Morgunblaðið - 18.11.1999, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ
4 FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1999
FRÉTTIR
Aðgangxir veittur að bréfum lögmanns Orca og Fjármálaeftirlitsins um kaup á hlut í FBA
Itrekað neitað að veita Fjár-
máiaeftirlitinu upplýsingar
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ afhenti Morgunblað-
inu í gær afrit af bréfaskiptum sínum og lög-
manns eignarhaldsfélagsins Orca SA, sem keypti
í ágúst síðastliðnum 26,5% hlutafjár í Fjárfest-
ingarbanka atvinnulífsins. Urskurðamefnd um
upplýsingamál úrskurðaði sl. föstudag að Fjár-
málaeftirlitinu bæri að veita blaðinu aðgang að
umbeðnum bréfaskiptum. Eftirlitið hafði hafnað
því 8. október að afhenda afrit af bréfunum og
var sú ákvörðun þess kærð til úrskurðarnefndar-
innar 13. október.
I bréfaskiptunum kemur fram að Orca hafnar
ítrekuðum óskum Fjármálaeftirlitsins um upp-
lýsingar, fyrst um hverjir séu eigendur Orca og
síðar um alla samninga sem gerðir voru í tengsl-
um við þessi viðskipti. Fjármálaeftirlitið sneri sér
að lokum til Kaupþings með ósk um að fá afrit af
kaupsamningum. Lét Kaupþing Fjármálaeftirlit-
inu í té umbeðin gögn.
Hinn 4. ágúst ritar Gestur Jónsson hæstarétt-
arlögmaður Fjármálaeftirlitinu og tilkynnir að
vegna kaupa eignarhaldsfélagsins Orca SA, sem
skráð sé í Lúxemborg, á 26,5% hlutafjár í FBA
skuli upplýst að þeir Jón Ásgeir Jóhannesson,
Jón Ólafsson og Þorsteinn Már Baldvinsson
standi að stofnun félagsins. Verði þeir eða fyrir-
tæki tengd þeim hluthafar félagsins ásamt hópi
fjárfesta en ekki sé afráðið þá hverjir það verði.
Upplýsir Gestur einnig að hann sé formaður
stjómar félagsins og að greiðslur muni fara fram
20. ágúst og þá muni samsetning hluthafahópsins
liggja fyrir.
Daginn eftir óskar Fjármálaeftirlitið eftir því
við Gest Jónsson að fá staðfestar upplýsingar um
leið og þær liggi fyrir hverjir séu hluthafar í Orca
SA. Fjármálaeftirlitið skrifar Gesti á ný 12. ágúst
og óskar eftir upplýsingum um eigendur Orca SA
og hver sé hlutur Armúla Holding AS í samning-
um um kaup Orca SA á hlut í FBA.
Neitaði í fyrstu að
upplýsa um eigendur
Verðbréfaþing Islands hafði tveimur dögum
áður skrifað Fjármálareftirlitinu eftir að hafa
móttekið tilkynningu frá Gesti Jónssyni um kaup
Orca SA á umræddum hlut í FBA. Taldi VÞÍ til-
kynninguna ófullnægjandi þar sem ekki væri
gerð grein fyrir því hverjir stæðu að Orca SA.
Segir í bréfí VÞÍ að óskað hefði verið eftir þeim
upplýsingum frá lögmanninum og þær ítrekaðar.
Hefði einnig verið farið fram á þær upplýsingar
við Gest eftir að fram kom í frétt í Morgunblað-
inu 4. ágúst hverjir stæðu að Orca SA. Hann
hefði hvorki viljað staðfesta hvort þær væru rétt-
ar eða rangar. Taldi VÞI að trúnaðarupplýsingar
hefðu lekið út, brýnt væri að huga að jafnræði
fjárfesta og því hefði verið ákveðið að loka fyrir
viðskipti í FBA þann dag.
