Morgunblaðið - 16.04.2000, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 16.04.2000, Blaðsíða 42
42 SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000 AFMÆLI MORGUNBLAÐIÐ Aflagrandi Voram aö fa i solu glæsi- lega 122 fm 4ra—5 herb. íbúð á 2. hæð með sér- inngangi í þessu fallega húsi. Saml. stofur, 3 góð svefnherb. Þvottahús í íbúð. Vandaðar innrétt- ingar. Áhv. 6 millj. hús- bréf. Eign í algjörum sér- flokki. 7, sími 585 8800. 00-14.00. Híbýli fasteignasala, Suðurgötu Opið í dag frá kl. 12.1 í? f^| FASTEIGNA (f- (HJ MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 570 4500, FAX 570 4505 OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 9-18. Netfang: http://habil.is/fmark/ Þingholtsstræti 5 - heil húseign Heil húseign í hjarta borgarinnar. Eignin, sem er 1.500 fm að stærð, hefur öll verið endumýjuð frá grunni, jafnt að utan sem innan. Húsið, sem er allt í útleigu, er að mestu nýtt undir hótelíbúðir auk verslana og veitingahúss. Góð arð- semi. Góð langtímalán áhv. Nánari uppl. á skrifstofu. Þórsgata - heil húseign Til sölu 291 fm heil húseign með sex vel innréttuðum íbúðum sem allar eru í útleigu. Verð 30,0 millj. Ránargata Falleg burstahús í hjarta borgar- innar. Hér er um að ræða þrjú saml. hús, sem eru hvert um sig kj., tvær hæðir og ris, samtals að gólffleti 800 fm. Ýmsir nýtingar- möguleikar, t.d. undir gistiheimili eða útleigu á herbergjum. Einnig mögul. á fjölda íbúða með því að setja stigahús á baklóð. Nánari uppl. á skrifstofu. Fjarðargata - Hafnarfirði Til sölu 204 fm verslunar- húsnæði á jarðhæð með góðum gluggum sem snýr að Strand- götu. Afhendist tilb. til innrétt- inga að innan, fullfrágengið að utan með varanlegri klæðningu. Nánari uppl. á skrifstofu. Ingólfsstræti - heil húseign Nýkomin í sölu 337 fm heil hús- eign, kj. og tvær hæðir, vel stað- sett miðsvæðis í Reykjavík. Um er að ræða verslunar-, skrifstofu- og íbúðarhúsnæði. Nánari uppl. á skrifstofu. SIGURÐUR GUÐMUNDSSON Einn hinna merku kirkjuhöfðingja þessa lands, sr. Sigurður Guðmundsson vígslu- biskup, er áttatíu ára í dag, 16. apríl. Um leið og honum er óskað heilla á þess- um degi er ánægjulegt að fá tækifæri til að draga upp nokkrar myndir úr langri og gifturíkri sögu hans á samleið kirkjunnar. Þótt enn sé ekki hægt að tala um verkalok hans á akri Guðs kristni og svo verði ekki meðan Guð gefur honum líf og heilsu, er þó sannarlega tími nú til þess að líta til baka í þökk, eins og hann mun sjálf- ur gera á þessum degi. Sr. Sigurður var einn þeirra presta sem vígðir voru til prests- þjónustu hinn 18. júní 1944 og voru kallaðir morgungjöf lýðveldisins. Það átti fyrir þeim öllum að liggja að skilja eftir sig varanleg spor jafnt í kirkjulegu sem almennt fé- lagslegu tilliti og þannig rættist sú ósk og það fyrirheit sem fólst í heit- inu. Sr. Sigurður hélt eftir vígslu norður að Grenjaðarstað í Aðaldal, eins hinna merkustu prestakalla landsins í sögu kirkju og þjóðar og sat þann stað í meir en fjóra tugi ára, fyrst sem prestur, síðan próf- astur og síðast vígslubiskup. Þar lét hann til sín taka bæði á kirkjulegum vettvangi sem veraldlegum og brást jafnan við skyldum beggja eins og eftir var leitað. Þar er af mörgu að taka, en hér skal að- eins nefnt sem dæmi, ævintýrið um Sumar- búðirnar við Yest- mannsvatn sem ætíð mun tengt nafni hans í þríeyki þeirra séra Péturs, síðar biskups, og Silla bankastjóra á Húsavík. Sr. Sigurður valdist ungur til trúnaðar- starfa fyrir kirkju sína. Hann varð prófastur í leyfi sitjandi prófasts árið 1957 en var settur prófastur frá 1962 og gegndi því embætti í ald- arfjórðung. Hann var kirkjuþings- maður því sem næst frá fyrstu stund, því að hann settist á Kirkju- þing árið 1960, í annað sinn sem það kom saman, og sat þar óslitið til ár- sins 1986. í kirkjuráði sat hann eitt kjörtímabil, 1982-1986. Hann var vígður vígslubiskup Hólastiftis 1982 og gegndi því embætti til opinberra starfsloka sinna 1990. Þegar sr. Sigurður var kjörinn vígslubiskup var embættið enn án sinnar eðlilegu heimilisfesti á bisk- upsstólnum á Hólum. Það var með vissum hætti lán embættisins að sóknarprestsembættið á Hólum skyldi losna árið 1986. Sr. Sigurður sem setið hafði Grenjaðarstað yfir fjörutíu ár ákvað að sækja til Hóla. Þannig varð hon- um unnt að stíga það giftudrjúga skref að setjast að á Hólum sem sóknarprestur og taka þannig með Opið í dag, sunnudag, milli