Morgunblaðið - 18.11.1999, Síða 71
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1999 71
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/HÁSKÓLABÍQ frumsýnir spænsku gamanmyndina Torrente
eftir Santiago Segura um lögreglumanninn Torrente í Madríd.
Torrente hinn ógurlegi
Frumsýning
LÖGLEGLUMAÐURINN Torr-
ente (Santiago Segura) er föður-
landsvinur, fasisti, kynþáttahatari,
drykkjurútur og kvenhatari auk
þess sem hann heldur með fótbolta-
liðinu Atlético de Madrid. Hann
býr ásamt föður sínum í óhrjálegri
íbúð. Hann gefur föður sínum
grautarhroða í matinn og neyðir
hann til þess að sitja í hjólastól svo
þeir geti fengið sem mest úr úr fé-
lagsmálayfirvöldum.
Dag einn þegar Torrente hefur
verið hent út af uppáhalds veitinga-
staðnum sínum (hann skuldar þar
formúu) sest hann niður á kín-
verskum stað en þess er ekki langt
að bíða aðhonum verði vísað þaðan
út líka. í hefndarskyni ákveður
hann að rannsaka staðinn nánar og
kemst á slóðir eiturlyfjasmyglara.
Pannig er söguþráðurinn í
spænsku gamanmyndinni Torrente
sem Háskólabíó frumsýnir. Höf-
undur hennar og sá sem fer með að-
alhlutverkið er Santiago Segura en
hann er fæddur í Madrid árið 1964
og lagði stund á listnám í háskóla.
Hann er kunnur skemmtikraftur á
Spáni og hefur unnið til verðlauna
sem slíkur en Torrente er fyrsta
bíómyndin hans í fullri lengd; hann
hefur leikið í nokkrum myndum þar
á meðal Perdita Durango. Með
önnur hlutverk í myndinni fara
Javier Camara, Chus Lampreave,
Nú heitir hann Listamaðurinn
EINN er sá listamaður í
heimi hér sem verður að
teljast manna óút-
reiknanlegastur og sum-
ir ganga jafnvel svo
langt að telja hann ekki
mann yfirhöfuð.
Enn og aftur hefur
listamaðurinn Prince,
sem þekktur er íyrir
nafnabreytingar sínar
breytt um nafn og
ákveðið að kalla sig héð-
an í frá aðeins Lista-
manninn (e. The Artist). Hann gaf
sína fyrstu plötu undir því nafni út
á dögunum sem ber nafnið Rave
Un2 the Joy Fantastic. Hann hélt
útgáfutónleika í Hafmeyju-leikhús-
inu í London og bauð aðeins fáum
útvöldum að hlýða á söng sinn en
samkvæmt heimildarmanni sem
varð þess heiðurs aðnjótandi að
vera boðið var Listamaðurinn í
góðu formi og lék listavel.
Listamaðurinn gaf út plötuna
Tony Leblanc og Neus Asensi.
Lögreglumaðurinn Torrente er
hugarfóstur Santiago Segura.
„ToiTente er aumkunai-verður
maður,“ segir kvikmyndagerðar-
maðurinn. „I honum rúmast helstu
ókostir mannskepnunnar, hann er
hreinasta skepna. Hann er allt það
sem við fyrirlítum, allt það sem við
sækjumst ekki eftir að vera, allt
það sem við óttumst að verða.“
Segura segist hafa mest yndi af
gamanmálum af öllu tagi. „Ég hef
reynt að setja fram þjóðfélags-
gagnrýni og ég hef reynt að leggja
áherslu á raunsæi en fyrst og
fremst hef ég lagt áherslu á að fá
fólk til þess að hlæja. Að mínu viti
er góður húmor kjarninn í allri
skynsemi og það sem skilur okkur
frá dýrum. Allar gerðir gamansemi
eiga við mig, frá algjörri aulafyndni
til sérlega vandaðra brandara.
Hláturinn er ómetanlegur.
Santiago Segura hefur gaman af
myndum Berlanga og sérstakt dá-
læti á spænskum gamanmyndum
sjötta áratugarins, og einnig mynd-
um Dino Risi, Moncellini, Fellini og
Lögreglumaðurinn Torrente er föðurlandsvinur, fasisti, kynþátta-
hatari, drykkjurútur og kvenhatari.
bandarískum söngleikjum.
„Pað má finna áhrif frá öllu þessu
í mynd minni. En ef áhorfandinn
viridlega einbeitir sér er allt eins
víst að hann sjái áhrif frá Martin
Scorsese og öðrum leikstjórum (og
kannski ekki).
Framleiðandi myndarinnar er
Andres Vicente Gomez en hann
hefur framleitt kvikmyndir á Spáni
í þrjá áratugi og unnið með leik-
stjórum á borð við Orson Welles,
Femando Trueba, Pedro Almodov-
ar og Carlos Saura.
■ Purple Rain árið 1980
og sló þá rækilega í
gegn.
„Pað er ótrúlegt hve
auðvelt er að endur-
skapa sjálfan sig,“
sagði hann í viðtali við
Reuters á dögunum.
„Þú verður að leggja
traust þitt á Guð. Guð
gaf það svar að ég ætti
að skipta um nafn,“
bætti hann við en
reglulega les hann
ásamt bassaleikaranum Larry
Graham jr. í Biblíunni.
Tónleikagestir þurftu að bíða um
hríð áður en Listamaðurinn steig á
svið og sumum var nóg boðið þegar
öryggisverðir tilkynntu að ef ein-
hver myndi taka tónleikana upp
yrði hann kærður en Listamaður-
inn hefur staðið í miklum málaferl-
um undanfarið vegna sölu á tónlist
hans á Netinu svo skiljanlega er
hann ögn taugaveiklaður.
JDY
Aldamót
Toppur 2290
Pils 5690
■
Laugavegi 97 - Kringlunni VERO MODA
Gunmá
Tilvalið
í bílskúrinn
Hlífir gólfinu
fyrir óhreinindum
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is