður Kri-
stján og Sigurður Guðmundssynir og Magnús
Tómasson, sem héldu allir einkasýningar á
fýrsta starfsári gallerísins, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Ennfremur segir: „Segja má að opnun Galler-
ís SÚM hafí markað upphaf ferils fimmmenn-
inganna sem fullþroska myndlistarmenn. Að
vísu höfðu Jón Gunnar Árnason og Hreinn
Friðfinnsson tekið þátt í fyrstu SÚM-sýning-
unni 1965 og bæði Jón Gunnar og Magnús
Tómasson höfðu haldið nokkrar minni einkasýn-
ingar og tekið þátt í samsýningum áður, en það
var með sýningunum í Gallerí SÚM 1969 sem
list þeirra allra tók afgerandi stefnubreytingu.
Þannig má segja að árið 1969 hafi verið tíma-
mótaár í íslenskri myndlist, en starfsemi gallerí
SÚM átti eftir að hafa mótandi áhrif á margt af
því markverðasta sem kom fram í íslenskri
myndlist næstu tvo áratugina.
Verkin á sýningunni, sem eru öll í eigu Lista-
safns Islands, spanna þrjá áratugi, og voru þau
elstu sýnd á opnunarári gallerí Súm 1969, en þau
yngstu eru frá þessu ári. Þau gefa ekki heil-
steypta mynd af þróun þessara listamanna, en
markmið sýningarinnar er að varpa ljósi á þau
tímamót sem elstu verkin mörkuðu á sínum tíma
um leið og við sjáum í þeim sögulegar forsendur
nýjustu verka þessara fjölhæfu listamanna."
Sýningin stendur til 28. nóvember.
Listasafn íslands er opið alla daga nema
mánudaga, frá kl. 11-17.
Fyrirlestr-
ar og nám-
skeið í LHÍ
ÁSMUNDUR Ásmundsson mynd-
listarmaður flytur fyrirlestur sinn,
„Criticism and Space“ í LHI mánu-
daginn 1. nóvem-
ber kl. 12.30 í
stofu 24 í Laugar-
nesi. I íyrirlestrin-
um leitast Ás-
mundur við að
svara spuming-
unni um hvert sé
eðli listgyðjunnar
og verða skyggn-
ur skoðaðar í því
samhengi.
Katrín Pálsdóttir iðnhönnuður
flytur iyrirlestur miðvikudaginn 3.
nóvember kl. 12.30 í LHÍ í Skipholti,
stofu 113. Þar fjallar hún um verk
ungra evrópskra hönnuða.
Samtímalistasaga er heiti á fyrir-
lestraröð um samtímamyndlist, sem
hefst þriðjudaginn 2. nóvember í
LHÍ, Skipholti 1. Tímabilið frá 1960-
1995 innanlands og utan verður
skoðað, skýringar á hugtökum s.s.
naumlist, Fluxus, popplist, o.s.frv. og
þeim róttæku breytingum sem orðið
hafa í myndlist. Fyrirlesari er Hall-
dór Bjöm Runólfsson, listfi-æðingur.
Námskeið
Námskeið í módelteikningu, fvrir
byijendur og lengra komna, hefst í
LHI, Skipholti 1 mánudaginn 1. nóv-
ember. Kennari er Hafdís Ólafsdótt-
Flugelda-
sýning
TONLIST
S a I u r i n n
SELLÓTÓNLEIKAR
Roman Jablonski og Richard Simm
fluttu verk eftir J.S. Bach, F. Coup-
erin, H.H. Jablonski, Peter Christ-
oskov, Debussy og Manuel de Falla.
Miðvikudagurinn 27. október, 1999.