Gestur Jónsson tilkynnti VÞI 6. ágúst að upp-
lýsingar um eigendur Orca SA yrðu birtar 20.
ágúst. Taldi VÞI sig ekki hafa frekari úrræði ti!
að meta hvort ákvæði laga eða reglna, sem giltu á
verðbréfamarkaði, hefðu verið brotin og ritaði
því Fjármálaeftirlitinu sem aftur ritaði Gesti og
bauð honum að gera grein fyrir sjónarmiðum
Orca SA.
I bréfi 13. ágúst segir Gestur það skilning um-
bjóðenda sinna að tilkynna beri um eiganda
hlutabréfa, og sé eigandi hlutafélag, beri að til-
kynna um tilvist þess. Telur hann lagareglur
ekki styðja að upplýsa beri hverjir eigi hlut í
hlutafélögum sem eru eigendur hlutabréfa í
skráðum félögum.
Fjármálaeftirlitið ítrekar í bréfi 17. ágúst óskir
sínar um staðfestar upplýsingar um hluthafa í
Orca SA og í bréfi 26. ágúst er óskað upplýsinga
um eignarhaldsfélagið Armúli Holding SA og
óskað eftir afriti af öllum samningum vegna
kaupa Orca SA á hlut í FBA. Þessu svarar Gest-
ur Jónsson daginn eftir og tilgreinir fjóra menn
sem sitji í stjórn Orca SA og hafi þeir greitt að
jöfnu 1,8 milljóna króna hlutafé. Þeir eru Eyjólf-
ur Sveinsson, Jón Ásgeir Jóhannesson, Jón
Ólafsson og Þorsteinn Már Baldvinsson. Ætlunin
sé að hlutaféð dreifist á stærri hóp manna og fé-
laga. Jafnframt útskýrir lögmaðurinn að Ármúli
Holding í Lúxemborg hafi verið dótturfélag
Scandinavia Holding og hafi verið stofnað um
hlutabréfaeign þess í FBA. Orca hafi keypt allt
hlutafé Ármúla Holding og muni það framvegis
heita FBA Holding og að í því sitji sömu stjórn-
armenn og í Orca SA.
Hafnaði ósk um afrit af öllum samningum
Fjármálaeftirlitið sendir Gesti Jónssyni
símbréf 30. ágúst og ítrekar fyrri beiðni um afrit
af öllum samningum varðandi kaup Orca SA á
eignarhlut í FBA. Svarar Gestur því með því að
benda á að lög nr. 113/1996, sem Fjármálaeftirlit-
ið hafði vísað til, eigi einungis við um viðskipta-
banka og sparisjóði en FBA sé hvorugt. Lög nr.
123/1993 eigi hins vegar við um FBA en lögmað-
urinn telur tilvísun Fjármálaeftirlitsins til þeirra
laga vera á misskilningi byggða. Taki tilvitnuð
grein m.a. til veitinga og afturköllunar starfsleyf-
is lánastofnunar en Orca SA sé ekki lánastofnun
og mun ekki sækja um starfsleyfi. Óskai' hann
eftir nánari rökstuðningi Fjármálaeftirlitsins við
kröfunni um afhendingu upplýsinga og hvort
unnt sé að tryggja trúnað varðandi gögn sem
kynnu að verða afhent, m.a. hvort hugsanlegt sé
að skylt sé að afhenda þau fjölmiðlum komi fram
um það krafa.
Þessu svarar Fjármálaeftirlitið 3. september
og færir rök fyrir því að hvorutveggja lögin sem
áður var vísað til eigi við um máléfni kaupa Orca
á hlut í FBA og því sé Fjármálaeftirlitinu nauð-
synlegt að fá aðgang að öllum gögnum um samn-
inga til að því sé unnt að sinna lögboðnu hlut-
verki sínu.
