Morgunblaðið - 16.04.2000, Page 14
14 SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Ljósmynd/Jason Green
Leikmenn Stoke hafa undirbúið sig fyrir átökin á Wembley í London síðan á föstudag. Bjarni Guð-
jónsson er fremstur til hægri, fyrir aftan hann eru þeir Brynjar Bjöm Gunnarsson og Arnar Gunn-
laugsson. Leikur Stoke og Bristol City verður sýndur beint á Sýn kl. 12 í dag.
ísland á
Wembley
ÞAÐ er leikinn úrslitaleikur á
Wembley-leikvanginum í Lon-
don í dag. Þetta er ekki Úrslita-
leikurinn, með stórum staf;
þann leik spila Chelsea og Ast-
on Villa síðla maímánaðar.
Þennan úrslitaleik spila tvö lið
úr 2. deiid ensku knattspyrn-
unnar. Stoke, sem er í 6. sæti,
og Bristol City, sem er í 9. sæti,
miðað við stöðuna fyrir leiki
laugardagsins þar sem bæði
sátu að sjálfsögðu hjá. Þau
standa eftir tvö af 48 liðum 2. og
3. deildar sem hófu bikarkeppni
neðrideildarliðanna fyrr í vetur.
Þessi keppni hefur verið haldin
lengi - frá 1984. Leikurinn í
dag er 17. úrslitaleikurinn en til
^IÞessa hafa íslenskir
viðjr áhugamenn um
Sigurðsson enska knattspyrnu
skrifar látið sér keppnina í
frá London léttii rúmi liggja.
Fæstir hafa vitað að hún væri til.
Það var ekki fyrr en eftir að stór-
huga íslenskir fjárfestar höfðu
keypt meirihluta í Stoke City síðla
árs 1999 að hún var nefnd að ein-
hverju marki í íslenskúm fjölmið-
lum. Og ekki með stórum fyrirsögn-
um til að byrja með. En einhvern
tíma um það leyti sem hún hófst
sagði Guðjón Þórðarson um hana:
,Ailar leiðir sem liggja til Wembley
eru góðar leiðir." Og þá leið hafa
Guðjón og lærisveinar hans fetað í
vetur, í hjáverkum með stóra verk-
efninu sem að sjálfsögðu er að reisa
Stoke City til vegs og virðingar á ný
með því að koma félaginu upp úr
neðri helmingi ensku deildakeppn-
innar. En eins og Guðjón benti á í
Morgunblaðinu í gær leikur þátt-
taka Stoke í þessum úrslitaleik stórt
hlutverk í þeirri baráttu. Yfirtöku
Islendinganna á Stoke City á haust-
mánuðum var misjafnlega tekið á
íslandi, sem í ensku miðlandaborg-
inni. í dag er óhætt að segja að á
báðum stöðum hafí stuðningsmönn-
um hennar fjölgað verulega. Allir
aðilar tengdir Stoke sem ég hef rætt
við fyrir úrslitaleikinn á Wembley
eru á einu máli um að félagið hafi
breytt um yfirbragð, bjartsýni hefur
tekið við af svartsýni, og í borginni
kraumar knattspyrnuáhuginn undir
niðri eftir margra ára ládeyðu. Það
sést best á því að Stoke City seldi
alla 36 þúsund miðana sem félagið
fékk fyrir úrslitaleikinn í dag. Ibúar
Stoke setja það ekki fyrir sig að
ferðast í nokkra klukkutíma á
sunnudegi til að verða vitni að því
þegar félagið þeirra ieikur á þjóðar-
leikvanginum eina og sanna. Þetta
fólk mun mæta á Britannia Stadium
þegar Stoke kemst ofar í deilda-
keppninni.
Áhuginn stöðugt vaxandi
Á íslandi fer áhuginn fyrir Is-
lendingaliðinu Stoke City stöðugt
vaxandi. I janúarmánuði sat ég á
þétt setnum veitingastað í Kópavogi
og horfði á Stoke sigra Preston.
Mörkum Stoke, sérstaklega sigur-
markinu á lokamínútunum, var
fagnað eins og mörkum íslenska
landsliðsins gegn Frökkum. Meðal
áhorfenda þá var æskufélagi minn
sem þótti dálítið sérlundaður í
gamla daga austur á fjörðum. Hann
hélt nefnilega með Stoke City og
háði vonlitla baráttu við okkur hina
sem héldum með Derby County og
fleiri stórliðum áttunda áratugarins.
Hann brosti breitt þetta janúar-
kvöld. Nú er hann ekki lengur einn
á báti, félagið hans hefur eignast
þúsundir íslenskra stuðningsmanna.
Þeim virðist fjölga stöðugt.
