Morgunblaðið - 16.04.2000, Side 2

Morgunblaðið - 16.04.2000, Side 2
2 SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Aukin verkefni Tækniþjónustu Flug leiða á Keflavíkurflugvelli Stórskoðanir fyrir þrjú er- lend flugfélög Kolufoss í vorhug Hvammstanga. Morgunblaðið. TÆKNIÞJÓNUSTA Plugleiða á Keflavíkurflugvelli hefur tekið að sér stórskoðanir á Boeing 757-flug- vélum þriggja erlendra flugfélaga. Gert er ráð fyrir að tekjur Tækni- þjónustunnar vegna verkefna fyrir erlend flugfélög nemi alls um 220 milljónum kr. á þessu ári. Samningamir sem Tækniþjónust- an hefur undirritað eru við spænska flugfélagið Iberia, kanadíska flugfé- lagið Air Transat og hollenska flug- félagið Martinair. í flugskýli Flugleiða á Keflavíkur- flugvelli stendur þessa dagana yfir stórskoðun á einni af vélum Iberia- flugfélagsins og í maí fer fram sam- bærileg skoðun fyrir Air Transat sem er stærsta flugfélag Kanada. Vonir standa til að um áframhald- andi verkefni verði að ræða, að því er HUGMYND er uppi um að leggja jarðgöng fram hjá Bamafossi í Norðlingafljóti, til þess að áin geti orðið sjálfbær laxveiðiá. Slíkt hefur ekki verið gert hér á landi áður, en Norðmenn hafa langa og góða reynslu af fiskvegagerð í formi jarð- ganga og er á fjórða tug fiskvega þar í landi jarðgöng. Kostar 38 til 58 milljónir Frá árinu 1987 hefur hafbeitarlaxi verið sleppt í ána, en í fyrra var leyfið fyrir sleppingu háð því að hafist yrði handa um athuganir á þeim mögu- leika að gera Norðlingafljót að sjálf- bærri laxveiðiá. Veiðifélag Hvítár og Norðlingafljóts stendur að málinu, en fram kemur í fréttatilkynningu frá Flugleiðum. Umfang hverrar stór- skoðunar er á bilinu 5-10 þúsund vinnustundir. Viðhaldssljórn fyrir Martinair Samkvæmt samningum við Mart- inair mun Tækniþjónustan jafn- framt sjá um rekstur viðhaldskerfis og annast viðhaldsstjóm á Boeing 757-flota Martinair. Fyrirtækið ann- ast í dag sams konar rekstur fyrir Greenlandair sem er með eina Boeing 757 í rekstri. Tækniþjónusta Flugleiða var á síðasta ári gerð að sjálfstæðri rekstrareiningu innan fyrirtækisins. Starfsmenn eru 230 og veltan á þessu ári áætluð um 2,4 mifljarðar króna. þeir Sigurður Már Einarsson fiski- fræðingur og Vífill Oddsson verk- fræðingur hafa kannað málið nánar. Barnafoss er friðaður og því hefur sá möguleiki að setja þar hefðbundna laxastiga ekki verið fyrir hendi. Sam- kvæmt hugmyndum Vífils Oddsson- ar þyrfti innganga í göngin að koma til 150 metrum neðan við fossinn og gera kostnaðaráætlanir ráð fyrir að framkvæmdin muni kosta 38 til 58 mifljónir, eftir því hvort útbúin yrði göngubraut til hliðar við fiskveginn til viðhalds og eftirlits. Gerð hefð- bundins laxastiga í Bamafoss myndi kosta um 27 milljónir. ■ Jardgöng fyrir/28 Nú undir sumarmál eru margir farnir að þrá hlýnandi veður. Náttúran er einnig að búa sig undir vorkomuna, en vetur kon- ungur reynir að halda völdum. Kolufoss í Kolugljúfri í Víðidal var umluktur fönn og hrímúðinn lá á klettunum. Ekki duldist