Morgunblaðið - 16.04.2000, Qupperneq 6
6 SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Er skilnaður í vændum
á Atlantshafi?
Reuters
Bananaframlciðandi á Santa-Lúsía-eyjum hampar framleiðslu sinni,
sem nýtur forgangs inn á Evrópumarkað, þar sem eyjurnar eru fyrr-
verandi bresk nýlenda. Deilur um bananaviðskipti eru dæmi um það
sem eitrað hefur ioftið í samskiptum Bandaríkjanna og Evrópu að
sögn greinarhöfundar.
eftir Michael Howard
ÁKVEÐIN þróun mála beggja
vegna Atlantshafsins grefur undan
hálfrar aldar samstarfl N-Ameríku
og Evrópu. Ef þessi mál verða bit-
bein í samkeppni álfanna og önnur
álfan nær forskoti á hina mun draga
úr friðsæld, stöðugleika og velmeg-
un í heiminum.
Hvaða öfl færa nú Ameríku og
Evrópu hvora frá annarri? Þeirra
má m.a. leita í þeirri staðreynd að
þungamiðja N-Ameríku færist vest-
ur á bóginn. Langt er síðan Kalif-
omía varð fjölmennari en New
York-ríki og Breska-Kólumbía leik-
ur sífellt stærra hlutverk í Kanada.
Kísildalur og Microsoft eru bæði á
vesturströndinni og þrátt fyinr nú-
verandi erfiðleika eru Japanir efna-
hagslegt stórveldi. í Kína liggja
mestu viðskiptatækifæri Bandaríkj-
anna en um leið verður stórveldið
Kína líklega stærsti keppinautur
þein-a í framtíðinni.
Deilur í viðskiptum hafa komist
einna næst því að skaða samstarf
heimsálfanna.
Tilraunir Bandaríkjanna til að
hafa lagaleg áhrif langt út fyrir lög-
sögu sína, t.a.m. með því að banna
breskum kaupsýslumönnum að
heimsækja Kúbu, ýtir undir gremju
í Evrópu. Viðhorf Evrópu til inn-
flutnings á banönum frá Karíbahafi
og á hormónabættu nautakjöti kall-
ar á sterk viðbrögð í N-Ameríku.
Erfitt er að stýra samstarfi á við-
skiptasviðinu þar sem viðskipta-
hagsmunir eru síbreytilegir. Sífellt
færist í aukana að íyrirtæki leiti að-
stoðar ríkisstjóma landa sinna.
Arekstrar era óumflýjanlegir.
Jafnmiklar ógnir steðja að sam-
starfinu frá Evrópu, einkum frá
samrunaferli ríkjanna þar. Að hluta
til er þeim samrana ætlað að skapa
mótvægi við hið bandaríska stór-
veldi. Eg segi „að hluta til“ því ekki
era allir, sem hlynntir eru einu
evrópsku ríki, andvígir Bandaríkj-
unum. En margir era það.
Allheijaratkvæðagreiðsla um
Maastricht-sáttmálann var haldin í
Frakklandi árið 1992. Þá mátti sjá á
veggspjaldi einu, sem einn stuðn-
ingsmaður sáttmálans bar, hvar
kúreki traðkaði á hnettinum með
stígvélum sínum. Fyrirsögnin hljóð-
aði svo: „Faire l’Europe c’est faire le
poids.“ (Uppbygging Evrópu styrk-
ir okkur.)
Mitterrand Frakklandsforseti
var meira afgerandi í framsetningu
sinni: „Frakkar vita það ekki en við
eigum i stríði við Ameríku. Já, í
stöðugu stríði, mikilvægu stríði,
stríði án dauðsfalla. Bandaríkja-
menn era mjög erfiðir. Þeir eru
gráðugir og vilja óskipt vald yfir
heiminum."
Nýlega réðst franski utanríkis-
ráðherrann, Hubert Vedrine, af of-
Hvaða öfl færa nú
Ameríku og Evrópu
hvora frá annarri?
Þeirra má m.a. leita í
þeirri staðreynd að
þungamiðja N-Amer-
íku færist vestur á
bóginn.
forsi á Bandaríkin og endurtók skil-
greiningu sína á þeim sem
„ofurveldi". Margir talsmenn evr-
unnar viþ'a að hún keppi við doll-
arann sem alþjóðlegur vara-gjald-
miðill ríkisstjóma.
