Morgunblaðið - 16.04.2000, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 16.04.2000, Blaðsíða 33
32 SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000 33 V STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. TYÖFÖLDUN REYKJANESBRAUTAR VÖFÖLDUN Reykjanes- brautar hefur verið til umræðu í nokkur ár. Sam- kvæmt núgildandi vegaáætlun er gert ráð fyrir, að því verki verði lokið á árinu 2010. Þetta er allt of langur tími. Hér er um svo mikilvæga samgöngu- bót að ræða að það er nauðsyn- legt að flýta henni mjög frá því, sem nú er áætlað. Rökin fyrir því eru augljós. Þar veg- ur öryggisþátturinn þyngst. Miðað við þá umferð, sem nú fer um Reykjanesbraut er beinlínis hættulegt að aka þar um, að ekki sé talað um í vondu veðri eða slæmu skyggni. Höfuðborgarsvæðið og Suð- urnesin eru að vaxa saman. Að örfáum árum liðnum verður samfelld byggð á þessu svæði. Út frá sjónarhóli atvinnulífs- ins er ljóst, að þetta er nú þeg- ar orðið eitt samfellt atvinnu- svæði. Það skýrir m.a. mikla umferð um Reykjanesbraut. Fólk, sem býr á höfuðborgar- svæðinu vinnur á Suðurnesj- um og fólk, sem býr þar sækir vinnu á höfuðborgarsvæðið. Sama þróun er reyndar að verða í byggðunum fyrir aust- an fjall og að einhverju leyti á Akranesi og í Borgarfirði eftir tilkomu Hvalfjarðarganganna. Þegar á þetta er litið fer ekki á milli mála, að það er of langt að bíða í heilan áratug eftir tvöföldun Reykjanes- brautar. Þingmenn landsbyggðar- kjördæma hafa tilhneigingu til þess að afgreiða samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu með því, að þar sé engu saman að jafna, vandamálum á því svæði og þörfum landsbyggðarinnar. Þetta er gamaldags málf- lutningur, sem á að heyra sög- unni til. Hér er um ólík vanda- mál að ræða. Samgöngu- vandinn á suðvesturhorninu er allt annars eðlis en samgöngu- vandinn í dreifbýlinu en hann er eigi að síður til staðar og hann verður að leysa. Það á ekki að leysa hann á kostnað landsbyggðarinnar en það á heldur ekki að leysa sam- gönguvandamál dreifbýlisins á kostnað suðvesturhornsins. Enda býr þjóðin við svo góðan kost um þessar mundir að hún á að hafa efni á hvoru tveggja. Gunnar I. Birgisson, alþing- ismaður Sjálfstæðisflokksins fyrir Reykjaneskjördæmi, hafði rétt fyrir sér þegar hann sagði á fundi Samtaka iðnaðar- ins um þetta mál fyrir nokkr- um dögum: „Þetta er ekkert mál miðað við jarðgangaáætl- un ríkisstjórnarinnar og það verður að hafa í huga, að fjár- munir verða að koma inn á þetta svæði rétt eins og til landsbyggðarinnar.“ Það er líka ástæða til að vekja athygli á ummælum Hjálmars Arnasonar, alþingis- manns Framsóknarflokks, sem sagði á sama fundi: „Slys- astuðullinn mun lækka á Reykjanesbraut samkvæmt mati tryggingarfélaga úr 0,36 í 0,09 og þó svo að ekki liggi fyr- ir nákvæmar rannsóknir á heildarkostnaði tryggingafé- laga og ríkissjóðs leyfi ég mér að slá því fram , að saman- lagður kostnaður á tíu ára tímabili nálgist 3 milljarða króna. Það er talsvert meiri kostnaður en áætlað er að tvö- földun kosti.