Morgunblaðið - 16.04.2000, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 16.04.2000, Blaðsíða 40
40 SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000 T---------------------- MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + Elsku eiginmaöur minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÞORSTEINN HÖRÐUR BJÖRNSSON vélfræðingur, Bugðulæk 17, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju þriðju- daginn 18. apríl kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Hjartavernd. Arnheiður Einarsdóttir, Eyrún Þorsteinsdóttir, Guðmundur H. Kristinsson, Heiður Þorsteinsdóttir, Guðmundur J. Einarsson, Laufey Hrönn Þorsteinsdóttir, ísleifur Árni Jakobsson, Hörður Þorsteinsson, Margrét Þór, Arna Björk Þorsteinsdóttir, Jóhann Thorarensen, barnabörn og barnabarnabörn. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR EIRÍKSSON fyrrv. lögreglumaður, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 18. apríl kl. 13.30. Styrkár og Laila, Hákon og Emma, Jónas, Sigurjón og Bára, Svandís og Valur, Rósa Margrét og Ed, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur sonur okkar, bróðir og barnabarn, KARL KRISTINN KRISTJÁNSSON, Kirkjubraut 5, Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju miðviku- daginn 19. apríl kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknar- stofnanir. Kristján Sveinsson, Sigrún Halla Karlsdóttir, Álfhildur Kristjánsdóttir, Sveinn Kristjánsson, Álfhildur Ólafsdóttir, Karl Sigurðsson, Kristín Sigurðardóttir. + Móðir mín, HILDUR EIRÍKSDÓTTIR, Aðalbraut 34, Raufarhöfn, verður jarðsungin frá Raufarhafnarkirkju þriðjudaginn 18. apríl kl. 14.00. Gunnur Sigþórsdóttir. + Látinn er EINAR MÝRKJARTANSSON. Útförin ferfram frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 18. apríl kl. 15.00. Aðstandendur. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GRETTIR JÓHANNESSON, Gullsmára 9, Kópavogi, áður til heimilis á Skarði í Þykkvabæ, sem lést miðvikudaginn 12. april sl., verður jarðsunginn frá Digraneskirkju miðvikudaginn 19. apríl kl. 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minn- ast hins látna, er bent á Samtök lungnasjúklinga. Fanney Egilsdóttir, Egill Grettisson, Lilja Sigurðardóttir, Kristbjörg Grettisdóttir, Sigurður G. Þórarinsson, Jóhannes Grettisson, Elín Leifsdóttir, Marta Grettisdóttir, Valur Jóhann Stefnisson, Sigrún Grettisdóttir, Magni Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. RANNVEIG MARGRÉT GÍSLADÓTTIR + Rannveig Mar- grét Gísladdttir fæddist á Gauks- stöðum í Garði hinn 6. janúar 1914. Hún lést á elliheimilinu Grund 4. apríl síð- astliðinn. Rannveig var ddttir hjdnanna Gísla Sveinbjörns Einarssonar, f. 7.11. 1887, d. 8.10. 1933, og Steinunnar Jdns- ddttur, f. 10.3. 1885, d. 29.2. 1960, frá Gauksstöðum í Garði. Rannveig var þriðja í röð systkina sinna sem öll eru látin. Þau voru: Sigurjdn Óskar, f. 22.8. 1910, d. 25.11. 1986, maki Anna Árnaddttir, f. 13.11. 1913, d. 24.9. 1993; Magnús Ingibjörn, f. 12.11. 1911, d. 24.10. 1967, maki Ástrds Guðmundsdöttir, f. 8.11. 1907, d. 13.11. 1969; Guðrún Una Sigurveig, f. 10.11. 1912, d. 7.10. 1956; hún var nunna í St. Jösepsreglunni; Jdn Sveinn, f. 9.8. 1915, látinn, maki Anna Kristensen, f. 23.5. 1915, d. 1.2. 1997; Guðný Fjóla, f. 4.2. 1917, d. 7.10. 1967, maki Ingvar Guðfinnsson, f. 3.11. 1909, d. 22.7. 1993; Oddný Mar- grét, f. 5.3. 1920, d. 1995, maki Toni Brusella, látinn; þau voru búsett í Bandaríkjunum. Einn fösturbröður áttu þau systkinin, Odd Daníelsson, f. 8.12. 1928, d. 13.12. 1996, maki Bára Sigur- jdnsddttir, f. 27.7. 1937, búsett í Kópavogi. Rannveig ^ eignaðist þrjú börn. Þau eru 1) Árni Svein- björn, f. 17.10. 1945; hann á tvö börn, Jóhann Geir og Rannveigu, 2) Finnur, f. 18.8. 1949; hann á fjögur börn, Tdmas, Einar, Berg- rúnu og Gísla auk fdstursonarins Brands, 3) Hjördís Sveina, f. 22.12. 