PÓLSKI sellóleikarinn Roman
Jablonski er í heimsókn hér á landi
og stendur fýrir masterklassa nám-
skeiði við Tónlistarskólann í
Reykjavík og hélt tónleika sl. mið-
yikdagskvöld í Salnum og naut að-
stoðar Richard Simm píanóleikara
sem hefur starfað hér á landi um
nokkurra ára skeið. Á efnisskránni
voru fyrst þrjár umritanir fyrir
selló, unnar upp úr orgelverkum
eftir J.S. Bach. Fyrsta verkið var
adagio-þátturinn úr C-dúr tokköt-
unni BWV 564, sem er eina þriggja
þátta verkið í prelúdíunum og tokk-
ötunum, sem annars eru venjulega
tveir þættir. Annað verkið var sagt
vera resitativ úr orgelkonsert nr. 3,
sem væntanlega er úr konsert eftir
Marcello. Bach umritaði 16 kon-
serta eftir ýmis tónskáld en samdi
engan slíkan sjálfur. Síðasta umrit-
unin er á kóralforspili úr Orgel-
Buchlein, yfir sálminn Ich ruf| zu
dir, BWV 639, en öll verkin voru
mjög vel leikin, þó það verði að segj-
ast eins og er, að tónles umritunin
(á Marcello konsertinum?) var ekki
neitt svipuð því tónmáli, sem er að-
all meistarans, sem sagt „J.S. Bach
var ekki þar“. Bæði adagio-þáttur-
inn og kóralforspilið var fallega
flutt og sama má segja um Konsert-
verk eftir F. Couperin, fimm þátta
svítu, fallegt verk, er var sérlega vel
flutt, einkum leikandi Siscilano-
dansþátturinn og Plainte, hljóðlátar
harmatölur, þar sem undurfagur
sellótónn Jablonskis var syngjandi
fagur. Þá var frískleikinn í La
tromba og djöflaaríunni vel mótað-
ur, þó píanóið, sem er margfalt
hljómmeira en semballinn á tímum
Couperin, væri á köflum einum of
hljómsterkt fyrir sellóið.
Fjórar caprísur fyrir einleikandi
selló, eftir föður einleikarans, voru
næst á efnisskránni. Þetta eru
skemmtileg verk, vel samin fyrir
selló, og áheyrileg tónlist, sem var
afburða vel leikin. Eftir Peter
Christoskov, búlgarskan tónsmið,
lék Jablonski fantasíu op. 15, fyrir
einleikandi selló og var flutningui-
Jablonski hrein flugeldasýning.
Aðalviðfangsefni tónleikanna var
sellósónatan eftir Debussy, sem
hann semur 1915 og mun hann hafa
haft í hyggju að semja sex sónötur
fýrir ýmis hljóðfæri en lauk aðeins
við þrjú verk og er sellósónatan
fyrsta sónatan. Ari seinna samdi
hann sónötuna fyrir flautu, lágfiðlu
og hörpu, sem er meistaraverk en
síðasta var fiðlusónatan og þóttust
gagnrýnendur finna í henni merki
um þreytu hjá tónskáldinu. Verkið
er í þremur samtengdum köflum og
í raun er verkið klassísk að formi og
eins og Debussy sagði sjálfur „í
bestu merkingu orðsins“. Verkið
var glæsilega flutt en víða má heyra
píanistann Debussy útfæra vald sitt
yfir píanóinu, sem var mjög vel mót-
að af Richard Simm, einkum loka-
þátturinn, sem á köflum er „píanó-
sónata“.
Það sama má segja um spánska
svítu eftir Mauel de Falla, þar var
píanóið, af eðlilegum ástæðum,
miklu fýrirferðarmeira en sellóið,
þó sellóið fengi einstaka sinnum að
syngja með. Roman Jablonski er
frábær sellisti, sem kom hvað best
fram í einleiksverkunum, sérstak-
lega í verki föður hans og Christos-
kov, sem var í raun flugeldasýning
og í sellósónötunni eftir Debussy,
þar sem músíkin var í fyrirrúmi, en
einnig í barokkverkunum, eftir J.S.
