Morgunblaðið - 22.02.2000, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2000 35
MENNTUN
Háskólanemum
fjölgar jafnt og þétt
Morgunblaðið/Kristinn
Jón Torfi Jónasson spáði í framtíð íslenskra háskóla
á Háskólaþingi á laugardag.
FJÖLDI nemenda í íslenskum há-
skólum mun aukast jafnt og þétt á
næstu áratugum, að mati Jóns Torfa
Jónassonar, prófessors við Háskóla
Islands. Þetta kom fram í erindi sem
Jón Torfi flutti við upphaf Háskóla-
þings um framtíð háskóla á Islandi í
ljósi sögunnar. Vöxtur nemenda-
hópsins hefur verið tiltölulega jafn
allt frá stofnun Háskóla Islands árið
1911. Miðað er við allt það nám sem
flokkað er sem háskólanám á hverj-
um tíma og fjöldi nemenda skoðaður
sem hlutfall af viðeigandi árgangs-
stærð.
Jón Torfi telur að með því að lesa í
sögu háskólastarfs á Islandi frá upp-
hafi þess og skoða þróun mála í öðr-
um löndum, sem hann segir yfirleitt
áþekka því sem hér hefur verið, sé
unnt að spá nokkuð örugglega fyrir
um þróun háskólastarfs á Islandi.
Kallar á öflugra háskólastarf
Jón Torfi bendir á að þrátt fyrir
tímabundnar aðgerðir sumra þjóða
til að stýra ásókn nemenda í háskóla,
sem gengið hafi um hríð, hafi nátt-
úrulegur vöxtur nemendahópsins
haldið sínu striki. Af þessu ályktar
hann að rétt sé að leyfa unga fólkinu
að fá þau tækifæri sem það sækist
eftir, það virðist hafa býsna gott vit
fyrir sér.
„Þessi hópur kallar á mjög fjöl-
þætta, öfluga háskólastarfsemi. Við
vitum talsvert um hvernig hún hefur
þróast og við vitum talsvert um
hvernig hún mun þróast en margt er
ógert og við verðum að gæta þess
sérstaklega að geta kerfisins til
frumkvæðis, sveigjanleika og endur-
nýjunar verði í engu skert, þvert á
móti.“ I þessu sambandi segir Jón
Torfi nauðsynlegt að við gerum það
upp við okkur hve mikinn metnað og
alúð við ætlum að leggja í að undir-
búa fólk undir 21. öldina, undir fram-
tíð sem ræðst að miklu leyti af því
hvernig þeim undirbúningi er hátt-
að.
Mótun rannsóknastefnu
Einn stærsti óvissuþátturinn í
framtíð háskólastarfs á Islandi er, að
mati Jóns Torfa, rannsóknir háskól-
anna. Framtíð þeirra telur hann að
miklu leyti ráðast af lífsviðurværi
framhaldsnáms. Hann telur mikil-
vægt að stjómvöld marki sér stefnu
um þetta efni og taki höndum saman
við háskólasamfélagið um að stað-
festa í verki af miklu meiri krafti en
þegar hefur verið gert hugsjónina
um öfluga vísindalega rannsóknar-
og fræðslustarfsemi á íslandi. Það
telur hann skipta sköpum fyrir það
þjóðfélag og það umhverfi sem við
viljum skapa.
Jón Torfi telur fyrirsjáanlegt að
námsbrautum muni fjölga mjög,
bæði á grunnstigi og framhaldsstigi,
svonefndar hagnýtar námsbrautir
sem smám saman muni taka á sig
fræðilegt svipmót verði áberandi. Þá
muni brautir flytjast af framhalds-
skólastigi á háskólastig og grunn-
stigi á framhaldsstig, endurmenntun
vaxa hraðbyri og talsvert af henni
verða metið til háskólaeininga. „Það
verður nóg að gera hjá stjórnvöldum
við að opna og fjármagna kerfið svo
það geti sinnt þessum vexti,“ sagði
Jón Torfi.
