Morgunblaðið - 16.04.2000, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000 41
ERLA
LÁR USDÓTTIR
+ Erla Lárusdóttir
fæddist í Reykja-
vík 11. nóvember
1935. Hún lést 8. jan-
úar síðastliðinn og
fór útfor hennar
fram frá Kotstrand-
arkirkju í Olfusi 18.
janúar.
Elsku mamma mín,
nú eru rúmir þrír mán-
uðir liðnir frá því þú
fórst svo snögglega frá
okkur. Það eru margir
sem sakna þín hér frá
Denver, eins og heima
á íslandi. Eitt af því sem þú kenndir
okkur systkinunum og þér fannst
mikilvægt, var að hjálpa þeim sem
áttu erfitt, enda varst þú alltaf að
hjálpa fólki sem kom til þín, bæði
skyldfólki og öðrum.
Ég er svo hrygg yfir því að hafa
ekki átt tök á að koma heim með
fjögur yngri bömin mín og leyfa
þeim að sjá þig í „Sigga Sveit“, þau
hefðu haft gaman af því. Kristín,
Shanda, Ashiey og Travis fannst svo
gaman þegar þú komst til Denver
síðast. Travis litli vissi að þegar hann
langaði í „nammi“, þá var amma allt-
af með eitthvað í pokanum fyrir
hann. Þegar þú hringdir í okkur frá
íslandi, var Travis litli oftast heima
og vildi segja „hæ,
amma hvað ertu að
gera“. Núna segja þau
öll að amma sé í himna-
ríki með Jögga langafa
og þau hafi það gott hjá
Jesú og Guði.
Mamma,
nú er komin þín hvíld og
ró,
af hjarta léttir þér.
Sofir þú nú djúpt og vært,
elsku mamma mín.
Magga og fjölskylda
í Denver.
Kveðið á Sandi
Yfir kaldan eyðisand
einn um nótt ég sveima.
Nú er horfið Norðurland,
núáéghvergiheima.
(KristjánJónsson.)
Ég man eftir þér sem mjög góðri
ömmu.
Ég man þegar þú komst hingað
einu sinni um jól, hvað við skemmt-
um okkur konunglega og hlógum
mikið.
Síðast þegar þú hringdir í okkur,
var ég sú eina sem var vakandi og
man ég hvert einasta orð sem þú
sagðir við mig. Þú fórst svo snögg-
lega frá okkur, þú munt alltaf vera í
hjarta mínu og í huga mínum.
Hvern einasta dag hugsa ég til þín
og ég er stolt og glöð að hafa átt þig
fyrir ömmu. Þú varst mín besta
amma. Ég veit þú munt alltaf vera
með okkur um ókomin ár.
Þín
Kristín Erla.
Það sem ég man um ömmu mína,
var að þú varst alltaf góð við okkur.
Hvert skipti sem þú komst hingað
til Denver, þá varst þú alltaf með
eitthvað handa okkur. Ég mun sakna
þín og mér fannst svo mikið vænt um
þig. Þótt ég hafi ekki alltaf skilið vel
það sem þú sagðir, þá bað ég
mömmu um að þýða það fyrir mig.
Ég kallaði þig alltaf ömmu, en ekki
,;grandma“, af því þú áttir heima á
Islandi.
Þín
Shanda Ann.
Amma, ég man eftir því að þú
varst alltaf svo góð við okkur.
Oft þegar þú komst hingað til okk-
ar, þá fórum við í búðir til að versla
m.a. handa krökkunum á íslandi, þá
gafst þú okkur alltaf eitthvað fallegt
líka. Ég man að þér fannst gott að fá
góðan bolla af kaffi með mömmu,
þótt mamma gerði kaffið ekki alltaf
nógu sterkt fyrir þig.
Ég man þig alltaf og sakna þín,
amma mín.
Þín
Ashley Marie.