þó vorhljúðið í gljúfrabúanum sem flytur leysingavatnið frá hún- vetnsku heiðunum um Víðidalsá til Hóps og hafs. Með hlýnandi veðri og vatni er svo von á laxin- um, sem veitir veiðimönnum gleði og landeigendum einnig bættan hag. Sex á dag til höfuðborg- arsvæðisins ALLS fluttu 572 umfram brottflutta til höfuðborgarsvæðisins á fyrsta fjórðungi ársins, skv. tölum Hag- stofu Islands, 368 af landsbyggðinni og 204 frá útlöndum. Þetta jafngildir því að sex manns hafi flust til höfuð- borgarsvæðisins á degi hverjum fyrstu þrjá mánuði ársins. I öðrum landshlutum, nema á Suð- urnesjum, voru brottfluttir fleiri en aðfluttir. Flestir, eða 87, fluttu frá Norðurlandi eystra. Af einstökum sveitarfélögum fluttust flestir til Reykjavíkur, eða 212, 178 til Kópa- vogs, en flestir frá Akureyri, eða 42, ogVestmannaeyjum, 41. A fyrsta fjórðungi ársins voru skráðar 11.747 breytingar á lög- heimili einstaklinga í þjóðskrá. Þar af fluttu 6.493 innan sama sveitarfé- lags, 3.665 milli sveitarfélaga, 960 til landsins og 629 frá því. A tímabilinu fluttust 331 fleiri ein- staklingar til landsins en frá því. Þar af voru aðfluttir íslendingar 70 fleiri en brottfluttir og aðfluttir erlendir ríkisborgarar 261 fleiri en brottflutt- ir. -------------- Umboðsmaður barna Leiðbeinendur leggi fram sakavottorð UMBOÐSMAÐUR barna, Þórhild- ur Líndal, hefur lagt til við yfirvöld að þau setji reglur um hæfni leið- beinenda og veltir því upp hvort ekki ætti að gera kröfur um að umsækj- endur um þessi störf leggi fram sakavottorð sem sýni að þeir hafi ekki gerst brotlegir gegn bömum. „Reyndar er ég þeirrar skoðunar að allir þeir sem vinna með bömum ættu að leggja fram sakavottorð þeg- ar sótt er um slík störf,“ segir hún. Það kemur fram í máli Þórhildar að í Noregi hafi verið mikil umræða um hvort ekki eigi að gera þessa kröfu til leikskóla- og grunnskóla- kennara og annarra sem vinna með börnum. „Ég tel eðlilegt að hér á landi verði þetta einnig tekið til um- ræðu,“ segir hún. ■ Verðum að sýna í verki/10 Jarðgöng fyrir laxagengd Þjófavarnakerfí sett upp í útibúum Borgarbókasafns Tæplega 1.000 eintök glatast á hverju ári Morgunblaðið/Ásdís Þjófavarnakerfi Borgarbókasafns svipar til þess kerfis sem er við útgöngudyr margra verslana. TÆPLEGA 4.000 eintök af hverskyns gögnum útibús Borgarbókasafns í Gerðu- bergi hafa glatast síðastlið- in fjögur ár, þar með talin blöð og bækur safnsins. Nýlega var sett upp þjófa- varnakerfi í Gerðubergi til að stemma stigu við rýmun gagnanna sem er um 1% á ári eða tæplega 1.000 ein- tök. Útibúið í Gerðubergi er þriðja útibú Borgarbóka- safns sem útbúið er með þjófavarnakerfi en fyrir yar þjófavarnakerfi í Sólheima- safni og Foldasafni í Graf- arvogi, þar sem rýrnunin var álíka mikil. Einstaklingar stela gögnum af söfnunum Að sögn Erlu K. Jónasdóttur, safnstjóra aðalsafns Borgarbóka- safns, má að sumu leyti rekja rýrn- un bókakosts Borgarbókasafns til þess að bækur og blöð eyðileggjast af eðlilegum orsökum en afskrán- ing