Morgunblaðið - 16.04.2000, Síða 4
4 SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
VTKAN 9/4 -15/4
► Hannes Hlífar Stefáns-
son sigraði á 19. alþjððlega
Reykjavíkurskákmðtinu.
Hannes Hlífar fór taplaus í
gegnum mótið og hlaut sjö
og hálfan vinning af níu
mögulegum.
► Alþingi hefur sam-
þykkt lög um hækkun
skatt leysismarka og pers-
ónuafsláttar. Pers-
ónuafsláttur verður 2,75%
árið 2003 í stað 2,25% nú.
► Ernir Snorrason, einn
af stofnendum Islenskrar
erfðagi’einingar, hefur
stefnt deCODE gcnetics
fyrir dómstól í Banda-
ríkjunum. Ernir fer fram á
útgáfu deCODE á 256.637
bréfum í fyrirtækinu til
sín.
► Hæstiréttur hefur
komist að þeirri niður-
stöðu að ákvæði laga um
mat á umhverfísáhrifum,
þess efnis að umhverfis-
ráðherra geti ákveðið að
framkvæmdir skuli sæta
mati á umhverfísáhrifum,
stangist á við eignarréttar-
og atvinnufrelsisákvæði
stjórnarskrárinnar.
Samið við VMSÍog
ílug'virkja
SKRIFAÐ hefur verið undir nýja
kjarasamninga Verkamannasam-
bands íslands og Landssambands iðn-
verkafólks við Samtök atvinnulífsins
og gilda þeir í tæp fjögur ár. Verkfalli
aðildarfélaganna hefur því verið frest-
að til 4. maí, en í millitíðinni verða
greidd atkvæði um samninginn í
hverju félagi fyrir sig og fer talning at-
kvæða fram 29. apríl nk. Samkvæmt
samningnum munu lægstu laun
hækka um 34,5% á samningstímanum
en samningurinn gildir til ársloka
2003. Þá tókst samkomulag milli Flug-
leiða og flugvirkja og verða því ekki
truflanir á millilandaflugi Flugleiða.
Endurmat á eigin
fé Landssímans
GERT er ráð fyrir að Landssíminn
endurgreiði ríkissjóði 3,8 milljarða kr.
sem eigið fé fyrirtækisins reyndist
vanmetið um, samkvæmt niðurstöðu
starfshóps á vegum samgönguráðu-
neytisins. Landssíminn mun taka lán
til þess að standa undir því. Sam-
keppnisstofnun taldi á sínum tíma eig-
ið fé fyrirtækisins vanmetið um 10
milljarða kr.
► FBA hefur ákveðið að
bjóða hluthöfum sinum að
kaupa eignarhlut bankans
í deCODE genetics þegar
bréfin verða skráð á Nas-
daq. Um er að ræða
625.000 hluti og bókfært
verð hlutabréfa í deCODE
nú um 15 dollarar hver
hlutur.
► Togskipið Beitir land-
aði fyrsta kolmunnanum
sem veiðist innan íslensku
lögsögunnar á þessu ári,
500 tonnum, sem skipið
fékk í Rósagarðinum.
Kostnaður við ESB-
aðild 7-8 milljarðar
ÁRLEGT framlag íslands sem aðild-
arríkis Evrópusambandsins gæti orðið
á bilinu sjö til átta milljarðar kr., að því
er fram kom í skýrslu Halldórs As-
grímssonar utanríkisráðherra um
stöðu íslands í Evrópusamstarfi og
hugsanlega aðild landsins að ESB. I
skýrslunni kemur fram að til baka
gætu runnið um 5 milljarðar kr. úr
sameiginlegum sjóðum ESB en það
yrði háð samningum og aðstæðum.
Angela Merkel kjörin
formaður CDU
ANGELA Merkel var kjörin nýr for-
maður Kristilega demókrataflokksins,
CDU, í Þýskalandi á flokksþingi hans í
Essen sl. mánudag. Er hún fyrsta kon-
an, sem er leiðtogi eins af stóru flokk-
unum þar í landi. Var öll forysta
flokksins endurnýjuð og er vonast til,
að það muni auðvelda flokknum út úr
kreppunni, sem Helmut Kohl, fyrrver-
andi kanslari, og leynireikninga-
hneykslið hefur steypt honum í. Merk-
el er 45 ára að aldri, efnafræðingur að
mennt og frá Austur-Þýskalandi. Er
kjör hennar sem formanns ekki síður
merkilegt fyrir það. I ræðu, sem hún
flutti að loknu formannskjörinu, lagði
hún áherslu á, að nú yrði stefnan sett á
sigur flokksins í sambandsþingskosn-
ingunum árið 2002. Flokkurinn á þó
enn langt í land með að ná vopnum sín-
um aftur.
Hörfar Mugabe í
landtökudeilunni?
DÓMSTÓLL í Zimbabwe úrskurðaði
á fimmtudag, að bótalaus upptaka á
bújörðum hvítra bænda væri ólögleg
og skipaði ríkisstjórninni að sjá til, að
farið væri að lögum og þeir reknir
burt, sem sest hefðu upp á jörðunum.