“ Tvöföldun Reykjanesbraut- ar er eitt af þeim málum, sem almenningur sér að skipta meginmáli án þess að lesa nokkrar skýrslur eða heyra álit nokkurra sérfræðinga. Ástæðan er einfaldlega sú, að hver einasti maður, sem ekur um Reykjanesbraut gerir sér grein fyrir því, að hann ræður ekki sjálfur örlögum sínum á þessari leið hversu varlega sem hann fer. Þau örlög geta verið í höndum þess, sem á móti kemur. Þegar á allt þetta er litið er ástæða til að hvetja sam- gönguyfirvöld og Alþingi til þess að endurskoða þær áætl- anir, sem nú eru uppi um þessa framkvæmd á næstu tíu árum og gera ráðstafanir til þess að henni verði hægt að ljúka á mun skemmri tíma. MIKILVÆG VÖRN FYRIR HINN ALMENNA BORGARA NÝTT álit umboðsmanns Al- þingis um ákvörðun ríkis- skattstjóraembættis í máli ein- staklings og nýr dómur Hæstaréttar í máli fyrirtækis, sem varðar löggjafarvinnu á Al- þingi, sýna hversu mikilvæg vöm er til staðar í samfélagi okkar fyrir almenna borgara, sem telja sig misrétti beitta. Það eru ekki margir áratugir síðan einstaklingur átti ekki margra kosta völ í samskiptum við opinbera aðila. Almanna- rómur taldi að dómstólar dæmdu alltaf hinu opinbera í vil og það tæki mörg ár að ná rétti sínum. Þessi tilfinning er ekki lengur til staðar. Ég sagði við Gunn- laug: „Þú hefur alltaf haldið trúnaði við æskuáhrifin, og kynni af heimslistinni hafa þar engu um breytt.“ „Nei,“ svaraði Gunnlaugur. „Áður en ég fór utan, sá ég dálítið af list hér heima, eins og ég hef sagt þér, málverk á veggjum, bækur í skáp- um. Á Seyðisfirði gat ég farið í bóka- safn og náð mér í sitthvað um list. Hún lá þar grafin í bókum í hillun- um. Þegar ég var á Hofi í Vopna- firði, sá ég fyrst myndir eftir Titian, Rafael og Rembrandt. Ég var nátt- úrlega fullur af hrifningu og sá, að ég var kominn í snertingu við heims- menninguna. Og þegar ég kom til Reykjavíkur vissi ég þó nokkuð um list, t.d. að Titian hefði verið til. Það var þá ekki ómerk vitneskja fyrir strák, sem hafði verið að beita bjóð og stokka upp línur. En strax og ég sá myndirnar eftir Spánverjana, þótti mér þær betri en allt annað. Þegar ég sigldi til Kaupmanna- hafnar, hafði skipið viðdvöl í Osló og Leith og þar sá ég listasöfn, hin fyrstu sem urðu á vegi mínum. Sumt af því, sem ég sá svo í Kaupmanna- höfn, þótti mér skemmtilegt, ekki sízt tvær stórar franskar málverka- sýningar. Og þegar ég skrapp til Berlínar á námsárunum og sá myndir eftir gömlu meistarana og franska málara, varð ég fyrir áhrif- um, sem ég bjó lengi að. Þegar ég byrjaði að mála, var ég hjálpar- vana, málaði oftast litlar myndir, lands- lag, sjó og báta, - og snemma fólk. Ég hef alla tíð haldið mig við sama efnið, og verkið hefur gengið betur með reynslu og æfingu. Við- horf mitt til listarinnar breyttist mikið eftir síðari heimsstyrjöldina. Þá tók allt stakkaskiptum, einnig listin. Andrúmsloftið varð annað. Nýja listin eða sú abstrakta, fór að berast hingað og mér þótti margt af henni skemmtilegt, en féll þó aldrei í stafi - eða hún hafi hrifið mig, nei. Kandinsky og Mondrian voru að vísu miklir brautryðjendur og oft vitnað í það, sem þeir sögðu eða skrifuðu um list, en ég held lítið upp á þá, held meira upp á þá, sem komu síðar eins og Léger, Picasso og Miro. Þeir, ásamt Juan Gris, Chag- all og nokkrum öðrum, hafa gefið myndlistinni líf og lit á þessari öld. Litsýn eða smekkur margra súr- realista eru skemmtileg mótsetning við yndisþokkann í litum sumra áð- ur nefndra málara. Tassisminn, sem við höfum áður minnzt á, er oft ágætur, mikil litadýrð, mjúk og fín - minnir ofurlítið á impressjón- ismann. Annars er margt hvers- dagslegt af þessu, sumt skrýtið. Og svo er það poppið - mér finnst það muni þurfa andlegan styrk til að meðtaka það. En ég er enginn púrítani í list. Ég hef aldrei haft reglulegt uppáhald á abstraktlistinni, finnst að vísu nokkrir listamenn í þeim dúr hafi gert mjög góðar myndir, en þeir eru mjög fáir - og þá einna helzt þeir, sem hafa aldrei gengið þessari stefnu algjörlega á hönd, eða þjónað undir hana, heldur hinir, sem hafa haft gagn af henni og kunnað að velja og hafna.