Morgunblaðið - 18.11.1999, Qupperneq 6
Y pppr H/Ö7/ Pf ÍTTnACTTTTMMT^
6 FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1999
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ
r
Morgunblaðið/Kristinn
Hinn 83 ára gamli John Caldwell og hin 62 ára Hanne Johansen Zeitner
voru gefin saman á skrifstofu sýslumannsins í Reykjavík í gær.
Bandarískur maður og dönsk kona gefín
saman hjá sýslumanninum f Reykjavík
s
Island er þar sem
heimar okkar mætast
ÞAÐ var mikil hamingjustund
þegar þau John Caldwell og
Hanne Johansen Zeitner voru
gefin saman á skrifstofu sýslu-
mannsins í Reykjavík í gær. John
er 83 ára Bandaríkjamaður og
Hanne er 62 ára danskur rflds-
borgari en hefur búið í Banda-
ríkjunum í nær fjörutíu ár. Þau
hafa komið til íslands áður, bæði
hvort í sínu lagi og saman og
tóku alveg sérstöku ástfóstri við
landið. Þegar þau ákváðu að gift-
ast fannst þeim ekki annað koma
til greina en að brúðkaupið færi
fram hér á íslandi.
John hefur starfað mest alla
sína tíð sem blaðamaður og rit-
stjóri bæði hjá fréttablöðum og
viðskiptatímaritum í Bandaríkj-
unum. Bróðir hans og svaramað-
ur, Philip Caldwell, er fyrrum
aðalforsljóri Ford bflafyrirtækis-
ins í Bandarflyunum og lýsir
John því hvað margt hafi breyst
frá því að þeir voru ungir.
„Hugsa sér, við br&ðir minn ól-
umst upp í pfnulitlu sveitaþorpi
og fórum í skólann með vagni
sem dreginn var af tveimur hest-
um. Seinna varð hann svo for-
stjóri eins stærsta bflafyrirtækis
heims.“
John er ekkjumaður og Hanne
er fráskilin. Þau hittust fyrst árið
1978 og hafa búið saman í Conn-
eticut fylki í 14 ár. „Ég sá hana
fyrst í þvottahúsi, tíu mflur frá
heimili mínu og enn þann dag í
dag veit ég ekki hvað ég var að
þvælast þangað. Hún stóð þar
með hárið uppsett, í svo fallegri
síðri rússskinskápu. Um leið og
ég sá hana vissi ég að ég vildi
tala við hana.“ Þau tóku tal sam-
an og hafa verið saman daglega
sfðan og tekur Hanne undir að
þetta hafi verið ást við fyrstu sýn.
Þau segja ættingja sína og vini
hafa orðið undrandi pégar þau
sögðu þeim að þau ætluðu loks
að giftast og það á Islandi. „Það
kom bara ekkert annað til
greina,“ segir John. „Við erum
bæði svo hrifin af þessu fallega
og sérstaka landi. Auk þess er
staðsetningin táknræn fyrir okk-
ur. Ég er frá Bandaríkunum og
Hanne er frá Danmörku, ísland
er mitt á milli þessara landa og
má því segja að ísland sé þar sem
heimar okkar mætast.“
Samgöngunefnd Alþingis boðar til fjarfunda um innanlandsflugið
Fundað á átta stöðum um
Rey kj a víkur flugvöll
FUNDUR um málefni innanlands-
flugs og Reykjavíkurflugvallar verð-
ur haldinn á vegum samgöngunefnd-
ar Alþingis, í húsnæði Háskólans á
Akureyri, á morgun. Jafnframt verða
sjö aðrir fundir tengdir fundinum á
Akureyri með fjarfundabúnaði. Sjón-
varpið verður með beina útsendingu
frá fundinum. Fundurinn verður með
því sniði að fyrst munu sautján
manns halda þriggja til fjögurra mín-
útna ávörp en eftir ræður verður opn-
að fyrir fyrirspumir bæði úr sal á
Akureyri og frá hinum fundunum.
Fundarstjóri verður Arni Johnsen,
formaður samgöngunefndar.
Arni segir að þetta sé í fyrsta sinn
sem fundur af þessu tagi sé haldinn á
vegum Alþingis. Þetta séu átta fundir
í einu og ætlunin sé að fjalla um allt
sem viðkemur málefnum innanlands-
flugs á íslandi. Tilefnið sé það, að ver-
ið hafi uppi skoðanir í borgarstjórn
Reykjavíkur um að leggja beri
Reykjavíkurflugvöll af. „Þótt það sé
búið að samþykkja skipulag flugvall-
arins næstu 20 árin og að hann verði
endurbyggður er samt reynt að
skapa óróa og óvissu gagnvart lands-
byggðinni með hugmyndum um að
leggja völlinn af, og jafnvel fyrr en
samþykkt skipulag hefur boðið,“ seg-
ir Arni.
