Morgunblaðið - 16.04.2000, Síða 1
immttMitM
STOFNAÐ 1913
91. TBL. 88. ARG.
SUNNUDAGUR 16. APRIL 2000
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Fundur fulltrúa sjö helstu iðnríkja heims í Washington
Rætt um ástandið á
hlutabréfamörkuðum
Washington, New York. AP, AFP.
VERÐFALL á hlutabréfamörkuðum
setti mark sitt á fund fulltrúa sjö
helstu iðnríkja heims sem hófst í
Washington á laugardag en lögregla
hefur einnig mikinn viðbúnað í borg-
inni vegna fjölda mótmælenda sem
þangað er kominn í tengslum við
fundinn. Mótmælendur beina spjót-
um sínum einkum að stefnu og starfs-
háttum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
(IMF) og Alþjóðabankans (World
Bank) en fulltrúamir munu m.a. ræða
áætlun um endurskoðun á skipulagi
þessara stofnana.
Fjármálaráðherra Bandaríkjanna,
Lawrence Summers, sagði í viðtali við
CAN-sjónvarpsstöðina á föstudag að
bandarískt efnahagslíf stæði enn
traustum fótum þrátt fyrir ástandið á
hlutabréfamörkuðunum. Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn varaði nýlega við
því að efnahagslífi heimsins stafaði
hætta af verðfalli hlutabréfa í Banda-
ríkjunum. Summers sagði í viðtalinu
við CNN að samkeppnishæfni banda-
rísks atvinnulífs og sú stefna stjórn-
arinnar að greiða niður skuldir hins
opinbera boðuðu gott íyrir framtíð-
ina.
Púsundir mótmælenda eru nú tald-
ar vera komnar til Washington og
hefur fólkið m.a. hótað því að vama
fuiltrúum á fundi iðnríkjanna sjö inn-
göngu í byggingar Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins og Alþjóðabankans. Á föstu-
dag sturtuðu mótmælendur
kúamykju á stétt fyrir framan höfuð-
stöðvar Aiþjóðabankans, sem em
steinsnar frá Hvíta húsinu. Mótmæl-
endur telja að fátækari þjóðir heims
hafi ekki fengið sanngjaman skerf af
hnattvæðingu efnahagslífsins og
kenna m.a. alþjóðastofnunum um. Yf-
irvöld í Washington hafa heitið því að
koma í veg fyrir að mótmælin nái að
tmfla fundahöldin á sama hátt og
raunin varð á fundi Alþjóðaviðskipta-
stofnunarinnar (WTO) í Seattle á síð-
astaári.
Nauðsynleg „Ieiðrétting“?
Á föstudag féllu hlutabréf í Banda-
ríkjunum mikið í verði, einkum hluta-
bréf í hátæknifyriríækjum. Talið er
að verðlækkun fyrirtækja í Banda-
ríkjunum hafi alls numið að minnsta
kosti eittþúsund milljörðum Banda-
ríkjadollara, jafnvirði um 73.000 millj-
arða íslenskra króna. Aðalvísitala
Nasdaq-kauphallarinnar í New York
féll um 9,7% og hefur aldrei lækkað
Reuters
Lögregla fylgist með mótmælendum nálægt höfuðstöðvum Alþjóðabankans í gær. Fulltrúar sjö helstu iðnríkja
heims munu m.a. fjalla um hugsanlegar breytingar á starfsemi Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
meira á einum degi. Hlutabréf lækk-
uðu einnig mikið í verði í kauphöllinni
á Wall Street (NYSE). Þar lækkaði
Dow Jones-hlutabréfavísitalan um
5,6%. Er óttast að áhrifa af verðfall-
inu í Bandaríkjunum muni gæta á
hlutabréfamörkuðum í Evrópu þegar
þeir verða opnaðir á mánudag.
Margir skýrendur telja að verðfall-
ið hafi verið nauðsynleg ,Jeiðrétting“
og muni þegar fram í sækir verða tii
góðs. Verðið hafi verið orðið allt of
hátt skráð og væntingamar allt of
miklar, sérstaklega að því er varðar
netfyrirtæki. Lækkunin muni leiða til
þess að þau fyririæki sem byggjast á
raunhæfum viðskiptahugmyndum
muni lifa af en önnur hverfa úr sög-
unni.
Sumir skýrendur benda á að sér-
staklega hafi verið of miklar vonir
bundnar við vöxt netverslana.