“ „Þú hefur einmitt sjálfur valið og hafnað.“ „Ég held ég hafi lítið sótt til abstraktlistar, kannski ekki neitt. Mig minnir að franskur listamaður hafi sagt, að abstraktsjón sé hluti af listinni. Fyrir mér er abstraktsjón ekki listin sjálf, hún er í allri mynd- list. Það fyrsta, sem maður vinnur með, þegar mynd er máluð, er stærð hennar, þ.e. hlutfallið milli lengdar og breiddar. Og allt annað í mynd- inni hlýtur að lúta því. Þetta hlutfall er auðvitað abstraktsjón. Það er ekki til í náttúrunni. Við skulum segja þetta svona: ef einhver fer út og málar mynd af fjalli, kemst hann ekki hjá því að velja fjallinu ein- hvern ákveðinn stað í málverkinu. Það er abstraktsjón, því að hann velur staðinn með tilliti til hæðar og lengdar myndarinnar. Hann gerir sér kannski ekki grein fyrir því sjálfur. Þetta er bara einhver til- finning fyrir hlutföllum og skipu- lagningu. Svona vinna allir málarar ósjálfrátt. Þannig er abstraktsjónin hluti af eðli mannsins." M. HELGI spjall IMORGUNBLAÐINU í DAG, laugardag, er skýrt frá því, að mikil lækkun hafi orðið á gengi hlutabréfa í Bandaríkjunum í gær, föstudag. Hin svonefnda Dow Jones-vísitala lækkaði um 5,66% á einum degi og hefur þá fallið um tæp 9% frá sl. þriðju- degi. Nasdaq-vísitalan, sem fyrst og fremst mælir gengi tæknifyrirtækja, lækkaði í gær, föstudag um 9,67% og hefur þá lækkað um 34,2% frá 10. marz. Til þess að setja þessar tölur í ákveðið samhengi má geta þess, að árið 1987 lækkuðu hlutabréf í Bandaríkjunum í verði um 12% á einum degi og þá fór allt á annan endann í viðskiptalífinu þar og reyndar víða um heim. Skýringin, sem gefin er á þessu mikla falli hlutabréfa á Bandaríkjamarkaði, er sú, að í gær, föstudag, var tilkynnt, að verðbólgan í marz hafi verið hin mesta í fimm ár og þess vegna megi búast við nýrri vaxtahækkun vestra til þess að hamla gegn þeirri þróun. í nýju tölublaði bandaríska viðskiptatíma- ritsins Business Week, sem út kom fyrir þess- ar síðustu fréttir af bandaríska markaðnum, fjallar einn af dálkahöfundum blaðsins, Robert Kuttner, um þróun hlutabréfaverðs og bendir á einfalda staðreynd í því sam- bandi. Hann segir að ekkert hafi gerzt, sem hafi breytt þeirri einföldu reglu, að fyrr eða síðar hljóti verð hlutabréfa að endurspegla hagnaðarmöguleika fyrirtækjanna. Síðan tekur höfundur eitt dæmi til þess að sýna um hvað þessar umræður snúast. Fyrir þremur árum var stofnað fyrirtæki til þess að selja leikföng á Netinu, sem nefnist eToys. Á skömmum tíma hækkuðu hlutabréf í þessu fyrirtæki svo mjög í verði að markaðsvirði þess nam 8 milljörðum Bandaríkjadala. Fyr- irtækið var metið verulega hærra en leik- fangafyrirtæki, sem margir þekkja og nefnist Toys ’R’ Us. Síðarnefnda fyrirtækið seldi fjögur hundruð sinnum meira en netfyrirtæk- ið og skilaði 376 milljón dollara hagnaði á ár- inu 1998 á sama tíma og eToys var rekið með tapi. Þegar spurt er á hverju svona verðmat byggist er svarið að það byggist á væntingum um möguleika netfyrirtækisins í framtíðinni. Þær væntingar byggjast ekki á því, að menn hafi fast land undir fótum. Þær byggjast ekki á rökstuddum áætlunum af neinu tagi. Þær byggjast á trú. En hversu lengi er hægt að reka atvinnufyrirtæki á trú um það, sem kann að gerast í framtíðinni en enginn veit