Morgunblaðið - 16.04.2000, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 16.04.2000, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000 25 Reuters Sambúðarvandi strangtrúaðra Gyðinga og hinna sem hneigjast til frjálslegri lífshátta setur inark sitt á allt ísraelska samfé- lagið. Hér eru strangtrúaðir í biðröð fyrir utan matvöru- markað til að búa sig undir fæðu við hæfi vegna föstu sinnar. er þeirrar skoðunar að við eigum að verja landið frá okkar eigin landa- mærum,“ segir hún. „Enda höfum við margoft séð að þegar Líbanir ætla sér að gera árásir á Israel þá gera þeir það þrátt fyrir öryggis- svæðið." Þá segir hún tíma til kom- inn að huga að þjáningum líbönsku þjóðarinnar, jafnvel þó hún sé sam- mála því að í sumum tilfellum helgi tilgangurinn meðalið. Hersetan haf! hins vegar engu áorkað nema því að gera Líbani að svörnum óvinum Israela. „Að líta á frið sem raunverulegan valkost“ Hún segist telja það verkefni sinnar kynslóðar að semja frið við nágranna ísraels og er meðal ann- ars einn af stofnendum samtaka trúaðra kvenna fyrir verndun mannslífa. „Við teljum að þjóðinni hafi hlotnast einstakt tækifæri til að semja frið og ákváðum að reyna að stofna til nýrrar vitundar innan samfélags trúaðra um nauðsyn þess að nýta þetta tækifæri," segir hún. „Flestir trúaðir líta á verndun mannslífa sem mikilvægasta boð- orðið og við reynum að notfæra okk- ur það til þess að fá fólk til að líta á frið sem raunverulegan valkost." Hún kveðst trúa því að Israelar og Palestínumenn geti komist að einhvers konar málamiðlun þó hún eigi ekki von á því að þeir verði nein- h’ perluvinir til að byrja með. Hún geti vel skilið að Palestínumenn beri kala í brjósti til ísraela og að þeir líti svo á að gyðingar eigi engan tilveru- rétt í þessum heimshluta. Það breyti því hins vegar ekki gyðingar þurfi á föðurlandi að halda. „Það hversu skammarlega þjóðir Evrópu sviku gyðinga í hendur nasistum réttlætti það að við settumst hér að,“ segir hún. „Nú þegar við höfum þraukað stríð og byggt upp landið höfum við hins vegar ekki lengur ástæðu til að líta á okkur sem fórnarlömb. Það er því er kominn tími til að taka næsta skref og huga að þeim hörmungum sem aðrir hafa þurft að búa við. Þá á ég fyrst og fremst við Palestínu- menn. Þeir eru ekki ábyrgir fyrir þeim hörmungum sem við höfum þurft að þola og lentu sjálftr í að- stöðu sem þeir kærðu sig ekkert um.“ Zvia telur friðarferlinu standa hvað mest ógn af landnemabyggð- um ísraela á Vesturbakkanum sem Palestínumenn munu aldrei sætta sig við. Fjöldi landnema muni hins vegar aldrei fallast á að yftrgefa heimili sín og það geti reynst stjórn- völdum dýrkeypt að þvinga þá til þess. „Eg hef verið andvíg landn- emabyggðum gyðinga á Vestur- bakkanum frá upphafi," segir hún. „Ég var þess alltaf fullviss að þær myndu einungis leiða til vandræða og hefði aldrei getað trúað því að þær yrðu enn til staðar 25 árum síð- ar.“ Hún segist líta svo á að landnem- arnir hafi mjög rangt fyrir sér. Hún telji þó að viðhorf margra landnema hafi verið að breytast. Vissulega muni margir þeirra berjast gegn því að láta landið af hendi en aðrir hafi smám saman verið að gera sér grein fyrir því að þeir hafi verið á rangri braut og séu farnir að sætta sig við að hluti landnemabyggðanna verði yfirgefinn. „Fólk hefur verið að gera sér grein fyrh’ því að málstaðurinn nýtur ekki stuðnings þjóðarinnar," segir hún. „Þá tel ég að dauði Rab- íns hafi verið mörgum landnemum mikið áfall þar sem þeir hafi séð að barátta þeirra væri gengin út í öfg- ar. Þetta fólk hefur hins vegar ekki að neinu að hverfa og því get ég ekki annað en fundið til samúðar með þeim, þrátt fyrir að þeir hafi valdið bæði hörmungum og vandræðum með afstöðu sinni.