Morgunblaðið - 22.02.2000, Síða 12

Morgunblaðið - 22.02.2000, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÉTTIR HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Landssíminn segir ummæli félags- málaráðherra vera misvísandi Verðskrá sil sama alls staðar á landinu LANDSSÍMINN kveður þá yfir- lýsingu Páls Péturssonar félags- málaráðherra að mikill og óeðlileg- ur verðmunur sé á gagnaflutninga- þjónustu fyrirtækisins vera mis- vísandi og sagði Ólafur Þ. Steph- ensen, forstöðumaður upplýsinga- og kynningarmála Landssímans, í gær að allir borguðu það sama fyr- ir flutning gagna jafnlangan veg, sama hvar væri á landinu. í samtali við Morgunblaðið á laugardag sagði Páll að enn væri „verulega miklu dýrara að kaupa þjónustu af Símanum úti á landi en hér á höfuðborgarsvæðinu." Tekur ráðherrann síðan dæmi af gagna- flutningsþjónustu með 2 Mb flutn- ingsgetu og nefnir mismunandi verð fyrir nokkra staði á landinu. „Ráðherrann lætur þannig í það skína að um sé að ræða sömu þjónustu og að þannig sé verðskrá Landssímans mismunandi eftir Erindi Péturs Péturssonar þular Samkeppnis- ráð leitar sjón- armiða Ríkis- utvarpsins ERINDI Péturs Péturssonar þul- ar, til Samkeppnisráðs, þar sem hann biður ráðið að kanna hvort ís- lensk tunga njóti jafnrar sam- keppnisstöðu á við enska tungu í hljómlistarflutningi á vegum Ríkis- útvarpsins, var tekið fyrir á fundi ráðsins í gær. Georg Ólafsson formaður Sam- keppnisráðs segir að á fundinum hafi verið ákveðið að leita sjónar- miða Ríkisútvarpsins í málinu. Rík- isútvarpinu verði sent bréf á næstu dögum og í framhaldi af því komi í ljós hver framvinda málsins verður. landshlutum,“ segir í athugasemd frá Landssímanum. „Til að forðast allan misskilning er rétt að taka fram að verðskrá Símans fyrir gagnaflutningsþjónustu er auðvit- að sú sama alls staðar á landinu. Það kostar þannig jafnmikið að tengjast frá Akureyri til Reykja- víkur og frá Reykjavík til Akur- eyrar og það kostar líka jafnmikið að tengja saman t.d. tvö fyrirtæki innanbæjar á Akureyri og tvö fyr- irtæki innanbæjar í Reykjavík." I athugasemdinni segir að í dæminu, sem Páll Pétursson setti upp, hafi verið um að ræða verð, sem félagsmálaráðuneytinu var gefið í gagnaflutningssambönd yfir mjög mismunandi vegalengd, þ.e. annars vegar innan Reykjavíkur og hins vegar milli Reykjavíkur og nokkurra staða á landinu. I sum- um tilfellum þyrfti alllanga leigu- línu í tengipunkt í ATM-neti Sím- ans, en í öðrum tilfellum mun styttri línu. Vegna þessa væri til dæmis dýrara að tengjast frá Hvammstanga til Reykjavíkur, en frá Akureyri til Reykjavíkur. „Nýleg leigulínuverðskrá Sím- ans, sem unnin var ásamt Póst- og fjarskiptastofnun, tekur mið af reglum Evrópska efnahagssvæðis- ins um að verðskráin skuli endur- spegla raunkostnað við að veita viðkomandi þjónustu," segir í at- hugasemdinni. „Fjarlægð á milli staða er óhjákvæmilega stór þátt- ur í þeim kostnaði, rétt eins og við veitingu ýmiss konar annarrar þjónustu. Þótt verð fyrir gagna- flutninga um lengri veg hafí lækk- að stórlega með nýrri verðskrá mun kostnaður vegna styttri lína og langra aldrei verða sá sami.