Morgunblaðið - 18.11.1999, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1999 39
V arð veitist nútím-
inn til framtíðar?
Hvernig er hægt að auka aðgengi
almennings að helstu menningarverð-
mætum okkar eins og bókum, listaverkum
og tónlist? Hvað eigum við að geyma mikið
af gögnum nútímans til framtíðar? Þessar
spurningar voru meðal annars ræddar
á málþingi í Þjóðarbókhlöðunni á degi
íslenskrar tungu. Salvör Nordal leit inn
og hlýddi á nokkur erindanna.
Þorsteinn Vésteinn
Hallgrímsson Ólason
VIÐ hörmum oft hve miklar upp-
lýsingar t.d. í formi handrita, bréfa
og bóka hafa glatast í áranna rás.
En hvemig kemur samtími okkar
til með að varðveitast fyrir framtíð-
ina? Með aukinni tölvutækni er
mögulegt að gera fornan menning-
ararf aðgengilegan til rannsókna
og fróðleiks fyrir almenning. En
tölvutæknin skapar einnig vanda-
mál fyrir nútímann. Hvemig á að
varðveita skjöl og gögn úr nútíman-
um sem varðveitt em á tölvutæku
formi? Hvað eigum við að varðveita
af því ógrynni upplýsinga sem gefín
eru út hvort sem er á prenti eða á
tölvum?
Erindi Bjarna Þórðarsonar,
Þjóðskjalasafni, fjallaði um erfið-
leika við varðveislu á tölvugögnum.
Hann sagði að sumir teldu sam-
tímann, með pappírslausum sam-
skiptum, vera tíma glataðra upp-
lýsinga í mannkynssögunni. Tölvu-
diskar hefðu lítið geymsluþol auk
þess sem hröð tölvuþróun gerði það
að verkum að erfítt væri að lesa
gamla tölvudiska og skjöl. Bæði
væru tækin og forritin úrelt. Af
þessum sökum væri mikilvægt að
geyma gögn á almennum viður-
kenndum stöðlum. Bjarni sagði
Þjóðskjalasafnið vinna að því að út-
búa verklagsreglur um langtíma-
varðveislu stafrænna gagna og af-
hendingu þeirra til Þjóðskjala-
safns. Hann sagði einnig mikilvægt
að fylgjast reglulega með geymslu-
aðferðum og rannsóknum á
geymsluþoli enda hefði margoft
komið í ljós að geymsluþol segul-
miða væri mun minna en framleið-
andi hefði lofað. Af þessum sökum
gæti reynst nauðsynlegt að endur-
Nýjar bækur
• ISLENSK karlma.nna.Iöt 1740-
1850 er eftir Fríði Ólafsdóttur dós-
ent sem hefur um árabil unnið að
rannsóknum á ís-
lenskum karl-
mannafatnaði.
I bókinni er
lýst varðveittum
íslenskum karl-
mannaflíkum í
texta og mynd-
um.
Fjallað erum
eiginleika og
vinnslu sauðfjár-
ullarinnar, þar sem hráefnið er
uppistaðan í varðveittum íslensk-
um karlmannaflíkum. Sömuleiðis
eru kaflarum prjóna- og sauma-
þekkingu Islendinga. Sérstakur
kafli er um tengsl varðveittra karl-
mannaflíka við svokallaða þjóðlega
búninga eða þjóðbúninga íslenskra
karla. Einnig eru í bókinni teikn-
ingar af formum flíkanna og niður-
stöður um vinnuaðferðir og út-
færslur.
í bókinni er fjöldi mynda og
teikning.
Utgefandi er bókaútgáfan Oðinn
ehf. Bókin erprentuðhjá Off-
setþjónustunni. Háskólaútgáfan
sér um dreifingu. Verð kr. 3.390.
afrita gögn á 10 ára fresti sem er
auðvitað óhemju tímafrekt.
Vésteinn Olason greindi frá
starfi nefndar á vegum Rannsókn-
arráðs Islands sem gerði úttekt á
varðveislu menningarverðmæta og
tillögur til úrbóta. Nefndin sendi
helstu menningarstofnunum lands-
ins spurningalista er vörðuðu varð-
veislu verðmæta og hvemig hún
væri trygg bæði gegn utanaðkom-
andi hættum eins og eldsvoða eða
þjófnað, eða innri hættum eins og
eyðingu við notkun eða geymslu.
Vésteinn sagði að í þessari úttekt
hefði komið fram að varðveisla
menningarverðmæta væri um
margt ófullnægjandi hér á landi oft
á tíðum vantaði rétt geymsluhús-
næði fyrir menningarverðmæti, ör-
yggismálum sums staðar ábótavant
og skortur væri á sérhæfðu starfs-
fólki til að sinna forvörslu. Vésteinn
sagði að menntamálaráðuneytið
hefði sýnt málinu mikinn skilning
en viðbrögð þess hefði verið hægari
en hann hefði vonast.
