Morgunblaðið - 29.10.1999, Side 64
;64 FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1999
/1
MORGUNBLAÐIÐ
BRIÐS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Stórmót Bridsfélagsins Munins
og Samvinnuferða/Landsýnar
i Stórmót Bridsfélagsins Munins
og Samvinnuferða/Landsýnar verð-
ur haldið laugardaginn 20. nóvem-
ber kl. 10 í húsi félagsins á Mána-
grund við Sandgerðisveg.
1. verðlaun verða kr. 70.000 á par,
2. verðlaun kr. 50.000 á par, 3. verð-
laun kr. 20.000 á par, 4. verðlaun kr.
10.000 á par, 5. verðlaun kr. 6.000 á
par.
Einnig verður dreginn út ferða-
vinningur að verðmæti 50.000 fyrir
eitt par og eiga öll pör möguleika á
að vera dregin út. Handhafi gjafa-
bréfanna hefur til umráða ferð með
leiguflugi S/L haustið 1999 eða í
leiguflugi S/L sumarið 2000 að and-
virði 25.000 x 2. Einnig verða
dregnir út 2 matarvinningar.
Keppnisgjald er kr. 6.000 á par,
spilað verður Monrad Barometer.
Keppnisstjóri verður Sveinn Rúnar
Eiríksson. Skráning er hjá Víði
Jónssyni í síma 423 7628 eða
423 7623, Ævari Jónassyni í síma
423 7967 eða 422 7444 og Svölu
Pálsdóttur í síma 421 6159 eða
4214500. Einnig er hægt að skrá
sig hjá BSÍ í síma 587 9360.
Bridsfélag
Hafnarfjarðar
Spilaður var eins kvölds tvímenn-
v ingur hjá félaginu mánudaginn 25.
október með þátttöku 12 para. Úr-
slit urðu þannig:
Miðlungur 165
Guðni Ingvarsson - Sigurður Sigurjónsson 194
Sigurjón Harðarson - Haukur Arnason 191
Gunnlaugur Óskarsson - Högni Friðþjófsson 182
Næsta mánudagskvöld hefst síð-
an aðalsveitakeppni félagsins, en
þar verður Butler-árangur para
reiknaður út. Akveðið hefur verið
að tvö efstu pör í Butler-tvímenn-
ingi, sem væntanlega verður spilað-
* ur eftir áramót, vinni sér inn rétt til
að spila fyrir hönd félagsins í kjör-
dæmakeppninni í vor, en þriðja par
komi inn á árangri úr Butlerreikn-
ingi sveitakeppninnar. Byrjað verð-
ur að spila kl. 19. Spilastaður er enn
sem áður Hraunholt, Dalshrauni 15.
Dagskrá undankeppni
Islandsmóts í tvímenningi
Undankeppnin verður spiluð
helgina 30.-31. okt. 31 par komast í
úrslitin sem verða spiluð 13.-14.
nóv.
Dagskrá:
Laugardagur kl. 11-15.30 1. lota
kl. 17-21.30 2. lota
Sunnudagur kl. 11-15.30 3. lota
Skráning í s. 587 9360 eða is-
bridge@islandia.is
Islandsmót (h)eldri
og yngri spilara
í tvímenningi verður spilað í
Þönglabakkanum helgina 6.-7. nóv.
Lágmarksaldur er 50 ár og saman-
lagður aldur parsins minnst 110 ár.
Islandsmót yngri spHara í tví-
menningi verður einnig 6.-7. nóv. í
flokki yngri spilara eru þátttakend-
ur fæddir 1975 eða síðar. Þátttaka
er ókeypis. Bæði mótin byrja kl. 11
á laugardag. Skráning í s. 587 9360
eða isbridge@islandia.is
Kjartan og Stefán langefstir
hjá Bridsfélagi Suðurnesja
Kjartan Ólason og Stefán Jóns-
son eru langefstir í 13 para
barometer-tvímenningi sem hófst
sl. mánudagskvöld. Reyndar er
staðan sú að 5 pör eru með plús en 8
pör með mínus.
