Morgunblaðið - 22.02.2000, Page 62
62 ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
TRAC VCHAPM
reUiNG
stories
ERLENDAR
Kristín Björk
Krisfjánsdóttir
skrifar um nýjasta
geisladisk Tracy Chapman,
„Telling Stories".
Konan með
kaffiröddina
MÉR VERÐUR alltaf hlýtt þegar
ég hlusta á Tracy Chapman. Röddin
hennar kemur eitthvað svo mjúklega
við kalda kinn á hrollköldum degi,
enda hefur hún vafalaust veitt mörg-
um athvarf frá hasar hversdagslífs-
ins og flækjunum þarna úti. Einfald-
ar, hlýjar melódíur hennar og
ISI.I.
_______'iii
\sk v ori.ií v\
Sími 511 4200
Lúkretía svívirt
The Rape of Lucretia
Ópera eftir Benjamín Britten
7. sýning 25. febrúar kl. 20
8. sýning 26. febrúar kl. 20
Síðustu sýningar
Einsöngstónleikar
miðvikudaginn 23. febrúar kl. 12.15
Rannveig Fríða Bragadóttir,
mezzo-sópran
Gerrit Schuil, píanó.
Miðasala opin frá kl. 13-19, mán.-lau.
og alla sýningardaga frá kl. 13 og fram
að sýningu. Símapantanir frá kl. 10.
Camla Bíó — 551 1475
sefandi gítarleikur-
inn eru faðmur sem
ég held að þessi
heimur þurfi mjög
á að halda.
Tracy lærði að
spila á gítar
þegar hún var
smástelpa og
var ekki lengi
að svífa upp á
stjörnuhim-
ininn. Skóla-
félagi henn-
ar benti föður
sínum í útgáfubransanum
á stúlku sem söng stundum áríðandi
texta í háskólagarðinum og lék undir
á gítar. Stúlkan gaf út plötu sem hét
einfaldlega Tracy Chapman og seld-
ist í ríflega tíu milljónum eintaka, al-
veg eins og í bíó. Þetta var árið 1988.
Eftir þetta komu út þrjár plötur sem
lögðust ekki eins vel í fólk og sú
fyrsta. Kannski voru textarnir of
ágengh-, skilaboðin óþægilega pól-
itísk eða ekki nógu mikið gólað um
ástina og einmanaleikann. Að
minnsta kosti fóru plöturnar hennar
ekki að seljast aftur fyrr en lagið
„Give Me One Reason" sló í gegn ár-
ið 1995 og var valið besta rokklagið á
Grammyverðlaunahátíðinni ári síð-
ar. Reyndar var fyrsta plata Tracy
alveg einstaklega grípandi (eins og
vill reyndar brenna við með fyrstu
plötur fólks) og því kannski ekki
nema von að fólk hafi tekið þeim sem
á eftir komu með fyrirvara.
Bráðlega kemur út fimmta plata
Tracy, „Telling Stories", og má segja
að hún sé dálítið afturhvarf til stúlk-
unnar í garðinum þó það sé auðheyrt
að hún tók árin ellefu öll með sér inn
í lögin. Útsetningarnar eru aftur
komnar í ofureinfaldleikann og undir
textunum sýður enn yfirvegaði eld-
móðurinn, nema beislaðri en fyrr.
Textagerð hefur alltaf verið sterkur
hlekkur í lagasmíðum Tracy og á
Telling Stories tekur hún á málefn-
um sem varða allt frá eigin jarðarför
í laginu „Unsung Psalm“ og út í
takmarkanir lífsins, að ógleymdri
elsku ástinni. I laginu „First Try“
syngur hún um að henni gangi illa að
læra að sættast við að það sé í lagi að
glíma við takmarkanir venjulegs lífs:
„Can’t learn to accept that it’s al-
right to struggle with the limits of
this ordinary life“, segir hún en ég
spyr mig hvort það sé ástæða til ann-
ars en að vinna bara eins vel úr tak-
mörkununum og hægt er.
Takmarkanir
eru hvort sem
er ekki annað
en það sem
maður vill að
þær séu.
Það er ákveð-
inn mildur sátta-
tónn í lögunum á
„Telling Stories".
