Morgunblaðið - 18.11.1999, Qupperneq 73
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1999 73
-C.
FOLKI FRETTUM
Að smíða
popp
TONLIST
I A M
Geisladiskur
I am, geisladiskur Selmu. Selma
Björnsdóttir syngur aðal- og bak-
raddir. Þorvaldur Bjarni Þorvalds-
son leikur á gítar, hljómborð og
syngur bakraddir. Aðrir sem koma
við sögu eru m.a. Bjarki Jónsson
(hljómborð), Eiður Arnarsson
(bassi) Kjartan Valdemarsson (flyg-
ill, „rhodes" og dragspil), Ólafur
Hólm (trommur), Stefán Hilmar-
sson (bakraddir) og kvartettinn
Amina (strengir). Öll lög eru eftir
Þorvald Bjarna Þorvaldsson. Text-
ar eru eftir Selmu, Sveinbjörn I.
Baldvinsson og Andreu Gylfadótt-
ur. Upptökum stýrði Þorvaldur
Bjarni Þorvaldsson. 57,06 mín.
Spor og Skífan
gefa út.
SELMA Björnsdóttir náði stór-
góðum árangri í Eurovision,
söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva, í vor á þessu ári. Hún
hafnaði í öðru sæti með nær full-
komna poppsmíð „All out of luck“,
sem er líklega besta lagið sem Is-
lendingar hafa átt í keppninni til
þessa (fyrir utan Gleðibankann að
sjálfsögðu!).
Selma vakti það mikla athygli
með laginu að hún og Þorvaldur
Bjarni Þorvaldsson, fyrrverandi
liðsmaður Todmobile, en hann
samdi lagið, náðu að landa útgáfu-
samningi við sænskt útibú alþjóð-
legu útgáfunnar Universal. Dálag-
legur árangur það. Stuttu eftir það
var allt svo sett á fullt span og núna
rúmlega hálfu ári síðar er fyrsta
breiðskífan komin út.
Platan er mjög flöktandi í laga-
stflum og það er sem betur fer ekki
verið að búa til tíu tilbrigði við „AIl
out of luck“ enda Þorvaldur færari
lagasmiður en það. Platan byrjar
t.d. á Evrópupoppi (e. Europopp)
frá helvíti (ekki illa meint) með
sterka tilvísun í einhvers konar
spæjaraþema. Síðan koma þama
tvö endurunnin Todmobile-lög,
„Lommér að sjá“, og „Stúlkan",
sem heita nú „Play my game“, og
„Laurie". Endurvinnsla þeirra
hljómar vel, aðallega vegna þess að
upprunalegu lögin eru prýðisgóð.
Svo eru þama þrjú lög sem þau
Þorvaldur og Selma gerðu fyrir
kvikmyndina Sporlaust. Það era
„þyngstu" lög plötunnar og minna
svolítið á hina vinsælu hljómsveit
Garbage. Það er þó búið að poppa
þau aðeins upp fyrir þessa útgáfu
og verð ég að segja að ég kann bet-
ur við uppranalegu útgáfumar.
Þau lög sem eftir era, eru grípandi
popplög, nokkuð um ofurballöður
og best finnst mér titillagið sem
inniheldur algerlega ómótstæðilegt
viðlag, svona svipað og „All out of
luck“ gerir, en það er einnig að
finna hér. Lokalagið er frekar þunn
endurhlj óðblöndun á „AU out of
luck“ fyrir dansgólfin. Skiljanlegt
engu að síður þar sem í svona mál-
um er nauðsynlegt að hafa allar
klær úti því það er aldrei að vita
nema einhver klúbburinn taki
dansútgáfuna upp á arma sína. I
enda plötunnar er svo að finna
leynilag sem er mun tilrauna-
kenndara en önnur lög plötunnar.
Platan virkar ágætlega sem
poppplata og greinilegt að Þorvald-
ur er afar fær smellasmiður. Það
vantar þó tilfinnanlega einhverja
heildarmynd á hana og hið hraða
vinnsluferli plötunnar er merkjan-
legt á lokaútkomunni og er henni til
vansa. Af tólf lögum plötunnar era
ekla nema fimm stykki sem samin
era eftir sigur Selmu í Eurovision
(sex ef leynilagið er meðtalið).
Þetta verður að teljast vafasamt og
platan er fyrir vikið tætingsleg og
sterk samtíningslykt er af henni.
ímynd skiptir öllu í hinum harða
poppheimi og Selma er falleg
stúlka og bros hennar blítt. Það
væri vel hægt að smíða flotta
„poppdívu“-ímynd utan um hana en
þeir möguleikar eru hins vegar
vannýtir. Myndin á umslagi plöt-
unnar er góð en sama get ég ekki
sagt um myndirnar sem era innan í
bæklingnum svo og um almenna
hönnun á disknum.
Selma syngur mjög vel á plöt-
unni. Röddin er sannfærandi, hvort
sem hún er að syngja ballöður eða
hröð lög. Röddin er sterk, hrein og
bein og bjargar því sem á vantar
hér. Það væri gaman að heyra hana
syngja á heilsteyptari plötu, plötu
sem hún og Þorvaldur gætu vel
skilað af sér ef þau gæfu sér meiri
tíma. Það er vandlifað í popplandi
og hafa ber í huga að allt kapp er
best mdfeWSjEggert Thoroddsen
MYNDBOND
Þú ert slags-
málahundur
Hver er ég?
(Spennumynd)
W h o A in I ?
Leikstjóri: Jackie Chan og Bennie
Chan. Handritshöfundur: Lee
Reynolds, Susan Chan og Jackie
Chan. Aðalhlutverk: Jackie Chan
og Michelle Ferre. (104 mín.)
Bandarísk. Skífan, nóvember 1999.
Bönnuð innan 12 ára.
JACKIE Chan er ókrýndur kon-
ungur hasarmyndanna, a.m.k. í
austurheimi þar sem hann er allra
leikara vinsæl-
astur. Hylli hans
hefur líka smám
saman aukist á
Vesturlöndum og
er Island víst
engin undan-
tekning. Hver er
ég? er hans nýj-
asta mynd og þó
hún eigi e.t.v.
ekki eftir að vinna nýja aðdáendur
á hans band er hún hin besta
skemmtun. Söguþráðurinn er dálít-
ið óljós, en hasaratriðin eru útsjón-
arsöm að vanda og oft bráðfyndin.
Chan virðist í auknum mæli vilja
skipa myndum sínum í flokk alþjóð-
legra spennumynda á borð við
James Bond-röðina og ber Hver er
ég? þess merki. Ferðast er heims-
hlutanna á milliog reynt er að láta
fræg staðartákn njóta sín. Loka-
senan er hins vegar ekki fyrir loft-
hrædda en hún ein og sér gefur til-
efni til þess að sjá myndina.
Heiða Jóhannsdóttir
Ath Sendt
Laugaveg
Kringlt