Meðai þehra sem flytja ávörp á
fundinum á Akureyri verða Halldór
Blöndal, forseti Alþingis, Sturla
Böðvarsson, samgönguráðherra, Þor-
geir Pálsson, flugmálastjóri, Kristján
Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akur-
eyri, auk fulltrúa annarra bæjarfé-
laga, Flugfélags íslands, Islands-
flugs, samtakanna Betri byggðar og
talsmenn farþega í Vestamannaeyj-
um, á ísaflrði og Akureyri.
Ekki hefur verið staðfest hvort
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgar-
stjóri í Reykjavík, taki þátt í fundin-
um.
Fundirnir verða öllum opnir. Auk
fundarins á Akureyri verður fundað i
myndfundaveri í Landssímahúsinu í
Reykjavík, á Árnagötu 2-4 á ísafirði, í
skólanum á Siglufirði, Miðvangi 2 á
Egilsstöðum, Skagfirðingabraut 17-
21 á Sauðárkróki, á Höfn verður
fundað í Framhaldsskólanum í A-
Skaftafellssýslu, Nesjum og á Skóla-
vegi 1 í Vestmannaeyjum.
Nátturuverndarsamtökin WWF álykta um Fljótsdalsvirkjun
Vilja formlegl umhverfísmat
FRAMKVÆMDASTJÓRAR fjórtán
landsdeilda innan náttúruvemdar-
samtakanna World Wide Fund for
Nature (WWF) í Evrópu hafa sent
frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar
sem þeir lýsa áhyggjum sínum af fyr-
irhuguðum virkjanaíramkvæmdum á
Eyjabakkasvæðinu og því að stór
hluti svæðisins hverfi undir Eyja-
bakkalón. Þeir segjast styðja mál-
flutning þeirra íslendinga sem krefj-
ast þess að virkjunin fari í formlegt
umhverflsmat og telja jafnframt að
kanna þurfi möguleika þess að stofn-
aður verði þjóðgarður á svæðinu
norðan Vatnajökuls.
Framkvæmdastjórarnir segja
Eyjabakkasvæði eitt stærsta
ósnortna víðemi í Vestur-Evrópu og
efast um hlutleysi skýrslu Landsvirkj-
imar um mat á umhverfisáhrifum sem
lögð hefur verið fram á Alþingi ásamt
þingsályktunartillögu iðnaðarráð-
herra um framhald íramkvæmda við
Fljótsdalsvirkjun. Þá er bent á að
Norsk Hydro sé framarlega á sviði
umhverfismála og talið óhugsandi að
slíkt fyiirtæki vilji leggja nafn sitt við
framkvæmdir sem ekki hafi gengið í
gegnum hlutlaust umhverfismat.
Undir yfirlýsinguna skrifa fram-
kvæmdastjórar WWF í Austmuíki,
Belgíu, Danmörku, Finnlandi, Frakk-
landi, Þýskalandi, Grikklandi,
Hollandi, Noregi, Spáni, Svíþjóð,
Sviss, Tyrklandi og Bretlandi.
Tómas Ingi Qlrich ritar stjórn Byggðastofnunar bréf um byggðakvótann
Hörð gagnrýni á regl-
ur Byggðastofnunar
TÓMAS Ingi Olrich, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins á Norðurlandskjör-
dæmi eystra, gagnrýnir í bréfi til
stjómar Byggðastofnunar úthlutun-
arreglur þær sem stjórnin studdist
við þegar hún úthlutaði byggðakvót-
anum svokallaða fyrr á þessu ári.
Tómas reifar í bréfínu nokkrar hliðar
á þeirri ráðstöfun byggðakvótans sem
honum hefm- fundist orka tvímælis og
tekur frarn að gagnrýnin beinist ekki
að lagaákvæðinu um byggðakvóta,
eins og Egill Jónsson, formaður
stjómar Byggðastofnunar, hefði hald-
ið fram, heldur að framkvæmd úthlut-
unarinnar og þeim „reglum sem
stjóm Byggðastofnunar hefur sett sér
og stuðst við eða sniðgengið eftir at-
vikum,“ eins og segir í bréfinu.
Byggðastofnunai- að úthluta kvótan-
um til næstu fimm ára þrátt fyrir að í
lögum sé kveðið á um að „Byggða-
stofnun hafi á fiskveiðiárunum
1999/2000 til og með fiskveiðiámnum
2005/2006 árlega til ráðstöfunar afla-
heimildir sem nemi 1.500 þorskígildis-
Iestum [...] til að styðja byggðarlög
sem lent hafa i vanda vegna samdrátt-
ar í sjávarútvegi." Tómas ítrekar að
Byggðastofnun hafi úthlutað þessum
afla til fimm ára og segir það sér-
kennilega ráðstöfun. „Mætti ætla að
stjóm stofnunarinnar hafí litið svo á
að ekki kæmu upp nein vandamál í
byggðum landsins á þessum 5 árum,
sem glíma þyrfti við, og því væri henni
óhætt að úthluta byggðakvótanum til
5 ára. Skiptir hér ekki máli þótt
ákveðið hafl verið að forsendur úthlut-
unar verði endurskoðaðar árlega,"
segir Tómas.
