Morgunblaðið - 16.04.2000, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 16.04.2000, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ alþjóðlegra samtímalistasafn og komum okkar listamönnum á fram- færi erlendis, sem er óhemju mikils virði. Það víkkar líka sjónarhornið hér heima, því þetta er stór heimur að fara inn í og það eru ákaflega spennandi möguleikar sem opnast með bættum aðbúnaði að Listasafni Reykjavíkur. Þróunin hefur verið mjög hröð frá því að Kjarvalsstaðir opnuðu og ég hef líka orðið vör við mikla framþróun þessi sex ár sem ég hef verið í menningamiálanefnd Reykjavikurborgar. Áherslurnar eru að breytast og það er orðið auð- veldara að fá aðstoð og auknar fjár- veitingar til ýmissa verkefna á þessu sviði. Þetta er ekki eingöngu á sviði myndlistar heldur á öðrum sviðum menningar líka.“ Betri aðstaða til að sinna rannsóknum Nú á að vera þarna önnur starf- semi líka? „Já, þarna á t.d. að vera bóka- safn, sem bætist við það safn sem er á Kjarvalsstöðum. Markmiðið er að laga bókasafnið að nútímanum því bókasöfn veita ekki lengur bara aðgang að bókum, heldur margvís- legu öðru efni,“ segir Guðrún. „Svo verður þarna líka arkitektúrsafn, því byggingarlistadeild Kjarvalsst- aða flytur líka í Hafnarhúsið, þótt það verði ekki núna alveg í fyrstu. Sú deild stækkar ört þótt þar sé að- eins einn starfsmaður, Pétur Ár- mannsson. Á Kjarvalsstöðum hafa verið sýningar um ákveðin hverfi í Reykjavík og einnig um ákveðna arkitekta. Þannig á þessi deild eftir að þróast og taka þessa listgrein inn í þetta umhverfi á mjög skemmtilegan hátt. í Hafnarhúsinu verður einnig starfrækt verslun, með ýmislegt til fróðleiks og skemmtunar sem teng- ist listinni og safninu. Svo má ekki gleyma því að með þessu húsi fáum við mun betri geymslur og aðstöðu fyrir starfs- fólkið. Þarna fáum við tækifæri til að nota fullkomnar geymslur sem eru staðsettar við sýningarsalina þar sem fólkið er að vinna, þannig að það verður miklu auðveldara að stunda alla rannsóknarstarfsemi, einnig fyrir þá sem koma utan að. Við megum ekki gleyma því að vax- andi þáttur í starfsemi allra safn- anna er safnafræðsla. Með Hafnar- húsinu skapast þetta bakland sem er svo nauðsynlegt þegar verið er að kenna fólki og fræða það.“ Að hvaða leyti tengist það sem er framundan íhúsinu, margumræddu menningarári? „Sýningarnar sem nú verða opn- aðar tengjast menningarárinu og húsið verður að sjálfsögðu nýtt bæði í þágu menningarborgar og listahátíðar. Enda var það markviss ákvörðun að koma sem stærstum hluta þess í notkun á þessu ári. Þótt ýmislegt verði eftir við fram- kvæmdina verður vonandi öllum Ijóst hvert stefnir með húsið.“ Öflugnr menningarkjarni í Grófinni Hvaða þýðingu fínnst þér þetta hús hafa á þessu svæði í miðbæn- um? „Þessi starfsemi, bæði í Hafnar- húsinu og í Grófarhúsinu, er mikið framfaraspor á þessu svæði og hef- ur geysilega þýðingu. Það koma af- skaplega margir á þessar stofnanir, Borgarbókasafnið dregur mikið að og öll söfnin raunar, þannig að við erum þarna að færa miðbænum margt fólk í margvíslegum erind- um. Það hefur mjög mikið að segja fyrir miðbæinn að fá þangað alls konar starfsemi og fólk í fjölbreytt- ari erindum heldur en nú er. Þetta er eiginlega ein af meginástæðum þess að menningarmálanefndin stóð