Morgunblaðið - 22.02.2000, Side 72
^ Texas
Instruments
MORGUNBLADW, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSWÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI:KA UPVANGSSTRÆHI
ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2000
VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK.
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Samningamenn bera stóla í ný húsakynni ríkissáttasemjara, fremstir fara Halldór Björnsson, formaður Eflingar, og Kristján Gunnarsson úr Keflavík.
Flóabandalagið og SA ætla að láta reyna á samninga um næstu helgi
Viðræðuslit á fundi
i-jsa
VMSI og vinnuveitenda
Á FUNDI samninganefndar Verka-
mannasambandsins og Samtaka at-
vinnulífsins (SA) í gær slitnaði upp úr
viðræðum. Björn Grétar Sveinsson,
formaður VMSÍ, segir að samninga-
nefnd VMSÍ sjái ekki ástæðu til að
sitja lengur yfir viðræðum enda haf!
þær engu skilað. Samningamenn
Flóabandalagsins og vinnuveitenda
ætla að hittast á fundi nk. föstudag og
segir Halldór Bjömsson, formaður
Eflingar, hugsanlegt að menn haldi
. áfram viðræðum um helgina og láti á
það reyna hvort samningar takist.
Samninganefnd Flóabandalagsins
og Samtaka atvinnulífsins áttu rúm-
lega fjögurra klukkustunda fund í
gær hjá ríkissáttasemjara. Á fundin-
um lögðu vinnuveitendur fram hug-
mynd um tryggingaákvæði samn-
ings, en Halldór sagði að Flóa-
bandalagið gæti ekki fallist á hana.
Talsvert bæri því enn á milli um
tryggingaákvæði. Flóabandalagið
vildi fá inn í samninga ákvæði sem
fæli í sér tryggingu gagnvart kaup-
hækkunum annarra hópa og gagn-
vart verðbólgu. Hann sagði að það
væri hins vegar jákvætt að vinnuveit-
endur væru tilbúnir til að ræða um
tryggingaákvæði. Það hefði ekki allt-
afverið.
Halldór sagði að samningamenn
vinnuveitenda og Flóabandalagsins
væru sammála um að skammtíma-
samningur væri ekki heppilegasta
lausnin. Menn vildu ná markmiðum
sem erfitt væri að ná í samningi til
skamms tíma, en þá yrði líka að nást
samkomulag um tryggingar. Hann
sagði að almennt mætti segja að við-
ræður um efnisatriði samnings væru
í eðlilegum farvegi.
Auka þarf þrýsting
á vinnuveitendur
Að loknum fundi með Flóabanda-
laginu gengu samningamenn SA á
fund með Verkamannasambandinu.
Fundurinn vai- algerlega árangurs-
laus og sagði Bjöm Grétar eftir hann
að það væri mat samninganefndar
Verkamannasambandsins að til-
gangslaust væri að halda áfram við-
ræðum. Ekkert hefði þokast frá því
þær hófust og því hefði VMSÍ slitið
þeim. Það væri nú í höndum ríkis-
sáttasemjara að ákveða hvort boðað-
in- yrði nýr fundur.
Bjöm Grétar sagði ljóst að auka
þyrfti þrýsting á vinnuveitendur ef
einhver von ætti að vera um að samn-
ingar tækjust. Þau skilaboð hefðu
verið send út í félögin að kröfur
þeirra mættu engum skilningi af
hálfu vinnuveitenda. Hann sagðist
vænta viðbragða frá þeim.
Formannafundur VMSÍ gerði sér-
staka samþykkt fyrr í vetur um að
hefja undirbúning aðgerða hefði
árangur ekki orðið í viðræðum fyrir
10. mars.
Óvissa ríkir nú um framtíð stærsta einstaka vinnustaðarins á Hellu
Skípholti 21
Simi 530 1800
Fax 530 1801
www.apple.is/ibook
TIL greina kemur að kjúklinga-
sláturhús Reykjagarðs hf. verði
flutt frá Hellu. Eigendur þess telja
þörf á að auka við húsnæði og end-
urnýja tæki og em meðal annars í
viðræðum um kaup á mjólkursam-
lagshúsinu í Borgarnesi. Slátur-
^fchúsið er stærsti vinnustaðurinn á
Hellu.
Hreppsnefnd Rangárvallahrepps
fékk forsvarsmenn Reykjagarðs
hf. á sinn fund í gær til að ræða
framtíð sláturhússins. Óli Már Ar-
Viðræður um flutn-
ing kjúklingaslát-
urhúss í Borgarnes
onsson oddviti segir að það hafi
verið gert vegna fregna um að til
iBook-alvöm
fartölvaMApple
149.900 kr. stgr.
greina kæmi að flytja starfsemi
sláturhússins í burtu. Bjarni Ás-
geir Jónsson, framkvæmdastjóri
Reykjagarðs, segir að þörf sé á að
stækka sláturhús félagsins til að
koma við aukinni hagræðingu i
rekstri þess. Endurnýja þurfi slát-
urlínuna og bæta við vélum. Við
það fækki starfsfólki og hagræði
aukist enda sé mikil þörf á því
vegna þess að verð á kjúklingum
hafi farið lækkandi.
