Morgunblaðið - 22.02.2000, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Hermann Sigtryggsson, t.v., framkvæmdastjóri Vetraríþróttahátíðar
ÍSÍ og Óðinn Árnason, sem tekið hefur þátt í undirbúningi Andrésar
Andarleikanna í 25 ár, kynntu hátíðina sem nú stendur í tvo mánuði.
Vetraríþróttahátíð ÍSI haldin í
fjórða sinn í höfuðstað Norðurlands
V egleg hátíð
sem stendur í
tvo mánuði
Vetraríþróttahátíð íþrótta- og ól-
ympíusambands íslands 2000 verð-
ur haldin á Akureyri í mars og apríl,
eða dagana 3. mars til 26. apríl næst-
komandi, og er þetta í fjórða sinn
sem efnt er til slíkrar hátíðar á Ak-
ureyri. Hátíðir þessar eru haldnai' á
tíu ára fresti og var sú fyrsta árið
1970. Leitast verður við að sýna fjöl-
breytileika útilífs og hinna fjöl-
mörgu íþróttagreina sem stundaðar
eru við aðstæður sem veturinn skap-
ar. Inni í dagskrá hátíðarinnar er
vígsla tveggja íþróttamannvirkja,
skautahallar á Akureyri og nýs
skála í Hlíðarfjalli, Strýtu.
Hemiann Sigtryggsson, fram-
kvæmdastjóri Vetraríþróttahátíðar
ÍSÍ 2000, sagði að hátíðin nú yrði
veglegri en áður og hún stæði mun
lengur eða í nær tvo mánuði. Hátíðin
verður sett í Skautahöllinni á Akur-
eyri annan laugardag, 4. mars, og
verður eitthvað um að vera allar
helgar þar til henni lýkur síðustu
helgina í apríl. Hápunktur hátíðar-
innar er að sögn Hermanns um
helgina 24.-26. mars en þá verður
m.a. haldið íþróttaþing ÍSÍ sem á
þriðja hundrað fulltrúa sækja,
skautahöllin verður vígð formlega
og haldin verða alþjóðamót, svo-
nefnd FlS-mót í göngu og alpagrein-
um. Islandsmót verður í listhlaupi
þessa helgi og hestamenn verða með
sýningu og þá geta menn fylgst með
snjókrossi eða brugðið sér í göngu-
ferð með Ferðafélagi Akureyrar.
Almenningi gert
hátt undir höfði
„Að þessu sinni er áhersla lögð á
að gera almenningi hátt undir höfði í
dagskrá hátíðarinnar og verður sér-
staklega höfðað til fjölskyldunnar.
Við munum leitast við að fylgja
þessu markmiði eftir með nám-
skeiðahaldi og kynningu á íþróttum
og útivist sem nær til sem flestra
aldursflokka," sagði Hermann.
Þar að auki verður keppt í fjöl-
mörgum greinum, hefðbundnum
vetraríþróttum, alpagreinum og
skíðagöngu, íshokkíi og listhlaupi á
skautum sem og nýjum íþrótta-
greinum eins og snjóbrettaíþróttum,
skíðaskotfimi og krullu (kurling). Þá
verða akstursíþróttamenn með vél-
sleðakeppni og aksturskeppni á
stórum og smáum bflum á ís og
hestamenn reyna með sér í hesta-
íþróttum og halda sýningai-. Farið
verður í göngu- og skíðagönguferðir
um Eyjafjörð og til fjalla og þá geta
menn tekið þátt í ratleikjum og ís-
klifri. Námskeið í vetraríþróttum
• Verðútreikningur kr/kg
• 30 verðminni kr/kg
• Stór upplýsingaskjár
Kvnningarverð
frá kr. 29.700 án vsk.
Síðumúla 13, sími 588 2122
verða haldin fyrir fatlaða og að-
standendur þeirra og koma í því
skyni þekktir leiðbeinendur frá
Bandaríkjunum til að kenna það sem
TÓNLISTARSKÓLINN á Akureyri
kynnir starfsemi sína þessa viku.
Hefðbundin kennsla fellur niður
þessa viku í skólanum en þess í stað
fara kennarar og nemendur með
hljóðfæri sín og halda tónleika í
fyrirtækjum, stofnunum og leik-
skólum.
Á sama tíma verður Sinfómu-
hljómsveit Norðurlands með skóla-
tónleika þar sem farið verður með
litla hljómsveit í alla grunnskóla á
Akureyri, Dalvík, Árskógsströnd
og Húsabakkaskóla í Svarfaðardal.
Þá er í athugun að leika sömu efnis-
skrá fyrir nemendur Stórutjarna-
skóla, Hafralækjarskóla og fleiri
skóla austan Eyjafjarðar svo og
nemendur Hrafnagilsskóla, Þela-
merkurskóla og Valsárskóla.
