Morgunblaðið - 16.04.2000, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 16.04.2000, Qupperneq 24
24 SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ Erum oft ósammála en eigum líka margt sameig'inlegt Sambúðarvandi bókstafstrúarmanna og veraldlega sinnaðra gyð- inga setur svip sinn á flesta þætti ísraelsks samfélags. Flokkar trúaðra komast gjarnan í lykilstöðu í stjórnarmyndunarviðræð- um vegna þess hversu lítill munur er á fylgi hægri- og vinstrif- lokkanna og því njóta trúaðir pólitískra áhrifa sem eru ekki í nokkru samræmi við fjölda þeirra. Sigrún Birna Birnisdóttir hitti þrjár konur, sem tengjast með einhverjum hætti samfélagi bókstafstrúarmanna, forvitnaðist um lífshlaup þeirra og kynnti sér viðhorf þeirra til nokkurra helstu ágreiningsmála samtímans. Zvia Greenfeld ZVIA Greenfeld ólst upp í samfélagi Hareidi-bók- stafstrúarmanna í ísrael og býr enn í samfélagi þeirra þó hún sé málsvari ýmissa sjónarmiða sem eru andstæð skoð- unum flestra bókstafstrúarmanna. Hún kveðst líta á sig sem Hareidi enda búi hún í samfélagi þeirra og sæki samkomuhús þeirra. „Okkur greinir vissulega á um ýmislegt og það kemur oft til deilna á milli okk- ar,“ segir hún. „Því er ekki að neita að samfélag Hareidi-gyðinga er mjög íhaldssamt. En það er ólíkt fólk innan allra samfélaga og þó við séum oft ósammála eigum við líka margt sameiginlegt. Eg held því að ég sé að mestu leyti samþykkt innan samfélagsins þó það vilji ekki gera mig að fulltrúa sínum út á við.“ Foreldrar Zviu komu til ísraels frá Austurríki fyrir seinna stríð. Hún segir að þau hafi verið mjög trúuð en búið að evrópskri hefð sem sé mjög ólík þeirri hefð sem síðar hafí orðið ríkjandi meðal ísraelskra Hareidi-gyðinga og að hún telji sig mjög heppna að hafa alist upp við þá samsetningu. „Faðir minn var verkfræðingur og þrátt fyrir að hann væri mjög trúaður var hann einnig mjög opinn fyrir nýjum hugmyndum,“ segir hún. „Með tímanum varð fjölskylda mín íhaldssamari og hægrisinnaðri en ég hef haldið fast í hefðir og gildi foreldra minna.“ Hún segir þetta vissulega hafa skapað spennu innan fjölskyldunnar en með tímanum hafi hún lært að búa saman. „Það er auðvitað mismunandi eft- ir fólki hversu reiðubúið það er að fyrirgefa mér skoðanir mínar,“ seg- ir hún „en þeir sem þekkja mig vita að ég hef mjög sterkan persónuleika og að ég hef aldrei látið kúga mig. Þá hef ég alltaf verið trú því hegð- unarmunstri sem krafist er af kon- um innan samfélagsins og það hefur auðveldað fjölskyldu minni að sætta sig við skoðanir mínar. Þau eiga hins vegar ennþá erfitt með að sætta sig við að vera dæmd út frá mér þegar þau eru mér ekki sammála." „Konur njóta fjölbreyttari menntunar en karlar“ Zvia kveðst hafa fengið að lesa allt það sem hún vildi þegar hún var að alast upp. Foreldrar hennar hafí hins vegar lagst gegn því að hún legði stund á háskólanám. Vegna andstöðu þeirra hafi hún frestað há- skólanámi um eitt ár en að því loknu ákveðið að halda sínu striki og hefja háskólanám þar sem hún gæti aldrei sættsigviðannað. Hún segir stöðu konunnar innan samfélags trúaðra vera erfiða en bætir því við að vandamálum trúaðra kvenna svipi mjög til