ALMA ELISABET
HANSEN
+ Alma Elísabet
Hansen fæddist á
Siglufirði 20. júní
1935. Hún lést á
kvennadeild Land-
spítalans 22. mars
síðastliðinn og fór
útfór hennar fram í
kyrrþey.
Hún var fyrsta vin-
konan sem ég eignað-
ist. Við vorum sex ára
stelpur á Siglufirði -
bjuggum báðar við ást
og umhyggju í for-
eldrahúsum. Veröldin
var fjörðurinn okkar fagri um-
kringdur fjöllunum háu. í minning-
unni var lífið litríkt - sumrin heit
og sólrík og þó að hvítur snjórinn
setti flestallt í kaf á veturna, gaf
hann möguleika til margs konar
leikja og félagslífið blómstraði.
Hún var lágvaxin og grönn, ljós-
hærð og bláéygð, brosmild og blíð.
Samt bjó þessi netta kona yfir
ótrúlegum dugnaði og viljastyrk.
Mér er minnisstætt heimili Han-
senshjónanna, enda var ég heima-
gangur þar. Þau voru samhent
hjónin, Margrét og Rudolf, um að
búa börnunum fimm gott heimili.
Það var skemmtilegt og líflegt að
sækja þau heim, enda gestkvæmt
og átti tónlistin stóran þátt í því.
Börnin lærðu að spila á hljóðfæri
og sum þeirra höfðu það að ævi-
starfi að kenna þá leikn.
Við vorum samrýndar vinkon-
urnar og varla leið sá dagur að við
ekki hittumst. Okkur kom afar vel
saman, sennilega hefur ljúfa skap-
ið hennar Ölmu átt stóran þátt í
því. Við vorum nýbyrjaðar í skóla
þegar fjölskylda hennar ákvað að
flytja til höfuðborgarinnar. Mér
fannst veröldin hrynja, svo mikill
var söknuðurinn eftir vinkonunni
góðu. Ég man vel,
stuttu eftir að þau
vora farin, að ég stóð
á skólalóðinni, fannst
ég fjarska einmana,
horfði til fjallanna og
óskaði þess að Alma
kæmi fljúgandi yfir
þau til mín. Nokkrum
árum seinna fluttumst
við, eins og svo marg-
ir aðrir á þeim árum,
til Reykjavíkur og þá
tókum við upp þráð-
inn á ný. Hún bjó á
Nýlendugötunni, en
ég í Laugamesinu,
svo langt var að fara á milli. Ekki
voru bílar á heimilunum og gekk
strætó aðeins niður á Lækjartorg.
Við létura það samt ekki á okkur
fá, en fengum stundum að gista
hvor hjá annarri.
Leiðir okkar skildust, þegar ég
fluttist til annarrar álfu, en hún
fór til Þýskalands stuttu eftir stúd-
entspróf og nam fiðluleik og lista-
sögu, enda hafði hún yndi af öllu
því sem tilheyrði list. Öðru hverju
skrifuðumst við á og hún sendi
mér stúdentsmyndina af sér og
hana geymi ég vel. Þó að bréfa-
skriftir yrðu ekki miklar, slitnaði í
raun og veru aldrei vináttan.
Löngu seinna, þegar hún var orðin
veik, höfðum við samband aftur.
Þrátt fyrir veikindi sín, bar hún
mig og mitt fólk mikið fyrir brjósti
og minntist okkar í bænum sínum.
Alma var trúuð kona og bænheit.
Fyrir síðustu jól sendi hún mér
jólakort, þar sem hún bað mér og
fjölskyldu minni blessunar og
minntist með þakklæti áranna
löngu liðnu og einnig hinna þegar
við endurnýjuðum vináttuna. Nú
er hún farin, vinkonan góða, en
minningin um hana lifir og þakk-
lætið fyrir kærleika hennar og vin-
áttu. Eg og fjölskylda mín vottum
systrum hennar okkar innilegustu
samúð og biðjum þeim blessunar
Guðs.