Góður grundvöllur er fyrir sam-
eiginlega utanríkisstefnu Evrópu-
sambandsins innan vel skilgreindra
marka og ef algjör eining er um
ákvarðanir. Aðildarríki Evrópu-
sambandsins eiga margra sameigin-
legra hagsmuna að gæta. Skynsa-
mlegt er að gæta þessara
sameiginlegu hagsmuna og fylgja
þeim eftir með sameiginlegum og
samhæfðum aðgerðum. Samfara
mögulegum aðgerðum af þessu tagi
aukast möguleikar á árekstram við
N-Ameríku. Evrópulönd hafa aðra
stefnu en Bandaríkin gagnvart
löndum eins og Kúbu, ísrael, írak
og Lýbíu, svo dæmi séu tekin.
Hingað til hefur verið tekið á
þessum ágreiningi án þess að skaða
grannjafnvægi bandalagsins. Ekki
er þó erfitt að sjá fyrir sér aðstæður
þar sem ágreiningur gæti orðið al-
varlegur. Hvað ef Evrópusamband-
ið tæki allt aðra afstöðu en Banda-
ríkin hvað varðar sölu á
hátæknibúnaði til Kína? Hversu
langur tími myndi líða þar til sam-
skipti við Kína yrðu það sem sam-
keppni heimsálfanna snerist einkum
um?
Framtíð hemaðarlegra sam-
skipta Evrópu og N-Ameríku era
viðkvæm. I 50 ár hafa þau verið
homsteinn samstarfsins þrátt fyrir
erfiðleika sem stafa af þeirri stað-
reynd að ekki era öll evrópsk aðild-
arrfid NATO aðilar að Evrópusam-
bandinu frekar en að öll aðildarríki
Evrópusambandsins séu aðilar að
NATO. Vestur-Evrópusambandið
(WEU), sem í era öll þau lönd sem
skipta máli, myndaði nauðsynlegan
grann til að viðhalda samstaifinu og
styrkja það.
Að frumkvæði bresku rfidsstjóm-
arinnar verður Vestur-Evrópusam-
bandið nú innlimað í Evrópusam-
bandið. í St. Malo samdi breska
rfidsstjómin við hina frönsku um
hemaðarsamstarf landanna tveggja
,Jnnan og utan NATO“. Aðrir samn-
ingar snúa að uppbyggingu óháðs
vamarsamstarfs í Evrópu. Ekki er
erfitt að sjá hvemig evrópskt hem-
aðarsamstarf utan NATO getur haft
mikla erfiðleika í för með sér fyrir
samstarf heimsálfanna tveggja.
Hlutverk Breta í þessari fram-
kvæmd vekur þá spumingu hvemig
Bretar ætli að sinna hefðbundu hlut-
verld sínu sem sáttasemjarar.
Þetta er ekki sagt til að draga úr
þessu hlutverki sem verður mikil-
vægt áfram. En þetta er hlutverk
sem Bretar geta ekki lengur leikið
ef þeir ganga úr Evrópusambandinu
eins og þeir hafa stundum talað um.
Hvort sem Bretar verða í Evrópu-
sambandinu eða ekki geta Banda-
ríkjamenn ekki lengur gengið að því
vísu að Bretar taki þetta hlutverk að
sér.
Kalda stríðið var límið sem hélt
ströndum heimsálfanna saman. Erf-
iðleikar og ágreiningur bliknaði í
samanburði við ógnina frá Sovét-
ríkjunum. Þetta lím hefur leyst upp.
Þar sem ógn þessi er horfin telja
margir að óhætt sé að taka áhættu.
Þessi afstaða er illa ígranduð og
yfirborðskennd. Hún er án nokkurs
efa útbreidd í Evrópu og á sér ein-
hverja fylgismenn í Bretlandi. Taki
samkeppni ríð af samstaifi og
breytist samkeppni í fjandskap
munu Evrópa og Ameríka tapa. Þá
munu einhverjir segja - þegar era
raunar farnar að heyrast slíkar
raddir - að Evrópa hafi ekki roð ríð
N-Ameríku og tilraunir til sam-
keppni séu dæmdar til að mistakast.
Ég er sammála. Og að reyna slíka
samkeppni skaðar samstarfið.