Háskólastarf sé óháð dægnr-
flugum og sérhagsmunum
Jón Torfi gerði tengsl háskóla og
atvinnulífs að umfjöllunarefni í er-
indi sínu. Hann segir tengslin löng-
um hafa verið mikil hér á landi, það
sé einfaldlega rangt ef einhver held-
ur því fram að þau séu of lítil. Hins
vegar megi vera að tengslin séu of
mikil en erfitt sé að feta hinn gullna
meðalveg í þessum. Hann segir að
halda verði fast við þá sannfæringu
að háskólum, þjóðlífi og atvinnulífi í
nútíð og framtíð sé best þjónað með
því að allt háskólastarfið sé gjörsam-
lega óháð dægurflugum og eða sér-
hagsmunum einstaklinga, fyrirtækja
eða stjómvalda.
Þá sýndi Jón Torfi fram á það að í
ljósi þróunarinnar hingað til séu
engin teikn á lofti um að ójöfn kynja-
hlutföll í ólíkum greinum háskólanna
breytist á næstunni; kvennagreinar
verði áfram kvennagreinar og öfugt.
Þýðing háskóla
fyrir samfélagið
UMRÆÐA um styrki til háskóla-
rannsókna og tengsl háskóla og
atvinnulifs voru áberandi að
loknum flutningi framsöguerinda
í málstofu á háskólaþingi sem bar
yfirskriftina: „Hver er þýðing há-
skóla fyrir samfélagið og fyrir
hverja eru þeir?“ Fjórir frum-
mæiendur með þekkingu á ólík-
um þáttum háskólastarfsins
fluttu erindi um efnið og varð
þeim tíðrætt um mikilvægi þess
að fólk sem starfar á mismunandi
sviðum háskólanna hittist og læri
hvert af reynslu annars.
Frummælendurnir voru sam-
mála um að mikilvægt væri að
tengsl atvinnulífs og háskóla
væru styrk og skipti þá ekki máli
hvers kyns nám væri um að ræða
eða hvar á landinu það væri. Þá
lögðu þeir þunga áherslu á mikil-
vægi rannsóknastyrkja fyrir öfl-
ugt starf háskóla.
Hjálmar H. Ragnarsson, rektor
Listaháskóla Islands, ræddi hlut-
verk listaakademíunnar í ís-
lensku samfélagi og framtíðarsýn
í erindi sinu. Hann benti á að erf-
itt væri að meta gildi Iistarinnar
og gagn fyrir samfélagið á sama
hátt og á við um ýmsar aðrar
kennslugreinar í háskólum lands-
ins en sagði ljóst að hún gegndi
mikilvægu hlutverki.
Hjálmar sér fyrir sér að ís-
lenska listaakademian geti orðið
miðstöð framsækinnar listsköp-
unar og suðupottur nýrra hug-
mynda á menningarsviðinu. Hann
sér fyrir sér að samspil Listahá-
skóla íslands við samfélagið geti
orðið með margvíslegum hætti;
hann fái þaðan næringu um leið
og hann gefur eitthvað til baka.
Þetta samspil birtist meðal ann-
ars í því að Listaháskólinn verði í
senn skóli og menningarmiðstöð
þar sem fólk geti sótt listviðburði
og ætlunin er einnig að stuðla að
samstarfsverkefnum kennara og
nemenda skólans við utanaðkom-
andi aðila.
I erindi Jóns Atla Bene-
diktssonar, prófessors við Há-
skóla íslands, sem fjallaði um há-
skólarannsóknir og þýðingu
þeirra fyrir samfélagið kom með-
al annars fram að hann telur mik-
ilvægt að mótuð sé skýr stefna til
framtiðar um rannsóknir háskóla
á íslandi. Hann telur nokkur at-
riði skipta sérstaklega miklu máli
við mótun framtíðarstefnunnar;
meðal annars þurfi að leggja auk-
ið fjármagn í grunnrannsóknir,
hafa skilvirkt matskerfi fyrir
rannsóknir, bjóða upp á öflugt
rannsóknartengt framhaldsnám
við íslenska háskóla, hafa öflugt
samstarf við fyrirtæki og stofn-
anir, nýta Netið í auknum mæli til
upplýsingamiðlunar og efla fram-
tak og frumkvæði hjá stúdentum.