Segir Bjarni Ásgeir að ýmsir
möguleikar hafi verið til athugun-
ar. Staðfestir hann að til greina
komi að flytja starfsemina annað
en einnig sé til athugunar að
byggja annað hús við hliðina á slát-
urhúsinu á Hellu. Stjórnendur
Reykjagarðs hf. hafa meðal annars
verið í viðræðum við Sparisjóð
Mýrasýslu um kaup á húsnæði
mjólkursamlagsins við Engjaás í
Borgarnesi. Þar er rekið matvæla-
vinnslufyrirtæki. Sparisjóðurinn
yfirtók nýlega húsnæðið af Kaup-
félagi Borgfirðinga og var því þá
lýst yfir að sjóðurinn hefði hug á
að losa sig við það sem fyrst aftur.
Mjólkursamlagið er 5.000 fermetr-
ar að stærð.
Yrði mikið áfall
að missa fyrirtækið
Reykjagarður framleiðir Holta-
kjúkling á búum sínum á Ásmund-
arstöðum í Holtum, í Mosfellsbæ
og Borgarfirði og slátrar auk þess
fyrir fleiri kjúklingabændur í slát-
urhúsinu á Hellu.
Liðlega 55 heilsársstörf eru í
sláturhúsi Reykjagarðs og er það
stærsti einstaki vinnustaðurinn á
Hellu. Óli Már oddviti segir að það
yrði mikið áfall að missa fyrirtæk-
ið. Hins vegar væri það ekki á
valdi hreppsnefndar að halda fyrir-
tækinu ef eigendur þess teldu hag-
kvæmt að flytja það.
Hann segir að Reykjagarður
hafi vilyrði fyrir lóð við hlið núver-
andi athafnasvæðis sláturhússins á
Hellu.
Flutt úr
Karphúsinu
EMBÆTTI ríkissáttasemjara flutti
í gær starfsemi sína úr Borgartúni
22 í Borgartún 21. Það voru samn-
ingamenn úr verkalýðshreyfing-
unni og Samtökum atvinnulífsins
sem héldu á stólum yfir götuna, en
Þórir Einarsson ríkissáttasemjari
hélt á gerðabókum, fundarhamri
og kaffibolla, en hann sagði að ef
eitthvað einkenndi embætti ríkis-
sáttasemjara umfram annað væri
það fundir og kaffidrykkja
Hið nýja húsnæði er beint á móti
gamla húsnæðinu, sem oft hefur
verið kallað Karphúsið. Þórir sagði
að nýja húsið væri svipað að stærð
og það gamla; tæplega 900 fer-
metrar. Húsnæðið nýttist hins veg-
ar mun betur. Það væri allt á sömu
hæð, en í Karphúsinu var embættið
með aðstöðu á tveimur hæðum.
I ávarpi sem Þórir hélt þegar
samningamenn kvöddu gamla hús-
ið sagði hann að í Karphúsinu hefði
ríkt góður andi sem hann vildi
gjarnan flytja yfir í nýja húsið.
Borgartún 22 hefur oft verið kall-
að Karphúsið, en Þórir sagði óvíst
hvort það nafn færðist yfir götuna.
Hann sagðist hafa orðið var við
andstöðu við að Borgartún 21 fengi
þetta nafn og því hefði sú hugmynd
kviknað að kalla nýja húsið Höfða-
borg í höfuðið á smáíbúðahverfi
sem reist var á þessum stað í hús-
næðiseklu seinnistríðsáranna.
Gíróseðlar
greiddir
með mús-
arhnappi
BÚNAÐARBANKINN opnaði
í gær svokallaða Netgíróþjón-
ustu, sem er einfaldara form á
greiðslu gíró- og greiðsluseðla
en þekkst hefur hingað til.
Áð sögn Inga Arnar Geirs-
sonar, forstöðumanns tölvu-
deildar Búnaðarbankans, auð-
veldar Netgíróþjónustan við-
skiptavinum bankans að greiða
gíróreikninga á Netinu. Ekki er
lengur þörf á að slá inn löng til-
vísunamúmer gíróseðla og
fleiri tölur, sem var tafsamt
verk, heldur er unnt að ganga
frá skuldfærslu af útgjalda-
reikningi með því að smella
nokkrum sinnum á músar-
hnapp tölvunnar. Þá felst nýj-
ungin ekki síst í því að prentaðir
gíróseðlar frá þeim fyrirtækj-
um sem gerðir hafa verið sarrin-
ingar við, heyra sögunni til. I
gamla kerfinu þurfti að hafa
gíróseðla við höndina þegar
þeir voru greiddir á Netinu.
Gíró- og greiðsluseðlar birt-
ast notandanum á tölvuskján-
um í Heimilisbanka Búnaðar-
bankans og þannig velur
notandinn þá reikninga sem
hann vill greiða.
Gerðir hafa verið samningar
við Reykjavíkurborg um fast-
eignagjöld, Landssímann um
símreikninga og RÚV um af-
notagjöld og fleiri fyrirtæki
munu bætast í hópinn innan
skamms.
Búnaðarbankinn mun að auki
bjóða upp á Netgíró í gegnum
WAP-síma í lok þessa mánaðar,
þar sem unnt verður að greiða
gíróseðla með því að smella ein-
göngu á aðgerðahnappa.