Morgunblaðið - 16.04.2000, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 16.04.2000, Blaðsíða 30
30 SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Golli Bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir stofnuðu Bakkavör hf. í litlu húsnæðí í Garði árið 1986.1 dag rekur fyrirtækið dótturfélög víðsvegar í Evrópu með áætlaða veltu upp á 3 milljarða króna á þessu ári. KVÓTALA US RISI í SJÁVARÚTVEGI VIÐSKIPn AIVINNULÍF Á SUNNUDEGI ► Ágúst Guðmundsson stjórnarformaður er 35 ára. Hann stundaði nám við Fjölbrautaskólann í Ármúla og nam frönsku við Université de Pau et des pays de ÉAdour í Frakklandi. Ágúst lauk prófi við leiðsögumannaskóla Ferðamálaráðs og stundaði ýmis störf uns hann stóð að stofnun Bakkavarar hf. ► Lýður Guðmundsson forsljóri er 32 ára. Lýður lauk stúd- entsprófi frá Verslunarskóla íslands 1987 og hefur helgað sig fyrirtækinu frá upphafi. Úr rekstri Bakkavarar hf. Velta Eftir Elmor Gíslason AÐ hefur margoft sannast að hugvit og áræðni get- ur skilað miklum árangri. Árið 1986 stofnuðu bræð- urnir Ágúst og Lýður Guðmunds- synir lítið fyrirtæki í Garði á Reykjanesi. Reksturinn snerist um að framleiða og selja sjávarafurðir á erlenda markaði. Nú 14 árum síðar er þessi litli heimilisiðnaður orðinn að alþjóðlegri fyrirtækja- samstæðu sem veltir rúmum þremur milljörðum á ári og fer ört vaxandi. Síðar í þessum mánuði stendur til að bjóða út hlutafé í fyrirtækinu að nafnverði 105 millj- ónir króna og í kjölfarið verður sótt um skráningu á Aðallista Verðbréfaþings íslands. Þrátt fyrir að fyrirtækið Bakka- vör Group hf. sérhæfí sig í rótgró- inni atvinnugrein þ.e. framleiðslu, sölu og dreifingu sjávarafurða, þá hljóta forsvarsmenn þess engu að síður að teljast til frumkvöðla í ís- lensku atvinnulífi. Bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir voru aðeins 22 og 19 ára gamlir, er þeir settu félagið á laggirnar í litlu húsnæði í Garði. Upphaflega var tilgangurinn að vinna þorskhrogn til útflutnings en fljótlega fór fyr- irtækið að vinna og selja aðrar tegundir hrogna, s.s. loðnu-, grá- sleppu-, ufsa-, og ýsuhrogn. í dag rekur félagið umfangsmikla starf- semi í sex þjóðlöndum víðsvegar í Evrópu. Þrátt fyrir öran vöxt, hefur fé- lagið ávallt skilað hagnaði frá 1992, að árinu 1996 undanskildu. Á síðasta ári nam hagnaður sam- stæðunnar 157 miiijónum króna eftir skatta sem er 695% aukning frá árinu 1998 þegar hagnaðurinn var 20 milljónir. Samkvæmt rekstraráætlun yfirstandandi árs er gert ráð fyrir að velta verði um 3 milljarðar króna og hagnaður fyrir skatta 185 milljónir. Ónýtt skattalegt tap samstæðunnar nem- ur 105 milljónum króna. Hlutafé félagsins samkvæmt samþykktum þess er 449.470.002 krónur. Á aðalfundi 2. mars sl. var samþykkt að auka hlutafé fyrir- tækisins um 50 milljónir króna og sækja um skráningu alls útgefins hlutafjár félagsins á Aðallista Verðbréfaþings Islands. Aðalfund- ur samþykkti jafnframt að falla frá forkaupsrétti vegna hlutafjáraukn- ingarinnar og verður öll upphæðin því seld í útboðinu ásamt 55 mil- ljóna króna nafnverðshlut í eigu Kaupþings þannig að heildarnafn- verð hlutafjár í útboðinu verður 105 milljónir króna á genginu 5,5. Umsvifín aukist verulega Eins og ofangreindar hagnaðar- tölur bera með sér hafa umsvif fé- lagsins aukist verulega undanfarin misseri. Á síðasta ári var ráðist í kaup á sænska fyrirtækinu Lysek- ils Havsdelikatesser AB (nú Bakkavör Sweden AB) sem er annar stærsti framleiðandi kældra '96 '97 '98 '99 '00 sjávarafurða í landinu og leiðandi í sölu lútfisks og matjesíldar á sænska markaðnum. Þá var jafn- framt ráðist í að kaupa upp 80% hlutafjár í franska félaginu Comp- toir Du Caviar (nú Bakkavör France) en þar átti Bakkavör fyrir 20%. Framleiðsla félagsins byggist aðallega á Tarama sem er viðbit, laxakavíar og kóngskrabba, auk sölu og dreifingar á styrjukavíar, grásleppukavíar og reyktum hrognum. Á þessu ári hafa síðan bæst við tvær einingar til viðbótar á megin- landinu. I þýsku borginni Ham- borg var fyrirtækið Bakkavör Germany stofnað í febrúar og er félaginu ætlað að sjá um markaðs- mál og dreifingu á afurðum sam- stæðunnar á þýskum markaði. í mars sl. var síðan ráðist í enn Hagnaður fyrir skatta --------------- Millj. kr. 200 j- 150 --------------------------50 '96 '97 '98 '99 '00 eina fjárfestinguna er gengið var frá kaupum á 75% hlutafjár í pólska sölu- og dreifingarfyrirtæk- inu Norpol Sp. Z.o.o. (nú Bakkavör Polska). Þar