“ í athugasemd Landssímans seg- ir að fjarskiptafyrirtækjum sé af samkeppnisástæðum ekki heimilt að verðjafna þessa þjónustu, en hins vegar væri stjórnvöldum heimilt að niðurgreiða hana í formi byggðastyrkja. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Lagarflj ótsormurinn Bíður eftir að snjóa leysi Vaðbrekku, Jökuldal - Lagar- fljótsormurinn liggur við festar og bíður þess að snjda og ísa leysi svo hann geti aftur farið að sigla með farþega um Lag- arfljótið. Það er öllu algengara að sjá önnur farartæki en skip föst vegna ófærðar en engu er líkara en „ormurinn langi“ sé fastur í skafli og bíði eftir að snjdnum verði rutt burt svo hann komist á flot. Hafnarfjörður Grunn- skólar héldu hátíð GRUNNSKÓLANEMENDUR í Hafnarfirði héldu sameiginlega há- tíð á dögunum í íþróttahúsi Víði- staðaskóla. Nemendur á unglinga- stigi og ækulýðsráð Hafnarfjarðar stóðu að hátíðinni. Unglingamir fluttu ýmis frumsamin verk fyrir aðra nemendur, foreldra sína og aðstandendur. Um kvöldið var svo slegið upp dansleik í íþróttahúsinu við Víðistaðaskóla. Morgunblaðið/Jim Smart Morgunblaðið/Jim Smart Könnun á líðan barna í 4.-7. bekk Álftanesskóla Sýnilegur árang- ur í baráttunni gegn einelti Bessastadahreppur UM 5% fleiri nemendur í 4.-7. bekk Álftanesskóla telja að krakkar geti helst fengið aðra krakka til að hætta að stríða eða hrekkja í könnun á líð- an nemenda í fyrra en í hittifyrra. Nemendur láta í ljós ákveðnari af- stöðu en tvö árin á undan. Svein- björn Markús Njálsson skólastjóri segir að samanburðurinn gefi til kynna sýnilegan árangur af starfi með nemendum í framhaldi af niður- stöðum könnunarinnar í hittifyrra. Sveinbjörn tók fram að hann leysti Erlu Guðjónsdóttur af í skóla- stjórastólnum í vetur. „Innra mat hefur verið fastur liður í skólastarf- inu í þrjú ár. Fjármagn kom upp- haflega frá Þróunarsjóði grunnskól- anna og veitt hefur verið fagleg aðstoð á skólaskrifstofu Hafnar- fjarðarbæjar. Skólastjóri og kenn- arar hafa séð um framkvæmdina öll árin. Einn liður í matinu felst í könn- un á líðan nemenda í 4.-7. bekk í nóvembermánuði ár hvert. Sérstak- lega hefur verið hugað að vanda í tengslum við einelti og stríðni af hvers konar tagi. Nemendur svara spurningum eins og hvort þeir viti um einhverja í skólanum sem séu teknir fyrir. Nú hefur verið bætt við skilgreiningu á því hvað sé að vera tekinn fyrir, þ.e. að hrinda, lemja eða slá, enda hafði komið í ljós að ekki lögðu allir sama skilning í orða- tiltækið," sagði Sveinbjörn. Hann sagði að niðurstöður könn- unarinnar hefðu verið kynntar á fundi með foreldrum til að byrja með. „Síðan var ákveðið að fara aðra leið og flétta umfjöllun um niður- stöðu könnunarinnar inn í námsefn- ið „Samvera" eftir Sigrúnu Aðal- bjarnardóttur í lífsleiknitímum. Niðurstöður könnunarinnar eru að ýmsu leyti athyglisverðar. Nokkur hópur hefur tekið eftir því að ein- hverjir eru teknir fyrir. Annar hóp- ur veit að aðrir hafa verið með í að taka einhverja fyrir. Hins vegar kannast aðeins 1% strákanna við að hafa verið með í að taka aðra fyrir. Um 0,9% nemenda segja slæmt/ mjög slæmt að vera í skólanum. Hlutfallið er auðvitað of hátt. Einn er einum of mikið þegar einelti er annars vegar.