Baldur Hjaltason, fram-
kvæmdastjóri Lýsis hf., flutti er-
indi um samspil háskóla og at-
vinnulifs frá sjónarhóli
atvinnulífsins og velti því meðal
annars fyrir sér hvers vegna at-
vinnulifið ætti að starfa með há-
skólunum. Hann benti á fjögur at-
riði sem mæltu eindregið með
því; háskólinn sé uppspretta
nýrrar þekkingar sem mikilvæg
sé fyrir atvinnulífið, í háskólun-
um sé aðgangur að sérhæfðum
mannauði, starfskrafta framtíð-
arinnar sé að finna í háskólunum
og þar sé einnig fyrir hendi sér-
hæfð aðstaða sem yfirleitt er ekki
til staðar annars staðar.
Sigríður Dúna Kristmundsdótt-
ir, dósent við Háskóla Islands,
velti í framsögu sinni upp spurn-
ingunni: „Tvö kyn, tvö mennta-
kerfí?“ og leitaði svara við henni.
Niðurstaða hennar var sú að þótt
við búum ekki beinlínis við tvö
menntakerfí, sitt fyrir hvort kyn,
þá séu konur og karlar mjög mis-
jafnlega staðsett innan mennta-
kerfísins, einnig fari því fjarri að
háskólamenntun kvenna skili sér
í launum þeirra jafnt á við karla.
Þrátt fyrir að jafn réttur karla
og kvenna til háskólanáms hafí
verið tryggður með lögum allt
frá árinu 1909 er enn töluvert í
það að sú hugsun hafí náð
markmiði sínu, að mati Sigríðar
Dúnu.
Hún telur hugarfarsbreytingar
þörf með aðstoð lands- og há-
skólayfirvalda, það gangi í ber-
högg við lýðræðisforsendur ís-
lensks þjóðfélags að kynin geti
ekki notið sömu lýðréttinda í
raun hvort sem er á sviði háskóla-
menntunar eða á öðrum sviðum.
Vorvörurnar steyma inn
Verðdæmi:
Jakkar frá kr. 4.900
Pils frá kr. 2.900
Buxur frá kr. 1.690
Bolir frá kr. 1.500
Alltaf sama góða verðið!
Nýbýlavegi 12, Kóp., s. 554 4433.
(SKATTFRAMTÖL - BÓKHALD
ÁRSREIKNINGAR
Tökum að okkur gerð skattframtala fyrir einstaklinga,
rekstraraðila og fyrirtæki.
Einnig færslu bókhalds, virðisaukaskattsuppgjör, gerð
ársreikninga og launaútreikninga.
Fagleg, áreiðanleg og alúðleg þjónusta.
Viðurkenndur bókari (sbr. 43. gr. laga nr. 145/1994).
REKSTRARNETEÐ
Fákafeni 9,108 Reykjavík,
sími 588 3270, fax 568 7001.
www.rekstrametid.is
Morgunflug til
Barcelona
alla miðvikudaga
í sumar
kr.
24.655
20.000 hr
sSS 2"»'*■*«*•
5.000 kr. á mann.
siá verðskrá
Barcelona er ein eftirsóttasta borg
Evrópu í dag, og það undrar eng-
an sem hefur kynnst þessari
heillandi borg. Ekki aðeins hef-
ur hún að geyma glæsilega bygg-
ingarlistasögu og heillandi borgar-
hluta eins og Barrio Gotico eða Port Olimpico, ólympíuhöfn-
ina, heldur hafa á síðustu árum sprottið upp ný hverfi og bygg-
ingar sem gera borgina að þeirri framsæknustu í byggingarlist í
Evrópu í dag.
Heimsferðir fljúga vikulega til Barcelona í sumar, alla
miðvikudaga í dagflugi, og bjóða úrval góðra hótela í
hjarta borgarinnar og við ströndina í strandbænum Sitges.
Verð kr.
24.655
Flugsæti m.v. hjón með 2 böm,
2 - 11 ára.
Verð kr.
29.990
Flugsæti fyrir fullorðinn með
sköttum, ef bókað fyrir 15. mars.
Gildir f valdar brottfarir.
Þjónusta Heimsferða
* íslensk fararstjórn
* Úrval kynnisferða
* Viðtalstímar á gististöðum
Heimsferða
* Akstur til og frá fiugvelli
* Vikulegt leiguilug
* Þrif daglega á gististöðum
Heimsferða
Verð kr.
44.990
Flug og hótel í viku, með
flugvaliarsköttum. m.v. 2 f herbergi
með morgunmat. Paralell, 21. júnf,
ef bókað fyrir 15. mars.
Austurstræti 17, 2. hæð, sími 595 1000. www.heimsferdir.is