“ Hún segist þó telja að samfélag bókstafstrúarmanna henti mörg- um konum betur en samfélag ver- aldlega sinnaðra enda sé líf kvenna innan þess að mörgu leyti cinfaldara. Það henti þó ekki öllum og hafl alls ekki hentað henni. Hún segist þó vissulega hafa fundið fyr- ir einmanaleika á undanfórnum ár- um auk þess sem hún sakni þeirrar samkenndar og þess stuðnings sem ríki innan samfélags trúaðra. „Samfélag trúaðra hefur mjög sterkt stuðningskerfi en í samfé- lagi veraldlegra sinnaðra verður maður að standa á eigin fótum," segir hún. „Þannig eru til dæmis þeir sem koma inn í samfélag bókstafstrúarmanna umvafðir um- hyggju á meðan þeir sem yfirgefa samfélag þeirra og gerast verald- Iega sinnaðir fá engan stuðning. Það eru reyndar til samtök sem vinna með þeim en úti í samfélag- inu hefur enginn áhuga á þessu fólki.“ „Stend ekki lengur í stríði við Guð“ Aðspurð segist Raya enn vera trúuð en að nú trúi hún á Guð á sinn eigin hátt. „Þegar ég var strangtrúuð var ég alltaf í stríði við Guð,“ segir hún. „Eg átti það jafnvel til að finna til haturs gagn- vart honum en nú er ég sátt við hann. Eg get auðvitað ekki verið viss um að trú min sé rétt en hún er að minnsta kosti samkvæmt minni eigin sannfæringu." Ólíkt flestum þeim sem hafa yf- irgefið samfélag bókstafstrúar- manna er Raya hægrisinnuð og styður landnemabyggðir gyðinga á Vesturbakkanum. Hún segist þó styðja þær af öryggisástæðum en eklti af trúarástæðum eins og fjöl- skylda hennar geri. „Ég trúi því ekki að við getum keypt okkur frið með því að láta herteknu svæðin af hendi og sé því ekki að það liggi nein lausn íþví,“ segir hún. „Við munum aldrei geta látið Palestínu- mönnum nógu mikið eftir til þess að þeir sætti sig við veru okkar hér og því sé ég ekki ástæðu til þess að láta þeim neitt eftir, sérstaklega þar sem það mun einungis veikja stöðu okkar.“ Hún hefur heldur ekki trú á því að trúuðum og veraldlega sinnuð- um muni takast að leysa ágrein- ingsmál sín á næstunni. „Sam- kvæmt gyðingatrú hefur hegðun einstaklingsins áhrif á örlög fjöld- ans og því munu hinir trúuðu aldrei sætta sig við lífsstíl hinna veraldlega sinnuðu," segir hún. Þá segir hún veraldlega sinnaða eiga erfitt með að sætta sig við ýmis lög sem byggð eru á ströngum reglum gyðingdómsins og þau fríðindi sem trúaðir búi við svo sem undanþágu frá herskyldu. „Ég er sammála því að trúaðir ættu með réttu að sinna her- skyldu," segir hún. „Á sama tíma veit ég að það myndi leiða til ótelj- andi árekstra og því tel ég að við séum jafnvel betur komin án þeirra. Það er ekki vænlegt til ár- angurs að reka her með hermönn- um sem kæra sig ekki um að þjóna landinu." Góð byrjun að hafa reglur til að lifa eftir LIMOR Lazarovich er alin upp á heimili foreldra sinna í miðborg Jerú- salem. Foreldrar hennar, sem komu frá írak, ólu dætur sínar upp samkvæmt veraldlegum gild- um þó trú á Guð og ákveðnar gyð- inglegar hefðir hafi verið hluti af daglegu lífi þeirra. Limor var ekki í neinum tenglum við bóksta- fstrúarmenn fyrr en unnusti henn- ar veiktist af krabbameini og lést eftir eins árs baráttu við sjúkdóm- inn. „Á þessum tíma fór ég að velta fyrir mér tilgangi lífsins," segir hún. „Ég hugsaði mikið um lífið og dauðann og það leiddi mig að lok- um til Guðs. Þetta var langt ferli sem leiddi að lokum til þess að ég kaus að lifa samkvæmt hinum ströngu fyrirmælum lögmálsins.