Morgunblaðið - 16.04.2000, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 16.04.2000, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000 39 ---------------------V Á vígsludegi Hressingarhælis Hringsins í Kópavogi 14. nóvember 1926 safnast félagskonur saman til mynda- töku við suðurvegg hússins. Nafngreindar hafa verið (sjá teikningu) 2. Björg Cortes (?) 9. Kristín V. Jacobson, 14. Guðrún Geirsdóttir, 15. Augusta Ólafsson, 16. Sigríður Bogadóttir, 17. Soffía Hjaltested, 18. Soffía Claessen (?) 25 Jófríður Zoega 31. Guðborg Eggertsdóttir 33. Sigríður Börnsdóttir (Jónssonar) 34. Halldóra Ólafs. 35. Ásta Einarsson. Fleiri mætti þekkja ef vel er skoðað. Hringskonum er ljóst að fjár- magn er afl þeirra hluta sem gera skal. Því er það að enda þótt einn þáttur félagsstarfsins hafi ævin- lega staðið til menntunar og menn- ingar hefur tekjuöflun verið megin- þáttur í allri vinnu félagskvenna. Af því er mikil starfssaga sem seint verður fullsögð. En sérstakur þátt- ur á ævi Hringsins er innra starfið og félagsandinn, gleðin og vináttan sem skapast þegar keppt er sam- eiginlega að settu marki. Hefur sú samvera öll verið gefandi. Öflun heimilda fyrir rit um Hringinn í Reykjavík er tímafrek því heimildir framan af árum hafa farið forgörðum. Samhliða rituðu máli er víðtæk söfnun mynda í gangi og er heitið á hvern sem þar getur lagt lið að láta til sín heyra. Hér eru birtar nokkrar myndir sem verið er að nafngreina og hvert nýtt nafn sem kemur til skjalanna er mikils virði sem heim- ild. í húsakynnum þjóðminjasafns - Myndadeild, Vesturvör 25 í Kópavogi sitja þær (f. v.) Valgerður Kristjónsdóttir og Björg Einarsdóttir hanska- klæddar að yfirfara gamalt safn mynda frá Morgunblaðinu ef ske kynni að þar leyndust myndir frá starfsævi Hringsins. Til þeirra má koma upplýsingum um myndir eða nöfn í síma 551-4080, Ásvallagötu 1. Laugardaginn 8. júlí 1944 hófst tveggha daga fjölmenn útihátið Hringsins í HJjómskálagarðinum. Blaðamenn komu á vettvang með ljósmyndara með sér og frá Morgunblaðinu er þessi mynd runnin af hluta þeirra 25 yngis- meyja er voru að framreiða í veitingatjöldum. Frá vinstri 1. Ingibjörg Jónsdóttir, 2. Gróa Eyjólfsdóttir, 4. Kristín Haraldsdóttir, 5. Kristjana Pétursdóttir, 6. Anna G. Blöndal, 7. Anna Gísladóttir, 8. Herdís Vigfúsdóttir, 11. Ingibjörg M. Blöndal. Nöfn þeirra þriggja er vantar væru vel þegin. Morgunblaðið/Golli Katrín Huld Grétarsdóttir með margmiðlunardiskinn. Tækniskdli íslands Alþjóðamark- aðsfræði kynnt á margmiðl- unardiski NEMENDURí alþjóðamarkaðs- fræði við Tækni- skóla íslands buðu fyrirtækjum og ráðningarstofum til kynningar á náminu í Þrótt- araheimilinu í Laugardal á fóstu- dag. Gestir voru leystir út með margmiðlunar- diski með kynn- ingu á náminu og skólanum. Katrin Huld Grétarsdótt- ir, nemandi í alþjóðamarkaðs- fræði, segir að háskólanám hafi ekki áður verið kynnt með svipuðum hætti á margmiðlun- ardiski. Villandi nafn Katrín Huld segir að hug- myndin að kynningunni hafi kviknað eftir að nemendum f markaðsfræði í öllum öðrum skólum en Tækniskólanum var boðið til árlegrar auglýsinga- hátíðar auglýsingahönnuða fyr- ir skemmstu. Ein ástæðan fyrir því að alþjóðamarkaðsfræðin gleymdist gæti falist f villandi nafni skólans. Hið rétta væri að Tækniskólinn væri háskóli og þar færi ekki aðeins fram tækninám eins og nafnið gæfi til kynna. Raunhæf lokaverkefni Alþjóðamarkaðsfræðinám stendur nemendum til boða að loknu tveggja ára háskólanámi í iðnrekstrarfræði eða rekstr- arfræði frá Samvinnuháskólan- um á Bifröst. Námið tekur tvær annir og er sérstök áhersla lögð á tungumálanám. Öll samskipti fara fram á ensku ef frá er talið lokaverk- efnið. Um er að ræða raunhæft verkefni í tengslum við hugs- anlegan útflutning starfandi ís- lensks fyrirtækis. Þrír skiptin- emar, 2 frá Finnlandi og einn frá Eistlandi, hafa stundað námið hér á landi í vetur. Is- lensku nemendunum gefst kostur á að stunda helming námsins á erlendri grund, t.d. f Danmörku, Finnlandi og Bel- gíu. Góðir starfs- möguleikar Að sögn Katrínar Huldar eru starfsmöguleikar nemenda að námi loknu góðir. íslensk fyrir- tæki séu að gera sér grein fyr- ir því hversu mikilvægu hlut- verki markaðssetning gegni í heildarferli rekstrarins. Fyrir utan kynningu á skól- anum, nemendum og náminu er að finna á margmiðlunar- diskinum viðtöl við ýmsa aðila sem koma að náminu á einn eða annan hátt, þ.e. fyrrver- andi nemendur, kennara og fulltrúa fyrirtækja sem verk- efni hafa verið unnin fyrir. Is- lensk fyrirtæki tengd al- þjóðamarkaðsfræðináminu hafa styrkt kynninguna og gerð margmiðlunardisksins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.