Morgunblaðið - 16.04.2000, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
SKOÐUN
jafnframt leita að auknu fjármagni
þaðan. Flest þessi fyrirtæki munu
fara á hausinn.
Síðasta setning mín kann að vekja
mikinn ugg hjá fólki, en í raun er
þetta lykillinn að öllu saman. I Silicon
Valley í Bandaríkjunum er það agn-
arlítið hlutfall af stofnuðum hátækni-
fyrirtækjum sem að lokum ná því að
verða skráð með þeim stóru á opin-
berum verðbréfamörkuðum. Flest
þeirra eru leyst upp eftir 1-2 ára
rekstur eða seld til stærri fyrirtækja.
Engu að síður er hagsæld fólks í Kís-
ildalnum sú mesta sem þekkist og
enginn atvinnulaus lengi. Hvernig
má það vera? Það er einfaldlega
vegna þess að þau fáu fyrirtæki sem
„meika það“ verða gríðarlega stór
mjög hratt, og staðreyndin að sú
þekking sem verður til í „misheppn-
uðum“ fyrirtækjum nýtist oftast aft-
ur í nýju formi annars staðar. En
komum nú aftur að íslandi.
Segjum að af þessum 30 fyrirtækj-
um sem styrkt voru, þá séu það ein-
ungis tvö sem nái því stigi að verða
raunveruleg alþjóðleg þekkingarfyr-
irtæki sem endi á því að fara á mark-
að erlendis. Mér þætti það afar ólík-
legt að samanlagt verðmæti slíkra
fyrirtækja væri undir 70 milljörðum
og að öllum líkindum væri það meira.
Hvað hefur þá áunnist? Jú, uppruna-
lega fjárfestingin er búin að skila sér
aftur, hugsanlega með arði á nokkr-
um árum. Á sama tíma hefur orðið til
stór stétt manna sem hefur það að at-
vinnu að virkja þekkingu sína og hef-
ur reynslu af að koma hugmyndum í
framkvæmd og leggjast í víking á al-
þjóðlegum markaði. Ætli eitt stykki
álver og virkjun hefði verið betri fjár-
festingarkostur? Ég hugsa ekki.
Og að lokum: hvernig kemur Netið
inn í þetta? Einsog ég reyndi að sýna
fram á með dæmi mínu um blessaða
kexið, þá snýst þekkingariðnaður
ekki endilega um tölvutækni. Til að
mynda munu flest þeirra nýju fyrir-
tækja sem verða að risum í gegnum
Netið ekki selja hugbúnað, heldur
einfaldlega vörur og þjónustu sem
menn þurfa og hafa alltaf þurft, til
dæmis bækur, lyf og samskipti.
Breiddin í þekkingu fólks sem þarf til
þess að slíkt sé mögulegt nær langt
út fyrir hið þrönga svið tölvutækn-
innar. Það sem gerir Netið að svo
áhugaverðum kosti fyrir fyrirtæki er
hinsvegar sá eiginleiki þess að vera
alþjóðlegur og skilvirkur miðill sem
er sérlega hentugur til að miðla
þekkingu, og eins og ég hef vonandi
sannfært ykkur um þá æskir þekk-
ingin einskis annars en að fá að
smjúga um allt og alla. Það eina sem
þörf er á er að færa Aþenu nokkrar
fómargjafír og hún mun skila þeim
margfalt til baka.
Höfundur er framkvæmdastjóri
rannstíknar- og þrtíunarsviðs
OZ.COM.
SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000 37
Spennið beltin
fýrir flugtak.
BMW 316
líMSg /
Að aka BMW 316 er engu líkt. Þessí tilfinning er afrakstur þrotlausrar vinnu
vísindamanna og færustu hönnuða sem hafa náð að tvinna saman vísindi
og ástríðu á einstakan hátt. Við bjóðum þér að komast á flug - í BMW 316.
BMW 316 kostar frá 2.250.000 kr.
Grjótháls 1
sími 575 1210
Engum líkur