Ebba Sigurðardóttir.
Móðir mín, + ÁSA ÞURÍÐUR GISSURARDÓTTIR,
er látin. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Ásbjörg Helgadóttir.
UTFARARSTOFAISLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður
Útfararstofan sér um stóran hluta af útförum á höfuðborgarsvæðinu og er samkvæmt
verðkönnun Mbl. með lægstu þjónustugjöldin v. kistulagningar og/eða útfarar.
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu.
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri.
sími 896 8242
Sverrir
Olseti
útfararstjóri.
Baldur Bóbó
Frederiksen
útfararstjóri.
sími 895 9199
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
+
Þökkum þeim fjölmörgu sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu í veikindum og við
andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
bróður, föður okkar, stjúpföður, tengdaföður
og afa,
MAGNÚSAR INGIMARSSONAR
hljómlistarmanns,
Hjarðarhaga 21,
Reykjavík.
Alúðarþakkir til lækna og starfsfólks á deild A-5, Landspítala í Fossvogi,
líknardeildar Landspítala í Kópavogi og Heimahlynningar Krabbameins-
félagsins, svo og til þeirra listamanna sem heiðruðu minningu hans með
hljóðfæraleik og söng við útför hans.
Ingibjörg Bjömsdóttir,
Ingibjörg Ingimarsdóttir, ' 1
Einar Ingi Magnússon, Sigrún Guðmundsdóttir,
Gunnar Magnússon, Maria G. Palma Rocha,
Sigrún Magnúsdóttir, Jón Helgason,
Ása Magnúsdóttir,
Ragnhiidur Magnúsdóttir, Hjörtur Kristjánsson,
Halldóra Viðarsdóttir, Jóhann Úlfarsson,
Kristín Viðarsdóttir,
Bjöm Leví Viðarsson, Ásta Lára Sigurðardóttir
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærrar dóttur minnar, móður okkar,
tengdamóður, systur, mágkonu og ömmu,
ÞÓRUNNAR RÖGNU TÓMASDÓTTUR,
Kleppsvegi 106,
Reykjavík.
Ólafía Guðbjörnsdóttir,
Ólafía Kr. Sigurðardóttir, Lúðvík R. Kemp,
Jónína G. Sigurðardóttir, Witek Bogdanski,
Bjöm Tómas Sigurðsson,
Rúnar Gunnarsson,
Guðmundur Tómasson, Elsa Elíasdóttir,
Sigurður Tómasson, Kristbjörg Þórarinsdóttir
og barnabörn.
r
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför eiginmanns míns, föður,
tengdaföður og afa,
HINRIKS ANDRÉSSONAR
frá Siglufirði.
Margrét Pétursdóttir,
Theodór óttósson, Ámý Elíasdóttir,
Jón Andrjes Hinriksson, Brynja Gísladóttir,
Ingibjörg Hinriksdóttir, Andrés Ragnarsson
og bamaböm.
I
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vináttu við andlát og útför ástkærrar móður
okkar og tengdamóður,
ÞÓRUNNAR EGILSDÓTTUR
húsmóður,
vistheimilinu Seljahlið,
áður Úthlíð 10,
Reykjavík.
Egill Ásgrímsson, Sigríður Lúthersdóttir,
Ragnheiður M. Ásgrímsdóttir, Guðbjartur Sigfússon,
Ásgrímur Þór Ásgrímsson, Marta K. Sigmarsdóttir,
Jóhann G. Ásgrímsson, Herdís Alfreðsdóttír.
+
Innilegt þakklæti til allra sem heiðruðu útför
VALGEIRS JÓNSSONAR
frá Ingólfsfirði.
Sérstakar þakkir til Jóns Þorsteinssonar,
söngfólksins og allra þeirra sem veittu mér
ómetanlegan stuðning.
Guð blessi ykkur öll.
Drottinn gefi dánum ró og hinum líkn sem lifa.
Helga Skaftfeld.