Morgunblaðið - 18.11.1999, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR18. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Flokkur Blairs í vandræðum með að velja borgarstjóraefni
frambjóðandi flokksins nema hann
styddi alla kosningastefnuskrá
hans.
Málið þykir mjög vandræðalegt
fyrir stjórn Verkamannaflokksins
og hafa breskir fjölmiðlar og leið-
togar stjórnarandstöðunnar lýst því
sem „skrípaleik".
The Daily Telegraph sagði að for-
ystumenn Verkamannaflokksins
hefðu verið hlynntir því í fyrstu að
Livingstone fengi að taka þátt í
kjörinu, þannig að kjörmannaráðið
gæti hafnað honum, fremur en að
hann byði sig fram sem óháður. Liv-
ingstone hefði hins vegar verið svo
„ögrandi" og „bombrattur" á fund-
inum með kjömefndinni að hún
hefði ekki getað lagt blessun sína
yfir framboð hans.
Livingstone spáð sigri
Breska dagblaðið The Guardian
birti í fyrradag skoðanakönnun sem
bendir til þess að Livingstone njóti
stuðnings 63% kjósenda í London
og hafí mikið forskot á rithöfundinn
Jeffrey Archer, frambjóðanda
Ihaldsflokksins. Könnun bendir
einnig til þess að Livingstone myndi
einnig fara með sigur af hólmi í
kosningunum byði hann sig fram
sem óháður gegn Dobson og
Archer. Livingstone fengi þá 49%
fylgi, Archer 22% og Dobson aðeins
20%.
Livingstone sagði í sjónvarpsvið-
tali að hann myndi ekki „undir nein-
um kringumstæðum" bjóða sig
fram sem óháður ef hann yrði ekki
valinn frambjóðandi Verkamanna-
flokksins en orðrómur er á kreiki
um að honum kunni að snúast hug-
ur.
Livingstone segir að forystu-
menn Verkamannaflokksins hafí
hafnað því að frambjóðandi flokks-
ins yrði valinn í forkosningum til að
hindi-a að hann færi með sigur af
hólmi. Kjömefndinni og kjör-
mannaráðinu hafi verið komið á fót
til að auka sigurlíkur Dobsons.
Deilunni um Livingstone
lýst sem „skrípaleik“
London. AP, AFP, The Daily Telegraph.
BRESKI Verkamannaflokkurinn
virðist vera í standandi vandræðum
með að velja frambjóðanda í borg-
arstjórakosningunum í London í
maí vegna deilu um hvort Ken Liv-
ingstone, vinsælasta borgarstjóra-
efnið, sé kjörgengur í atkvæða-
greiðslu sérstaks flokksráðs sem á
að velja frambjóðanda flokksins.
Tólf manna kjömefnd hefur verið
skipuð til að ákveða hverjir verði í
framboði í atkvæðagreiðslu kjör-
mannaráðs, sem á að velja fram-
bjóðandann og er skipað þingmönn-
un Verkamannaflokksins í London,
auk fulltrúa verkalýðshreyfíngar-
innar og félaga flokksins í borginni.
Kjömefndin yfirheyrði í fyrradag
fjóra stjómmálamenn, sem sækjast
eftir borgarstjóraembættinu, og
átti síðan að ákveða hverjir þeirra
væm kjörgengir í atkvæðagreiðsl-
unni. Hún komst hins vegar ekki að
niðurstöðu vegna efasemda um
hollustu Livingstones við stefnu
flokksins og boðaði hann á sinn fund
í dag til að „útskýra" viðhorf sín.
Andvígur einkavæðingarstefnu
stjórnarinnar
Clive Soley, formaður kjömefnd-
arinnar, sagði ekki væri ljóst hvort
Livingstone væri tilbúinn að styðja
kosningastefnuskrá flokksins, sem
hefur ekki enn verið samin. „Hann
gaf til kynna að hann myndi draga
sig í hlé ef stefnuskráin væri honum
Jeffrey Archer, borgarstjóraefni breska íhaldsflokksins, og Ken Livingstone og Glenda Jackson sem sækj-
ast eftir því að verða tilnefnd borgarstjóraefni Verkamannaflokksins í kosningunum í London í maí.
ekki að skapi.“
„Rauði Ken“, eins og Livingstone
hefur verið kallaður, kvaðst vera
andvígur þeirri stefnu ríldsstjómar
Verkamannaflokksins að einka-
væða neðanjarðarlestir höfuðborg-
arinnar að hluta og leita eftir sam-
starfí við einkafyrirtæki til að fá
meira fjármagn í lestarkerfíð.
Þótt Livingstone sé mjög vinsæll
meðal kjósenda er hann ekki í náð-
inni hjá Tony Blair forsætisráð-
herra, sem telur hann of vinstris-
innaðan og hefur lagt mikið kapp á
að koma í veg fyrir að hann verði
frambjóðandi flokksins. Blair styð-
ur Frank Dobson, sem sagði af sér
sem heilbrigðisráðherra til að gefa
kost á sér í borgarstjóraembættið.
„Mér líður eins og Galíleó þegar
hann kom fyrir rannsóknarréttinn
til að útskýra að sólin snerist ekki
kringum jörðina," sagði Livingsto-
ne eftir yfírheyrsluna. „Ég vona að
mér gangi betur."
Leikkonan Glenda Jackson og
kaupsýslumaðurinn Ken Baldry
sækjast einnig eftir því að verða
fyrir valinu sem frambjóðandi
flokksins í borgarstjórakosningun-
um. Jackson fyrtist við þegar kjörn-
efndin ákvað að fresta valinu og
sagði að deilan skaðaði flokkinn.
John Prescott, aðstoðarforsætis-
ráðherra Bretlands, gaf til kynna að
niðurstaða kjömefndarinnar yrði
líklega sú að Livingstone yrði mein-
að að taka þátt í kjöri flokksins.
Hann sagði að enginn gæti orðið
Framtíðin
er núna!
wÉMm
Com 909S GSM 900/1800
Glœsileg hönnun!
Heimilistæki
SÆTUNI 8 SiMI 569 1500
w w w.hl.ls