Morgunblaðið - 16.04.2000, Side 28
28 SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Mikil náttúrufegurð er við Norðlingafljót.
JARÐGÖNG FYRIR
HREISTRAÐA
Ahugamenn um laxrækt hafa lengi rennt
hýru auga til Norðlingafljóts í Borgarfirði,
enda hefur grunur leikið á að þar sé allt sem
villtur laxastofn þurfí sér til viðurværis.
Gallinn er bara sá að ekki er laxgengt í
þessa borgfírsku perlu, Barnafoss í Hvítá
sér til þess. Barnafoss er friðaður og því
vart inni í myndinni að breyta ásýnd hans
með laxastiga. Guðmundur Guðjónsson
kynnti sér hugmyndir manna á dögunum og
fregnaði þá að jarðgöng gagnast fleirum en
mannskepnunni.
háð því skilyrði að hafist yrði
handa með athuganir á því hvort
eigi væri hægt að gera Norðlinga-
fljót að sjálfbærri laxveiðiá. Það er
Veiðifélag Hvítár og Norðlinga-
fljóts sem stendur að málinu, en
tveir aðilar hafa öðrum fremur
komið að þeim athugunum, Sigurð-
ur Már Einarsson fiskifræðingur
hjá Vesturlandsdeild Veiðimála-
stofnunar og Vífill Oddsson, verk-
fræðingur sem athugaði svæðið
með tilliti til fiskvegagerðar.
„Norðlingafljót er laxveiðiá af
guðs náð og því verðugt verkefni
að finna út hvernig greiða megi
laxi aðgengi að ánni,“ segir Sig-
urður Már, sem vann í fyrra mats-
skýrslu á framleiðslugetu árinnar
fyrir lax. Niðurstöður skýrslunar
eru mjög jákvæðar og telur Sig-
urður að með markvissri ræktun
og fiskvegagerð megi koma up
sjálfbærum laxastofni sem gefi 700
til 1000 laxa veiði á sumri.
Margslungin á
Norðlingafljót fellur í Hvítá
skammt ofan við svokallað Hunda-
vað í Hvítá, um 4 kflómetra ofan
við Bamafoss í Hvítá. Fljótið er 66
kílómetrar að lengd fram í efstu
drög. Vatnasviðið er 920 ferkíló-
metrar, sem er um 24% af vatna-
sviði Hvítár. Norðlingafljót flokk-
ast sem dragá, en hefur auk þess
sterk lindáreinkenni og einnig
jökuláreinkenni. Jökulþátturinn er
nokkuð stór, en áætlað hefur verið
að um 200 ferkílómetrar af vatna-
sviði Fljótsins komi frá jöklum,
eða um 22% af aðrennslissvæði
Norðlingafljóts. Þrátt fyrir það, er
Fljótið ekki oft skolað og margar
Borgarfjarðarhérað er
mesta laxakista ís-
lands. Stóra slagæðin
er Hvítá í Borgarfirði
og í hana renna allar
minni æðarnar, m.a. Norðurá,
Þverá/Kjarrá og Grímsá, sem allar
eru í hópi allra bestu laxveiðiáa
landsins. Þarna eru og fleiri
þekktar ár, Flóka, Gljúfurá,
Reykjadalsá og Langá, sem renn-
ur að vísu ekki í Hvítá, heldur inn
á leirusvæði botns Borgarfjarðar,
skammt vestan við Borgarnes. Það
er því skrýtið að líta augum gríð-
arlega fallega og vatnsmikla á í
þessu héraði og vita að hún á sér
engan laxastofn.
Samt hefur verið laxveiði í
Norðlingafljóti síðan árið 1987, en
sú veiði hefur byggst á því að
leigutakar árinnar hafa keypt haf-
beitarlaxa, oftast frá Lárósi,
sleppt þeim í ána og girt hana af
niður undir ármótunum við Hvítá.
Sigmar Björnsson hefur leigt ána
síðustu ár og haft þennan háttinn
á. Fyrirkomulagið nýtur vinsælda
og Sigmari hefur gengið vel að
selja veiðileyfin. Sumir vilja trygg-
inguna sem fylgir því að vita nán-
ast upp á lax hvað er af fiski í
ánni. Sleppingar á hafbeitarlaxi
hafa þó alltaf verið fremur um-
deild athöfn og háð tilskildum leyf-
um frá veiðimálastjóra og fisksjúk-
dómanefnd. Þeir sem eru
mótfallnir sleppingu framandi laxa
á þennan hátt bera fyrir sig kunn-
uglegar útskýringar, stofnablönd-
un við villta stofna nærliggjandi áa
og sjúkdómahættu.
Það var svo í fyrra, að leyfi fyrir
flutningi á hafbeitarlaxi í ána var
Smiðjuásfoss
Tunga
Hunda-
vaðsfos:
Barnafoss
Halafoss
hvítá
Hraunsás
Húsafell
Jarðgöng með
fiskiveg
jökulkvíslar frá Langjökli og Eir-
íksjökli ná ekki að renna til Norðl-
ingafljóts, heldur hverfa ofan í
jörðina, enda á ferð yfir fremur
ung og hriplek hraun.
Megnið af vatni Norðlingafljóts
er upprunnið í vötnum og tjörnum
á Arnarvatnsheiði, þar sem lands-
lagið einkennist af sléttum heiða-
löndum. Fljótið telst því að mestu
leyti vera heiðavotlendisvatn, en
einkenni slíkra áa er að vatnið er
að safnast saman smátt og smátt,
er mjög næringarríkt og hefur
hagstætt hitafar og rafleiðni. Slík-
ar ár framleiða oft mikið af laxi.