að þessari tillögugerð. Okkur fannst að þetta myndi geta farið svo vel saman, menningarhús af þeirri stærðargáðu sem Hafnarhúsið er og sú lyftistöng fyrir miðbæinn sem felst í starfsemi þess. Þetta er þarna í næsta nágrenni við Hlaðv- arpann og starfsemi æskulýðsráðs í Hinu húsinu, þannig að þetta er mjög öflugur menningarkjarni sem myndast þarna í kringum Grófar- torgið," sagði Guðrún Jónsdóttir að lokum. Háskóla- kórinn í Salnum HÁSKÓLAKÓRINN heldur tón- leika í Salnum f Kópavogi annað kvöld, mánudagskvöld, kl. 20. Á efnisskránni verða verk eftir Sig- valda Kaldalóns, Sigursvein D. Kristinsson, Ingunni Bjarnadóttur, Kjartan Ólafsson, Jón Ásgeirsson, Béla Bartók, Benjamin Britten, Eg- il Gunnarsson. Eftir hlé verða m.a. flutt án hlés Raddir á daghvörfum - tilbrigði við tfu þjóðsögur f tfu þáttum. Ljóða- flokkurinn birtist fyrst í bók Hann- esar Péturssonar, Stund og staðir, árið 1962, en hún var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurland- aráðs árið 1964. Kórinn hefur nýl- okið upptökum á verkinu í heild sinni og mun það koma út á geislap- lötu ásamt annarri íslenskri kór- tónlist sem Háskólakórinn hefur flutt. Háskólakórinn hefur nú verið til í ein 28 ár og upp úr honum hafa ver- ið stofnaðir aðrir kórar. Á tónleik- unum á morgun koma einnig fram karlakórinn Silfur Egils og kvenna- kórinn Strengur Hallgerðar. Kórinn flytur Sálumessu Verdis í Bologna á Italíu í vor ásamt há- skólakórum frá hinum átta Menn- ingarborgum Evrópu. Af því tilefni verða á efnsiskránni í Salnum nokkrir ítalskir madrigalar. Stjórnandi Háskólakórsins er Eg- ill Gunnarsson. Háskólakórinn ásamt stjórnandanum Agli Gunnarssyni. Gullna röddin dregur skammt gegn skattinum London. Morgunblaðið. LUCIANO Pavarotti á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir. Tenórröddin, sem hefúr verið hans sterkasta tromp, dugar honum lítt í glímunni við skattayfirvöld. Italskur dómstóll hefur dæmt hann til að greiða jafnvirði um 350 milljóna króna í sekt íyrir undanskot frá skatti og hann á enn yfir höfði sér sakamál vegna þessa. Viðureign hans við skattayfir- völd og umbrot í einkalífi hafa slegið á vinsældir hans meðal almennings og nú segja sumir að röddin sé líka að bregðast honum. í frásögn fréttaritara The Guardi- an í Róm segir að fáir ítalir hafi gert athugasemdir við þau ummæli, þegar háttsettur ítalskur embættismaður kallaði Pavarotti svikara við föður- land sitt, og fáir hafi samúð með Pav- arotti nú í skattahremmingum hans. Sá ljómi sem lék um nafn Pavarottis þegar hann lauk upp hliðum óperuheimsins fyrir fjöldanum hefur fölnað. Pavarotti hefur haldið uppi þeim vömum að hann eigi ekki að greiða skatta á Italíu, því hann sé búsettur í Mónakó. Fjármálaráðherra ftalíu hefur sagt þetta tóma vitleysu og tilraun til þess að komast hjá því að greiða skatta og skyldur af 35 milljarða króna eign, enda veiji söngvarinn rneiri tíma á búgarði sínum í Modena en í íbúðinni í Mónakó. Skattayfirvöld á Ítalíu segja Pavarotti skulda nær 600 milljónir króna í skatta af van- töldum tekjum sínum í níu löndum, sem Pavarotti segist aftur á móti hafa greitt skatta af í viðkomandi löndum. Þá hefur skilnaður hans og Adua Veroni ekki gengið hljóðalaust fyrir sig, en hún sótti um skilnað þegar innilegar ljósmyndir