Morgunblaðið - 16.04.2000, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000 29
Barnafoss í Hvítá.
framleiðslu nema að litlu leyti og
stofnstærð laxastofnsins myndi
minnka í réttu hlutfalli við skerð-
ingu búsvæða.
b) Nokkrir núverandi veiðistaðir
í Norðlingafljóti myndu ekki nýt-
ast, en fjöldi þeirra færi eftir stað-
setningu á Litla-Fljótsveitu.
c) Búsvæði í Hvítá og öðrum
Þverám ofan við Barnafoss myndu
opnast fyrir fiskframleiðslu og
veiði. Líklegt er að það myndi
einkum nýtast bleikju, en stór sjó-
bleikjustofn er í Hvítá neðan við
Barnafoss.
d) Engin hætta er á breytingum
á lindarrennsli til Hraunfossa.
e) Engar breytingar yrðu á
eignarhaldi og arði til landeigenda.
Gallar:
a) Kostnaður við framkvæmdina
er töluverður bæði við Barnafoss,
auk lagfæringar á hindrunum í
Hvítá og neðsta hluta Norðlinga-
fljóts.
b) Barnafoss er friðlýstur. Ekki
er vitað hvort leyfi fæst til fram-
kvæmda.
c) Vatnshiti er lágur í Hvítá
vegna mikils innstreymis á lindar-
vatni. Áhrif vatnshitans á göngu-
tíma lax og göngur lax um fiskveg
í Barnafossi eru óljós.
Á mynd sem þessari grein fylgir
má sjá hvernig Vífill hugsar sér að
göngin liggi. Þau eru býsna löng
þar eð mikill og ógnvænlegur
straumur er í gljúfrinu niður af
Barnafossi og innganga í göngin
þarf að koma til um 150 metrum
fyrir neðan fossinn. Vifill leggur
fram áætlunartölur um kostnað við
jarðgangagerðina og sækir þar
m.a. í smiðju Jónasar Frímanns-
sonar, verkfræðings hjá Istaki.
Tvær kostnaðaráætlanir eru upp á
58 milljónir sú dýrari og 38 millj-
ónir sú ódýrari. Munurinn liggur í
gerð göngubrautar til hliðar við
fiskveginn til viðhalds og eftirlits.
Er það dýrari kosturinn, en slíkri
braut er sleppt í ódýrari kostinum.
Þeir félagar nefna í leiðinni að
gerð hefðbundins laxastiga í
Barnafoss myndi kosta um 27
milljónir.
Ef þessi leið yrði farin, að gera
fiskveg með jarðgöngum við
Barnafoss þyrfti einnig að ráðast í
lagfæringar á öðrum fyrirstöðum
ofar á svæðinu. Skammt ofan við
Hraunsás er t.d. Halafoss í Hvítá.
Þar þarf að sprengja rauf í suður-
hluta fossins til að auðvelda upp-
gönguna. Kostar það um hálfa
milljón.
Um hálfum kílómetra fyrir neð-
an ármót Hvítár og Norðlinga-
fljóts er síðan Hundavaðsfoss, en
hæð hans er 2,6 metrar. Ekki er
fullkannað hvort þurfi að gera þar
fiskveg eða sprengingar þar sem
dæmi eru um að laxar ráði við enn
hærri fossa. En komi til aðgerða
við Hundavaðsfoss þyrfti að gera í
hann laxastiga upp á hálfu fimmtu
milljón króna.
Skammt ofan ármóta Hvítár og
Norðlingafljóts er Smiðjuásfoss í
Norðlingafljóti. í skýrslunni
stendur þetta um Smiðjuásfoss:
„Þetta er eina verulega hindrunin í
Norðlingafljóti þar til kemur að
Bjarnafossi, u.þ.b. 22 kílómetra
fyrir ofan ármótin. Heildarhæðar-
munur í Smiðjuásfossi er 4 metrar.
Fossinn er í nokkrum stöllum og
er fremur flúð en foss. Ef hann er
ekki þegar laxgengur, þá ætti að
vera hægt að gera hann laxgengan
með því að lækka nokkuð foss-
brúnina við austurbakkann.
Neðstu stailarnir eru um það bil
1,5 metrar á hæð og efri stallarnir
um það bil 2,5 metrar á hæð. Ef sá
stallur yrði lækkaður um 0,5 til 1,0
meter með sprengingum ætti foss-
inn að verða laxgengur. Kostnaður
við slíka aðgerð er áætlaður 1
milljón króna. Ef aftur á móti yrði
settur stigi í fossinn má áætla
kostnað við þá framkvæmd á um 7
milljónir króna.“
Hraunveitur og hitastig
Tvær aðrar leiðir hafa verið
nefndar, þ.e. að veita hluta Norðl-
ingafljóts í Litlafljót sem fellur í
Hvítá að norðanverðu fyrir neðan
gljúfrin sem hýsa Barnafoss og
hina frægu Hraunfossa, þar sem
kalt lindan'atnið sprettur út úr
hraunkantinum á löngu svæði og
fossar út í Hvítá.
Það eru bæði kostir og gallar við
hraunveituleiðirnar.
Kostnaður við hinar ýmsu út-
færslur hraunveitunnar er ýmist
hærri eða lægri heldur en jarð-
gangagerðin og meðal kosta við
hraunveiturnar er nefnt að hugs-
anlega gengi betur að fá lax til að
ganga upp Litlafljót heldur en um
fiskveg í Barnafossi vegna lágs
vatnshita í Hvítá neðan Barnafoss.
Mikið innstreymi lindarvatns er í
Hvítá á því svæði og mælingar á
vatnshita í Hvítá við Bjarnastaði,
nokkru neðar, síðasta sumar, sýna
að vatnshitinn er að hlaupa á bil-
inu 4 til 9 gráður og er afar oft í
kring um sex gráður. Þetta er
nokkuð kalt fyrir lax og hitinn fer
lækkandi er nær dregur Hraun-
fossunum sem valda þessum kulda.
Þeir Vífill, Sigurður Már og Sig-
mar eru allir sammála um að í
vatnshitanum liggi stærsta spurn-
ingarmerkið sem hangi yfir jarð-
gangagerðinni. Vífill sagði að á
ráðstefnu sem hann sat nýverið í
Noregi, þar sem fjallað var um
fiskvegagerð, hefðu sérfræðingar
talað um að við sex gráður breytt-
ist mjög athafnagleði laxa og þar
með göngugleði. Spurningum um
þetta verði þó varla svarað nema
með því að láta reyna á hlutina.
Það er að heyra á þeim félögum að
þrátt fyrir umrætt spurningar-
merki sé jarðgangagerðin fýsilegri
kostur heldur en hraunveitan, því
með hraunveitunni tapist stór og
góð búsvæði í Norðlingafljóti og
ekki sé víst að jafngóð eða betri
komi í staðinn í Litlafljóti. Fjöldi
veiðistaða myndi einnig hverfa og
arðskrármál yrðu flóknari.
í sumar halda rannsóknir og
undirbúningur áfram. Það styttist
í ákvarðanatöku.
Sunnudagar eru
fjölskyldudagar
Kringlan er opin á sunnudögum
og þar finna allir í fjölskyldunni
eitthvaá við sitt hæfi.
FLESTAR VERSLANIR
frá kl. 13.00 - 17.00
STJÖRNUTORG
skyndibita- og veitingasvæbiö
frákl. 11.00-21.00
alla daga.
Aðrir veitingastaðir og Kringlubíó
eru meó opið fram eftir kvöldi.
KríKCi(csj\
i> fl R SfM/flJflRTflfl 5 L If R