“ Börn geta haft jákvæð áhrif Sveinbjörn segir einkum tvennt mega lesa úr úr samanburði milli niðurstaðnanna í tveimur síðustu könnunum. „Annars vegar er greini- legt að nemendur hafa mótað sér mun ákveðnari afstöðu en áður. Hins vegar er greinilegt að nú telja fleiri nemendur (23%) en árið á und- an (18%) að krakkar geti helst feng- ið aðra krakka til að hætta að stríða. Börnin virðast því vera farin að skynja að þau geti haft jákvæð áhrif með því að segja frá eða tala um vandann. Önnur greinanleg breyt- ing er að börnin telja frekar að kennari heldur en skólastjóri geti fengið krakka til að hætta að stríða eða hrekkja. Sú breyting er í fullu samræmi við stefnu skólans um hvernig leysa eigi vandamál í tengslum við aga og ágreiningsmál. Skólastjóri kemur ekki inn í mynd- ina fyrr en eftir að kennarar og for- eldrar hafa reynt að leysa vandann." Spurningalisti íþremur liðum Fram kemur að notkun á spurn- ingalista undir yfirskriftinni „Mat á stöðu nemenda" frá Skólaþjónustu Eyþings hefur gefið góða raun við lausn ágreiningsmála í skólanum. „Mat á stöðu nemenda skiptist í þrennt, spurningalista til nemenda, foreldra og kennara. Niðurstöðurn- ar gefa færi á ákveðnum umræðu- grundvelli fyrir áframhaldandi greiningu á vandanum. Þessu til við- bótar hefur handbók í atferlisstjórn- un „Gríptu til góðra ráða“ eftir Guð- rúnu Öddu Ragnarsdóttur komið að góðum notum.“ Framkvæmd- ir við nýtt bókasafn á næsta ári Kópavogur STEFNT er að því að framkvæmdir við nýtt bókasafn Kópavogsbúa hefj- ist á næsta ári. Þá er ráðgert að koma upp útibúi frá safninu í Kópa- vogsdalnum. Þetta kom fram í samtali Morgun- blaðsins við Sigurð Geirdal bæjar- stjóra í framhaldi af ummælum Hrafns Harðarsonar, bæjarbóka- varðar í Morgunblaðinu, á föstudag um að safnið byggi við þröngan húsakost og að hann hefði áhuga á að fá útibú fyrir safnið í Smáranum. Framtíðar menningarmiðstöð Kópavogs verður reist við hlið Salar- ins og sagði Sigurður Geirdal að stefnt væri að því að framkvæmdir gætu hafist þar á næsta ári en þar verður framtíðarhúsnæði bókasafns- ins. Sigurður sagði að þótt ekki væri búið að negla niður hvenær hafist verður handa við framkvæmdir væri trúlegt að það yrði á næsta ári. „Síð- an er ljóst að við höfum lengi hugsað um útibú niðri í dal og þar kemur ýmislegt til greina,“ sagði Sigurður. Hann sagði að í upphafi hefði staðið til að fá húsnæði í Smáralind fyrir útibú safnsins en það hefði breyst, einnig væru hugmyndir um safn í tengslum við Lindaskóla. Ljóst væri því að á næstu árum fengi safnið nýj- ar höfuðstöðvar í nýrri menningar- miðstöð og einnig yrði opnað útibú „niðri í dal“. 276 m.kr. í leik- skólabyggingar Reykjavík REYKJAVIKURBORG ætlar að ráðstafa 276 milljónum króna til framkvæmda við leikskóla á þessu ári. Þetta er álíka upphæð og í fyrra en nokkru lægri en 1998. Að sögn Stefáns Hermannssonar, borgarverkfræðings, rennur þetta fé til byggingar leikskóla í Víkurhverfi og við Háteigsveg. Einnig verður haldið áfram með framkvæmdir við leikskóla í Húsahverfi og breytingai- og endurbætur í Hagaborg og víðar verða gerðar endurbætur á eldra húsnæði leikskóla borgarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.