Mörg þeirra vandamála sem
menn standa frammi fyrir eftir lok
kalda stríðsins er vænlegast að
leysa með samvinnu Evrópu og Am-
eríku. Kosovo er gott dæmi. Jafnvel
fjær, í Austur-Tímor, vora breskar
og bandarískar hersveitir sendar til
stuðnings ástralska hemum.
Það myndi bitna á öðram löndum
heimsins ef Evrópa og Bandarfidn
færðu sér í nyt vandamálin og snera
þeim upp í samkeppni og fjandskap,
í stað þess að rínna saman. Segjum
sem svo að Taívan og Kína lenti
saman. Tækju Evrópa og Ameríka
afstöðu með sama aðilanum? Hvað
ef Evrópa og Ameríka lentu í fram-
tíðinni í ágreiningi vegna átaka á
Balkan-skaga? Hvað ef álfumar
styddu andstæðar herfylkingar?
Til að vemda samstarfið yfir Atl-
antsála er mjög nauðsynlegt að
tryggja að þeir sem stýra stefnum-
örkun beggja vegna hafsins séu vak-
andi fyrir hættum. Nauðsyn þess að
styrkja samstarf milli álfanna má
ekki alltaf vera útgangspunkturinn í
ákvörðunum. En sé hún höfð í huga
og séu menn í ábyrgðarstöðum stað-
ráðnir í að gera allt sem í þeirra
valdi stendur til að að draga úr
spennu og minnka skaðann má kom-
ast hjá hættu. Án slíkra aðgerða er
sambandið yfir Atlantshafið, sem
má rækta nú ríð kjöraðstæður,
dæmt til slita og skilnaðar.
Micliael Howard var íbresku ríkis-
stjórninni 1990-1997 og innan-
ríkisráðherra 1993-1997. Hann var
innanríkisráðhera í skuggaráðu-
neyti íhaldsmanna frá 1997 til 1999
og er n ú þingmaður fyrir kjördæm-
ið Folkstone.
Deilt um einangrunaraðgerðir ESB-ríkja gegn Austurríki
Danir o g Finnar vilja hætta
en Frakkar vilja hvergi hvika
Berlín. Morgunblaðið.
HIN umdeilda samsteypustjóm
austurrískra íhaldsmanna og liðs-
manna Frelsisflokks Jörgs Haiders
hefur nú verið ríð stjórnvölinn í Vín-
arborg í rúma tvo mánuði. Og í ná-
kvæmlega jafnlangan tíma hefur
Austurríki verið í hlutverki hins út-
skúfaða í „fjölskyldu“ Evrópusam-
bandsíkjanna. Raddir ráðamanna í
Kaupmannahöfn og Helsinki, sem
hafa ítrekað mælt með því að slakað
yrði á hinum pólitísku einangranar-
aðgerðum gegn Austurríki, hafa vak-
ið vonir hjá ráðamönnum í Vin um að
fyrir endann sæi á ástandinu. Þing-
flokkur fijálsra demókrata á þýzka
þinginu hefur líka lagt fram tillögu
um að Þýzkaland hætti að taka þátt í
einangrun grannlandsins. En að
sögn þýzka dagblaðsins Die Welt
eiga slíkar tilslökunartillögur ekki
upp á pallborðið í höfuðborgum
margra hinna ríkjanna fjórtán. í Par-
ís væra jafnvel tillögur uppi á borð-
inu um að þegar Frakkar taka ríð
formennskunni í ráðherraráðinu í
sumar yrði hert enn frekar á hinum
pólitísku refsiaðgerðum gegn Aust-
urríki vegna ríkisstjórnarþátttöku
Frelsisflokksins.
Jörg Haider, sem lét af for-
mennsku í Frelsisflokknum skömmu
eftir að ríkisstjómin var mynduð en
er áfram fylkisstjóri í suður-austur-
ríska héraðinu Kamten, var í Brassel
á fimmtudag til að sækja fund
héraðanefndar ESB, sem hann á sæti
í í krafti fylkisstjóraembættisins.
Við það tækifæri gagnrýndi hann
enn á ný einangrunaraðgerðimar og
beindi orðum sínum einkum að
frönskum ráðamönnum. Að hans
sögn væru Frakkar að reka eigin inn-
anríkispólitík á vettvangi ESB, þar
sem hún ætti ekki heima, og þar með
væru þeir að beita smærri aðildar-
ríkin pólitísku ofbeldi.