“ Limor segir fjölskyldu sína hafa átt í ákveðnum erfiðleikum með að sætta sig við að hún veldi þessa leið en þau hafi smám saman lært að lifa með því. Þá hafi hún á tíma- bili reynt að hafa áhrif á systur sínar en komist að því að það væri ekki hægt að sannfæra fólk, löng- unin yrði að koma innan frá. „Þar sem ég reyni að lifa samkvæmt hinum ströngu reglum lögmálsins get ég hvorki borðað heima hjá foreldrum mi'nurn né systrum né eytt helgideginum með þeim“ segir hún. „Við hittumst hins vegar í miðri viku og tölum um daglega amstrið á meðan börnin okkar leika sér saman. Við ræðum þó hvorki trúmál né stjómmál enda vitum við að við getum aldrei orðið sammála í þeim efnum.“ Hún segir vissulega leiðinlegt að geta ekki rætt trúmál við systur sínar en þannig verði það bara að vera. Það skipti meira máli að halda góðu sambandi við fjölskyld- una enda kveði eitt af boðorðunum á um það að okkur beri að virða föður okkar og móður. „Auðvitað er erfitt að vita til þess að fjöl- skylda mfn lifi ekki samkvæmt lög- málinu," segir hún. „En ég trúi þvf að með hjálp Guðs vakni þau til vit- undar einn daginn." „f leit að hamingju og innri friði“ Limor segir samfélög bókstafs- trúarmanna mjög mismunandi og það fari eftir því hvaða samfélagi fólk tilheyri hvernig það líti á hana. I samfélagi hinna allra trú- uðustu hefði til dæmis enginn vilj- að giftast henni vegna bakgrunns hennar. Eiginmaður hennar sé hins vegar úr frjálslegra samfélagi og þau búi meðal fólks með mjög mis- munandi bakgrunn. Sjálf segist hún ekki hafa haft jákvætt viðhorf til trúaðra áður en hún gekk til liðs við þá. Það hafi því reynst henni erfitt að yfirgefa sitt gamla líf. Hún hafi hins vegar aldrei efast um að hún væri að gera rétt, þó hún eigi enn sínar veikleikastundir. Hún sakni þess til dæmis að fara í bíó, á ströndina og f sund auk þess sem hún eigi fullt f fangi með að fylgja hinum ströngu reglum sem lögmálið kveði á um. „Ég hef fundið mína leið en er enn að leita að hamingju og innri friði,“ segir hún. „Það mun taka mig mörg ár að skilja innihald trúarinnar og því tel ég það góða byijun að hafa reglur til að lifa eft- ir á meðan skilningur minn er að aukast. Tilgangur margra þessara reglna er ofar mfnum skilningi en svo eru aðrar sem hafa augljóst gildi eins og það að halda hvíldar- daginn heilagan. Þá eru margar þeirra þess eðlis að maður skilur ekki tilgang þeirra fyrr en maður hefur lifað samkvæmt þeim. Þann- ig getur til dæmis verið mjög heitt í ísrael og því þykir mörgum kjánalegt að hylja fót- og hand- leggi sfna eins og trúaðar konur gera. Eftir að ég fór að klæðast á þennan hátt hef ég hins vegar gert mér grein fyrir hversu auðveldlega ungar konur geta týnt sér í kyn- hlutverkinu og farið að halda að allt gangi út á það að vera aðlað- andi og kynþokkafullar.“ Þá segist Limor gleðjast yfir því að vita að hún sé að ala börnin sín upp samkvæmt lögmálinu. Einnig hafi hún mjög gaman af því að stunda Biblíunám en sfaukin áhersla sé lögð á menntun kvenna ineðal bókstafstrúarmanna. Konur sæki nú námskeið og fyrirlestra auk þess sem þær geti hlustað á sérstaka útvarpsstöð sem útvarpi fræðsluefni fyrir trúaða. Hún kveðst sátt við þann áherslumun sem sé á menntun karla og kvenna innan samfélags- ins enda hafi karlar lagt stund á lærdóm öldum saman og allt hafi sinn tíma. Sjálf geti hún ekki ætl- ast til þess að taka hlutina með áhlaupi. Þekking og skilningur verði að koma smám saman og til að byija með sé henni kappnóg að læra allar reglumar. Þá segist hún vera fullkomlega sátt við stöðu konunnar innan sam- félags trúaðra enda telji hún kven- réttindabaráttuna einungis hafa veikt stöðu nútfmakonunnar. „Frá upphafi mannkynssögunnar hafa karlar og konur farið með mismun- andi hlutverk," segir hún. „Kven- réttindabaráttan hefur hins vegar leitt til þess að konur hafa í síaukn- um mæli tekið á sig hlutverk karla. Á sama tfma fara þær enn með hið hefðbundna kvenhlutverk og þann- ig á það augljóslcga ekki að vera.