er um að ræða sér- hæfðan sölu- og dreifingaraðila á kældum sjávarafurðum, s.s. kav- íar. Af öðrum rekstrareiningum inn- an samstæðunnar ber fyrst að nefna Bakkavör ísland hf. sem hefur aðsetur í 3.500 fm húsnæði í Reykjanesbæ. Starfsemi félagsins byggist einkum á söfnun, úr- vinnslu og sölu á öllum helstu teg- undum hrogna. Áætluð velta verksmiðjunnar í Reykjanesbæ á þessu ári er um 5-600 milljónir króna. I Reykjanesbæ er jafnframt starfrækt sérstök vöruþróunar- deild sem vinnur að því að auka vöruúrval og verðmæti söluafurða fyrirtækisins, jafnframt því að auka þekkingu á hrávöruvinnslu og fullvinnslu innan félagsins. Þess má einnig geta að síðastliðin tvö ár hefur deildin unnið að þróun nýrra afurða, m.a. vöruþróun og fram- leiðslu á kavíar og smyrjum í sam- starfi við norska matvælafyrirtæk- ið Mills. Frá árinu 1994 hefur verið rekin söluskrifstofa í Bretlandi sem sel- ur aðallega hráefni til flugfélaga og veisluþjónusta. Móðurfélag stofnað um reksturinn Það hefur margoft sýnt sig að fyrirtæki eru misvel í stakk búin til að mæta velgengni og örum vexti á stuttum tíma. Aðspurður hvort forsvarsmenn Bakkavarar hafí ekki fundið fyrir slíkum vaxta- verkjum í kjölfar aukinna umsvifa erlendis, svarar Ágúst Guðmunds- son neitandi. „í Ijósi þeirra öru breytinga sem hafa verið að eiga sér stað á liðnu ári, var ákveðið að taka upp nýtt skipurit og stofna nýtt móðurfélag, Bakkavör Group hf., utan um allan reksturinn. Skipuritið er svokallað „matrixu" skipurit sem gengur út á það að starfsemi hvers aðildarfélags í hverju landi er sjálfstætt fyrir- tæki. Dótturfélögin eru þ.a.l. sjálf- stæðar rekstrareiningar en öll hlutabréf í þeim eru í eigu Bakka- vör Group hf. I kjölfarið var starf- seminni á íslandi skipt upp í ann- ars vegar Bakkavör Group hf. sem sér um yfirstjórnun samstæðunnar og hins vegar í Bakkavör Island sem sér um starfsemina hér heima.“ Hann segir hugmyndafræðina að baki þessari útfærslu snúa að því að viðhalda þeirri skilvirkni sem minni einingar ráða yfir en jafnframt að ná fram samlegð á milli félaganna á sviði innkaupa, fjármála, flutninga, vöruþróunar og framleiðslu. „I krafti stærðar- innar getum við boðið lægri verð á afurðum okkar en á sama tíma starfa dótturfélögin með sjálfstæð- um hætti, hvert á sínum markaði með tilheyrandi sveigjanleika. Með þessu fyrirkomulagi náum við því fram að vera bæði stórir og litlir á sama tíma með öllum þeim eigin- leikum og kostum sem einkenna hvort rekstrarform um sig.“ Annar mikilvægur styrkur sam- stæðunnar sem þeir nefna felst í auðveldu aðgengi að fjármagni miðað við erlenda samkeppnis- aðila. Það útskýra þeir með því að benda á að íslenskir fjárfestar hafi verið áhugasamir um að fjárfesta í sjávarútvegi og í matvælavinnslu sem byggist á úrvinnslu sjávar- afurða, sem hafi veitt félaginu tækifæri til að vaxa með fyrir- tækjakaupum. í öðrum Evrópu- löndum hafi fjármálamarkaðir hins vegar mjög takmarkaðan áhuga á fyrirtækjum í sjávarútvegi og vinnslu sjávarafurða. Megináherslan á Evrópu Allt frá því að fyrirtækið hóf rekstur árið 1986 hefur stærstur hluti afurða þess verið seldur á er- lendum mörkuðum en einungis lít- ill hluti hér á Islandi. Mikilvæg- asta markaðssvæðið er í Norður-Evrópu en gert er ráð fyr- ir að vægi markaðanna í eystri og syðri hluta álfunnar muni fara vax- andi. Að sögn Lýðs Guðmundssonar, forstjóra, á félagið einkum við- skipti við alþjóðlegar verslanakeðj- ur s.s. Carrefour, Auchan, ICÁ, Tesco og Casino, auk veitingaþjón- usta og annarra fyrirtækja í mat- vælasölu. Hann telur það ekki áhættusamt að beina viðskiptum að svo fáum stórum aðilum. Hann vísar til þeirrar samþjöppunar sem átt hef- ur sér stað í verslun í Evrópu á undanförnum árum og fyrirsjáan- legt er að muni aukast enn frekar í framtíðinni. „Þetta knýr á sam- þjöpppun hjá birgjum sem verða sífellt að bjóða betri verð, meiri áreiðanleika og aukið öryggi í dreifingu. Þetta er það umhverfi sem við höfum náð að fótfesta okk- ur í með góðum árangri. Ætlunin er að halda áfram að vaxa og fjár- festa í fleiri fyrirtækjum sem falla að okkar starfsemi með það fyrir Hluthafar í Bakkavör Group hf. - 2. mars 2000 Bakkabræður Grandi hf. Kaupþing hf. Mills D.A. Kaupthing Bank Luxemburg S.A. Ehf. Alþýðubankinn (] 0,7% Hávöxtunarfélagið sj. 1 (! 0,6% Hlutabréfasjóðurinn Aulind (l 0,6% Lífeyrissjóður bænda II 0,3% Samtals: 100,0% 34,7% 31,3%
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.