Morgunblaðið - 16.04.2000, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000 27
stofnun Háskóla íslands hafi kom-
ið fram athyglisverðar niðurstöður
um virkni íslenskra jurta miðað
við samskonar jurtir í öðrum lönd-
um.
„Mikilvægt er að áfram verði
unnið á þessari braut þannig að
unnt verði að framleiða fæðubótar-
efni og jafnvel lyf í framtíðinni. Þá
má einnig geta þess að kannað
hefur verið hvort framleiða megi
fæðubótarefni úr sjávarfangi svo
sem loðnumjöli og fiskúrgangi en
þau myndu innihalda mikið af Om-
ega 3 og 6 og orkuefnum. Það eiga
því miður ekki allir íbúar heims
jafngreiðan aðgang að ferskum
fiski og við hér á landi og því ár-
íðandi að kanna hvort ekki megi
bæta úr því með framleiðslu fæðu-
bótarefna úr sjávarafurðum. Þessi
markaður er nú orðinn gríðarlega
stór og í Bandaríkjunum einum
velti fæðubótarmarkaðurinn á síð-
asta ári um 700 milljörðum ís-
lenskra króna.“
Áfoi-m hefur stutt við bakið á
einstaklingum sem framleiða
snyrtivörur úr hráefnum úr ís-
lenskri náttúru. Segir Baldvin að
flest stærstu snyrtivörufyrirtæki
heims hafi lagt áherslu á fram-
leiðslu náttúrulegra snyrtivara.
„Hér á landi eru starfandi nokkur
lítil fyrirtæki sem framleiða
áhugaverðar snyrtivörur úr jurt-
um. Mörg þessara efna eru mjög
virk og hafa vakið verðskuldaða
athygli. Það þarf að styðja þetta
framtak betur og greina á fagleg-
an hátt innihald og áhrif efnanna.
Til þess skortir þetta fólk fjármuni
enda hefur það ekki fengið undir-
tektir hjá fjárfestum eða opinber-
um sjóðum. Háskóli íslands hefur
í vaxandi mæli sýnt nýjum verk-
efnum áhuga og er það vel. Von-
andi fá jurtaframleiðendur stuðn-
ing skólans við frekari athuganir.“
Lífvænar
sjávarafurðir
Baldvin telur að sjávarútvegur-
inn á íslandi eigi sóknarfæri á
þessu sviði. „Margar alþjóðlegar
stofnanir hafa viðurkennt að fisk-
veiðistjórnunarkerfi okkar Islend-
inga sé eitt það fullkomnasta sem
völ er á í heiminum að því leyti að
veiðunum sé stjórnað með það að
markmiði að þær séu í sátt við um-
hverfið. Á þessum forsendum og
þeim að reynslan af fiskveiði-
stjórnunarkerfinu er orðin allgóð
eigum við hiklaust að hafa frum-
kvæði að því að votta sjávarafurðir
sem lífvænar eða „Certified Org-
anic Ocean Product". Alþjóðasam-
tök fiskimjölsframleiðenda, IF-
OMA, hafa sýnt þessu máli
töluverðan áhuga enda er mjölið
aðallega notað í dýrafóður. Ef það
fengi lífvæna vottun gætu bændur
hérlendis og erlendis notað það
sem lið í því að fá lífræna vottun
fyrir afurðir sínar. Samtök líf-
rænna bænda hafa einnig sýnt
málinu áhuga og hvor tveggja
samtökin telja að Islendingar ættu
að taka forystuna í þessu máli í
stað þess að láta þröngva uppá sig
einhverskonar stjórnun sem sam-
rýmist ekki einusinni þeim kröfum
sem við nú þegar gerum.
Umhverfissamtök víða um heim
hafa á undanförnum árum haldið
því fram að fiskur sé í útrýmingar-
hættu. Sum þeirra hafa meira að
segja gengið svo langt að kosta
öflugar auglýsingaherferðir þar
sem neytendur eru hvattir til þess
að kaupa ekki fisk. Þessi sömu
samtök styðja hinsvegar lífvænar
framleiðsluaðferðir. í reglugerð al-
þjóðasamtaka lífrænna bænda er
þess getið að villibráð hverskonar
skuli vottuð lífræn, sé tryggt að
ekki sé gengið of nærri náttúrunni
og umhverfinu. Hvað yrði um okk-
ar sjávarútveg, ef það næði fram
að ganga að neytendur keyptu
ekki lengur fisk vegna þess að
hann er í útrýmingarhættu? Marg-
ir af þeim umhverfissinnum sem
ég hef rætt við hafa skilið málstað
okkar. Það á ekki við um alla en
síðarnefnda flokkinn fyllir aðallega
fólk sem ekki býr við sjávarsíðuna
og ekki í löndum sem eiga jafn-
mikilla hagsmuna að gæta og við
og hefur þar af leiðandi ekki þekk-
ingu á málinu. Það er því mikil-
vægt að við tökum forystu í þess-
um málum á heimsvísu og það sem
fyrst til að tryggja framtíð sjávar-
Morgunblaðið/Golli
Enn vantar nokkuð á að íslensk sauðfjárrækt geti talist lífræn.