„Hveitibrauðsdagar netverslunarinn-
ar eru taldir,“ er haft eftir Joe
Sawyer, bandarískum sérfræðingi
um hlutabréfamarkað. Hann hefur
birt skýrslu þar sem hann spáir því að
meirihluti þeirra netverslana sem nú
hafa starfsemi muni leggja upp laup-
anainnanárs.
Noregur
Aukinn
stuðning-
ur við
ESB-aðild
STUÐNINGUR við aðild
Noregs að Evrópusambandinu
(ESB) hefur vaxið um 6% á
síðustu fjórum mánuðum,
samkvæmt nýrri könnun sem
gerð var á vegum Aftenpost-
en. Ails svöruðu 56,1% að-
spurðra í könnuninni því til að
þeir væru hlynntir aðild lands-
ins að ESB en um 44% voru á
móti. 11% voru óákveðin.
Meirihluti il)úa í N-Noregi
nú hlynntur aðild
Athygli vekur að meirihluti
íbúa í Norður-Noregi er nú
fylgjandi ESB-aðild sam-
kvæmt könnuninni, en þar
hefur hingað til verið að finna
hörðustu andstæðinga aðildar.
Talið er að aukið fylgi við
aðild megi m.a. rekja til þess
að ný ríkisstjórn hefur tekið
við völdum í Noregi sem hefur
mun jákvæðari afstöðu til
ESB en stjórn Bondeviks
hafði. Mun fleiri karlar styðja
aðild en konur. 57% karla
styðja nú ESB-aðild Noregs
samkvæmt könnuninni, en
43% kvenna.
Nyrup sagður ætla of
lítinn tíma í viðræður
Þórshöfn. Morgunblaðið.
LÖGMAÐUR Færeyja, Anfinn
Kallsberg, segir að Poul Nyrup
Rasmussen, forsætisráðherra Dan-
inerkur, ætli sér of lítinn tíma í við-
ræður við Færeyinga um fullveldis-
málið. Rasmussen hefur ætlað sér 7
og hálfa klukkustund til viðræðna
við fulltrúa Færeyja á næsta fundi
þjóðanna sem áætlað er að halda 2.
maí næstkomandi.
„Þetta er allt of skammur tími til
að geta rætt ítarlega færeysku til-
lögurnar,“ segir Kallsberg. Hann
kveður tilraunir sínar til að fá fund-
inn lengdan hafa reynst árangurs-
lausar.
Áætlað er að fulltrúar þjóðanna
hittist í danska forsætisráðuneytinu
klukkan hálftvö og verður fundin-
um að vera lokið klukkan níu því þá
Poul Nyrup
Rasmussen
Anfinn
Kallsberg
þarf forsætisráðherrann að halda af
stað í opinbera heimsókn til Kína.
En þrátt fyrir óánægju með hversu
knappur tími er til stefnu á fundin-
um, segist lögmaður Færeyja gera
sér vonir um að hann skili einhverj-
um árangri. Hann segir að fær-
LIFRÆN
EYJA
JARÐGONG FYRIR
HREISTRAÐA
KVOTALAUS RISI
í SJÁVARÚTVEGI
■
MMM >«<
eyska landstjórnin muni á fundin-
um geta lagt fram margar ólíkar
tillögur til lausnar því sem er helsta
deiluefni þjóðanna í fullveldismál-
inu, þ.e. hvernig fjárhagslegum
tengslum þeirra skuli háttað eftir
að Færeyjar verða fullvalda ríki.
Danska stjórnin leggur nú árlega
fram 1,3 milljarða danskra króna til
Færeyinga, jafnvirði um 12,2 millj-
arða íslenskra króna. Á fyrsta fundi
þjóðanna þar sem fullveldisáform
Færeyinga voru á dagskrá, lögðu
færeysku samningamennirnir fram
tillögur sem gerðu ráð fyrir að
framlag Dana skyldi minnka á
næstu árum í takt við vaxandi
landsframleiðslu í Færeyjum. Sam-
tímis skyldi skuld Færeyinga við
Dani upp á 4,5 milljarða danskra
króna, jafnvirði um 42,3 milljarða
íslenskra króna, falla niður.
Landstjórnin hefur nú tilkynnt
að hún hafi fallið frá tillögunni um
að styrkur Dana skuli minnka í takt
við landsframleiðslu í Færeyjum.
Þess í stað hyggst hún beita sér fyr-
ir því að Danir samþykki að styrk-
urinn minnki um fasta upphæð á
ári, óháð efnahagsástandi í Færeyj-
MORGUNBLAÐIÐ 16. APRÍL 2000
5 690900 090000