birtust af ten- órnum og ritara hans, Nicolettu Man- tovani. Þegar söngvarinn hafnaði kröfu Veroni, sem hljóðaði upp á átta milljarða, gekk hún til liðs við skatta- yfirvöld gegn honum. Þessi vandræði með Veroni hafa svo leitt til þess að ekkert hefur getað orðið úr hjóna- bandi Pavarottis og Mantovani enn- þá. Og eins og þetta sé ekki nóg fjölgar gagnrýnisröddunum um söng hans. Og hnén eru stöðugt að angra hann. En mitt í allri armæðunni segir frétt- aritari The Guardian að Pavarotti hafi samt átt hug og hjarta þeirra sem á hann hlýddu, þegar hann í jan- úar sl. söng Cavaradossi í afmælis- flutningi á Toscu í Róm. Heyra mátti að hann hafði áhorfendur á valdi sínu og þeir hylltu hann með bravóhróp- um á eftir. Gullna tenórröddin er langt frá þvi að vera dauð úr öllum æðum. Luciano Pavarotti Kór frá Lundi í Eyrarbakka- kirkju CANTEMUS-kórinn frá Lundi í Svíþjóð heldur tónleika í Eyrar- bakkakirkju á morgun, mánudag, kl. 20. Fluttir verða m.a. evrópskir miðaldasöngvar, sænskir sumar- söngvar og Gloria eftir Adolpho Adam. Jóhanna Þórhallsdóttir syng- ur einsöng en stjómandi kórsins er Siegward Ledel. í Cantemus-kómum era söngvar- ar af ýmsum þjóðemum. Meðal kór- félaga era Islendingar búsettir í Lundi og nágrenni og hafa þeir und- irbúið komu kórsins til íslands. -----+++------ Söngtónleikar á Hornafirði SIGRÚN Hjálmtýsdóttir sópran, Bergþór Pálsson baríton og Jónas Ingimundarson píanóleikari halda tónleika í Hafnarkirkju á Homafirði á morgun, mánudag, kl. 20.30. Á efnisskrá era lög eftir Sigfús Halldórsson, söngvar úr söngleikj- um svo sem Óperadraugnum eftir L. Webber, Showboat eftir J. Kern og atriði úr Porgy og Bess eftir G. Gers- hwin. -----H-*------- Vika bókarinnar Mánudagur 17. apríl. Bókasafn Garðabæjar Jóhanna Vigdís Arnardóttir leik- kona les Ijóð í Bókasafni Garðabæjar kl. 17.30. Þá er einnig síðasti dagur sektarlausrar viku sem staðið hefur sl. viku. ----------------- Opin æfing hjá Léttsveit Kvenna- kórsins LÉTTSVEIT Kvennakórs Reykja- víkur býður til opinnai' æfingar í Ými á þriðjudagskvöld, kl. 20.30. Margir kórar koma saman þetta kvöld en að- altilefnið er koma kórsins Cantemus frá háskólabænum Lundi. Cantemus kórinn er blandaður óháður kór í Lundi stofnaður 1987. í honum syngja um 30 manns og er stjórnandi kórsins Sigward Ledel organisti í St. Knuts kirkju í Lundi. Cantemus syngur bæði kirkjulega og veraldlega tónlist. Á þriðjudagskvöldið koma fram Stúlknakór Bústaðakirkju og Samkór Trésmiðafélags Reykjavík- ur. Píanóleikari Léttsveitarinnai' er Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Bragðmiklar barnagælur TONLIST K r a k á r 1 r f ó i ð f Sa I n nin í Kópavogi KAMMERTÓNLEIKAR Trio Elegiaque í g-moll eftir Sergei Rakhmaninov, Tríé i D-dúr op. 70 nr. 2 eftir Beethoven og Píanótríó frá 1953 eftir Artur Malawski. Fimmtudag kl. 20.30. HÚN virðist stutt leiðin frá Pól- landi til íslands. Hingað koma þeir, Pólverjamir og sjá okkur fyrir því sem er brýnast í lífinu. Þeir koma og verka oní okkur fiskinn, og sjá okk- ur svo fyrir tónlist. Þvflíkt lán! Tón- listarlífið hér væri fátækara ef ekki hefði notið við fjölmargra pólskra listamanna. Nokkrir þeirra hafa leikið í Sinfóníuhljómsveit íslands áram saman; þeir eiga hér frábæra söngkonu, og svo eiga þeir hér