hvort nokkru sinni gerist? Hér á íslandi hafa orðið til á undanförnum árum fyrirtæki, sem grái markaðurinn metur á milljarða króna, þótt raunveruleg atvinnu- starfsemi sé lítil, tekjur takmarkaðar og tap- rekstur regla en ekki undantekning. Að því kemur að þessi fyrirtæki verða að sanna sig í raunverulegum rekstri. Hversu mörg ár hafa þau til þess? Tvö ár? Fimm ár? Tíuár? Þessi fyrirtæki, sem margir trúa að verði fyrirtæki framtíðarinnar, eru ekki skráð á Verðbréfaþingi Islands. En verðmat hluta- bréfamarkaðarins hér á einstökum fyrirtækj- um, sem hafa með höndum umsvifamikinn rekstur, standa traustum fótum og skila hagnaði ár eftir ár vekur líka spurningar. Stendur Eimskipafélag íslands, sem er við- miðunin í margvíslegum umræðum um við- skiptalífið hér, undir því verðmati hlutabréfa- markaðarins, að félagið sé 40 milljarða virði? Getur félagið skilað hagnaði á næstu árum, sem réttlætir það verðmat? Þeir, sem hafa haldið því fram á undan- förnum mánuðum og misserum, að verðmat hlutabréfamarkaða bæði hér og annars stað- ar væri meira í ætt við loftbólu en raunveru- leika hafa ekki fundið hljómgrunn fyrir sínum skoðunum. Þegar svo er komið að fyrirtækin, sem skráð eru á Nasdaq, lækka um þriðjung í verði, sem samsvarar því að hlutabréf á Verð- bréfaþingi íslands lækkuðu á skömmum tíma um 130 milljarða eða ef tekið er mið af lækk- un Dow Jones frá því á þriðjudag að markað- urinn hér mundi lækka um tæpa 40 milljarða er ástæða til að staldra við og íhuga hvað hér er að gerast. Hér eins og annars staðar byggist fjárfest- ing í hlutabréfum að töluverðu leyti á lántök- um eins og aðrar fjárfestingar. Eitt af því, sem gerðist í kreppunni miklu í Bandaríkjunum fyrir sjötíu árum, var einmitt það, að þegar hlutabréfin lækkuðu í verði gerðu bankarnir kröfu um endurgreiðslu, sem engir peningar voru til fyrir. I kjölfar þeirrar reynslu voru settar mjög stífar reglur í Bandaifkjunum, sem hafa verið í gildi fram á þennan dag, um það hve mikið bandarískir bankar mega lána til hlutabréfakaupa, sem hlutfall af markaðsvirði bréfanna. Þessar reglur voru settar til þess að koma í veg fyrir að fjárfestar gengju of langt í spákaup- mennsku. Það er mikið umhugsunarefni á þessum litla markaði hér, hvort einstakir aðilar geti með eins konar handafli haldið uppi verði á hlutabréfum. Því er haldið fram, að það sé gert. Það er erfitt að sýna fram á það með rökum eða sanna. En það er ekki erfitt að standa við þá stað- hæfingu dálkahöfundar Business Week að fyrr eða síðar hljóti verð hlutabréfa að endur- spegla möguleika fyrirtækjanna til þess að skila hagnaði í samræmi við það verðmat. Gerir íslenzki hlutabréfamarkaðurinn það? Evrópu- skýrsla utan- ríkisráðherra FYRIR NOKKRUM dögum lagði Halldór Ásgrímsson utanrík- isráðherra fram á Al- þingi viðamikla skýrslu um stöðu Is- lands í Evrópusamstai'finu. Þetta er mikil- væg samantekt á upplýsingum, sem varða einn mikilvægasta þáttinn í utanríkismálum okkar íslendinga nú um stundir. Það skiptir miklu í þeim umræðum, sem hér fara fram, að aðilar máls og allur almenningur hafi greiðan aðgang að slíkum upplýsingum. Á þessum áratug hafa við og við skotið upp kollinum umræður um hugsanlega aðild okk- ar að Evrópusambandinu. Andstæðingar að- ildar hafa með réttu bent á, að sjávarútvegs- stefna Evrópusambandsins útiloki aðild að óbreyttu. Talsmenn aðildar hafa haft þau rök ein fram að færa gegn því sjónarmiði, að það yrði að láta á það reyna í