Morgunblaðið - 29.10.1999, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. OKTÓBER 1999 67
----------------------------h
FOLKI FRETTUM
Stutt
Reynir að
hafa fé af
Jackson
ÞJÓFUR braust inn á hótelher-
bergi Michael Jackson í júlímánuði
og stal myndböndum þar sem
Michael leikur
við börn sín tvö,
Prince Michael
Jr og Paris-
Michael Kather-
ine. Nú hefur
þjófurinn gert
vart við sig og
samkvæmt tals-
manni Jackson,
Howard Rub-
instein, fer hann
fram á 100 þús-
und dollara fyr-
ir myndböndin.
„Þessi mynd-
bönd hafa mikið
Reuters
Jackson
ætlar ekki
að borga
krónu til
fjárkúgar-
ans.
tilfinningalegt gildi fyrir Michael,"
segir Rubinstein sem segir þjófinn
einnig hafa haft samband við
bandarísk tímarit. „Michael mun
reyna allt til þess að spoma gegn
því að myndböndin komist í hendur
fjölmiðla tO að vernda einkalíf
barna sinna, en það kemur ekki til
greina að bregðast við þessari fjár-
kúgun með peningagreiðslu."
Hver er
framtíðin?
KVIKMYNDIR/Rómantíska gamanmyndin „Runaway Bride“ með Julia Roberts og
Richard Gere er frumsýnd í Bíóhöllinni, Kringlubíói, Stjörnubíói, Nýja bíói Keflavík og
Borgarbíói Akureyri.
Makalaus brúður
Frumsýning
IKE Graham (Richard Gere) er
dálkahöfundur í New York
sem á við nokkur vandamál að
stríða. Það er klukkutími þar til
hann á að skila af sér næstu grein,
fyiTum eiginkona hans er yfirmað-
ur hans og hann getur ekki komið
orði á blað. Hann leitar hælis á
næsta bar þar sem hann heyrir
furðulega sögu af ungri konu í
sveitinni í Maryland sem heitir
Maggie (Julia Roberts) og er þekkt
fyrir að hlaupa frá tilvonandi eigin-
mönnum þegar kemur að giftingu
og skilja þá eina eftir uppi við al-
tarið.
Ike skrifar um konu þessa og at-
vikin haga því þannig til að hann
heldur til bæjarins Hale í Maryl-
and, heimabæ hennar. Þegar hún
sér tilskrifín ákveður hún að jafna
við hann sakimar. Þau kynnast og
Ike kemst að því að það er miklu
meira spunnið í hana en kjaftasög-
urnar herma.
Þetta er söguþráðurinn í róman-
tísku gamanmyndinni „Runaway
Bride“ með Richard Gere og Julia
Roberts í leikstjórn Garry Mars-
hall en síðast þegar þríeyki þetta
starfaði saman varð útkoman önn-
ur rómantísk gamanmynd sem hét
„Pretty Woman“ og náði vinsæld-
um. Með önnur hlutverk í nýju
myndinni fara Joan Cusack, Hector
Elizondo, Rita Wilson og Paul
Dooley.
Roberts og Gere höfðu rætt það í
mörg ár að leika saman aftur í bíó-
mynd eftir að þau náðu svo vel sam-
an í „Pretty Woman“. „Þegar mér
var sent handritið að „Runaway
Bride“,“ er haft eftir Julia Roberts,
„og því fylgdi athugasemd um að
Richard líkaði það vel, var það nóg
til þess að ég vakti frameftir og las
það. Mér fannst það heillandi og
mjög fyndið."
Leikararnir hringdu í gamla leik-
stjórann sinn þegar þeir höfðu
komið sér saman um að „Runaway
Bride“ væri myndin sem þá langaði
til þess að leika í saman og hann tók
þeim fagnandi. „Við vissum að við
mundum vera í góðum höndum,“ er
haft eftir Gere.