Hljómsveitin mun leika fyrir um
2.700 nemendur íallt. á þessum
skólatónleikum. Á efnisskránni
nýjast er í heiminum um þessar
mundh-.
Andrés í 25. sinn
Stærstu dagar barnanna á þessari
íþróttahátíð verða 25. Andrésar
Andarleikarnir, sem hefjast 13. apr-
fl, en þeim lýkur á pálmasunnudag,
16. aprfl. Að jafnaði hafa keppendur
verið á áttunda hundraðið en með
þjálfurum, fararstjórum, foreldrum
og öðru áhugafólki hafa um 1.200
manns tekið þátt í leikunum með
einum eða öðrum hætti.
Undirbúningur fyrir hátíðina
stendur nú sem hæst að sögn Her-
manns, en þessa dagana er m.a. ver-
ið að safna saman munum á sögu-
sýningu um vetraríþróttir og útilíf
en hún verður í Kaupvangsstræti 1 á
Akureyri. Upplýsingar um þessa
fjórðu Vetraríþróttahátíð ÍSI má
finna á heimasíðu á Netinu:
www.vmi.is en þar eru einstakir
dagskrárliðir kynntir.
verður Djákninn á Myrká eftir John
Speight og sögumaður verður Að-
alsteinn Bergdal. Einnig verða flutt
lög í útsetningu hljómsveitar-
stjórnandans Guðmundar Óla
Gunnarssonar þar sem áheyrendur
syngja með.
Það má því segja að ein alls-
heijar tónlistarveisla verði á svæð-
inu þessa viku, en samtals eru þetta
um 70 tónleikar, stórir og smáir um
allan bæ sem og í nágrannabyggð-
um. Kynningarviku Tónlistarskól-
ans lýkur með tónleikum pianó-
deildar í Safnaðarheimili
Akureyrarkirkju á laugardag, 26.
febrúar, kl. 16.
Markmiðið með þessari kynningu
er að gera Tónlistarskólann og Sin-
fóníuhljómsveitina sýnilegri í bæj-
arlífinu og setja jafnframt
skemmtilegan lit á hversdagslíf
bæjarbúa.
I sóknarhug
Flutningur ríkisstofnana frá
höfuðborgarsvæðinu.
Hádegisverðarfundur með
Gísla Gíslasyni, bæjarstjóra á Akranesi, og
Snorra Birni Sigurðssyni, bæjarstjóra í
Skagafirði, á Fiðlaranum, Skipagötu 14,
miðvikudaginn 23. febrúar
frákl. 12.00 til 13.00
• Hvaöa þýðingu hafði flutningur Landmælinga ríkisins til Akraness?
• .. . Þróunarsviðs Byggðastofnunar og hluta íbúðalánasjóðs
til Sauðárkróks?
• Var erfiðleikum bundið að manna þær stöður sem í boði voru?
• Hefur starfsemi þessara stofnana eflst eða veikst við flutninginn?
• Hver eru margfeldisáhrifin af þessari starfsemi?
• Hefur fólki fjölgað eða fækkað f sveitarfélögunum
eftir tilkomu þessara stofnana?
• Þarf pólitíska íhlutun til þess að ríkisstofnanir fáist fluttar af
höfuðborgarsvæðinu?
Þetta, og ýmislegt fleira, munu Gísli og Snorri Björn
fjalla um og svara spurningum fundarmanna
Verð kr. 1.000 (léttur hádegisverður innifalinn)
Allir velkomnir
Skráning hjá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar í síma 461 2740 eða
á netfangi benedikt@afe.is.
Til sölu
gistiheimili á Akureyri
Eitt besta og vinsælasta gistiheimilið á Akureyri er
nú til sölu. Um er að ræða tvær fasteignir, sem
staðsettar eru hlið við hlið og
gerðar hafa verið að einni rekstr
areiningu. Gistiheimilið telur 14
herbergi og er í fullum rekstri.
Allur búnaður fylgir.
Frábær staðsetning.
FASTEIGNASALAN
BYGGÐ
Strandgötu 29, Akureyri,
sími 462 1 744, fax 462 7746.
Kynningarvika hjá tónlistarskóla
og sinfóníuhljómsveit
Morgunblaðið/Kristján
Eva María Ingvadóttir, átta ára nemandi í Tónlistarskólanum á Akur-
eyri, leikur á harmoniku fyrir starfsfóik í landvinnslu Samheija, Strýtu.
Um 70 tónleikar í vikunni
Bókaðu í síma 570 3030 0? 4(0 7000
Fax 5703001 • websalesðairicelandJs ‘www.fluffelaj.is
...fljújJu frekar
FLUGFELAG ISLANDS