tón- listarmenn sem hafa sest að úti á landi til að auðga tónlistarlífið þar. Jacek Tosik-Warszawiak píanóleik- ari hefur búið í Borgamesi í átta ár. Þar hefur hann kennt tónlist og starfað með öðram tónlistarmönn- um. Lítið hefur heyrst til hans hér á höfuðborgarsvæðinu; því miður. Nú kemur á daginn að hann er þriðj- ungur og einn stofnenda píanótríós sem kallar sig Trio Cracowia, en meðlimir þess eru fymjm skólafé- lagar úr Tónlistarháskólanum í Kraká. Krakártríóið lék fyrir þunnskipuðum Salnum í Kópavogi, og sárt að svo margir skyldu missa af frábæram leik þess. Fiðluleikar- inn Krzysztof Smietana, og selló- leikarinn Julian Tryczynski, félagar Jaceks í tríóinu eru eins og hann, margreyndir tónlistarmenn með langan slóða á eftir sér af alls kyns vegtyllum, viðurkenningum og verðlaunum. Og þótt þeir félagamir búi hver í sínu landi, og æfingar hljóti þar af leiðandi að vera strjál- ar, era þeir langt frá því að vera þrír hljóðfæraleikarar þegar þeir spila saman: þeir eru eitt tríó; - eitt hljóð- færi. Samleikur þessara manna var eins og best er hægt að ímynda sér hann. Þeir höfðu fullkomið næmi hver fyrir öðram, og öll „artikúla- sjón“ var algjörlega einróma. Mús- íkalskur leikur þeirra lyfti þessari kvöldstund hátt upp úr hversdegin- um. Tríó elegiaque eftir Rakhman- inov er hrífandi tónsmíð og var frá- bærlega leikin. í lok verksins er langt diminuendo þar sem leikið skal með sí-minnkandi styrk. Þessi hending var listflega útfærð og verkið dó út á áhrifamikinn hátt. Tríó Beethovens nr. 2 úr ópus 70 var samið á einu frjóasta og afkasta- mesta tímabili á starfsævi tón- skáldsins, í lok fyrsta áratugar nít- jándu aldarinnar. Þarna er Beethoven sjálfum sér líkastur, framlegur í hljómrænni framvindu og snilldarlegur í útfærslu stefja og stefbrota. Bráðlátt og snarpt upp- haf fyrsta þáttar var svo dýnamískt leikið, að frá byrjun var maður sem festur upp á þráð. í hægum milli- þættinum fór Krakártríóið dásam- lega með undurfallegt, mjúkt og veikt upphafsstefið og safaríkur prestóþátturinn var kraftmikil and- stæða þessarar blíðu. Síðasta verkið á efnisskránni var Píanótríó frá 1953 eftir Artur Mal- awski. Þetta var óvæntasta gleðin á þessum ágætu tónleikum. I dag er Malawski sennilega best þekktur sem kennari margra helstu tón- skálda pólska skólans á þessari öld og frægasti nemandi hans trúlega Krzysztof Penderecki. Það var fátæklegt að ekkert skyldi vera sagt frá Artur Malawski í prógrammi tónleikanna; því varla hafa margir tónleikagestir þekkt hann og verk hans. Þetta ágæta tón- skáld fæddist í Przemysl og stund- aði fyrst nám í fiðluleik og tónfræði í heimabæ sínum. 1928 fór hann til Krakár til frekara náms og varð síð- armeir prófessor í hljómsveitar- stjórn og tónsmíðum í Kraká. Pían- ótríóið frá 1953 er mikilsháttar tónsmíð. Stfll hennar er persónuleg- ur og einlægur. Rammir pólýrytmar og djúpur expressjónismi einkenna verkið. Það er hefðbundið í formi; - fjórir þættir, en tónmálið er fallegt og ferðast framlegar og framandi leiðir út frá tónmiðjunni. Þetta var fín músík; heilsteypt verk, og fanta- vel spilað af Krakártríóinu. Nú er bara að bíða og vona að Krakártríóið komi aftur hingað til að spila; - sem fyrst. Bergþóra Jónsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.