Morgunblaðið - 18.11.1999, Blaðsíða 56
jý6 FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Skuldar LIÚ
þjóðinni
400 milljarða ?
HVER vill vera ábyrgur? LÍÚ,
Hafró eða þingmenn, hver tók vit-
lausa ákvörðun viljandi eða óvilj-
andi um niðurskurð á heimildum til
þorskveiða, eða lögbindingu um
framsal veiðiheimilda?
Sá áratugur sem er að líða er
“r.mánarblettur á íslenskum sjávar-
útvegi, ekki bara eitt, heldur allt
bendir til þess að rangar ákvarðan-
ir hafi verið teknar. Stjómvaldsað-
gerðir hafa nær eingöngu snúist
um verðmæti en ekki friðun eins og
til stóð og eftir þessari línu hafa
svo kvótagreifarnir dansað og hafa
nú veðsett þorskinn svo rækilega
að nær ómögulegt er að snúa til
baka.
Þorskafli 1950-2000
Meðaltalsafli frá 1950 til 1990 var 401 þús. tonn á ári
Þús Meðaltalsafli frá 1990 til 2000 verður 210 þús. tonn á ári
tonri Mismunurinn nemur 191 þús. tonnum á ári þennan síðasta kvótaáratug
400
300
200
100
0
1950
Útflutningsverðmæti 10 x 191 þús. t. er nálægt
400.000.000.000 (fjögur hundruð milljarðar)
‘65 70 ‘75 ‘80 ‘85 ‘90 ‘95 2000
MALRÆKTARÞING
o\
o\
o\
íslensk málnefnd beitir sér að vanda fyrir málræktarþingi í tilefni af degi íslenskrar tungu,
að þessu sinni í samvinnu við Samtök móðurmálskennara og Rannsóknarstofnun Kennara-
háskóla (slands. Þingið verður haldið laugardaginn 20. nóvember í hátíðasal Háskóla íslands.
Fundarstjóri verður Ingibjörg Einarsdóttir rekstrarstjóri.
msmmmmim íslenskt mál og menntun
11.00 Þingiðsett
11.05 Ávarp
Björn Bjarnason menntamálaráðherra
11.15 íslenska í vísindum og æðri menntun
Kristján Árnason, formaður íslenskrar málnefndar
11.50 Máltakabarna
Sigríður Sigurjónsdóttir dósent
12.10 Léttur hádegisverður í boði Mjólkursamsölunnar
12.40 Aðalnámskrár kynntar
Guðni Olgeirsson deildarsérfræðingur
13.10 íslenska í leikskóla
Anna Ingólfsdóttir íslenskukennari
13.30 íslenska í grunnskóla
Flildur Heimisdóttir grunnskólakennari
13.50 íslenska í framhaldsskóla
Knútur Hafsteinsson menntaskólakennari
14.10 Málrækt í Ijósi fortíðar og skugga framtíðar
i.. j Tryggvi Gíslason skólameistari
14.40 Kaffihlé
14.55 Pallborð um íslenska kennaramenntun
Björn Bjarnason menntamálaráðherra, Börkur Flansen skorarstjóri, Eiríkur
Rögnvaldsson prófessor, Eygló Eyjólfsdóttir skólameistari, Jón Friðjónsson
deildarforseti, Svanhildur Sverrisdóttir kennari og Sigurður Konráðsson prófessor
Stjórnandi: Baldur Sigurðsson lektor
16.00 Þingi slitið
u
MJÓLKURSAMSALAN ÍSLENSK MÁLNEFND
Ef ekki verður gripið í taumana
strax, og það með ógildingu allra
laga um stjórn fiskveiða eru Is-
lendingar að ganga með galopin
augun inn í þá verstu kreppu sem
þjóðin hefur lent í. Prentun pen-
inga sem ekkert er til fyrir er
hættulegasti leikur sem nokkur
stjóm getur aðhafst. Þegar hlut-
irnir fara úr böndunum er þetta
ekki lengur leikur heldur efna-
hagshrun. Svo stór eru þau orð en
samt staðreynd.
Með þessari grein birtist súlurit
yfir þorskveiðar á Islandsmiðum
Svavar R.
Guðnason
Sjávarútvegsmál
Sá áratugur sem
er að líða er smánar-
blettur á íslenskum
sjávarútvegí að mati
Svavars Rúnars
Guðnasonar, sem telur
að allt bendi til þess
að rangar ákvarðanir
hafi verið teknar.
frá 1950 til 2000. Þar sést að það
vantar 191 þús. tonna veiði á ári all-
an áratuginn til að vera í meðaltali
síðustu 50 ára. Af þessu má ráða
hvernig veiðin hefur verið skrúfuð
niður, ekki til vemdar fiskistofnum
eins og fólki er talið trú um heldur
til að losna við sem flesta úr grein-
inni þannig að nokkrir stórir verði
einir eftir. Menn skulu athuga hvað
er búið að veðsetja marga millj-
arðatugi nú þegar í aflaheimildum.
Kannski 120 milljarða plús eða
mínus má vgra, en eitt er víst að
þegar greifarnir eru búnir að ná
settu marki í kvótaeign verða veiði-
heimildir skrúfaðar upp aftur og
hver 100.000 tonn verða veðsett
fyrir 80 milljarða. Þá vasast menn
ekki í að kaupa eitt og eitt banka-
tetur heldur kaupa þeir allt heila
klabbið eins og það leggur sig, og
það sem er grátbroslegast við þetta
allt er að þeir fá allt fyrir ekki neitt
því þessir peningar hafa í raun
aldrei verið til. Ef þetta er löglegt
þá vildi ég fá veðsetningu í and-
rúmsloftinu, takk fyrir, upp á
nokkra milljarða, og taka þátt í
þjóðareignarkapphlaupinu, það
gæti kallast jafnræði meðal þegn-
anna. Þá vil ég benda fólki á að lesa
grein í Morgunblaðinu 30./9. á síðu
e 6 (Viðskipti) sem ber yfirskriftina
Hlutabréf keypt fyrir lánsfé, þar
koma fram mjög tímabær varnað-
arorð frá framkvæmdastjóra VÍB.
Höfundur er útgerðarmuður.
VELAR
Ármúla 29 - Rvk. Sími 588 4699
Vefsíða: www.oba.is