“ „Guð mun vísa okkur veginn“ Limor telur mörg ár í það að ein- hvers konar jafnvægi komist á í sambúð trúaðra og veraldlega sinnaðra ísraela. Áður segist hún hafa talið að hinir trúuðu vildu ráðskast með þjóðina en hún líti ekki þannig á það í dag. „Auðvitað vildum við helst að allir gerðust trúaðir en það er ekki á okkar valdi heldur undir vilja Guðs kom- ið,“ segir hún. „Við viljum hins vegar ekki þurfa að vera í felum. Við þurfum að fá að búa á stöðum þar sem þörfum okkar er sinnt og það get- ur þýtt það að veraldlega sinnaðir vilji ekki búa í nágrenni við okkur. Eins og er sé ég enga lausn á þess- um vanda en ég trúi því að Guð muni vísa okkur veginn. Hann mun leiða okkur öll til fyrirheitna lands- ins og sjá til þess að við getum búið þar saman í friði.“ Limor gegndi herþjónustu áður en hún gekk til liðs við bóksta- fstrúarmenn og segist á þeim tíma hafa gagnrýnt það að trúaðir væru undanþegnir herskyldu. Nú skilji hún hins vegar að trúaðir eigi erf- itt með að sinna herskyldu þar sem herinn taki ekki tillit til grundvall- arþarfa þeirra varðandi mataræði og helgi hvíldardagsins. „Ég tel herinn vissulega fara með mikilvægt hlutverk í vörnum landsins," segir hún. „Bænir trúaðra gegna þó engu minna hlut- verki enda má leiða rökum að því að Guð hafi sýnt okkur að þegar á reyni þurfum við ekki síður á þeim að halda. Þetta sannaðist meðal annars í Persaflóastríðinu þar sem það var ekki herinn heldur hreint kraftaverk sem kom í veg fyrir að stórslys yrði þegar eldflaugum rigndi yfir Tel Aviv.“ „Ekki okkar að leysa þeirra vandamál“ Limor kveðst hafa verið mjög vinstrisinnuð áður en hún gekk til liðs við bókstafstrúarmenn. Hún hafi sfðan smám saman orðið hægrisinnuð enda telji hún það hljóta að fara saman við gyðinga- trú. Hún segir marga trúaða líta svo á að Israelum sé heimilt að láta herteknu svæðin af hendi sé um líf og dauða að tefla. Framan af hafí hún viljað trúa því að þetta væri hægt en hún trúi því ekki lengur. „Skoðanir mfnar breyttust eftir að ég gerði mér grein fyrir því gyð- ingar hafa ekki vald til að láta af hendi Iand sem þeim hefur verið falið,“ segir hún. „Þegar við tölum um að skila herteknu svæðunum erum við líka að gangast við því að landið hafi einhvern tfma tilheyrt einhvcrjum öðrum en það er ekki rétt. ísrael var alltaf ætlað okkur og þvf er okkur ómögulegt að skila hluta þess. Ég er viss um að Palestínumenn eiga mjög erfitt," heldur hún áfram. „Það má hins vegar rekja til aðstæðnanna f heild en ekki bara til okkar. Alþjóðasamfélagið hefur brugðist þeim og ábyrgðinni er skellt á okkur þar sem við eig- um óbcina aðild að því hvemig komið er. Ég gleðst alls ekki yfir eymd þeirra, enda segir í orði Guðs að við eigum ekki að gleðjst yfir mótlæti andstæðinga okkar. Ég tek hins vegar heldur ekki á mig ábyrgðina á mótlæti þeirra. Það sem þá vantar fyrst og fremst eru peningar og það er ekki okkar að sjá þeim fyrir peningum. Við höf- um nóg við okkar peninga að gera og það er ekki okkar að leysa þeirra vandamál.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.