útvegs okkar. Nokkrar þjóðir eru
nú í alvöru að kanna möguleika á
því að votta afurðir sínar og því er
ekki eftir neinu að bíða.“
Brottkast fisks og úrgangs frá
fiskiskipunum er ákveðið vanda-
mál, að mati Baldvins. Segist hann
vera viss um að á allra næstu
misserum átti menn sig á því að í
úrkastinu felist verðmæti sem beri
að nýta og það muni borga sig fyr-
ir útgerðina og þjóðina alla að
draga allt að landi sem úr hafinu
kemur. Enda sé það skylt sam-
kvæmt samþykkt Sameinuðu þjóð-
anna um sjálfbæra þróun.
Vistvænt
Island
Baldvin telur raunar að stefna
ætti að yfirlýsingu um að ísland sé
lífræn eða að minnsta kosti vist-
væn eyja. Það hefur verið gert á
nokkrum stöðum, meðal annars á
Cookeyju og Trinidad & Tobago
með einfaldri yfirlýsingu æðstu
ráðamanna þjóðanna og því hefur
einnig verið lýst yfir að nokkrar
Kyrrahafseyjar stefni að því að ná
sama takmarki innan þriggja ára.
Þá segir hann að Danmörk, Aust-
urríki og Sviss kynni sig sem vist-
væn og/eða lífræn lönd. Danmörk
kynni sig sem landið græna, Aust-
urríki sem vistvænt land og Sviss-
lendingar séu nú með herferð sem
gangi út á lífrænt Sviss þó svo ein-
ungis 8% landsins séu vottuð líf-
ræn. „Þjóðirnar hafa sett sér þessi
markmið þó svo að þær eigi allar
enn lengra í land með að ná áfang-
anum en við íslendingar.“
Með nauðsynlegum undirbúningi
og yfirlýsingu um að ísland væri
lífræn eyja væri að mati Baldvins
hægt að staðsetja landið og afurð-
irnar sem hér eru framleiddar á
þeim mörkuðum sem greiða hæsta
verðið.
Lífrænt Island myndi að mati
Baldvins einnig hjálpa ferðaþjón-
ustunni. Unnt yrði að höfða til
þess fólks sem kýs svokallaða
græna ferðamennsku. Og í þessu
eins og öðru sé fólk reiðubúið að
greiða sanngjarnt verð fyrir betri
þjónustu.
En forsendan fyrir öllu þessu,
lífrænum landbúnaði og sjávarút-
vegi og grænni ferðamennsku, er
að áliti Baldvins sú að fólk búi um
allt land. „Það er afar mikilvægt
fyrir þjóðina alla að það sé sátt um
að landinu verði haldið í byggð.
Ferðaþjónusta í landinu öllu verð-
ur vart stunduð af neinu viti nema
að þar búi fólk, jafnt í sveitum og
sjávarþorpum. Einhverjir verða að
vera vörslumenn þeirrar auðlindar
sem við tölum um. Ekki má
gleyma því að menningararfur
sveitanna er verðmæti sem þjóðin
þarf að varðveita. Ekki má heldur
gleyma mikilvægi þess að af land-
inu séu framleidd matvæli þannig
að þjóðin verði aldrei öðrum þjóð-
um háð um brýnustu lífsnauðsynj-
ar og verði þannig sjálfbær og
sjálfstæð þjóð. Ég sakna þess
hinsvegar að ekki skuli fleira af
okkar unga og efnilega fólki sjá
sér hag í því að vinna við undir-
stöðuatvinnugreinar þjóðfélagsins,
sjávarútveg og landbúnað. Það vel
menntaða, víðsýna og efnilega fólk
sem nú er að vaxa úr grasi í heimi
sem er orðinn eitt samfélag mun
vonandi fljótlega sjá hverskonar
auðlind felst í landinu sjálfu. Þeg-
ar að því kemur mun verða að
veruleika draumurinn um að á Isl-
andi, „matvælamiðstöð hollra mat-
væla“, verði framleiddar vörur í
sátt við umhverfið, náttúruna og
dýrin. Það mun vekja áhuga fleira
fólks á að heimsækja landið og
kaupa afurðir þess.
Lífið í landinu verður ekki enda-
laust hægt að byggja á verðbréfa-
viðskiptum, það grundvallast á því
að nýta þá auðlind sem í landinu
býr.
Draumurinn er að árið 2015
verði á Islandi stunduð fjölbreytt
framleiðsla á eftirsóttum úrvalsaf-
urðum sem upprunnar eru úr auð-
lindum landsins, hafi, landi og
vatni. Stunduð verði ferðaþjónusta
sem veiti hæfilega mörgum ferða-
mönnum sem greiða sanngjarnt
gjald aðgang að fegurð landsins.
Nýtt verði skynsamlega sú hreina
raforka sem í fallvötnum landsins
felst og hugvit landsmanna verði
virkjað enn frekar til auðlinda-
sköpunar á heimsvísu. Við eigum
að stefna að því, vegna fámennis
og þeirrar dýrmætu auðlindar sem
í landinu, hafinu og fólkinu býr að
framleiða lítið fyrir mikið í stað
þess að framleiða mikið fyrir lítið,“
segir Baldvin Jónsson.
Rockwood 1980 Rider
105.000,- kr. ódýrariengerðX
EVRÖ
Rockwood 1620 Ranger
meira en 70.000.- kr. ódýrari en geróX
★ SKEIFUNNI SÍMI: 533 1414 WWW.EVRO.IS ★