1952; hún á fimm börn, Auðun, Jósep, Guðnýju Maju, Rannveigu Lilju og Hjördísi Lind. Rannveig var jarðsungin í Fríkirkjunni í Reykjavík í kyrr- þey 13. apríl og jarðsett að Út- skálum í Garði. Þá er stundin runnin upp, stundin þegar við kveðjumst að eilífu, elsku- lega Veiga mín. Það er bæði Ijúft og sárt að kveðja fullorðna konu, sem hefur lifað í áttatíu og sex ár. Ljúft vegna minninganna sem ég geymi í huga mínum frá öllum stundunum sem við áttum saman síðustu árin. Það eru viss forréttindi að þekkja gamalt fólk, það þroskar mann að um- gangast það. Eg veit að Veiga hefur átt sinn þátt í mínum þroska. Alla ævi mína hef ég umgengist Veigu, hún var systir hennar ömmu minnar, Fjólu. Þær voru mjög samrýndar systur, alltaf saman, hittust nánast daglega. Rannveig var að sumu leyti sérstök kona. Hún var óhrædd við að takast á OSWALDS sími 551 3485 ÞJÓNUSTA ALLAN ! SÓLARHRINGINN AÐAI STRÆ'I I 4B • 101 RKVKJAVÍK f | Davíð Inger Óletftir j Útfnrnrstj. Otfnrnrstj. Útfnrnrstj. LÍKKISTUVl N N USTOFA EYVINDAR ARNASONAR Blómastofa Friðjtnns Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík, sími 553 1099. Opið öll kvöld til kl. 22 - einnig um helgar. Skreytingar fyrir öll tilefni. Gjafavörur. við erfiðleika, hún var einstæð móðir með þijú böm. Hún vann alla tíð úti, lengst starfaði hún á Landakoti hjá nunnunum, þar vann hún sem vöku- kona á næturvöktum. Á efri árum tók hún sig til og útskrifaðist sem sjúkra- liði og var hún meðal fyrstu félaga í Sjúkraliðafélagi íslands. Ég minnist allra stundanna með Veigu, ömmu og Onnu Ama uppi á Landakoti, ferð- anna suður í Garð og vestur á Ægis- síðu, þegar þær tóku slátur, eða tóku í spil og ásökuðu hver aðra um svindl og hlógu síðan dátt að öllu saman. Það vora þung og erfið spor fyrir Veigu að kveðja þær, eins og svo mai-ga sem hún var búin að kveðja, öll systkini sín og nokkur systkinabörn einnig. Veiga átti marga góða vini og var mikill húmoristi. Fyrir u.þ.b. tveimur árum fór ég með henni í heimsókn í klaustr- ið í Garðabæ ásamt Valgerði vinkonu hennar, sem nú er nýlátin, að hitta gömlu vinkonur þeirra í St. Jósefs- reglunni. Það er ein sú yndislegasta stund sem ég hef upplifað að sitja hjá þeim og hlusta á þær rifja upp gamla daga. Ég vissi ekki að nunnur væra svona miklir húmoristar, en það vissi Veiga og þess vegna var þeim senni- lega svo vel til vina. Seinni árin var Veiga minna á ferðinni. Hún lær- brotnaði og náði aldrei fullum bata í fætinum eftir það. Hún elskaði að fara á rúntinn eins og hún kallaði það og var Anna Bjöms dugleg að fara með gömlu konuna út að keyra og að heim- sækja hana; hún naut þeirra stunda. Þrjú börn eignaðist hún eins og fram hefur komið og 13 bamaböm. Hún elskaði þau öll og var mjög hreykin af þeim öllum. Auðunn var mikið með ömmu sinni þegar hann var að alast upp, þvældist með henni um allar trissur. Rannveig litla tók svo við af bróður sínum að fylgja henni og áttu þær mjög náið samband. Það síðasta sem Veiga gerði í þessu lífi var að fara í Fríkirkjuna að sjá nöfnu sína ferm- ast. Ég veit að það hefur verið full- komin stund hjá henni. Ég má til með að minnast Einars, sem alltaf hefur verið duglegur að kíkja í heimsókn, og Rakel, hafðu þökk fyrir þitt framlag. Elsku Svenni minn, Finnur og Hjör- dís, ég votta ykkur mína dýpstu sam- úð, öllum ömmubörnunum og litlu langömmubömunum. Við hin minn- umst Rannveigar Gísladóttur með virðingu. Bless, elsku frænka. Þín Fjdla. + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SÓFUS PÁLL HELGASON, Ásbyrgi, Raufarhöfn, andaðist á Sjúkrahúsi Húsavíkur fimmtudaginn 13. apríl. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + Eiginkona mín og móðir okkar, VALGERÐUR INGIBJÖRG TÓMASDÓTTIR, Hjarðarhaga 40, Reykjavík, lést á Landakotsspítala föstudaginn 14. apríl. Fyrir hönd aðstandenda. Einar H. Björnsson, Björn Á. Einarsson, Tómas Á. Einarsson. Vesturhlíð 2 Fossvogi Sími 551 1266 www.utfor.is Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar. Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins ^JtARs^ með þjónustu allan sólarhringinn. 'yáU*w r % Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja UTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.