vanda annarra kvenna enda standi konur um allan heim frammi fyrir svipuð- um vandamálum. „Helsti vandi trúaðra kvenna er krafa samfélags- ins um stórar fjölskyldur," segir hún. „En ég hef trú á því að með aukinni menntun kvenna verði þessi vandi leystur. Menntun er að mínu mati lausn flestra vandamála og þegar ég lít til þess að strangtrúaðar konur hljóta í dag fjölbreyttari menntun en karlar, sem læra bara Biblíuna, get ég ekki verið annað en bjartsýn á þróun mála.“ Zvia segist sammála því að rekja megi stærsta hluta sambúðarvanda trúaðra og veraldlega sinnaðra til trúaðra sem vilji ráðskast með aðra þjóðfélagshópa. Þá segir hún að leiða megi rök að því að bókstafs- trúarmenn hafi staðið í vegi fyrir eðlilegri þróun í landinu. „í stað þess að eyða orkunni í framþróun eyðum við henni í innbyrðis deilur,“ segir hún. „Rót vandans liggur hins vegar í skilgreiningu ísraels sem gyðinglegs ríkis. Spurningin snýst ekki um lífsmáta einstaklinganna heldur um það hversu langt ríkið eigi að ganga í því að fylgja lögmál- um gyðingdómsins." Eins og flestir bókstafstrúar- menn er fjölskylda Zviu andsnúin herskyldu. Hún segist hins vegar hafa gert sér grein fyrir mikilvægi þess að gyðingar gætu varið sig þeg- ar hún vann á skjalasafni helfarar- safnsins í Jerúsalem. „í framhaldi af því varð ég eindreginn stuðnings- maður herþjónustu og ákvað að gera allt sem ég gæti til þess að hvetja börnin mín til að sinna her- þjónustu," segir hún. „Á sama tíma er ég mikill friðarsinni og finnst það alls ekki þurfa að vera mótsögn. Ég er á móti herjum og stríðum en eftir helförina tel ég okkur ekki hafa haft neitt val. Við verðum að geta varið okkur. Þá tel ég að það einangri bókstafstrúarmenn að þeir gegni ekki herskyldu og víki sér þannig undan því að taka þátt í þeim mann- fórnum sem þjóðin þarf að færa.“ Zvia kveðst reiðubúin til að skila Gólanhæðunum enda telji hún þær ekki skipta sköpum í vörnum Isra- ela. Þá hefur hún barist gegn her- setu Israela í Suður-Líbanon sem hún segir algerlega gagnslausa. „Ég Hef aldrei séð eftir því að hafa farið mína leið RAYA Ginzburg er fædd í Rússlandi en fluttist með foreldrum sínum til ísraels þegar hún var barn að aldri. Eftir komuna til ísraels gengu foreldrar hennar til liðs við bókstafstrúarmenn sem nefna sig Hareidi Leumi. Fjöl- skyldan settist að í landnema- byggð gyðinga í Hebron þar sem Raya hlaut strangt trúarlegt upp- eldi enda segir hún foreldra sína hafa verið óvenju heittrúaða eins og algengt sé meðal fólks sem gengið hefur til liðs við bóksta- fstrúarmenn en er ekki alið upp í samfélagi þeirra. Foreldrar henn- ar hafi því tekið því illa þegar hún á ungiingsárum fór að spyrja gagnrýnna spurninga. Raya segir efasemdir sinar fyrst hafa vaknað í sambandi við stöðu konunnar innan samfélags bók- stafstrúarmanna. „Ég trúði því ekki að Guð, sem hefði skapað eitt- hvað jafnstórfenglegt og jörðina, væri að skipta sér af smáatriðum eins og pilsa- eða ermalengd,“ seg- ir hún. „Mér fannst tilhugsunin hreinlega gera lítið úr Guði.