kl. 12 og 14 STÓRAGERÐI - NÝTT Á SKRÁ Vorum að fá í einkasölu 4-5 herbergja 121 fm hæð ásamt góðum 28 fm bílskúr. Parket, tvennar svalir. Björt, falleg og sérlega vel meðfarin íbúð. Frábær staðsetning Verð 17,5 millj. LAUFRIMI 6 - OPIÐ HÚS í DAG Falleg 90 fm íbúð í nýlegu húsi á fyrstu hæð með sérinngangi og hellulagðri suðurverönd. Björt og skemmtileg (búð. Einkasala. Áhvílandi 4,8 millj. Verð 10,1 millj. Guðný og Markús taka á móti ykkur milli kl. 14 og 16. Mjög fallegt um 200 fm enda- raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr á góðum stað í Árbænum. Beikiparket, glæsilegt eldhús, fallegt útsýni, sérgarður, svalir I suðvestur. Einkasala. Ingibjörg tekur á móti ykkur milli kl. 13 og 15. Verð 20,8 millj. KIRKJUTEIGUR 19 - OPIÐ HÚS í DAG MILLI KL. 14 OG 17 157 fm sérhæð með bílskúr, her- bergi í kjallara með sórinngangi ásamt geymsluskúr sem mögu- legt er að breyta í stúdíóíbúð. Flísar á gólfi í eldhúsi og á holi, stofa og borðstofa samliggjandi með parketi, manngengt ris, sem nýtist sem herbergi. Eignin býður upp á mikla möguleika. Ómar sýnir. Verð 15,9 millj. # f r O n FINNBOGI KRISTJÁNSSON LÖOG. FASTEIGNASALI OÍ0WMIÍLA 2 lífóí ViVí n/ 1M4 Upíh virFa ú'sííís fcí, S.tiö■17/iU i'éU, k.L 12 .fjfj-1 í.fjíj. REYKÁS 20 - OPIÐ HÚS í DAG FLÚÐASEL Gott 223 fm raðhús á þremur hæðum í Seljahverfinu með innb. 29 fm bílskúr. Tvennar suðursvalir, sérgarður, 6 her- bergi. Eign í góðu ástandi utan sem innan. Áhv. 7,7 millj. Verð 20,3 millj. sér embætti vígslubiskups heim að Hólum. Þetta skref munu komandi kynslóðir mega þakka honum rétt eins og samferðafólk hans. Fljótt fennir í sporin og breytingar á lög- um um vígslubiskupa sem fylgdu í kjölfarið láta marga gleyma þessari afdrifaríku ákvörðun sr. Sigurðar. Biskupsferill sr. Sigurðar Guð- mundssonar er um margt merkileg- ur. Þannig var hann ekki einungis vígslubiskup á Hólum í átta ár, heldur gegndi hann tímabundið embætti biskups íslands í forföllum sr. Péturs Sigurgeirssonar, og einn- ig embætti vígslubiskups í Skálholti í forföllum sr. Jónasar Gíslasonar, og hafa ekki aðrir biskupar í sögu kirkjunnar á íslandi gegnt öllum þrem biskupsembættunum. Með formlegum hætti lauk Sig- urður vígslubiskup starfsdegi sínum svo sem aðrir menn þegar sjötíu æviár voru að baki og hefur síðan búið á bernskuslóðum sínum á Ak- ureyri. Lítið lát hefur þó verið á önnum hans við prestsstörf, bisk- upsstörf og fleira enda hentar það honum best og mun svo verða með- an dag gefur til starfs. Við hlið hans stendur stoð hans og stytta í hartnær 60 ár, frú Aðalbjörg Hall- dórsdóttir. Engin leið er að hugsa annað án hins, í öllu falli alls ekki hann án hennar. Hér verður ekki nánar rakið í stuttri afmælisósk, enda þegar skráð lífssaga þeirra hjóna á góðri bók um þau. Persónulegar þakkir þess sem þetta ritar fyrir andlega og tímanlega leiðsögn í fjóra ára- tugi, og einkum skörulega, hlýja og sanngjarna stjórn sem sóknarprest- ur á Raufarhöfn undir leiðsögn prófastsins á Grenjaðarstað eru í þessu samhengi aukaatriði. Hitt er miklu meira að þjóðkirkjan öll stendur í þakkarskuld fyrir farsæla þjónustu prests, prófasts, vígslubis- kups, kirkjuþingsmanns og kirkjur- áðsmanns sem endurómar í kveðj- unni: Guð blessi þér heilladaginn 16. apríl 2000 og launi þér þjónustuna. 16. apríl 1521 kom Lúther til Worms til að segja við keisarann: „Hér stend ég og get ekki annað, svo hjálpi mér Guð.“ Að standa frammi fyrir verkefnum og erfið- leikum dagsins í æðruleysi því sem traustið til Guðs náðar gefur og sinna þeim og sigrast á þeim hefur greinilega fylgt þessum degi alla tíð. Það má því líka vera einkenni og yfirskrift þessara 80 ára sem við fögnum í dag. Og 21 er traust tala. Kristján Valur Ingólfsson. Frágangur afmælis- og minn- ingar- greina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vél- rituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minn- ing@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/send- anda fylgi. Um hvem látinn einstakling birtist formáh, ein uppistöðu- grein af hæfilegri lengd, en aðr- ar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfi- lega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blað- inu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þijú er- indi. Greinarhöfundar era beðnir að hafa skírnamöfn sín en ekki stuttnefni undir grein- unum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.