Morgunblaðið - 18.11.1999, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1999 37
LISTIR
Bókamerki í bæk-
ur Vöku-Helgafells
VAKA-Helgafell mun á þeirri
bókatíð sem nú fer í hönd, setja
sérprentuð bókamerki inn í allar
jólabækur forlagsins. Á sumum
merkjunum leynist glaðningur
því að á fímm hundruð þeirra eru
vinningar - bækur eftir meistara
íslenskra bókmennta, s.s. eftir
Halldór Laxness, Stein Steinarr,
Davíð Stefánsson, auk viðhafnar-
útgáfu á Brennu-Njálssögu.
Heildarverðmæti vinninga er 2,7
miiljónir króna.
í fréttatilkynningu segir að
markmið Bókamerkis Vöku-
Helgafells sé að minna á sígildar
íslenskar bókmenntir sem gjam-
an fer lítið fyrir í erli jólabókatíð-
arinnar.
Á hverju bókamerki er tilvitn-
un í verk Halldórs Laxness.
I vinning eru 50 eintök af
hverju eftirtalinna verka: Ljóða-
safn Davíðs Stefánssonar í fjórum
bindum, ritsafn Steins Steinars í
tveimur bindum, Kristnihald und-
ir Jökli, Paradísarheimt, ís-
landsklukkan, Gerpla, allar eftír
Halldór Laxness, myndskreyttar
útgáfur á sögum Nóbelsskálds-
ins, Sagan af brauðinu dýra og
Jón í Brauðhúsum, Únglíngurinn
í skóginum, sem er með ljóðum
HaOdórs Laxness og myndum
þekktra listmálara, og viðhafnar-
útgáfa á Brennu-Njálssögu.
Námskeið í píanóspuna
KVIKMYNPIR
Kringlubfó, S a m -
bíóin, Áifabakka,
Nýja bíó, Keflavík,
IVýja bíó, Akureyri
„THE BLAIR WITCH
PROJECT“ ★ ★Vfe
Leikstjórn og handrit: Daniel Myr-
ick og Eduardo Sanchez. Kvik-
myndataka: Heather Donahue, Jos-
hua Leonard og Michael Williams.
Aðalhlutverk: Heather Donahue,
Joshua Leonard og Michael Willi-
ams. Artisan Entertainment 1999.
HROLLVEKJAN „The Blair
Witch Project" er undarlegt fyrir-
bæri í bandarískri kvikmynda-
gerð. Hún er framleidd fyrir
fímmaura á mælikvarða Holly-
wood-mynda en hefur grætt á við
dýrustu bruðlmyndir drauma-
verksmiðjunnar með öllum sínum
rándýru brellum og stjörnufans.
Það eru engar brellur og engar
stjörnur í „The Blair Witch Proj-
ect“ aðeins hugvitsamleg kvik-
myndagerð og sniðugar, ódýrar,
lausnir á vandamálum, sem allir
kvikmyndagerðarmenn standa
frammi fyrir. Mikið hefur verið
látið með myndina í fjölmiðlum og
Ó,ó
óbyggða-
ferð
auglýsingum og auðvitað mest á
Netinu af augljósum ástæðum, svo
væntingarnar eru nokkrar til
hennar, kannski ósanngjarnar.
Hún er ekki eins spennandi og
hrollvekjandi og maður hefði ósk-
að en sem kjaftshögg á Hollywood
kerfið er hún ekkert minna en un-
aðsleg.
Höfundar hennar eru Daniel
Myrick og Eduardo Sanchez en
nöfn þeirra mundu sóma sér á
hvaða Dogma-skjali sem er. Þeir
gerðu kröfu um algjört raunsæi
svo þeir ákváðu að gera hrollvekju
í heimildamyndastíl þar sem leik-
ararnir voru sendir í átta daga
ferð í gegnum skóglendi með
lágmarksleikstjórn í farteskinu en
þvi meiri tilfinningu fyrir spuna og
létu þá taka myndina sjálfir á
filmu og myndband. Krafan um
raunsæi er sannarlega uppfyllt
svo varla verður betur gert.
Myndin er samsafn af filmubút-
um úr óbyggðaferð leikaranna og
þeir fara vel með hlutverk sín
bæði sem leikarar í hlutverkum
ungmenna í leit að ummerkjum
nornarinnar frá bænum Blair í
Marylandfylki og ekki síður áhuga
- kvikmyndatökumenn. Mynda-
vélin er á stöðugri hreyfingu, hún
er stöðugt framan í krökkunum og
þeir þar með stöðugt framan í
okkur og skráir allt það sem fram
fer og aðeins er stuðst við náttúru-
lega birtu og náttúruleg hljóð.
Byrjað er á því að kynna þjóð-
söguna um nornina frá Blair með
viðtölum við bæjarbúa og þegar
áhorfendur hafa fengið nokkra
hugmynd um hvað hún gengur út
á er haldið út í skóg þar sem þre-
menningarnir villast. Við fylgj-
umst með frekar kátum hópi
leggja af stað en eftir því sem að-
stæðurnar verða óviðráðanlegri og
lengra líður á ferðalagið og þau
verða fyrir dularfullu áreiti, eykst
spennan á milli þeirra, ofsóknar-
kenndin eykst og átökin magnast.
Myndin sýnir kannski fyrst og
fremst hvað hægt er að ná langt
með litlum peningum þegar beitt
er útsjónarsemi og hugmynda-
auðgi í stað fjárausturs. Um leið
og hún er hin þokkalegasta hroll-
vekja er hún glæsilegur sigur fyrir
óháða bandaríska kvikmyndagerð.
Arnaldur Indriðason
ÍSLANDSDEILD EPTA,
Evrópusambands píanókennara
stendur fyrir námskeiði íspuna
helgina 20.-21. nóvember. Leið-
beinandi verður austurríski
píanóleikarinn Michael Kneihs.
Námskeiðið fer fram í Tónlist-
arskóla Kópavogs og hefst kl.10
báða dagana.
Veldu þann sem
þolir samanburð
*o
Loftpúðar
4
2
4
Ilnakkapúðar
5
5
5
Fjarstýrð hljómtæki
I Iátalarar
Þokuljós
Verð frá
Tegund
Avensis
Vectra
Passat
Laguna
Vélarstærð
1600 16v
1600 16v
1600 8v
1600 16v
Hestöfl
110
101
101
107
ABS
nei
nei
nei
já
nei
nei
nei
jil
nei
nei
nei
já
1.680.000 kr.
1.660.000 kr.
1.690.000 kr.
1.678.000 kr.
Grjótháls 1
Sími 575 1200
Söludeild 575 1220
Renault Laguna kostar frá 1.678.000 kr.
Staðalbúnaður: ABS bremsukerfi, 4 loftpúðar, fjarstýrð samlæsing, öryggisbelti með
strekkjurum og dempurum, íjarstýrt hljómkerfi mcð geislaspilara og sex hátölurum, þijú
þriggja punkta belti í aftursætum, 5 höfuðpúðar, barnalæsing, útihitamælir,
þjófavörn/ræsivörn, þokuljós, samlitir stuðarar, litað gler, snúningshraðamælir o.m.fl.
RENAULT