“ Hún segist hafa farið að rífast við kennarana sína og krefjast þess að fá að lesa verk á borð við Antígónu. I framhaldi af því hafi hún fengið á sig orð fyrir að vera vandræðagemlingur og þegar hún var sautján ára var hún rekin úr skóla fyrir að neita að leyfa lækni að ganga úr skugga um að hún væi-i hrein mey. f kjölfarið fór hún að heiman. Hún var á þvælingi í tvo mánuði en gafst þá upp og flutti aftur heim. „Foreldrar mínir voru á þessum tfma að skilja og kenndu álaginu sem ég hafði orsakað um skilnað- inn,“ segir hún. „Þegar ég kom aft- ur heim létu þau að því liggja að ég gæti bætt fyrir þann álitshnekki sem ég hafði valdið þeim með því að ganga í hjónaband. Ég hafði verð mjög náin foreldrum mfnum og ég stóðst ekki álagið og sam- þykkti því að gifta mig. Ég vissi innst inni að hjónabandið myndi ekki endast en ákvað að reyna til að græða sár fjölskyldunnar." „Gáfur ekki taldar konum til hróss“ Raya segir fólk vera verðlagt eftir virðingu á hjónabandsmark- aði bókstafstrúarmanna og þegar hér hafi verið komið hafi hún verið fallin í verði. „Áður en ég fór að heiman hafði ég fengið fimmtán bónorð, þar sem faðir minn var virtur í samfélaginu," segir hún hlæjandi. „En nú heyrðist ekki í símanum." Eftir nokkra leit féllst þó vinur fjölskyldunnar á að kvænast henni en hann hafði sjálfur tekið gyð- ingatrú á fullorðinsaldri og átti því ekki kost á betra gjaforði. Raya kveðst hafa vonast til þess að hann hefði meiri skilning á skoðunum hennar vegna bakgrunns síns en svo reyndist ekki vera. Hún segir hann hafa verið mikinn öfgamann og þvf hafi hún farið fram á skiln- að eftir eins árs hjónaband. „Mað- urinn minn vildi ekki veita mér skilnað en ég krafðist þess að við færum til rabbfnadómstólsins sem sér um að veita skilnaði," segir hún. „Ég mætti þangað f pfnupilsi og fleginni skyrtu til að leggja áherslu á að ég hefði gengið af trúnni en maðurinn minn var klæddur á hefðbundinn hátt með svartan hatt og í svartri kápu. Yf- irleitt veitir rabbínadómstóllinn ekki skilnað nema báðir aðilar séu honum fylgjandi en þegar rabbín- inn sá mig ráðlagði hann mannin- um mfnum að veita mér skilnað þar sem hann sagðist óttast að ég hefði slæm áhrif á hann.“ Skilnaðurinn gekk f gegn á tveimur dögum en var þeim skil- yrðum bundinn að eiginmaður Rayu fengi allar eigur þeirra en hún tæki á sig allar skuldirnar. Eftir skilnaðinn flutti hún til Jer- úsalem þar sem hún leigði her- bergi og vann baki brotnu við að greiða upp skuldirnar. Hún segir þetta vissulega hafa verið erfiðan tfma meðal annars vegna þess að fjölskylda hennar hafi neitað að tala við hana. Þegar hér hafi verið komið hafi hún hins vegar verið undir það búin að standa á eigin fótum og taka því sem að höndum bæri og hún hafi aldrei séð eftir því að hafa farið sína leið. Raya undirbýr sig nú undir há- skólanám en sú menntun sem hún hlaut í Hebron stenst engan veginn þær kröfur sem gerðar eru við upphaf háskólanáms. „Við lásum Biblfuna aftur og aftur en lærðun hvorki ensku, stærðfræði né sögu þótt það hafi verið á námskránni þar sem trúaðir líta svo á að stúlk- ur þurfi ekki á menntun að halda,“ segir hún. „Gáfur eru ekki taldar trúuðum konum til hróss enda er litið svo á að því minna sem þær kunni því betra."
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.