Kjartan og Stefán skoruðu 48 yfír
meðalskor en Randver Ragnarsson
og Pétur Júlíusson eru með 11. Þá
koma Sigurður Albertsson og Jó-
hann Benediktsson með 10, Garðar
Garðarsson og óli Þór Kjartansson
eru með 5 og Gunnlaugur Sævars-
son og Svala K. Páladóttir eru með
2. Þar með eru upptalin plússkorin.
Annað kvöldið af þremur verður
spilað nk. mánudagskvöld og hefst
spilamennskan stundvíslega kl.
19.45. Spilað er í félagsheimilinu við
gamla Sandgerðisveginn.
O R E G O N
SCIENTIFIC
í DAG
VELVAKAMII
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Sjúkraskýrslur -
skattaskýrslur
ÞAÐ er sannarlega ámæl-
isvert að sjúkraskýrslur
skuli hafa legið á glám-
bekk á Heilsuverndar-
stöðinni. Það er hins veg-
ar enn ámælisverðara að
fólk skuli með löglegum
hætti geta grandskoðað
skattaskýrslur og árstekj-
ur annarra.
Rétturinn til persónu-
leyndar varðandi heilsufar
og fjármál er viðurkennd-
ur í stærstum hluta hins
siðmenntaða vestræna
heims og brot gegn hon-
um getur leitt til þungra
sekta.
Komi nágranna mínum
við hvað ég hef í tekjur
því má ég ekki vita hvort
hann hafi gyllinæð?
Moshe Erlendur Okon,
afbrotafræðingur.
Móðir rangtúlkuð
UNDANFARIÐ hafa ver-
ið skrif í dagblöðum vegna
aðgerða yfínnanns Dom-
inos-pitsustaðar er hann
lét ungan dreng vinna upp
í skaða sem hann olli
vegna símaats.
Móðir drengins hafði
samband við Velvakanda
og vildi hún koma því á
framfæri að sér fyndist
fólk rangtúlka aðgerðir
hennar. Segir hún að með
því að láta blöðin vita um
þetta mál á sínum tíma,
hafí hún viljað að yfir-
menn Dominos fengju að
vita um atburðinn og að
benda þeim á að nota ætti
önnur vinnubrögð í svona
tilfellum. Segir hún að það
sé ekki rétt að hún vilji of-
vernda drenginn, hún hafí
ekkert á móti því að hann
vinni fyrir þeim skaða
sem hann valdi, en hún
hafi ekki verið sátt við
framkvæmdina á því.
Drengurinn sé undir lög-
aldri og það hefði átt að
hafa samband og samráð
við foreldra. Segist hún
hafa fengið fréttir af
þessu frá þeim aðila sem
fyrir atinu varð og hafi
hún þá þegar reynt að ná
sambandi við drenginn í
GSM-símann hans, en
ekki tekist þar sem hann
hafi verið búinn að
slökkva á honum. Einnig
segir hún það alvarlegt
mál að láta svo ungan
dreng vinna við steiking-
arpott, hún mundi aldrei
láta 13 ára gamalt barn
standa við steikingarpott.
Lúðrasveit æskunnar
SUNNUDAGINN 17.
október varð ég þeirrar
ánægju aðnjótandi að
hlusta á Lúðrasveit æsk-
unnar spila á landsmóti
skólalúðrasveita á
Blönduósi. Stjórnandi var
Kjartan Óskarsson.
Það undrar mig að
Lúðrasveit æskunnar
skuli ekki koma oftar
saman og spila og að
sveitin skuli ekki hafa
fastan stjórnanda. Eins að
lúðrasveit í slíkum gæða-
flokki skuli ekki ferðast
og leika erlendis.
Eg hef 30 ára reynslu af
lúðrasveitum og kennslu
og ég mæli með að Lúðra-
sveit æskunnar fái varan-
legan fjárstuðning og
stjórnanda svo sveitin geti
haldið tónleika reglulega.
Finnst að þessir ungu
hljóðfæraleikara eigi heið-
ur skilið.
Mike Jones.