Eins og tístið frá
fuglinum sem loks-
ins fann sér hreiður,
eða kannski vonleys-
islegt tíst þess sem
fann sér hreiður? Alla-
vega hef ég það á tilfinningunni að
kannski hefði Tracy aldrei átt að
flögra frá hreiðrinu sem hún byggði
sér í upphafi, þar sem einfaldleikinn
réð ríkjum. Bara hún og gítarinn.
Lagið „First Try“, sem ég minntist á
hér að ofan, er til dæmis spunnið
uppúr dásamlega einföldum banjó-
og gítarfléttum sem vefjast nær-
færnislega utan um hlýja kaffirödd
Tracy. Hún þarf ekkert meira, því
hún og gítarinn eru nefnilega svo
góðir vinir. Lögin hennar virka lang-
best í fiummynd sinni, að útsetning-
um hennar ólöstuðum.
„Telling Stories" er kannski ekki
alveg það allra mest hressandi í
skammdeginu og hristir ekki endi-
lega þunglyndið burt ef það er fyrir
hendi. En platan er hlý og einföld,
sem eru eiginleikar sem aldrei verða
ofmetnir undir erilsömu hagléli koff-
ínmettaðs umhverfis.
aldrei
Sun 27. febrúar kl. 20.
fös 3. mars kl. 20
0
SINFÓNÍAN
FÓLK í FRÉTTUM
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Þorgeröur Einarsddttir frá Þörisholti og Guðriín Árnadóttir
frá Kerlingadal voru meðal gesta.
Gamanleikrit í leikstjórn
Siguröar Sigurjónssonar
fim 24/2 kl. 20 UPPSELT
Aukas. 196 sýn. lau 4/3 kl. 20
197 sýn. lau 11/3 kl. 20 —
íþróttahöllin á Akureyri
198 sýn. fim 16/3 kl. 20
aukas. 199 sýn. fim 23/3 kl. 20
aukas. 200. sýn lau 24/3 kl. 20
Miðasala opin frá kl. 13-19, mán.—lau.
og alla sýningardaga frá kl. 13 og fram
að sýningu. Símapantanir frá kl. 10.
98 ára á þorrablóti
4. febrúar kl. 20
Þema tónleikanna er fuglar. Þeir koma við sögu I verkum Japanans
Takemitsu, Finnans Rautavaara og Frakkans Messiaen, sem frægur
er fýrir notkun sfna á fuglasöng sem efnivið í tónsmfðum sfnum.
Komdu og upplifðu nýjar víddir í tónlist.
Hljómsveltarstjóri: Diego Masson
Einleikari: Áshildur Haraldsdóttir MI6»ala virka daga kl. 9-17
Olivier Messiaen: Oiseaux Exotiques ...
Einojuhani Rautavaara: Cantus Articus s 0 1 v >sa orfl
Toru Takemítsu: Fuglahópur lendir I fimmhyrnta garóinum s,mi 562 2255
Haukur Tómasson: Flautukonsert www.sinfonla.ls
ÞORRABLÓT var haldið nú í lok
þorra á Eyrarlandi í Mýrdal. Mjög
breiður aldurshópur var á blótinu,
var aldursmunurinn 80 ár því
yngstu gestirnir voru 18 ára og
hinn elsti 98 ára. Þorgerður Einars-
dóttir, sem er 98 ára, hefur farið á
flest þorrablótin á Eyrarlandi frá
því þau voru fyrst haldin fyrir
nokkrum áratugum. Þorgerður
skemmti sér hið besta og tók nokk-
ur dansspor við músík sem Magnús
Kjartansson stjórnaði, við góðan
orðstír viðstaddra. Þegar klukkan
var að verða 3 um nóttina fór Þor-
gerður svo hring í salnum til að
kveðja vini og ættingja. Magnús
hélt uppi stanslausu fjöri alla nótt-
ina eða til þar til klukkan var langt
gengin í fimm og fóru þá síðustu
gestirnir heim sælir og glaðir.
Guðrún Ingvarsdóttir og Ómar
Ilalldórsson, bændur í Suður-
Hvammi tóku snúning á
dansgólfinu.
45%j ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ símí 551 1200
Stóra s</iM kt. 20.00
ABEL SNORKO BÝR EINN — Eric-Emmanuel Schmitt
I kvöld þri. 22/2, uppselt, lau. 4/3 kl. 15.00. sun. 12/3 nokkur sæti laus. Takmarkaður
sýningafjöldi.