Handritin
heim í tölvu
Þorsteinn Hallgrímsson kynnti
verkefni Landsbókasafns-Háskóla-
bóksafns við að yfirfæra efni á staf-
rænt form. Safnið hefur á undan-
fömum árum unnið að nokkrum
stóram verkefnum eins og því að
setja forn Islandskort á stafrænt
form. Stærsta verkefnið núna er
hins vegar Sagnanetið sem unnið er
að í samvinnu við Árnastofnun og
Cornell Háskóla og fellst í því að
setja íslendingasögurnar, norræna
goðafræði og samtímasögur á staf-
rænt form. Hér er um gífurlega
umfangsmikið verkefni að ræða
enda mikið magn bóka og handrita
sem þarf að ljósmynda og færa yfir
á stafrænt form. Sagnanetið mun
því færa handritin heim í orðsins
fyllstu merkingu því með því geta
Islendingar flett uppí handritunum
í tölvunni heima hjá sér. Að auki
sagði Þorsteinn að byrjað væri að
setja öll dagblöð og tímarit frá upp-
hafi til ársins 1920 á stafrænt form
og einnig stæði til að safna öllum ís-
lenskum vefsíðum í sérstakan
gagnagrann til varðveislu enda
væra þær mikilvægur hluti íslensks
menningararfs í framtíðinni.
Þorsteinn kom inná mörg þau
vandamál sem tengjast stafrænni
yfirfærslu efnis. Þessi aðferð gerði
hvort tveggja í senn að auka varð-
veislu frumgagna því með staf-
rænni útgáfu væri minni ásælni í að
handfjatla frumgögnin, en af slíkri
meðhöndlun stafaði alltaf viss
hætta. Þá auðveldar þessi leið mjög
rannsókn á handritunum þar sem
hægt er að gera það úr hvaða tölvu
sem er þó eftirgerðin komi aldrei í
stað frumgagnanna. Þorsteinn
ítrekaði hins vegar að varðveisla
hins stafræna forms sjálfs væri
óleyst. Ymsar spurningar vakna
um hvaða efni ætti að setja á staf-
rænt form og sagði Þorsteinn vera
þeirrar skoðunar að mikilvægast
væri að setja heilstætt efni á þetta
form þannig að veralegur hluti
ákveðins flokks væri á þessu formi
og það kæmi að bestum notum.
Söfnin skoðuð á vefnum
Þeir Frosti Jóhannsson og Olaf-
m' Gíslason kynntu hvernig Þjóð-
minjasafnið og Listasafn Islands
ynnu nú að því að setja skrá yfir
eign sína á tölvutæk form. Hjá
Þjóðminjasafninu hefur verið sett-
ur upp rafræn skrá sem kallast
Sarpur og er altækt upplýsinga-
kerfi um muni safns-
ins. Frosti sagði að
mjög mikil vinna væri
fyrir höndum að skrá
munina en einungis
væri búið að skrá um
10% safnsins. Ef litið
væri til Þjóðminja-
safnsins eingöngu
mætti gera ráð fyrir
milljón færslum til
viðbótar eða 45-50
mannárum, á lands-
vísu væri vinnan hins
vegar mun meiri því
þá stæðum við
framrni iyrir fjóram
milljónum færslna
sem tækju varla færri
en 150 mannár að skrá. Verkefnið
væri því mjög stórt og tímafrekt.
Listasafn íslands hefur tekið í
sína þjónustu kanadískt forrit til að
skrá listaverk safnsins. Ólafur
Gíslason kynnti möguleika forrits-
ins en það býður uppá nákvæma
skráningu um verkin auk góðra
mynda af hverju verki fyrir sig.
Ólafur sagði forritið vera einfalt í
notkun og þó það væri ekki ætlað
almenningi væri auðvelt að þróa út
frá því kerfi fyrir alla sem hægt
væri að nálgast á veraldarvefnum.
Ekki verður aðeins möguleiki á
að skoða listaverk í eigu safna á
veraldarvefnum heldur hafa verið
settar upp myndlistarsýningar sér-
staklega á vefnum en Jón Hörðdal
kynnti sýndarveruleikatækni sem
hefur verið í þróun hjá dótturfyrir-
tæki OZ, Smart VR. Þessi tækni
býður uppá möguleika á því að
horfa á myndir í þrívídd á tölvuskjá
og sýndi Jón sýnishom af mynd-
listarsýningu þar sem sá sem við
tölvuna situr getur spjallað við aðra
sýningargesti, sem einnig sitja við
sínar tölvur. Jón sagði að hér væri á
ferðinni ný upplifun á myndlist og
gæti verið nýr og spennandi kostur
í framtíðinni.
GALLABUXNA-
DAGAR
2
fyrir
Kauptu gallabuxur og
fáðu aðrar eins fríar
Tilboð gildir í viku
iil
LAUGAVEGI 95,
KRINGLUNNI
(viö inngang nýju Kringlunnar)
Fríður
Ólafsdöttir