Rússagullið
FORVITINN hafði sam-
band við Velvakanda og
sagði að gæti verið gaman
að framreikna þær millj-
ónir sem Rússar létu af
hendi til kommúnista-
flokksins fyrir mörgum
áratugum. Það gætu verið
býsna áhugaverðar tölur.
Tapað/fundíð
Gleraugu í gulu
hulstri í óskilum
GLERAUGU í skærgulu
gleraugnahulstri eru í
óskilum í afgreiðslu Lista-
safns Islands. Upplýsing-
ar í síma 562 1000.
Grænn plastbátur og
jakki týndust
LITILL grænn plastbát-
ur 2ja-3ja manna týndist í
Grundarhverfi á Kjalar-
nesi í rokinu sl. þriðjudag.
Einnig týndist svartur
dömujakki í september sl.
á busaballi Menntaskól-
ans við Sund. Einkenni á
jakkanum er að það vant-
ar miðann innan á háls-
málið. Skilvísir finnendur
eru vinsamlega beðnir að
hringja í Ásdísi í síma
566 7548.
Huffy hjól í óskilum
í Garðabæ
FJÓLUBLÁTT og svart
Huffy drengjahjól með
appelsínugulum stöfum er
í óskilum í Garðabæ. Upp-
lýsingar í síma 565 7469
eftir kl. 19.
Þakkir
ÞEIM sem fann þennan
hund á víðavangi fyrir ut-
an borgina síðstliðna
helgi, eru færðar bestu
þakkir. Jafnframt viljum
við eigendur hundsins,
gjarnan ná sambandi við
finnandann og biðjum við
hann að hafa samband við
okkur í síma 561 1129.
Sara er týnd
SARA er eins árs brún-
bröndótt læða sem fór að
heiman frá Flókagötu
seinnipart fimmtudagsins
21. október. Hún var þá
með ljósgræna ól með
dökkgrænu nafnamerki.
Líkur eru á því að hún sé
nýorðin kettlingafull. Ef
einhver hefur séð hana er
hann vinsamlega beðinn
að láta vita í síma
551 6207.
Veðurspátæki
Með iimi- og útihitamæli,
rakamæli, kliikkii eða vekjaraklukku
K yn n i ng föstud ag
13-18 í Skútuvogsverslun
Nú er hægt að fá veðurspátæki sem spá 12-24 klst. fram
í tímann og gefa þér aðrar nytsamar upplýsingar um
veðrið. Tækin bjóða m.a. upp á súlurit yfír loftþrýsting sl.
24 klst. stöðu loftþrýstings í mb. Tækjunum fylgja
vegg og borðfestingar.
Verð frá aðeins
4.990k,
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
-St
SKAK
Umsjón lyiargeir
Pétnrssnn
STAÐAN kom upp í þýsku
Bundesligunni í haust í
viðureign tveggja stór-
meistara. Englendingurinn
Julian Hodgson hafði hvítt
og átti leik gegn Þjóðverj-
anum Slobodjan, sem var
að enda við að drepa ban-
eitrað peð á d4 með biskup
sem stóð á b6. Rétt var
hins vegar 27. - Rc8-d6 og
svartur getur varist.
iin
j i
4 a
^ 11
It m Bm
m m .
m mm
28. He8! og svartur gafst
upp, því hann er óverjandi
mát á g7.
Hvítur mátar
í þriðja leik.
Víkverji skrifar...
MENN geta lent í hlægilegum
aðstæðum ef þeir trassa hlut-
ina eins og einn af viðmælendum
Víkveija komst að fyrir skömmu.
Hann býr í blokk og á gamlan
„aukabíl" sem ekki á eftir að vera á
hjólunum í mörg ár en getur stund-
um komið í góðar þarfir.
Eigandanum brá í brún einn dag-
inn þegar hann sá að bíllinn var ekki
í stæðinu sem honum hafði verið lagt
í heldur stæðinu andspænis. Skýi'-
ingin var sú að menn sem voru að
gera við glugga í húsinu höfðu þurft
að koma kranabíl sínum fyrir ná-
kvæmlega á staðnum þar sem gamli
fararskjótinn var. Þeir höfðu engar
vöflur á heldur tóku upp lykla sem
reyndust duga til að opna bflinn. Síð-
an ýttu þeir honum yfir á hitt stæðið.