Tekur einungis tillit til þess
hvað kvóti hafí minnkað
Tómas getur þess að í nánari út-
færslu á reglum þeim sem Byggða-
stofnun hafi samið og stjórnin hafið
stuðst við komi fram viðmiðanir sem
notaðar era til að meta stöðu ein-
stakra byggðariaga. „Byggðarlög
geta þannig öðlast 100 punkta í reikni-
líkani ef þau hafa stöðu til að fullnýta
alla möguleika. Mikilvægasti þáttur-
inn í þessu dæmi er kvótastaða
byggðai-lagsins, en sá þáttur vegur
30%. Er þar væntanlega verið að leit-
ast við að meta stöðu byggðarlagsins
að því er hráefnisöflun til fiskvinnslu
varðar. Þessi þáttur tekur hins vegar
einungis tillit til þess hvað kvóti,
þ.e.a.s. varanlegar aflaheimildir í afla-
markskerfi, hafl minnkað sl. 5 ár.
Ekki er lagt mat á stöðu byggðarlags
út írá því hráefni sem berst á land
vegna dagabáta né heldur út frá afla
þorskaflahámarksbáta, en þeir eiga
frjálsa sókn í aðrar tegundir en
þorsk.“
Tómas segir þetta sérkennilega
vinnureglu því ljóst sé að ákveðnir
landshlutar hafi stóraukið hlutdeild
sína í lönduðum afla í gegnum tvö síð-
asttöldu kerfin. „Getur sú staða því
komið upp og hefur komið upp að
byggðarlög fái úthlutað byggðakvóta
þótt afli, sem berst þar á land, hafi
aukist til muna sl. 5 ár.“
Tómas bendh’ m.a. á að við úthlutun
byggðakvótans hafi þremur byggðar-
lögum innan Isafjarðarbæjar verið út-
hlutað samtals 387 tonnum. „í fram-
haldi þess tekur sveitarstjóm þá
ákvörðun að gera þá tillögu til
Byggðastofnunar að kvótinn verði all-
ur nýttur á Þingeyri. Er það væntan-
lega tengt því að hin byggðarlögin tvö
hafi notið góðs af auknum löndunum
vegna dagabáta og þorskaflahámarks-
báta og því ekki verið eins illa sett og
líkanið gaf til kynna. Hitt er ekki síður |
merkilegt að þótt byggðarlögin séu, I
samkvæmt líkaninu, talin þurfa út- |s
hlutun, era forsendurnar í raun ekki I
sterkari en svo að kvótann má flytja
milli byggðai’laga án þess að hann
komi þá aftur til ráðstöfunar hjá
Byggðastofnun, ellegar sé geymdur
til að mæta öðram áfollum á árinu.
Verður með þessari ráðstöfun lítils
virði sú regla að heimamenn, þ.e.a.s. á
Flateyri og á Suðureyri, skuli veiða
byggðakvótann. Ætla mætti að heim- k
ild til framsals með þessum hætti ætti
heima í reglum Byggðastofnunar. I |
reglunum er þvert á móti tekið fram
að Byggðastofnun geti vikið frá skipt-
ingu tegunda í einstökum byggðarlög-
um ef hagkvæmt þyki, en þó þannig
að heildarskipting byggðakvótans
raskist ekki né hlutur hvers byggðar-
lags í þorskígildum og verðgildi
byggðakvótans."
Tómas segir ennfremur að Byggða-
stofnun hafi fylgt eftir úthlutun á |
byggðakvóta með 100 miljóna kr. fjár-
framlagi inn í ákveðið fyrirtæki sem |
hafi fengið heimild til að fá allai- afla- 1
heimildii- sem úthlutað var til tveggja
annarra byggðarlaga. „Þar er sett á
stofn með ríkisframlagi fyrirtæki, sem
ætlað er að veija hundraðum milljóna
til kvótakaupa. Þessi ráðstöfun herðii’
mjög samkeppni um kvóta og hráefni
sem mikil er fyiir og hækkar væntan-
lega verð á kvóta. Að þeim fiskverk-
endum sem kvótalausir era og hafa L
keypt hráefni á ftjálsum markaði er að
sama skapi þrengt. Era þar með sköp- I
uð vandamál í öðram byggðarlögum, \
þai- sem afli á landi hefur minnkað
veralega á undanförnum áram.“
Tómas gagnrýnir m.a. þá ákvörðun
|Ljáchi |Mvim eyra
Six pack latino
BJört mey og mambó
Útgáfutónleikar í
Þjóðleikhúskjallaranum
í kvöld kl. 23
Seiðandi
suðræn sveífla
við allra hæfi
Miðaverð 800 kr.
Mál og menningj
malogmenning.isl
Laugavegi 18 • Simi 515 2500 • Siðumúla 7 • Simi 510 2500