Með þessu stefndi í uppgjör með
Robert Mugabe, forseta landsins, sem
hefur lagt blessun sína yfir landránið,
og dómskerfinu í landinu. Joseph
Msika varaforseti brást við úrskurðin-
um með þvi að skipa landtökumönnun-
um burt en leiðtogi þeirra, Chenjerai
Hitler Hunzvi, kvaðst ekki mundu
taka við skipunum frá neinum nema
Mugabe sjálfum. Haft er eftir heimild-
um, að Mugabe, sem sat svokallaða
G77-ráðstefnu ýmissa þriðjaheims-
ríkja á Kúbu, hafl samþykkt yfírlýs-
ingu Msika en samt er Jjóst, að deilan
leysist ekki fyrr en hann sjálfur tekur
af skarið um það, að eignamámið sé
ólöglegt.
► Áfrýjunardómstóll á
Florida kyrrsetti
kúbverska drenginn Elian
Gonzalez á fímmtudag en
áður hafði frændi hans,
Lazaro Gonzalez, virt að
vettugi skipun Janet Reno
dómsmálaráðherra um að
afhenda hann yfirvöldum.
Margt fólk af kúbverskum
ættum fagnaði úrskurðin-
um en yfirvöld ætla að fara
sér hægt þar til dómstólar
hafa úrskurðað um kyrr-
setninguna. Var búist við,
að það gæti tekið einhverj-
ar daga.
► I nýrri skýrslu frá
IMF, Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum, og Alþjóðabank-
anum segir, að bjart sé
framundan í efnahagslífí
heimsins og er því spáð, að
hagvöxtur verði til jafnað-
ar 4,2% á þessu ári. I
skýrslunni er einnig
brugðist hart til vamar al-
þjóðavæðingunni, sem er
sögð öflugt tæki til að
jafna lífskjör allra jarð-
arbúa. Helsta áhyggjuefn-
ið er ofmat á hlutabréfum
á bandariskum markaði en
vegna þess er hætt við
harkalegri leiðréttingu og
afturkippi.
► Kosningar voru víða í
síðustu viku. í Grikklandi
hélst sljórn sósíalista
naumlega velli og í Geor-
gíu var Eduard Shev-
ardnadze endurkjörinn
forseti. Þar voru uppi ása-
kanir um misferli og ekki
síður í Perú þar sem koma
mun til annarrar umferðar
i forsetakosningunum milli
Albertos Fujimoris, núver-
andi forseta, og helsta
keppinauts hans, Al-
ejandros Toledos.
Morgunblaðið/Golli
Flugbraut endurnýjuð
VINNA við fyrsta áfanga á Reykjavíkurflugvelli
gengur vel en honum á að ljúka í september nk. að
sögn Emils Ágústssonar verkefnisstjóra. „Það er ver-
ið að bijóta upp malbikið sem fyrir er á brautinni og
fjarlægja alla mold sem er undir,“ sagði hann.
„Lagt verður burðarhæft efni þannig að brautirnar
hætta að síga eins og þær hafa gert hingað til en
brautin var upphaflega lögð ofaná mýri og yfír holt-
ið, sem þarna var fyrir. Sótt var rauðamöl í Rauðhól-
um og henni dreift yfír en undir er mýri sem er á
fleygiferð eftir því sem grunnvatnsstaðan er hverju
sinni.“
Rannveig
Kristjáns-
dóttir
100 ára
ELSTI Húsvíkingurinn, Rannveig
Kristjánsdóttir frá Tunguvöllum á
Tjörnesi, systir Karls fyrrverandi
alþingismanns, er 100 ára í dag,
sunnudaginn 16. apríl. Hún dvelur
nú á Sjúkrahúsinu á Húsavík.
Rannveig kvæntist 1931 Jóhann-
esi Jónssyni frá Árbæ og hófu þau
þá búskap að V4 hluta af jörðinni
Ytri-Tungu á Tjörnesi og nefndu
bæ sinn Tunguvelli. Þar bjuggu
þau farsælu búi i hálfa öld þar til
þau brugðu búi og fluttust að
Hvammi, heimili aldraðra á Húsa-
vík. Jóhannes lést árið 1993. Þeim
varð þriggja barna auðið og lifa
tvö þeirra.
Rannveig lætur dægurmál nú-
tímans sig nú litlu skipta en styttir
sér stundir við að líta í bækur og á
borði við rúm hennar er ávallt
sálmabókin og nokkrar ljóðabæk-
ur. En um dagana hefur hún verið
mjög ljóðelsk og dáir meira eldri
skáldin en þau yngri.
Morgunblaðið/Silli
Laugavegi 18 • Simi 515 2500 • Síöumúla 7 • Sími 510 2500
Frábært verk um
“ZZ^merkan mann
|M|
Mál og menninglftjj
malogmenning.is I |v| I
„Frábært verk."
Einar MSr Jónsson, TMM 1.2000
„Ástæða er til að fagna því að um
svo merkilegan mann sé nú til
ítarleg og skemmtileg ævisaga."
Ármann Jakobsson, DV
„Ein besta íslenska ævisaga
sem ég hef lesið."
Kolbrún Bergþórsdóttir, Dagur
Hvassviðrið
gengið
niður
HVÖSS norðanátt, sem gerði
ýmsum skráveifu á föstudag
og aðfaranótt laugardags, hef-
ur gengið niður og hvergi orð-
ið meiriháttar tjón. Einhvers
staðar fuku þó þakplötur og
fleira smálegt.
Flug innanlands féll niður
seinnipart föstudags, en á
laugardagsmorgun var flogið
til allra áfangastaða.
Samkvæmt veðurspá verður
hæg norðaustlæg átt í dag,
viðast léttskýjað og frost 0 til
7 stig, kaldast inn til landsins.
Næstu daga er reiknað með
hægu veðri, björtu en köldu,
og éljum allra syðst og austast
þegar líða fer á vikuna.