Morgunblaðið - 18.11.1999, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 18.11.1999, Blaðsíða 58
58 FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Súrefnisvörur Karin Herzog Kynning í dag í Lyf og heilsu, Glæsibæ, kl. 14-18, Hringbrautar Apóteki, ki. 14-18 og Hagkaupi, Skeifunni, kl. 14-18. GÓLFDÚKAR l frá 690 kr./m2 c ÓDÝRi MARKAtílJRiNN KNARRARVOGI 4 • S: 568 1190 l ÁLFABORGARHÚSINU J Fríkirkja í 100 ár Hátíðarfundur og málþing um Fríkirkjuna á föstudagskvöld. Hátíðarfundur fer fram í Fríkirkjunni i Reykjavík föstudaginn 19. nóvember nk. kl. 20.00 í tilefni af aldarafmæli safnaðarins þann dag. Verður hann í formi málþings, þar sem flutt verða 5 stutt framsöguerindi og síðan pallborðsumræður á eftir. Erindin munu fjalla um tilurð, hlutverk og markmið Fríkirkjunnar, samfara þeim verður tónlist flutt. Að málþinginu loknu verður boðið upp á kvöldhressingu í safnaðarheimilinu. Erindi á málþinginu flytja: Hjörtur Magni Jóhannsson, fríkirkjuprestur. Sigurður E. Guðmundsson, formaður safnaðarstjórnar. Pétur Pétursson, prófessor. María Ágústsdóttir, héraðsprestur. Sigurjón Árni Eyjólfsson, dr., héraðsprestur. Æskulýðs- og fjölskylduhátíð í kirkjunni laugardaginn 20. nóvember kl. 17.00. Hátíðarguðsþjónusta sunnudaginn 21. nóvember kl. 11.00. Hádegisverður á Hótel Borg að lokinni guðsþjónustu. Hátíðartónleikar kl. 20.00 í kirkjunni. Flutt verður „Missa Celensis" eftir Joseph Flaydn. Fríkirkjufólk og fríkirkjuvinir eru hvattir til að fjölmenna. Safnaðarstjórn. ’ auðveldar þér vinnuna 1. Helmingi styttri strautími 2. Loftsog í strauborði 3. Fer vel með viðkvæmt efni 4. Með aukabúnaði breytir þú tækinu í gufuhreinsitæki fj- RAFVER SKEIFUNNI 3E-F ■ 128 REYKJAVÍK SlMI 581 2333 ■ FAX 568 0215 UMRÆÐAN Lottóið á heima í Sjónvarpinu ÍSLENSK getspá er á förum frá Sjón- varpinu yfir á Stöð 2. Annað eins hefur nú gerst, segir fólk. Ég tel hins vegar að þessi ákvörðun lýsi alvar- legum dómgreindar- skorti og leyfi mér að rökstyðja mál mitt nokkrum orðum. Auðlind íslensk getspá er félag í eigu íþrótta- sambands Islands, Or- yrkjabandalags Is- lands og Ungmenna- félags Islands, stofnað til þess að starfrækja talnagetraun- ir. Alþingi Islendinga var svo rausnarlegt árið 1986, þegar lög um talnagetraunir voru sett, að heimila ofangreindum félögum einum að starfrækja slíkar getraunir allt til ársins 2005. Draga má í efa að al- þingismenn hafi í raun gert sér fyllilega grein fyrir því hversu mikla auðlind þeir færðu á silfurfati í nafni ríkisins til samtakanna þriggja með lagasetningunni. Oheimilt er öðrum í tæp tuttugu ár, samkvæmt laganna bókstaf, að starfrækja getraunir með þessum hætti. Það er langur tími. Spyrja má hversu skynsamlegt það var að binda lögin til svo margra ára, gefa lottókvótann einu félagi og útiloka önn- ur. Mýmargar spurn- ingar vakna: hvenær er til dæmis nóg komið af íbúðakaupum Ör- yrkjabandalagsins, hvers vegna fékk Ungmennafélag Is- lands lottógróðann, en ekki einhver _ önnur samtök, hvers vegna situr Iþrótta- samband Islands að þessu fé meðan aðrar fjöldahreyfingar, til dæmis þær sem berjast gegn vímuefna- vandanum, eru stöðugt í fjárhags- kröggum? Með þessu er ég einfaldlega að segja: félögin þrjú sem fengu þessa auðlind mega ekki gleyma því hver færði þeim milljónirnar. Fjármunir streyma stöðugt í vasa þeirra frá ís- lensku þjóðinni, frá fulltiúum ís- lensku þjóðarinnar á Alþingi sem Guðmundur Egilsson af aUH jolar- og gjqfavöru, Mikið úrval fyrstir koma - fyrstir fa Bíldsltöf&a Bildshöfða 20 • 112 Reykjavík • sími 510 8020 Auðlind Það er eðlilegt, segir Guðmundur Egilsson, að getraunir í þjóðareign séu í þjóðarsjónvarpi. gáfu þeim einkaleyfið í tæpa tvo áratugi, og frá fólkinu í landinu sem kaupir lottómiðana. Ætla mætti að þessi sannindi væru öllum Ijós, ekki síst ráðamönnum Islenskrar get- spár, sem auðmjúkir ættu að sýna ævarandi þakklæti til íslensku þjóðarinnar fyrir auðlindina. Lottóið er þjóðareign En með tímanum hefur í höfuð- stöðvum getspárinnar fennt yfir þakklætið. Nú, þrettán árum eftir að lögin hlutu samþykki Alþingis, ákveður Islensk getspá að segja skilið við Sjónvarpið þar sem út- dráttur í lottóinu hefur farið fram til þessa. Ekki aðeins er Sjónvarpið í eigu þjóðarinnar sem gaf get- spánni auðlindina, heldur hefur það frá lyrstu tíð verið ein af undirstöð- um lottógróða Islenskrar getspár. An Sjónvarpsins á sínum tíma hefðu þessar talnagetraunir líkast til orðið snöggtum umfangsminni en raunin varð. Sjónvarpið nær til því sem næst allra landsmanna: þau rök ein ættu auðvitað að nægja til þess að getspáin flytti sig hvergi. Meginrökin eru hins vegar þau að íslenska lottóið er þjóðareign, ríkis- eign, þar sem dómsmálaráðherr- ann ákveður hverju sinni hlutfall af heildarsöluverði miða sem verja skal til vinninga og hvaða gjald skal greiða fyrir hverja lottóröð. Það er eðlilegt að getraunir í þjóðareign séu í þjóðarsjónvarpi. Allt annað er óeðlilegt. íslensk getspá er ekki sjálfstæð stofnun, félagið starfar að öllu leyti undir stjórn dómsmálar- áðherra og því ber það vott um dómgreindarleysi forráðamanna félagsins að hverfa úr Sjónvarpi með útdráttinn og leita á náðir einkafyrirtækis. Hvað hafa einka- fyrirtækin í landinu gert fyrir lottó- ið borið saman við gjafmildi þjóðar- innar? Væru það ekki makleg viðbrögð gefendanna, fulltrúa ís- lensku þjóðarinnar á Alþingi, að gera lagabreytingu og færa öðrum fjöldasamtökum í landinu stórfé með einkaleyfi á talnagetraunum? Hvað með Umhyggju, Krabba- meinsfélagið og Vímulausa æsku? Höfundur er fyrrverandi safnvörður. svefnsotar höföatúni 12 105 reykjavík sími 552 6200 552 5757 ser hus gogn Sófar • stólar Svefnsófi Fedra 182.000,- kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.