Morgunblaðið - 22.02.2000, Page 60
30 ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍDAG
Magnús Gylfi Thorstenn forstjóri Atlanta og Skúli Skúlason fram-
kvæmdastjóri Flugflutninga handsala samninginn á skrifstofu Atlanta.
Atlanta og Flugflutning-
ar semja um frakt
FLUGFÉLAGIÐ Atlanta hf. og
Flugflutningar ehf. hafa gert með
sér samning um að Flugflutningar
verði söluaðili á allri frakt í flugvél-
um Flugfélagsins Atlanta til og frá
íslandi. Þetta mun taka til allra
áfangastaða félagsins frá íslandi,
Kaupmannahöfn, London, Alic-
ante, Faro og Palma.
Flugflutningar munu í umboði
Atlanta sjá um öll samskipti við
tollayfirvöld varðandi skráningar
farmskrár, geymslu og afhendingu
á frakt fluttri af Atlanta.
Flokksráðsfundur VG
Brýnt að bæta kjör
sauðfjárbænda
FLOKKSRÁÐ Vinstrihreyfingar-
innar - græns framboðs hélt fyrsta
fund sinn á nýbyrjuðu ári sl. laugar-
► dag. í flokksráði sitja fulltrúar úr
öllum kjördæmum landsins auk
stjórnar flokksins og þingmanna.
A dagskrá fundarins var fjöldi
mála en aðalefni hans var þó umfjöll-
un um stöðu landbúnaðar á Islandi
um þessar mundir og samningar við
bændur. A fundinum var samþykkt
eftirfarandi ályktun:
„Flokksráðsfundur Vinstrihreyf-
ingarinnar - græns framboðs, hald-
inn í Reykjavík 19. febrúar árið 2000,
hefur fjallað um stöðu íslensks land-
búnaðar og telur sérstaklega brýnt
að stórbæta kjör sauðfjárbænda og
fjölskyldna þeirra. Vakin er athygli
á því að sérstök ástæða er til að huga
að stöðu kvenna í sveitum.
V Með vísan til yfirstandandi samn-
ingaviðræðna hvetur fundurinn
stjómvöld til að gera ráðstafanir til
að tryggja afkomu sauðfjárbænda í
landinu. Mikilvægt er að í nýjum
samningum eða samhliða þeim verði
skapaðar forsendur fyrir þróun í
greininni, nýliðun verði tryggð,
árangur náist í umhverfismálun og
lífræn ræktun aukist. Jafnframt þarf
að gera rótttækar ráðstafanir til að
bæta aðstæður til búsetu í dreifbýli
Jarðgerð á
vegum sveitar-
félaga
„JARÐGERÐ - góður kostur fyrir
sveitarfélög, stofnanir og einstakl-
inga,“ er yfírskrift á námskeiði, sem
Garðyrkjuskóli ríkisins, Reykjum í
Ölfusi, heldur fyrir fagfólk í græna
geiranum fimmtudaginn 24. febrúar
frá kl. 10 til 17 í húsnæði Félags
garðyrkjumanna, Suðurlandsbraut
30, Reykjavík.
Leiðbeinendur verða Baldur
Gunnlaugsson, garðyrkjustjóri úti-
svæða Garðyrkjuskólans, Björn
Guðbrandur Jónsson, framkvæmda-
stjóri Gróðurs fyrir fólk í iandnámi
A Ingólfs, Bjöm Halldórsson umhverf-
isverkfræðingur og Ingi Arason,
rekstrarstjóri Gámaþjónustunnar.
Námskeiðið enda á heimsókn til
garðyrkjudeildar Kirkjugarðanna í
Fossvogi, þar sem jarðgerð verður
kynnt í máli og myndum.
Skráning og nánari upplýsingar
em hjá endurmenntunarstjóra
Garðyrkjuskólans á skrifstofutíma.
landsins svo sem með átaki í sam-
göngumálum, bættum fjarskiptum,
fjölbreyttara atvinnulífi, bættum
möguleikum til menntunar og trygg-
ara aðgengi að heilbrigðisþjónustu.“
Stöðinni í Sellafield verði lokað
Á fundi flokksráðs Vinstrihreyf-
ingarinnar - græns framboðs var
einnig fjallað um þær fréttir sem
borist hafa af hættu á kjarnorku-
mengun í norðurhöfum.
Eftirfarandi áskorun til íslenskra
stjórnvalda var samþykkt á fundin-
um:
„Flokksráðsfundur Vinstrihreyf-
ingarinnar - græns framboðs, hald-
inn í Reykjavík 19. febrúar árið 2000,
beinir því til íslenskra stjómvalda að
þau beiti sér fyrir því á alþjóðavett-
vangi að kjarnorkuendurvinnslu-
stöðinni í Sellafield og öðrum sam-
bærilegum stöðvum með frárennsli í
sjó verið lokað sem fyrst. Rflds-
stjóminni ber að tilkynna breskum
stjómvöldum slíka afstöðu Islend-
inga þegar í stað. Sú stórkostlega
hætta sem steðjar að vistkerfinu
vegna losunar geislavirks úrgangs í
hafið er óviðunandi og rannsóknir
hafa jafnframt leitt í Ijós að öryggis-
mál starfseminnar em í molum.“
Fræðslufundur
um skjalavörslu
BANDALAG kvenna í Reykjavík
heldur fræðslufund um skjalavörslu
miðvikudaginn 23. febrúar kl. 20 á
Hallveigarstöðum við Túngötu.
Allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir.
Inntökufundur
KFUM
NÝJUM félagsmönnum verður
fagnað á fundi aðaldeildar KFUM
fimmtudaginn 24. febrúar á fundi
aðaldeildar KFUM í aðalstöðvum
félagsins við Holtaveg. Hefst fund-
urinn með borðhaldi kl. 19.
Nýjum félögum verður boðið í
matinn en eldri félagsmenn greiða
2.000 kr. Skráning í matinn fer
fram á skrifstofu KFUM við Holta-
veg. Að borðhaldi loknu verður
dagskrá í umsjá stjórnar KFUM í
Reykjavík.
viiwkwm
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Til kaup-
manna við
Laugaveg
EG er ein af þeim sem
hingað til hefur þótt eftir-
sóknarverðara að fara á
Laugaveginn en í Kringl-
una, þó það sé styttra þang-
að heiman frá mér. Aftur á
móti hef ég aldrei skilið
ólundina og óliðlegheitin,
sem maður verður oft og
iðulega var við í verslunum
við Laugaveginn, ef maður
vogar sér að fara inn í
næstu verslun og biðja af-
greiðslufólk um að skipta
fyrir sig í 50 kr. til að geta
sett í stöðumælana. Það er í
raun alveg fáránlegt að í
hvert sinn sem maður ætlar
á Laugaveginn, verði mað-
ur að athuga áður en lagt er
af stað hvort maður eigi 50-
kall eða ekki og fara öðrum
kosti í banka eða næstu búð
og kaupa eitthvað með það í
huga að fá 50 kr. til baka.
Oft hefur það komið fyrir
eftir að ég er lögð af stað til
Reykjavíkur með það í
huga að fara á Laugaveg-
inn, að ég uppgötva að ég er
ekki með skiptimynt í
stöðumæli og hætti því við
og fer t.d. í Kringluna. Ég
fór inn í söluturn, neðar-
lega á Laugaveginum og
spurði afgreiðslustúlkuna
kurteislega hvort hún gæti
skipt fyrir mig 100 kr. í
2x50 kr. Hún varð alveg æf
og kom með mikinn fyrir-
lestur um það að hún ynni
þarna ein og ef hún ætlaði
sér að skipta fyrir alla sem
bæðu um það, væri alveg
eins hægt að loka „sjopp-
unni“ því hún gerði þá ekk-
ert annað. Ég held nú samt
að hún hefði verið helmingi
fljótari að skipta fyrir mig
en að halda þessa ræðu.
En s.s. kaupmenn við
Laugaveg, ef þið ætlið að
laða fólk til ykkar verðið þið
að eiga svolitið af 50 kr. og
skipta fyrir fólk með
ánægju en ekki ólund - það
gerir Laugavegsferðina
mun ánægjulegri en ella!
Hafnfirðingur.
Opið bréf til Kára
ÁGÆTI Kári.
Ég vil byrja á því að óska
þér til hamingju með frá-
bæran árangur. Ég hef
fylgst af miklum áhuga með
umræðu um gagnagrunn
og verið honum fylgjandi.
Eg varð orðlaus þegar ég
heyrði af uppátækjum lög-
manna um að reyna a_ð selja
ykkur kennitölur. Ég vil
nota þennan vettvang til að
bjóða þér að nýta þér öll
gögn sem til eru um mig í
heilbrigðisgeiranum að
vild. Ég vona bara að þær
upplýsingar sem fara í
grunninn nýtist í framtíð-
inni bömum okkar til far-
sældar.
Sigrún Jónsdóttir,
210970-5419.
Lokaorð um ketti
ÉG vil beina þeim tilmæl-
um til Sigrúnar að hætta
þessari baráttu sinni fyrir
slæmum málstað og hugsa
svolítið um meðbræður
sína. Það eru fleiri dýr til en
kötturinn. Bið ég Sigrúnu
að lesa Morgunblaðið 17.
febrúar um akfeita ketti.
Skrif hennar lýsa kannski
best hug hennar til sam-
borgara sinna. Að lokum
hlakka ég til að geta gefið
smáfugiunum á morgnana
án ótta við að þeir verði
drepnir á meðan. Réttlætið
sigrar ávallt að lokum.
230626-4059,
dýravinur.
Félagrar í
umferðinni
ÁGÆTU félagar í umferð-
inni sem akið um á Bens-
um, Audium og BMWöff-
um, sem virðast ekki búnir
stefnuljósabúnaði, þið ætt-
uð að krefjast þess að slíkt
sé staðalbúnaður. Fyrir
hvað eruð þið að borga?