þeirra misferst. „Það er hins vegar ljóst að meiri- hluti gagnanna hverfur vegna þess að þeim er stolið af söfnunum. Þar er um að ræða einstaklinga sem hafa ekki keypt sér bókasafnsskír- teini og stela þess í stað bókum eða öðrum lánsgögnum," segir Erla. Hún segir erfitt að átta sig á því hve miklir fjármunir glatast árlega vegna rýrnunar í söfnunum enda er meðalverð hvers safngagns ekki auðfundið þar sem gögnin eru misgömul og verðmæti þeirra breytilegt. „Við þurf- um hins vegar að finna eitt- hvert meðalverð og við síð- ustu eignatalningu notaði ég 1.500 krónur til viðmiðunar á hvert gagn og út frá því ætti að vera unnt að sjá í hendi sér árlegan fórnarkostnað vegna rýrnunar í hverju úti- búi.“ Stofnkostnaður við upp- setningu þjófavarnakerfisins er um 1.700 þúsund krónur í hverju útibúi en Erla segir að ef miðað sé við að safn- gögn í hverju útibúi glatist fyrir tæplega 1,5 milljónir króna á ári megi reikna með að þjófavarna- kerfið borgi sig upp á 1-2 árum. Sett verður upp þjófavarnakerfi í Bústaðasafni, sem flyst í Kringl- una á næsta ári, og safn Borgar- bókasafnsins, sem flyst í Grófar- húsið við Tryggvagötu 15 í sumar. Þar verða Ljósmyndasafn Reykja- víkur og Borgarskjalasafn einnig til húsa. Yfír 7.200 á biðlistum heil- brigðisstofnana FÓLKI á biðlistum heilbrigðis- stofnana hefur fjölgað lítillega í vetur. Samkvæmt yfirliti land- læknisembættisins voru 7.229 á biðlistum í janúar og febrúar en 6.988 í október síðastliðnum. Lítilsháttar fjölgun hefur orðið á biðlistum frá 1997 en það ár nærri tvöfaldaðist fjöldi þeirra sem biðu eftir lækningu. Flestir eru á bliðlistum bækl- unardeilda, 977, en á þeim lista hefur heldur fækkað á undan- förnum árum. Þannig biðu 1.169 í október sl. og 1.458 fyrir þrem- ur árum. Mesta breytingin er á Landspítala, Fossvogi, en þar hefur sjúklingum á biðlista fækkað um helming á fjórum ár- um. Erfíðara að fá hjartaþræðingu Talsverð bið er einnig á al- mennum skurðdeildum þar sem 930 eru á þiðlista, háls-, nef- og eyrnadeildum þar sem 907 bíða, á endurhæfingardeildum, 708 manns, og kvensjúkdómadeild- um þar sem 655 bíða lækningar. Biðlisti eftir hjartaþræðingu hefur stöðugt lengst frá árinu 1996. Þá biðu 158 en nú bíða 252 eftir aðgerð. Frá síðustu athug- un á biðlistum hjartadeildanna, í október á síðasta ári, hefur nokkuð fjölgað á listanum, eða um 37 sjúklinga. Landlæknisem- bættið telur að um geti verið að ræða árstíðabundna sveiflu þar sem biðlistinn nái hámarki á þessum tíma árs en sé oftast í lágmarki á haustin. Þess er getið að fjöldi hjartaþræðinga á Land- spítalanum hafi verið svipaður frá 1997. Nú bíða nokkuð færri börn eftir meðferð á barna- og ungl- ingageðdeild en fyrr í vetur, eða 62 börn í stað 90. Biðlisti inn á deildina hefur ekki verið svo stuttur síðan 1996. Þess er þó getið að innri biðlisti á deildinni er nokkur, eða 19 börn. Eru það börn sem hafa fengið greiningu en bíða eftir frekari þjónustu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.