Þegar þau þrjú mættu á tökustað
urðu fagnaðarfundir og rifjaðar
voru upp góðar stundir sem þau
áttu saman við gerð „Pretty Wom-
an“. Og vinnan gekk einnig ágæt-
lega fyrir sig. „Julia og Richard
höfðu ekki unnið saman í næstum
tíu ár en efnasambandið milli
þeirra var enn til staðar,“ er haft
eftir Marshall. „Þau hafa bæði
þroskast sem leikstjórar og hafa
Julia Roberts og Richard
Gere sameina aftur krafta
sína í Runaway Bride.
þetta sem Tracy og
Hepburn höfðu á únd-
an þeim þótt gamanið í
þessari mynd minnti
stundum reyndar á
Gög og Gokke.“
Marshall segir: „Það
er mikið af gamansemi
í myndinni pg mikið af
rómantík. Ég vona að
áhorfendur fari út af
henni með þá tilfinn-
ingu að það þarf ekki
að rembast við að upp-
götva ástina heldur
kemur hún frá hjart-
anu.“
•M '
Roberts leikur ungu kon-
una Maggie sem hér er í
fullum skrúða.
Hættu að raka á þér fótleggina!
Notaðu One Touch háreyðingarkrem! Sársaukalaus ogfljótleg
aðferð sem skýrir vinsældir One Touch á íslandi í 12 ár.
Reuters
Smith á leið inn í réttar-
salinn.
ANNA Nicole Smith vakti athygli
umheimsins þegar hún giftist
milljónamæringnum Howard
Marshall sem hefði getað verið afi
hennar. Smith hafði verið fyrir-
sæta og valin leikfang ársins 1992
á síðum Playboy. Eftir lát Mars-
hall var talsverð umræða vestan-
hafs um gullgrafara á hjóna-
bandsmarkaðnum, enda þótti
ráðahagurinn sérkennilegur. En
ekki hefur Önnu gengið allt í hag-
inn því á miðvikudaginn mætti
hún fyrir rétti vegna gjaldþrots.
Lögfræðingur Smith fór fram á
820 milljón dollara greiðslu úr
dánarbúi Marshall, en lögfræðing-
ur sonar Marshall sagði þá kröfu
„hreina firru“ og að Smith ætti
ekki skilið að fá eyri af arfinum
eftir þetta 14 mánaða hjónaband
með föður hans, en Marshall dó
árið 1995 þá 89 ára að aldri. Engin
niðurstaða er því komin í mál
Smith og því ekki víst hvort fram-
haldið verður gjaldþrot eða ríki-
dæmi.
Símtal við
skurðarborðið
SKURÐLÆKNI í Hong Kong var
vikið frá störfum eftir að hann svar-
aði farsíma sínum þegar hann var í
miðri aðgerð. Sjúklingurinn Chung
Chicheong sem lá á skurðarborðinu
sagði í samtali við þai’lenda fjöl-
miðla að hann hefði heyrt símasam-
tal læknisins þrátt fyrir að vera
undir áhrifum deyfilyfja. „Ég varð
undrandi því símtalið tengdist ekki
aðgerðinni sem hann var að fram-
kvæma heldur var verið að spá í
bílakaup og kostnað þeim tengd-
um.“ Sjúklingurinn fékk afsökun-
arbeiðni frá yfirvöldum Queen
Mary sjúkrahússins, en verið er að
íhuga hvort símtal læknisins hafi
frekari eftirmála.
Sensitive
fyrir
viokoæma
húð
Regular
rir
venr
úð
VERSLUNIN HÆTTIR
ALLT Á AÐ SELJAST
Dæmi um verö:
Skór 500 - Bolir 990 - Síöbuxur 500 - Peysur 990
Bakpokar 990 - Úlpur 2.990 - íþróttagallar 1.990
Opið:
Mán.-fös. 10-18
Laugardasa 10-16
iþrótt
Skipholti 50d, sími 562 0025.
/HlZlflD