viðræðum, hvers konar samningum íslendingar mundu ná um sjávarútvegsmál. Á móti hefur verið bent á, að þær undanþágur frá sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins, sem Norðmenn náðu í síðustu samningum sem þeir gerðu og síðar voru felidir í þjóðaratkyæðagreiðslu þar, mundu ekki duga okkur íslendingum. Tals- menn aðildar hafa svarað því til, að íslending- ar mundu ná betri samningum vegna þess, að sjávarútvegur væri þrátt íyrir allt jaðar- atvinnugrein í Noregi en undirstöðuatvinnu- grein á Islandi. Sá kafli í skýrslu utanríkisráðherra, sem fjallar um sjávarútvegsmál, gefur ekki tilefni til bjartsýni um, að nokkrar breytingar séu að verða á sjávarútvegsstefnu ESB, sem skipta máli fyrir okkur íslendinga. I skýrslu utanríkisráðherra segir m.a.: „Sjávarútvegsstefnan var endurskoðuð 1992 og verður endurskoðuð aftur árið 2002. Fyrir árslok 2001 ber framkvæmdastjórninni að leggja fram fyrir þingið og ráðherraráðið skýrslu um stöðu sjávarútvegsins í Evrópu- sambandinu. Sú skýrsla skal liggja til grund- vallar ákvörðunum um breytingar á sjávar- útvegsstefnunni árið 2002. Endurskoðun þessi nær til allra þátta sjávarútvegsstefn- unnar en sérstök áherzla verður lögð á að- gang að veiðisvæðum innan 6-12 sjómílna en heimild ríkja til að takmarka hann rennur út 31. desember 2002, verði ekkert að gert... Undirbúningur endurskoðunarinnar er þegar hafinn og hefur framkvæmdastjórnin unnið að skipulagningu á henni síðan 1998. Þá voru sendar út spumingar til 350 aðila í sjávar- útveginum í ESB. Síðan hafa verið haldnir 30 fundir með hagsmunaaðilum, vísindamönnum og stjórnvöldum á ýmsum svæðum og verða fleiri slíkir fundir haldnir á næstu misserum. Framkvæmdastjórnin hefur dregið vissar ályktanir af þessum fundum og má búast við að endurskoðunin muni markast að miklu leyti af þeim.“ Síðan segir um helztu niðurstöður af þess- um athugunum framkvæmdastjómarinnar: „Eins og áður segir verður aðgangur að svæðum innan 6-12 sjómílna endurskoðaður og virðist ríkja sátt um, að aðildarríkjum verði áfram heimilt að takmarka aðganginn. Þó em í sumum ríkjum uppi óskir um, að það svæði verði stækkað. Spánverjar, Portúgalar, Finnar og Svíar hafa ekki aðgang að veiðisvæðunum í Norð- ursjónum og óska þessi ríki eftir að fá hann. Ríki, sem liggja að Norðursjónum, eru á móti því og hafa áhyggjur af aukinni sókn á svæð- inu, þó að ákvörðun sé tekin um leyfilegan heildarafla af flestum tegundum í Norður- sjónum og honum skipt á milli einstakra ríkja. REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 15. apríl Morgunblaðið/Golli Horft niður Skólavörðustíg. Skip þeirra ríkja, sem ekki hafa kvóta í Norð- ursjó, fengju þó einungis heimild til að veiða tegundir, sem ekki eru kvótasettar... Á fund- unum var því haldið fram, að þó að leyfilegur heildaraíli hafi verið takmarkaður og kvóti hafi verið settur á hafi sóknin ekki minnkað. Meðal annars sé það vegna slaks eftirlits og skorts á vísindalegri ráðgjöf af nægilegum gæðum. Ekki var þó einhugur um að kasta kerfinu fyrir róða heldur rætt um að bæta það með betra eftirliti og styðja með ýmsum að- gerðum s.s. aukinni kjörhæfni veiðarfæra, draga úr útkasti og heimila sóknarstýringu. Framseljanlegir kvótar nutu ekki almenns stuðnings m.a. vegna áhyggna af samþjöppun og fækkun starfa. Helzt var að finna stuðning í Hollandi, Spáni og Danmörku. Hlutfallslegi stöðugleikinn svokallaði virð- ist vera almennt viðurkenndur, í sumum til- vikum þó sem slæmur en nauðsynlegur þar sem breytingar eða afnám þess fyrirkomu- lags mundi valda frekari vandamálum. Þó komu fram tillögur um breytingar á hlutfalls- legri skiptingu veiðiheimilda úr mörgum stofnum.