Morgunblaðið - 16.04.2000, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
I DAG
BRIDS
Umsjón (iiiðmiiinliir Páll
Arnarson
„ÞAÐ meldaði enginn tíg-
ul, var það nokkuð,“ segir
makker um leið og hann
slengir tígulfimmunni á
borðið. Kóngurinn kemur
upp í blindum og þú liggur
með ÁD á eftir í austur.
Gott hjá makker.
Norður
* 104
v D852
* R82
* AD105
Austur
a 875
v Á1093
♦ ÁD73
a 83
Vestur Norður Austur Suður
- - - 1 spaði
Pass 2 lauf Pass 2 hjörtu
Pass 4 hjörtu Allir pass
Lesandinn er sem sagt í
hlutverki austurs í vörn
gegn fjórum spöðum.
Sagnhafi stingur upp tígul-
kóng, sem þú drepur og
tekur næst á tíguldrottn-
ingu. Makker - útspils-
séníið - lætur fjarkann í
þann slag, sem þendir til
að hann hafi byrjað með
fjórlit, þvi reglan er að
spila þriðja/fimmta frá
lengd. Þú býst við að fá
tvo slagi á tromp, en samt
er rétt að íhuga hvort ein-
hver hætta sé á ferðum.
Eða hverju á að spila í
þriðja slag?
Ef makker á fjóra tígla,
þá er suður með tvo, svo
þar er ekkert meira að
hafa. Helsta hættan í spil-
inu er sú að skipting suð-
urs sé 5-5-2-1. Ef þú spilar
tígli áfram mun suður
trompa og spila litlu
trompi að drottningu
blinds:
Norður
♦ 104
¥ D852
♦ K82
+ AD105
Vestur Austur
A G63 a 875
¥ - ¥ Á1093
♦ G954 ♦ ÁD73
* KG7642 * 83
Suður
A ÁKD92
¥ KG764
♦ 106
a 9
Legan upplýsist og
sagnhafi kemst tvisvar inn
í borð (á laufás og með
spaðatrompun) til að svíða
af þér 109 í trorhpinu. Við
þessu þarf að bregðast og
það er gert með því að
spila laufi í þriðja slag,
beint upp í gaffalinn. Þar
með fer ein innkoma
blinds fyrir lítið, þvi jafn-
vel þótt suður kunni að
gruna þig um græsku, þá
fer hann varla að spila
trompi strax á sjöuna
heima.
Arnað heilla
Q A ÁRA afmæli. Næst-
0\J komandi þriðjudag,
18. apríl, verður áttræð Una
Þorgilsdóttir, Ólafsbraut
62, Ólafsvík. Hún tekur á
móti vinum og vandamönn-
um á afmælisdaginn í Skút-
unni, Hólshrauni 3, Hafnar-
firði, kl. 20-23.
ÁRA afmæli. Á
0\/ morgun, mánudag-
inn 17. apríl, verður sextug-
ur
Jóhannes Fossdal, flug-
stjóri, Oddagötu 8, Reykja-
vík. Eiginkona hans er
Hilda Hansen. Þau taka á
móti gestum á heimili sínu í
dag, sunnudag, frá kl. 18.
pf/A ÁRA afmæli. Á
t) \/ morgun, mánudag-
inn 17. apríl, verður fimm-
tugur Þorgeir Björnsson,
sölustjóri hjá Slippfélaginu
í Reykjavík, Birtingakvísl
66, Reykjavík. Eiginkona
hans er Vilheimfna Sigurð-
ardóttir. Þau verða stödd á
Flórída á afmælisdaginn.
pf /\ ÁRA afmæli. í dag,
O V/ sunnudaginn 16. apr-
íl, verður fimmtugur Páll
Pálsson, sölumaður,
Smárarima 98, Reykjavík.
Eiginkona hans er Hafdis
Halldórsdóttir. Þau eru
stödd erlendis.
Med morgunkaffinu
Eg leyfi
Lúðvík
stundum
að ráða
hvar hann
situr.
LJOÐABROT
DAGSETUR
(Brot)
Mig varðar það litlu hvort langt eða skammt
mér leiðin sé ákvörðuð hér.
En hitt er mér kappsmál, að komast það samt,
sem kraftar og tíð leyfa mér.
Sé hvfldin uppynging þess krafts, sem eg á,
og kvaddur til starfa ég verð:
Þér, morgunn, er óhætt að ætla mér þá
ögn örðugri og jafnlengri ferð.
Stephan G. Stephansson.
ORÐABOKIN
Ganga - labba
EITT sinn var rætt um of-
angreind sagnorð í þess-
um pistlum. Komst ég þá
m.a. svo að orði, að mér
hafi „í seinni tíð fundizt
sem so. að labba sé á
góðri leið með að út-
rýma so. að ganga, a. m. k.
úr mæltu máli“. Á liðnum
vetri var ég nokkrar vikur
erlendis, þar sem víða
mátti fara í góðar göngu-
ferðir. Ég fullyrði, að ég
heyrði engan Islending á
þeim stað tala um að
ganga, það löbbuðu allir.