Þann 15. september skrifar Fjármálaeftirlitið
enn Gesti varðandi lokaítrekun um ósk um upp-
lýsingar. Þessum bréfum svarar hann 21. sept-
ember og telur lögskýringar Fjármálaeftirlitsins
langsóttar. Kveður lögmaðurinn umbjóðanda
sinn hyggjast leita álits æðra stjórnvalds á sjón-
armiðum Fjármálaeftirlitsins. Ekki liggi þó ljóst
fyrir hvort unnt sé að bera málið undir sérstaka
kærunefnd þar sem Fjármálaeftirlitið hafi talað
um „ósk“ um upplýsingar en ekki „ákvörðun" og
spyr lögmaðurinn hvort í bréfuín Fjármálaeftir-
litsins 3. og 15. september felist „ákvörðun".
Spyr hann í lok bréfsins um afstöðu eftirlitsins til
þess hvort unnt sé að bera lögskýringar þess
undir stjóm þess eða skjóta þeim til ráðherra.
Afrit kaupsaninings kom frá Kaupþingi
Fjármálaeftirlitið svarar 27. september og tel-
ur ekki að lögskýringar þess verði bornar undir
stjórn eða ráðherra og krefst skýrra og afdrátt-
arlausra svara um hvort orðið verði við kröfum
um afhendingu umbeðinna gagna. Gerir Fjár-
málaeftirlitið jafnframt þann sama dag viðskipta-
ráðuneytinu grein fyrir gangi mála. Kemur þar
fram að Fjármálaeftirlitið hafi snúið sér til Kaup-
þings vegna aðgangs að samningum þess um sölu
á hlut í FBA. Hefði Kaupþing kynnt Fjármála-
eftirlitinu efni umræddra samninga á starfsstöð
sinni. Þá bendir eftirlitið ráðuneytinu á að brýnt
sé að kærunefnd verði skipuð hið fyrsta.
Flóttamaður snýr aftur frá fslandi til Kosovo með saumavél í farangrinum
Getur nú saumað
á fjölskylduna
FIMM barna móðir, Ismete Krasn-
iqi, einn flóttamannanna frá
Kosovo sem kom til Islands á liðnu
sumri, sneri heimleiðis á sunnudag-
inn var og hafði fengið saumavél
sem Þórhildur Gunnarsdóttir hjó
Völusteini gaf henni. Maður hennar
var týndur en kom síðar fram en
komst ekki frá Kosovo og ákvað
Ismete að snúa aftur til síns heima
með börnin fimm.
Með í för út á sunnudag var
Hólmfríður Gísladóttir, deildar-
stjóri félagsmála hjá Rauða krossi
íslands. Ismete var í hópi flótta-
manna sem dvaldi á Dalvík og eru
enn hér á landi allmargir flótta-
menn bæði frá Kosovo og Serbíu en
fleiri frá Kosovo hafa þó snúið
heim.
Þórhildur Gunnarsdóttir, eigandi
Völusteins, tjáði Morgunblaðinu að
verslunin hefði tekið við notuðum
saumavélum í sfðasta mánuði og
hefðu nýlegar og nothæfar vélar
verið gefnar bæði innanlands og ut-
an. Hefðu bæði Rauði kross Islands
og Hjálparstarf kirkjunnar séð um
að koma vélunum í brúk. Þórhildur
sagði hugmyndina um að gefa Is-
mete vél hafa komið upp nýlega og
að vélin ætti eftir að koma að góð-
um notum hjá Ismete Krasniqi. Hún
væri greinilega vön saumakona,
hefði verið fljót að læra á vélina hjá
sér og gæti því saumað fatnað á
fjölskylduna og gert við eftir þörf-
um. Auk vélarinnar fékk hún með-
ferðis ýmislegt er tilheyrir sauma-
skap, svo sem tvinna og skæri.
Sagði Þórhildur hana hafa verið af-
ar þakkláta fyrir gjöfina.