“ Til skýringar á því hvað við er átt með „hlutfallslegum stöðugleika", sem er grund- vallaratriði í sjávarútvegsstefnu ESB(!), seg- ir svo í skýrslunni: „Skipting leyfilegs hámarksafla milli aðildarríkja ESB er byggð á reglunni um hlutfallslegt jafnvægi eins og áður segir. í því felst, að hlutdeild viðkomandi ríkja í einstökum stofnum, sem lúta ákvörðun um leyfilegan heildarafla, er fyrirfram ákveð- in. Þessi skipting á veiðiheimildum aðildar- ríkja úr helztu stofnunum er einn af horn- steinum sameiginlegu fiskveiðistefnunnar." I skýrslu utanríkisráðherra er brugðið upp mynd af því sem gerast mundi í sjávarútvegs- málum ef ísland yrði aðili að ESB. Þar segir m.a.: ,Að öllum líkindum gætu Islendingar haldið áfram að nota það kerfi, sem nú er við lýði, þ.e. aflamarkskerfi með framseljanlegu aflamarki og aflahlutdeild... hægt (er) að gera kröfu um það að sjávarútvegsfyrirtæki hafi raunveruleg og efnahagsleg tengsl við ísland. Til ýmissa ráða hefur verið gripið í að- ildarlöndunum, sérstaklega Bretlandi, þar sem talið er að 25-30% flotans séu í raun í eigu annarra en Breta. í Bretlandi eru gerðar kröfur um að sýnt sé fram á efnahagsleg tengsl skipa við Bretland eða svæði þar sem eru háð sjávarútvegi, áður en þau fá veiði- leyfi ... Ef stefnt væri að því að tryggja raun- veruleg efnahagsleg tengsl skipa, sem veiða úr íslenzkum kvótum við Island, er margt sem bendir til þess að gera verði verulegar breytingar á fiskveiðistjómunarkerfinu. Undanfarin ár hefur mestöllum afla íslenzkra skipa verið landað á íslandi. Einungis hefur verið heimilt að landa ferskum fiski á viður- kennda markaði í ESB. Ef ísland væri með- limur yrði ekki hægt að takmarka landanir í öðrum höfnum í ESB í þetta miklum mæli. Það mundi einnig eiga við um fullvinnsluskip, sem hingað til hafa landað öllum sínum afla á íslandi. Slíkt fyrirkomulag mundi að sjálf- sögðu geta leitt til þess að afla yrði landað í miklum mæli erlendis, sem ekki kæmi ís- lenzku atvinnulífi til góða. Jafnframt má gera ráð fyrir, að erfiðara yrði að hafa eftirlit með afla þessara skipa, sem aftur leiddi til þess, að fiskifræðingar hefðu lakari gögn til að byggja á ráðgjöf um leyfilegan heildarafla." Finnst mönnum nú ekki stórkostlega eftir- sóknarvert að stökkva ofan í þennan grautar- pott Evrópusambandsins í sjávarútvegsmál- um?! Það er auðvelt að sjá fyrir sér svipinn á íslenzkum útgerðarmönnum, þegar þeir stæðu frammi fyrir því að verða allt í einu fangar þess ótrúlega skrifræðis, samninga- makks og baktjaldamakks, sem leiða mundi af því fyrir íslenzkan sjávanítveg að lenda í klónum á þessu kerfi. Skýrsla Halldórs Ásgrímssonar utanríkis- ráðherra sýnir, að það hafa engar þær breyt- ingar orðið á sjávarútvegsstefnu ESB, sem réttlæta aðildarumsókn okkar íslendinga, og hún sýnir einnig að það eru ekki fyrirsjáan- legar neinar breytingar á þeirri stefnu á næstu árum, sem mundu leiða til stefnubreyt- ingar af okkar hálfu. Áhrif stækk- unar ESB I SKYRSLU UTAN- ríkisráðherra er fjall- að um marga aðra þætti þessa máls, sem snerta hagsmuni okkar, og er í þessu sam- bandi ástæða til að vekja athygli á þeim áhrif- um, sem stækkun ESB getur haft á markaðs- stöðu okkar í sumum þeirra ríkja, sem nú sækja um aðild að Evrópusambandinu. í