Við sem ökum á Citroen
og viðlíka eðalvögnum höf-
um þennan útbúnað inn-
byggðan og notum hann
nákvæmlega eins og
bremsur og bensíngjöf. Við
lendum í stökustu vand-
ræðum þegar þið komið á
bílum ykkar, sem ekki hafa
þennan búnað, að hring-
torgum og gatnamótum og
vitum ekkert hvert þið ætl-
ið. Fyrir alla muni aflið
ykkur stefnuljósabúnaðar,
hann er ekki svo dýr.
Ásgeir,
160927-3649.
Kosningar
til stúdentaráðs
VAKA, félag lýðræðissinn-
aðra stúdenta, og Röskva,
samtök félagshyggjufólks í
Háskólanum, takast á í dag
um fylgi í kosningum til
stúdentaráðs. Eigi lýðræð-
ishvötin að hafa betur með
þjóðinni hvet ég stúdenta
eindregið til að kjósa full-
trúa Vöku. Þeir bera meiri
virðingu fyrir fólki en
Röskvumenn, hafa enda
ekki þá hugsjón helsta að
vera með hendurnar á kafl í
vösum almennings.
Rannveig Tryggvadótt-
ir, Bjarmalandi 7, Rvík.
Tapad/fundiö
Gullhringar týndust
ÞRIR gullhringar týndust
sl. þriðjudagskvöld fyrir ut-
an Domus Medica. Finn-
andi vinsamlega hafi sam-
band í síma 557-9380.
Fundarlaun.
Morgunblaðið/Kristinn
Víkverji skrifar...
SKÍÐAFERÐIR til útlanda hafa
ekki heillað Víkverja mjög hing-
að til. Aftur á móti virðast vinsældir
þeirra sífellt vera að aukast, að
minnsta kosti í þeim hópi sem Vík-
verji þekkir best. Því varð það úr
fyrir skömmu að hann skellti sér í
eina slíka til Italíu með vinahópnum.
Nánar til tekið til Madonna di
Campiglio.
Er ekki hægt að segja annað en
ferðin hafi farið fram úr björtustu
vonum hópsins og er þegar byrjað
að undirbúa aðra ferð að ári.
Hins vegar mátti ýmislegt betur
fara í skipulagi á staðnum og er í
raun ótrúlegt að einn íslenskur far-
arstjóri skuli vera látinn bera
ábyrgð á yfir hundrað manna hópi.
Fyrir það fyrsta þá átti hópurinn
að fá afiienta skíðapassa klukkan
8:40 á mánudagsmorgni til þess að
geta komist á skíðasvæðin og í skíða-
kennslu. Passarnir voru hins vegar
ekki tilbúnir fyrr en tæpum tveimur
tímum síðar þannig að þeir sem áttu
að fara í skíðakennslu klukkan níu
misstu af henni þennan daginn.
Einn farþeganna þurfti nauðsyn-
lega að fá upplýsingar hjá farar-
stjóranum um skíðakennslu morg-
uninn eftir og reyndi ítrekað að ná í
fararstjórann í neyðamúmeri sem
farþegar fengu uppgefið en því mið-
ur var alltaf slökkt á símanum. En
að öðru leyti gekk ferðin snurðu-
laust og án stóráfalla enda engin
ástæða til þess að láta smáatriði
eyðileggja fyrir sér fríið.
XXX
VÍKVERJI er ekki einn um að
vera ferðaglaður í fjölskyld-
unni og vinahópnum. Fyrir rúmri
viku gáfu ferðaskrifstofurnar út
sumarbæklinga sína og síðan hefur
fjölskyldan og vinirnir legið yfir
mögulegum og ómögulegum ferða-
lögum sumarsins.
Eftir að hafa grandskoðað hvað
ferðaþyrstum Islendingum stendur
til boða í sumar lýsti einn vinur Vík-
verja því yfir að hann ætlaði að selja
bflinn, gerast sígauni og flakka um
heiminn þar sem það væri allt of
margt spennandi í boði. Hvort sem
viðkomandi stendur við ákvörðun
sína, þá er nokkuð ljóst að það vant-
ar ekki umræðuefni í næstu boðum
og næsta víst að ýmsir framandi
réttir verða á boðstólum í matarboð-
um það sem eftir lifir vetrar.
XXX
SÍÐASTLIÐINN sunnudag var
konudagurinn og var þetta ann-
ar dagurinn á tæpri viku þar sem
eiginmenn og unnustar eru nánast
skikkaðir til þess að gefa sinni heitt-
elskuðu annaðhvort blóm eða ein-
hverja rómantíska gjöf. Siðir sem
þessir fara ákaflega í taugarnar á
Víkverja þar sem hans skoðun er sú
að hver og einn verði að finna það
upp hjá sjálfum sér vilji hann færa
einhverjum, sem honum er annt um,
gjöf. Þar eigi blómakaupmenn og
aðrir verslunareigendur ekki að
ráða ferðinni.
Að vísu er erfitt að amast við dög-
um eins og bóndadeginum og konu-
deginum sem eru íslensk hefð, þó að
ekki sé löng hefð fyrir gjafaflóði á
þeim dögum, en að Islendingar
hlaupi upp til handa og fóta á Val-
entínusardaginn er nánast óskiljan-
legt.