Eg opna tæplega - að ég
segi ekki alltaf - svo við-
tækið mitt, þar sem verið
er að lýsa gönguleiðum, að
so. að labba hljómi ekki í
mín eyru. I fyrra var verið
að lýsa svonefndum
Laugavegi í Ríkisútvarp-
inu. Göngumaður gekk
aldrei þessa skemmtilegu
leið, heldur labbaði hana.
Það er miður farið, ef so.
að ganga, sem er gamalt
germanskt mál, lýtur í
lægra haldi fyrir so., sem
hefði verið tahð hálfgert
bamamál í mínu ung-
dæmi. So. að ganga merkir
að ferðast fótgangandi,
vera í hreyfingu. So. að
labba kemur samkv. heim-
ildum ekki íyrir í íslenzku
fyrr en á 17. öld. Það
merkir ekki alveg hin
sama og ganga, heldur að
ganga hægt, rölta. Þeir,
sem fara um Laugaveginn,
ganga trúlega margir
greiðlegar en svo, að þeir
rétt rölti veginn. í nýn-
orsku merkir samsvarandi
so. að þramma og í sænsk-
um mállýzkum ganga
þyngslalega, og er hér
auðsær skyldleiki á milli.
Menn skulu ganga sér til
heilsubótar, ekki labba. -
J.A.J.
STJÖRNUSPÁ
eftir Franees Drakc
HRUTUR
Afmælisbarn dagsins:
Þú tekur hlutina alvarlega,
en ert þó til íglens og
gaman, þegar þér fínnst
það eiga við.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Notfærðu þér þann hæfileika
þinn að vera fundvís á mis-
smíðir. Gefðu þér tíma til að
bæta úr þeim, en vertu ekki
að nudda öðrum upp úr mis-
tökunumA
Naut
(20. apríl - 20. maí) /a*
Það er hverjum manni nauð-
synlegt að vera einn með
sjálfum sér öðru hverju.
Hafðu ekld áhyggjur af öðr-
um þegar þessi þörf kemur
yfir þig.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) AA
Óvæntir atburðir kalla á snöf-
urmannleg viðbrögð, en
gerðu samt ekkert að óathug-
uðu máli því það borgar sig
ekki. Farðu varlega í fjármál-
Krabbi ^
(21. júní - 22. júlí)
Ailir hlutir þurfa sinn undir-
búning því flas er ekki til
fagnaðar. Varastu að láta til-
finningarnar hlaupa með þig í
gönur, en sýndu tillitssemiA
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) m
Allt hefur sinn stað og stund
og nú þarftu ekki annað en
grípa tækifærið þegar það
gefst. Farðu þér samt í engu
óðslega. Það er fleira í boði.\
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.) (fi&L
Stundum kunna breytingar
að vera nauðsynlegar breyt-
inganna vegna. Láttu þær að-
stæður samt ekki leiða þig út
í hluti sem þér eru á móti
skapi.
(23. sept. - 22. október) m
Það er gaman að njóta augna-
bliksins þegar allar aðstæður
eru réttar. Láttu það eftir þér
að vera þú sjálfur og hafðu
ekki óþarfa áhyggjurA
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það léttir lífið að hafa gama-
nsemina alltaf við hendina.
En mundu að öllu gamni fylg-
ir nokkur alvara og þvi er
betra að gæta orða sinna.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. des.) aíO
Farðu varlega í að kaupa
hluti að óathuguðu máli. Ekk-
ert liggur á og það eru margir
fiskar í sjónumA Þér berast
óvæntar fréttir af fjarlægum
Steingeit ^
(22. des. -19. janúar) ttSÍ
Þú þarft að safna að þér
margs konar upplýsingum
áður en þú getur gengið frá
því máli sem nú hvflir mest á
þér. Þá er þér ekkert að van-
búnaðiA
Vatnsberi f .
(20. jan. -18. febr.) CfeU
Taktu lífinu ekki of alvarlega
og láttu það eftir þér að taka
þátt í giens og gamni en hafðu
samt í huga að öllu gamni
fylgir einhver alvaraA
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þér finnst þú eiga gott skilið
tyrir verk þín. Vertu rólegur
því þú munt njóta árangurs
erfiðis þíns. Mundu að þolin-
mæði þrautir vinnur allar.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byégðar á traustum
grunni vísindafegra staðreynda.
Vlö
SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000 51
Öldungadeild MH
- \ Stundatafla haustannar
•z. v féær /s >
árið 2000 er komin á
netið.
www.mh.is
*
Bláu húsin við Faxafen - Sími 553 6622
í tilefni sumarkom
TILBOÐ
Stór Space byssa með 8 hljóðum og
blikkandi Ijósum. Verð kr. 198.
Vandað barnaþríhjól.
Verð kr. 998.
Búðu til eigin hálsfesti
og armbönd.
Verð kr. 298.
Tennisspaðar + bolti.
Verð kr. 398.
Fótboltasett, bolti,
hanskar, pumpa.
Vertð kr. 798.
Garðsett.
Verð kr. 98.
Sippubandi.
Verð kr. 98.
Allar vörur í verslunum okkar eru frá kr. 198 til 998
Gtnílem
búðin
Kringiunni, s. 588 1010
Laugavegi, s. 511 4141
Keflavík, s. 421 1736