En hvers vegna brást eigandinn
ekki illur við, kallaði á lögreglu og
skammaði mennina hástöfum fyrir
að kanna ekki að minnsta kosti hver
ætti gripinn, hringja síðan bjöllunni
og spyrja hvort hægt væri að færa
hann (eiginkonan var heima)?
Vegna þess að hann hafði trassað að
láta skoða í hálft ár fram yfír réttan
tíma og vildi ekki fara að vekja at-
hygli lögreglunnar. Hún hefði kom-
ið - og umsvifalaust klippt!
XXX
VÍKVERJI dagsins notar ekki
tóbak, er löngu frelsaður. En
honum finnst það alveg makalaus
afskiptasemi að bannað skuli að
flytja inn munntóbak. Hann las í
blaðinu sínu að tollgæslan á Kefla-
víkurflugvelli hefði unnið það afrek
að leggja hald á 68 kfló af þessari
háskalegu vöru það sem af væri ár-
inu. Var skýrt frá því í fréttinni að
innflutningurinn væri bannaður
með lögum um tóbaksvarnir frá
1984. Ekki væri gengið svo langt að
leita í farangri farþega að munntó-
bakinu enda leyndi það sér ekki í
gegnumlýsingu.
Mikill var léttir Víkverja. Alveg
væri það voðalegt ef auðvelt væri að
leyna á sér þessu nautnalyfi sem
allir vita að dregur stundum stór-
lega úr þeim samskiptum kynjanna
sem einhver lítið rómantískur líf-
fræðingur skilgreindi einu sinni:
Karl og kona nudda saman efri
meltingaropunum.
En getur það virkilega verið
nauðsynlegt að ríkisvald sem hagn-
ast gríðarlega á því að selja okkur
áfengi og sígarettur skuli þurfa að
vera með svona tvískinnung? Böm
og unglingar gætu spurt hvernig við
höfum efni á að verja vinnutíma op-
inberra starfsmanna í að verjast
munntóbakshættunni en ekki sé
hægt að koma í veg fyrir að inn-
flutningur á eiturlyfjum eins og e-
töflum vaxi ár frá ári. Ekki gæti
Víkverji útskýrt forgangsröðunina.
DÖNSK sjónvarpsmynd um
óhóflegt sykurát barna og ung-
linga þar í landi og afleiðingar þess
á líkamlega og andlega heilsu neyt-
endanna kom upp í huga Víkverja.
Hann sá nefnilega að enn hefur
opnast ný leið til að auka sykur-
neysluna hér. Boðið er upp á súr-
mjólk sem búið er að „bragðbæta“
eins og það er nefnt, með jarðar-
berja- eða karamellubragði.
Öllum er ljóst að Mjólkursamsal-
an þarf að keppa við ýmsar aðrar
neysluvörur, ódýran erlendan
skyndimat, gosdrykki og hvaðeina.
En Víkverji myndi fagna því ef fyr-
irtækið, sem hefur lagt fram góðan
skerf í baráttunni fyrir málvitund
okkar og menningaráhuga, efndi nú
til nýrrar herferðar. Hún gæti líka
farið fram á umbúðunum. Þar væri
hægt að fræða fólk um fjölda sykur-
molanna í innihaldinu og hvaða
áhrif þeir hefðu, önnur en stundar-
vellíðanina sem við finnum flest til
þegar sætan kitlar bragðlaukana.
Þetta er ekki sagt í stríðni. Fyrir-
tækið gæti vel kannað hvort það
gæti reynt að vera fyrirmynd fyrir
keppinautana í þessum efnum, jafn-
vel þótt það yrði á vissan hátt að
rakka niður eigin framleiðslu. Væri
það ekki einhvers virði að geta talið
nokkra fáfróða neytendur á að nota
stundum afurð sem ekki er búið að
„bragðbæta?