Sennilega á persónufylgi Guðjóns
Þórðarsonar stærstan þátt í því hve
miklu ástfóstri Islendingar hafa tek-
ið við þetta enska félag sem hefur
ekki leikið í efstu deild í 15 ár. Eftir
farsælan feril sem félagsþjálfari
heima á íslandi urðu persónuleg
vandamál til þess að Skagamaður-
inn hrökklaðist af þeim vettvangi,
gegn vilja sínum. Sem nýr maður
með breytta lifnaðarhætti tók hann
við íslenska landsliðinu ríflega hálfu
ári síðar. Þá sögu þarf ekki að rifja
upp, eftir glæsilegasta árangur Is-
lands á alþjóðavettvangi nýtur Guð-
jón ákveðinnar lýðhylli. Hún er í
raun lykillinn að öllu Stokeævintýr-
inu. Út í það var farið vegna þess að
þeir sem að því stóðu höfðu tröllatrú
á því að Guðjón væri maðurinn sem
hægt væri að vinna með slíka land-
vinninga á enskri grund. Á aðeins 5
mánuðum hefur hann áunnið sér
fylgi og traust í Stoke. Mister G,
eins og hann er kallaður á þeim
slóðum, er þegar orðinn afar vin-
Arnar
Bjarni
Guðjón
sæll, bæði hjá þeim sem starfa mest
hjá félaginu og hjá stuðningsfólki
þess.
Það er ekki laust við að sumir hafí
gert grín að þessu íslenska upp-
hlaupi í ensku knattspyrnunni. Jafn-
vel í fréttatímum hefur verið gant-
ast með keppnina sem lýkur með
úrslitaleiknum á Wembley í dag.
Leikur sem laðar að sér hátt í 80
þúsund áhorfendur er ekkert grín. í
þeim leik tekur þátt félag sem er í
eigu Islendinga, er með íslenskan
knattspyrnustjóra, þijá íslenska
leikmenn í byrjunarliði og íslenskan
sjúkraþjálfara á bekknum. Fyrir ut-
an Wembley í dag verður íslenski
fáninn til sölu, bolir með fánanum
áprentuðum og fleira mun minna á
litla ísland, eyjuna sem er með jafn-
marga íbúa og Meðal-Egilsstaðir í
Englandi. Hundruð íslenskra knatt-
spyrnuáhugamanna verða á meðal
áhorfenda, fleiri en á nokkrum öðr-
um leik milli tveggja erlendra liða
utan landsteinanna. Landkynningin
er meiri en flestir hafa enn áttað sig
á. Takist Stoke að sigra í dag, verð-
ur hún meiri en nokkurn órar fyrir.
Brynjar Björn
Stoke
Stoke City er eitt elsta knatt-
spyrnufélag Englands. Stofn-
árið er sagt vera 1863 en aldrei
hafa fundist öruggar heimildir
sem staðfesta tilvist félagsins fyrr
en árið 1868. Þá hét það Stoke
Ramblers og bar það nafn til 1870
en hét síðan Stoke til 1925 þegar
City var bætt aftan við. Árið 1908
varð félagið gjaldþrota en nýtt
var stofnað með sama nafni.
Stoke var eitt af stofnliðum
ensku dcildakeppninnar árið
1888. Félagið missti sæti sitt 1890
en endurheimti það árið eftir.
Stoke féll úr efstu deild 1907 og
eftir gjaldþrotið 1908 lék það ekki
aftur í deildakeppninni fyrr en
1919. Frá þeim tíma hefur það
leikið í efstu deild árin 1922-23,
1933-1953,1963-1977 og 1979-
1985. Stoke lék í núverandi 1.
deild 1993-1998 en er nú að spila
sitt annað tímabil í röð í 2. deild.
Besti árangur Stoke City í efstu
deild er 4. sæti árin 1936 og 1947.
I ensku bikarkeppninni hefur fé-
lagið aldrei leikið til úrslita en þrí-
vegis komist í undanúrslit, sfðast
1972. Það sama ár vann félagið
sinn eina stóra titil í ensku knatt-
spyrnunni þegar það sigraði í
deildabikarkeppninni. I kjölfarið
lék Stoke í UEFA-bikarnum í tví-
gang, 1972-73 og 1974-75. Stoke
hefur einnig sigraö einu sinni í
bikarkeppni neðrideildarliðanna.
Það var árið 1992 en þá vann
Stoke sigur á Stockport á Wem-
bley, 1:0, að viðstöddum 50 þús-
und áhorfendum.
Þó Stoke hafi ekki unnið stóra
titla í ensku knattspymunni hefur
það oft á tíðum verið hátt skrifað
og skartað mörgum snjöllum leik-
mönnum. Frá fyrri tíð stendur
hinn nýlátni töframaður Stanley
Matthews uppúr, enda einn vin-
sælasti knattspyrnumaður Eng-
lands fyrr og síðar.
Guðjón Þórðarson er þriðji
knattspyrnustjórinn sem leiðir
Stoke City til leiks á Wembley.
Hinir em Tony Waddington, í úr-
slitaleik deildabikarsins 1972, og
Lou Macari, f þessari sömu keppni
árið 1992.