Á miðríkudag ávarpaði Thomas
Klestil Evrópuþingið í Strassborg og
skoraði á þingmenn að leggja sitt af
mörkum til að fá þrí framgengt að
refsiaðgerðunum yrði hætt.
Afskrifuð í
sjúkrahúsi
fyrir níu
mánuðum
London. Morgunblaðið.
STYRKTARFÉLAG aldraðra í
Bretlandi hefur krafizt þess að
fram fari opinber rannsókn á um-
önnun aldraðra í sjúkrahúsum eftir
að Jill Baker, 67 ára, komst að því,
að læknir hafði upp á sitt eindæmi
skrifað í sjúkraskýrslu hennar að
ekki skyldi reynt að lífga hana við,
ef hún yrði fyrir hjartaáfalli. Frá-
sagnir fjölmiðla í kjölfar frásagnar
Baker benda til þess að víða sé pott-
ur brotinn íþessum efnum ogþess
dæmi, að fólk sé látið gjalda ald-
ursins.
Jill Baker, sem er með krabba-
mein í maga, var lögð inn í sjúkra-
hús vegna blóðeitrunar, sem hún
fékk af slöngu, sem notuð var til
lyijagjafar. Baker Iíkaði ekki sú
umönnun, sem hún fékk í sjúkra-
húsinu og fór. Henni tókst svo með
eftirgangsmunum að fá sjúkra-
skýrslur sínar og komst þá að því
að þar hafði læknir skrifað: Með
hliðsjón af aðalmeininu (krabba-
meini) er ekki við hæfi að reyna
lífgun ef sjúklingur verður fyrir
hjartaáfalli eða slagi.
Ekkert samráð
Starfsreglur segja, að læknum
beri að hafa samráð við sjúklinga
eða ættingja, þegar um slíka
ákvörðun er að ræða, en Baker seg-
ir málið hvorki hafa verið rætt við
sig né mann sinn. Og reyndar hafi
hún aldrei hitt lækninn, sem af-
skrifaði hana fyrir níu mánuðum.
Talsmaður St Marýs Hospital
segir að rangt hafi verið að skrifa
þessi skilaboð í sjúkraskrá Jill Bak-
er og er viðkomandi læknir ekki
lengur starfandi þar. Talsmaður
ríkisstjórninnar segir, að ríkis-
stjórnin muni ekki Iíða neins konar
mismunun en félög sem beijast fyr-
ir bættum hag aldraðra hafa notað
þetta dæmi til þess að setja fram
gagnrýni á umönnun aldraðra í
heilbrigðiskerfinu. Þeim sé oft illa
og ekkert sinnt af því þeir eru orðn-
ir „svo gamlir“ og læknar kveði oft
upp úr um örlög sjúklinga án þess
að bera málið undir þá.
------*-*-*-----
100.000
flýja átök
á Filipps-
eyjum
Baloi. AFP.
RÚMLEGA 100.000 manns hafa
flúið heimili sín á suðurhluta Filipp-
seyja vegna átaka hersins og músl-
imskra uppreisnarmanna (MIFL)
undanfama daga. Hátt í hundrað
manns, flestir þeirra uppreisnar-
menn, hafa látið h'fið í átökunum.
Til átakanna kom sl. laugardág er
herinn reyndi að hrekja uppreisnar-
mennina frá fimm bæjum í héraðinu
Lanao del Norte. Fjöldi fólks hefur í
kjölfarið leitað skjóls í flóttamanna-
búðum. Herinn hefur þegar náð á
sitt vald níu varðstöðvum uppreisn-
armanna sem era staðsettar í ná-
grenni ríð aðalbúðir þeirra, Camp
Bilal.
Að sögn Casan Maquiling, borgar-
stjóra í bænum Munai, var enn bar-
ist þar hart í lok ríkunnar og sagði
hann 80% íbúa hafa flúið. „Við höfum
flutt óbreytta borgara á öruggari
staði,“ sagði hann og kvað átökin þau
hörðustu til þessa.
MILF hefur barist fyrir sjálf-
stæðu íslömsku ríki á suðurhluta Fil-
ippseyja frá því 1978 og hafa þeir
komið sér upp „skuggarnála" ríkis-
stjórn í sumum afskekktari þorpum
eyjanna.