skýrslunni segir m.a.: „Fyrirsjáanleg stækkun ESB til austurs mun án efa hafa þýðingu fyrir íslenzkan útflutning. ísland hefur með öðrum EFTA-ríkjum gert fríverzl- unai’samninga við ýmis ríki í austanverðri Evrópu og tryggja þessir samningar m.a. fullt tollfrelsi í viðskiptum með sjávarafurðir. Flest þessara landa hafa sótt um aðild að ESB. Einkum gæti innganga þeirra í ESB komið niður á síldarútflutningi þangað en síld er meðal afurða, sem seldar hafa verið til þessara ríkja. Samkvæmt reglum Alþjóðavið- skiptastofnunarinnar (WTO) ber ESB skylda til að ganga til viðræðna við Island um bættan markaðsaðgang þegar markaðsaðgangur skerðist við inngöngu nýrra aðila í ESB. Yfir- íeitt eru veitt tollafríðindi fyrir tiltekið magn á ári og ræðst magnið af innflutningi á til- teknu þriggja ára tímabili en hugsanlega yrði tekið tillit til vaxtarmöguleika. Þar með skerðast þeir möguleikar, sem eru fyrir hendi í þessum löndum fyrir útflutning á íslenzkum afurðum þegar efnahagur þar fer að batna.“ Hér er augljóslega á ferðinni mál, sem huga þarf að samtímis því sem samningavið- ræðum þessara ríkja við ESB miðar áfram. Nú má búast við að talsmenn ESB-aðildar segi að það séu nákvæmlega svona viðskipta- hagsmunir, sem geri það að verkum, að það sé nauðsynlegt fyrir okkur að gerast aðilar að ESB og að við getum ekki búizt við því að tryggja viðskiptahagsmuni okkar til eilífðar með því að standa utan ESB. Jafnframt munu þeir halda því fram, að gerist Norðmenn aðil- ar að ESB verði enn erfiðara að halda ESB við EES-samninginn. í þessu sambandi er auðvitað ljóst, að líta verður á samskipti okk- ar við Evrópuríkin í heild. Þegar tekin eru inn í þau samskipti sameiginlegir öryggishags- munir og margvísleg menningarleg samskipti er ekki ástæða til að ætla annað en að við get- um tryggt viðskiptahagsmuni okkar hér eftir sem hingað til. I skýrslu utanríkisráðherra er vikið að fjár- festingum í sjávarútvegi og þar segir m.a.: „íslendingar hafa skv. EES-samningnum heimild til að koma í veg fyrir að útlendingar fjárfesti í íslenzkum sjávarútvegi og eru í lög- um ákvæði, sem banna útlendingum að eiga íslenzk fyrirtæki, sem stunda veiðar og frum- framleiðslu á sjávarafurðum. Með slíku ákvæði er reynt að tryggja að útlendir aðilar geri ekki út skip undir íslenzkum fána á Islandsmiðum þannig að þau komi í raun aldrei til íslands heldur sæki þjónustu og selji allan sinn afla á erlendum mörkuðum. Þannig gætu verðmæti þess afla sem þau veiða í raun farið fram hjá íslenzku efnahagskerfi." Morgunblaðið hefur áður lýst þeirri skoð- un, sem hér skal ítrekuð, að okkur sé ekki lengur stætt á því að banna erlenda fjárfest- ingu í íslenzkum sjávarútvegi. Á sama tíma og íslenzk fyrirtæki fjárfesta í sjávarútvegi ann- arra þjóða getum við ekki búizt við að geta haldið öðrum frá því að fjárfesta í íslenzkum sjávarútvegi. Ef við reynum að gera það til lengdar endar það með því að íslenzkum sjáv- arútvegsfyrirtækjum verður úthýst í öðrum löndum. Firaist mönnum nú ekki stórkost- lega eftirsóknar- vert að stökkva of- aníþennan grautarpott Evrópusam- bandsins í sjávar- útvegsmálum?! Það er auðvelt að sjá fyrir sér svip- inn á íslenzkum útgerðarmönnum, þegar þeir stæðu frammi fyrir því að verða allt í einu fangar þess ótrú- lega skrifræðis, samningamakks og baktjalda- makks, sem leiða mundi af því fyrir íslenzkan sjávar- útveg að lenda í klónum á þessu kerfi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.