Bach og Couperin. Richard Simm
átti og góðan dag, sérstaklega í
Debussy, í lokakaflanum og einnig í
spönsku svítunni. Samspil þeirra
var með ágætum en bæði í sónöt-
unni eftir Debussy og sérstaklega
þó spönsku svítunni, eftir Falla, er
mikið um hrynbreytingar, sem voru
mjög vel útfærðar. Þetta voru þann-
ig tónleikar, að fróðlegt væri að
heyra þessa ágætu tónlistarmenn
leika meira af tónlist, er stendur í
tíma á milli barokks og nútíma tón-
listar.
Jón Ásgeirsson
ir myndlistarmaður.
Kynning á ýmsum efnum og
áhöldum í myndgerð hefst í húsnæði
LHÍ í Skipholti 1 þriðjudaginn 2.
nóvember. Unnið verður með efni
svo sem blek, vatnslit, akiýl- og
þekjulit, lakk, vax ofl. Kennari er
Sigurborg Stefánsdóttir.
Úr Oliver Twist í uppsetningu Leikfélags Keflavíkur.
Oliver Twist
í Frumu-
leikhúsinu
Skólatonleikar
Tónlistarskólinn
í Bessastaðahreppi
TÓNLISTARSKÓLI
Bessastaðahrepps heldur sína
árlegu tónleika í tilefni af degi
tónlistarinnar, á morgun, laug-
ardag, kl. 11 í sal íþróttahúss-
ins. Efnisskráin er helguð ís-
lenskri tónlist.
Tónskóli Eddu Borg
Tónskóli Eddu Borg heldur
ferna tónleika í Seljakirkju í
dag, laugardag: kl. 12, kl. 13,
kl. 14 og kl. 15. Nemendur á
öllum aldri koma fram bæði í
einleik og samleik.
Kynning á listvefnaði
í Meistara Jakobi
SÖN GLEIKURINN Oliver Twist
eftir Lionel Bart verður
frumsýndur af Leikfélagi Kefla-
víkur, íFrumleikhúsinu, Vestur-
götu 7, á morgun, laugardag, kl.
17. Leikritið er byggt á sögu
Charles Dickens um munaðar-
leysingjann Oliver Twist.
Alls koma hátt í 60 manns að
uppsetningunni á einn eða annan
hátt en leikarar eru 35. Með hlut-
verk Olivers fer Tinna Kristjáns-
dóttir, 15 ára Keflavíkurmær.
Leikstjóri er Þröstur Guðbjarts-
son en tónlistarstjóri og undir-
leikari er Einar Örn Einarsson.
Þetta er ein viðamesta sýning
sem Ieikfélagið hefur sett upp og
sú langviðamesta og fjölmenn-
asta frá því Frumuleikhúsið var
tekið í notkun fyrir rúmum
tveimur árum, segir í fréttatil-
kynningu.
Næstu sýningar eru sunnudag-
inn 31. október kl. 17, miðviku-
daginn 3. nóvember kl. 20 og
fímmtudaginn 4. nóvember kl.
20.
KYNNING á listvefnaði eft-
ir Þorbjörgu Þórðardóttur
verður opnuð í dag í Meist-
ara Jakobi, listhúsi, á Skóla-
vörðustíg 5. Ennfremur
verða kynnt þau efni sem
hún notar í verk sín.
Þorbjörg stundaði mynd-
listarnám við Myndlista- og
handíðaskóla Islands og
framhaldsnám við Konst-
fackskolann HKS í Stokk-
hólmi. Hún hefur unnið lengi
að list sinni, haldið einkasýn-
ingar og tekið þátt í fjölda
samsýninga hér á landi og
erlendis. Mörg verka
Þorbjargar eru í eigu safna
og opinberra stofnana.
Sýningin stendur til 9.
nóvember og er opin virka
daga kl. 11-18, laugardaga
kl. 11-14.
Þorbjörg Þórðar-
dóttir við verk sitt
Hraunstreymi.