KOMDU NÆR — Patrick Marber
2. sýn. mið. 23/2 nokkur sæti laus, 3. sýn. fim. 24/2 nokkur sæti laus, 4. sýn. sun.
27/2 nokkur sæti laus. Sýningin er hvorki við hæfi barna né viðkvæmra.
GULLNA HLIÐIÐ — Davíð Stefánsson
Fös. 25/2, örfá sæti laus, lau. 4/3 nokkur sæti laus, lau. 11/3 kl. 15.00 nokkur
sæti laus, lau. 11/3 kl. 20.00, mið. 15/3 örfá sæti laus.
KRÍTARHRINGURINN í KÁKASUS — Bertolt Brecht
Lau. 26/2, fös. 3/3 og fös. 10/3. Fáar sýningar eftir.
GLANNI GLÆPUR í LATABÆ
Magnús Scheving og Sigurður Sigurjónsson.
Sun. 27/2 kl. 14, uppselt, sun. 5/3 kl. 14, uppselt, kl. 17.00, uppselt, sun. 12/3 kl.
14.00, örfá sæti laus, sun. 19/3 kl. 14, nokkur sæti laus, sun. 26/3 kl. 14.00, örfá
sæti laus.
Litta sMið kt. 20.30:
HÆGAN, ELEKTRA — Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir
Frumsýning fim. 24/2, 2. sýn. 26/2.
Smiðatferkstceðið kt. 20.00:
VÉR MORÐINGJAR — Guðmundur Kamban
Fös. 25/2 uppselt, sun. 27/2 uppselt, fim. 2/3, lau. 4/3. Ath. breyttan sýningartíma
á Smíðaverkstæðinu.
Miðasalan er opin mánud.—þriðjud. kl. 13—18,
miðvikud.—sunnud. kl. 13—20.
Símapantanir frá kl. 10 virka daga. thorev@theatre.is. Sími 551-1200.
fistAÖNli
GAMANLEIKRITIÐ
Leikaran Jón Gnarr, Katla Margrét Þor-
geirsdóttir, Þorsteinn Guðmundsson, Ingi-
björg Stefánsdóttir, Jón Atli Jónasson.
Leikstjórí: Hallur Helgason.
Höfundur Woody Alien.
fös. 25/2 kl. 20.30 nokkur sæti
lau. 26/2 kl. 20.30 uppselt
lau. 4/3 kl. 20.30 uppselt
sun. 5/3 kl. 20.30
fös. 10/3 kl. 20.30
fös. 17/3 kl. 20.30
Ppphitari: Pétur Sigfússon.
5s. 25/2 kl. 24 miðnætursýning
/ — örfá sæti laus
fös. 3/3 kl. 21
lau. 11/3 kl. 21, lau. 18/3 kl. 21
fim. 24/2 kl. 20 Laus sæti
Gamansöngleikur byggður á
lögum Michael Jackson
MIÐASALA í S. 552 3000
Miðasala er opin virka daga 10-18, frá kl. 14
lau./sun. og fram að sýningu sýningardaga.
Athugið — ósóttar pantanir seldar
þremur dögum fyrir sýningu
5 30 30 30
STJÖRNURÁ
MORC UNHIMNI
mið 23/2 kl. 21 aukas. nokkur sæti laus
fös 25/2 kl. 20 UPPSELT
FRANKIE & JOHNNY
lau 26/2 kl. 20.00 nokkur sæti laus
Síðasta sýning
Sýning í Neskirkju byggö á Jobsbók
Gamla testamentisins
27. febrúar 29. febrúar 2. mars
Sýningar hefjast kl. 20.30
Leikari: Arnar Jónsson
Leikstjóri: Sveinn Einarsson
Tónlist: Áskell Másson
Miöaverö kr. 1.500 - Miöasala og upplýs-
ingar á skrifstofu Neskirkju viö Hagatorg,
sími 5111563, opiö kl. 9 -17. Kirkju-
húsiö Laugavegi 31 og Essostööin viö
Ægissíðu
SALKA
Fös. 25/2 kl. 20.00 örfá sæti laus
Lau. 26/2 kl. 20.00 örfá sæti laus
Fös. 3/3 kl. 20.00 laus sæti
Lau. 4/3 kl. 20.00 laus sæti
Takmarkaður sýningafj. v/leikferða.
Sushi i hféi!
B
2222
MIÐASALA
555
MÍrefmsvönir
Karin Herzog
rám
Vita-A-Koinbi