Sérfræðingar sem rætt hefur verið
við, Sigurður Már, Vífill Oddsson
og Sigmar Helgason, sá er hefur
flutt hafbeitarlax í ána síðustu ár-
in, tala gjarnan um samlíkingu
milli Norðlingafljóts og Kjarrár.
Það er ekki leiðum að líkjast, en
ástæðan er augljós, Kjarrá á einn-
ig upptök í vötnum og tjörnum
Arnarvatnsheiðar og Tvídægru,
hefur alla sömu góðu kostina og er
ein mesta laxveiðiá landsins.
Það er ekki nóg með að fiski-
fræðingurinn hafi séð á athugun-
um sínum að lax muni þrífast vel í
Norðlingafljóti, heldur hefur það
þegar komið fram. Leigutakinn
Sigmar Helgason hefur fiutt lax í
ána síðustu ár og veiðin hefur ver-
ið að jafnaði um eða yfir 900 laxar
á 75 veiðidögum. Segir hann það
um það bil 75,5% þess fjölda sem
hann hafi sleppt í ána. Eftirlegu-
laxar hafa hrygnt í ánni og náð
góðum árangri þótt seiðaþéttleiki
sé ekki mikill og suma árganga
vanti. Segir Sigmar aukna laxveiði
ofarlega í Hvítá, hjá Stórási og
Bjarnastöðum trúlega stafa af
þessari hrygningu.
Sigurður Már segir í skýrslu
sinni að afrakstursgeta Norðlinga-
fljóts sé umtalsverð og mikilvægt
atriði sé að seiði í ánni nái sjó-
göngustærð á þremur árum sem
er mjög gott hér á landi. í skýrsl-
unni stendur: „Sé miðað við að
búsvæði Norðlingafljóts frá Ár-
mótum að Bjarnafossi (22 kíló-
metra frá ármótum) væru fullnýtt
með tilliti til hrygningar og seiða-
uppeldis, er áætlað samkvæmt
fyrrgreindu sambandi framleiðslu-
eininga og meðalveiði á laxi, að
Norðlingafljót gæti gefið af sér ríf-
lega 1000 laxa veiði að meðaltali.
Líklegt er þó að þessi tala geti
verið nokkru lægri, þar sem
Norðlingafljót er aðeins jökulskot-
ið og liggur mun hærra yfir sjáv-
armáli en búsvæði í viðmiðunarám,
þannig að hér er gert ráð fyrir að í
Norðlingafljóti gætu veiðst á bil-
inu 700 til 1000 laxar“
Síðar í skýrslunni er hugleiðing
um hvað svona lagað tæki langan
tíma: „Nokkur tími myndi líða þar
til sjálfbær stofn yrði til af þessari
stærð. Landnám lax á nýju lands-
svæði gerist yfirleitt ekki mjög
hratt. Til að flýta fyrir slíku land-
námi yrði að stunda mjög öflugar
sleppingar seiða í nokkur ár með
laxastofni sem er uppruninn við
svipaðar aðstæður. Bent er á að
stofn Kjarrár í Borgarfirði er sá
laxastofn sem ætti að henta best,
því árnar hafa uppruna af sama
landssvæði og eru hluti af vatna-
kerfi Hvítár.
Tilvist á sjálfbærum laxastofni í
Norðlingafljóti er háð því að fisk-
gengt væri i Norðlingafljót. Mögu-
leikar til þess felast einkum í því
að Barnafoss í Hvítá væri fisk-
gengur, en einnig eru möguleikar
á því að veita hluta Norðlingafljóts
í Litlafljót, sem fellur í Hvítá
skammt neðan við Barnafoss. Ef
Barnafoss í Hvítá væri fiskgengur,
myndu búsvæði í Hvítá og öðrum
þverám ofan við fossinn opnast og
gæti bleikjustofn Hvítár hugsan-
lega nýtt sér það þó þeir mögu-
leikar hafi ekki verið rannsakaðir."
Jarðgöng fyrir hreistraða
Þá er það spurningin hvernig
koma megi göngufiskum, laxi í
Norðlingafljót og bleikju upp fyrir
Barnafoss, og þar kom til kasta
Vífils Oddssonar hjá Teiknistof-
unni Óðinstorgi, en hann er í hópi
reyndustu verkfræðinga landsins
þar sem fiskvegir eru annars veg-
ar. Út í þá vinnu fóru menn vitandi
að vart fengist leyfi til að hrófla
við Barnafossi þar sem hann er
friðlýstur. Tveir kostir voru samt
fyrir hendi, annar að veita Norðl-
ingafljóti yfir hraunið og yfir í Lit-
lafljót sem rennur í Hvítá skammt
neðan við Hraunfossa og Barna-
foss eða, það sem aldrei hefur ver-
ið gert hér á landi, að leggja jarð-
göng fram hjá Barnafossi. Það er
ekki eins og hugmyndin hafi
skyndilega sprottið upp, Norð-
menn hafa nokkuð langa og góða
reynslu af fiskvegagerð í formi
jarðganga og er á fjórða tug fisk-
vega þar í landi jarðgöng.
I skýrslu sem Vífill hefur afhent
veiðiréttareigendum og er unnin af
honum og Sigurði Má fiskifræðingi
segir eftirfarandi um kosti og galla
fiskvegagerðar við Barnafoss.
Kostirnir fyrst: a) Öll búsvæði
Norðlingafljóts myndu nýtast til
framleiðslu á laxi. Ef aðrar leiðir
eru valdar, er hætta á að sá hluti
Fljótsins sem er neðan við veitu út
í Litlafljót, nýttist ekki til seiða-