Brístol City
Bristol City var stofnað árið
1894 undir nafninu Bristol
South End en hefur borið núver-
andi nafn frá 1897. Félagið fékk
aðild að deildakeppninni árið 1901
og hefur verið þar samfleytt síðan.
Árið 1906 komst það í efstu deild í
fyrsta skipti og náði strax á fyrsta
tímabili, 1906-07, sínum besta
árangri frá upphafi þegar félagið
hafnaði í öðru sæti. Vorið 1909
komst Bristol City í úrslit ensku
bikarkeppninnar en tapaði fyrir
Manchester United, 1:0.
Bristol City féll á ný árið 1911
og komst ekki aftur í hóp hinna
bestu fyrr en árið 1976. Þá náði fé-
lagið að halda sér í fjögur ár í
deildinni en féll 1980 og hefur síð-
an leikið í neðri deildunum þremur
á víxl. Síðast var Bristol City í nú-
verandi 1. deild á síðasta tímabili
en féll eftir eins árs dvöl. Liðið er
nú 9. sæti 2. deildar, aðeins þrem-
ur sætum á eftir Stoke, en þó
skilja 13 stig liðin að og Bristol
City á enga möguleika á að komast
í úrslitakeppnina um sæti í 1.
deildinni. Fyrir utan annað sæti í
deild og bikar á fyrsta áratug al-
darinnar eru helstu afrek Bristol
City þau að félagið komst í undan-
úrslit deildabikarsins árin 1971 og
1989 og hefur tvívegis leikið til úr-
slita í bikarkeppni neðrideildarlið-
anna. Bristol City lagði Bolton,
3:0, í úrslitaleiknum árið 1986 en
beið lægri hlut fyrir Mansfíeld í
vítaspyrnukeppni árið eftir en lið-
in skildu þá jöfn, 1:1. í bæði skipt-
in mættu tæplega 60 þúsund
áhorfendur á Wembley.
Bristol City kemur frá hafnar-
borginni Bristol í suðvesturhluta
Englands. Heimavöllur liðsins
heitir Ashton Gate en hann var
byggður árið 1904 og rúmar nú 21
þúsund áhorfendur.
Tony Fawthrop er knattspyrnu-
stjóri Bristol City en hann var ráð-
inn út þetta tímabil eftir að Tony
Pulis var sagt upp störfum í febr-
úar. Byrjunin var góð því Fawt-
hrop var valinn knattspyrnustjóri
mánaðarins í 2. deild eftir fyrsta
mánuð sinn í starfí. Hann hefur
starfað hjá Bristol City síðan 1989
og var aðstoðarmaður knatt-
spyrnustjóra félagsins þar til í
febrúar.
Tony Thorpe er marksæknasti
leikmaður Bristol City en hann
hefur skorað 18 mörk á tímabilinu.
Thorpe er 26 ára og lék áður með
Luton, Reading og Fulham en
Bristol City keypti hann fyrir 117
milljónir króna frá Fulham fyrir
tveimur árum. Hann er annar dýr-
asti leikmaður félagsins frá upp-
hafi. Thorpe gekk illa á síðasta
tímabili og var settur á sölulista að
því loknu en hefur sprungið út í
vetur.
Keith Millen er fyrirliði Bristol
City en hann var keyptur frá Wat-
ford í byrjun nóvember. Millen á
að baki um 500 deildaleiki með
Watford og Brentford og tók við
fyrirliðastöðunni hálfum mánuði
eftir að hann var keyptur - gegndi
henni einmitt í fyrsta skipti þegar
Bristol sótti Stoke heim í nóvem-
ber, helgina sem yfírtaka íslend-
inganna á Stoke var kunngjörð.
Andrew Jordan hefur verið
mest í sviðsljósinu af leikmönnum
Bristol City síðustu dagana, þó
hann sé aðeins tvítugur og að leika
sitt fyrsta tímabil sem fastamaður.
Hann er nefnilega sonur Joe Jord-
ans, fyrrum landsliðsmanns Skota,
sem var leikmaður og knattspyrn-
ustjóri Bristol City árin 1988-1990
og stýrði liðinu aftur á árunum
1994-97. Jordan yngri þykir mjög
efnilegur varnarmaður.
Ivan Tistimetanu er eini lands-
liðsmaður Bristol City en hann er
frá Moldavíu þar sem hann varð
meistari fjögur ár í röð með
Zimbru áður en Bristol City
keypti hann fyrir tveimur árum.
Tistimetanu hefur átt í erfiðleik-
um vegna meiðsla á þessu tíma-
bili og ekki átt fast sæti í liðinu.
Bristol City hefur aðeins tapað
einum heimaleik í 2. deild í vetur,
færri en nokkurt annað lið, en
hinsvegar gert 13 jafntefli á
heimavelli og 18 alls, sem er það
mesta í deildinni.