Morgunblaðið/Sverrir
Ismete Krasniqi tekur hér við nýlegri saumavél hjá Þórhildi Gunnar-
dóttur, eiganda Völusteins. Hólmfríður Gísladóttir fylgist með.
Heimilislína Búnaðarbankans:
Ræktciöu
garðinn þinn
Gullreikningur með hærri innlánsvöxtum
Lægri vextir á yfirdrætti • Heimilisbanki á Netinu
VISA farkort • Fjármögnunarleiðir
Greiðsluþjónusta • Ávöxtunarleiðír
rmitíiuti'iuiíii
r .
i IK! iM IL1 L» LÍií At J
Maður tekinn með
kókaín á Schipool
Leiddur
fyrir dóm-
ara innan
tveggja
vikna
ÍSLENDINGURINN, sem
handtekinn var með mikið
magn fíkniefna á Schipol-flug-
velli í Amsterdam fyrr í þessum
mánuði, situr í varðhaldi hol-
lensku lögreglunnar og verður
leiddur fyrir dómara þar ytra í
lok þessa mánaðar eða byi'jun
þess næsta.
Var með 16 kg
Maðurinn hefur verið í haldi
hollensku lögreglunnar frá því
er hann var handtekinn með 16
kg af hreinu kókaíni í fórum
sínum, hinn 8. nóvember síðast-
liðinn.
Hermdu fyrstu fregnir að um
15 kg af kókaíni væri að ræða
en í ljós kom að maðurinn var
með enn meira magn.
Maðurinn, sem er 34 ára
gamall og búsettur á íslandi,
ætlaði í gegnum Schipol-flug-
völl til Belgíu frá Curagao-eyju
í Karbía-hafinu þegar hann var
handtekinn og hafði þá falið
kókaínið í ferðatösku sinni í
fjórum pakkningum.
Að sögn hollensku lögregl-
unnar telst málið stórt, jafnvel
á hollenskan mælikvarða.
Tveir Islendingar hafa að
undanförnu verið hnepptir í
varðhald erlendis með stuttu
millibili vegna fíkniefnamisferl-
is, en íslensk kona búsett í Dan-
mörku var úrskurðuð í gæslu-
varðhald í Sönderborg á Jót-
landi til 26. nóvember daginn
áður en íslendingurinn á
Schipol-flugvelli var handtek-
inn. Hún var handtekin ásamt
Bretanum Kio Briggs, sem var
með tæpar 800 e-töflur í fórum
sínum.
Sakborningur í stóra
fíkniefnamálinu
Settur aftur
í gæslu-
varðhald
HÆSTIRÉTTUR hnekkti í
gær úrskurði Héraðsdóms
Reykjavíkur frá síðastliðnum
föstudegi þar sem hafnað var
kröfu lögreglunnar um fram-
lengingu gæsluvarðhalds yfir
tvítugum sakborningi í stóra
fíkniefnamálinu. Á grundvelli
dóms Hæstaréttar er pilturinn
því aftur kominn í gæsluvarð-
hald eftir fjögurra daga frelsi
og var hann úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 15. mars.
Pilturinn hafði setið í tæpa
tvo mánuði í gæsluvarðhaldi
vegna málsins og lagði lögregl-
an fram kröfu til héraðsdóms á
fóstudaginn um að framlengja
gæsluna til 15. mars á grund-
velli almannahagsmuna. Þegai'
héraðsdómur hafnaði kröfunni
var piltinum sleppt, en á mánu-
daginn sl. ákvað lögreglan að
kæra úrskurðinn til Hæstarétt-
ar. Varð Hæstaréttur við kröfu
lögreglunnar og hnekkti þar
með hinum kærða úrskurði
héraðsdóms.
Alls hafa því fimm menn í
málinu verið úrskurðaðir í
gæsluvarðhald til 15. mars, en
fimm menn til viðbótar sitja í
gæslu vegna málsins, sem
rennur út á næstu vikum.