Morgunblaðið - 16.04.2000, Qupperneq 56
56 SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Með lík
bak við
hurð
Stefán Jörgen kemst varla fyrir í herberg-
inu sínu fyrir kynjaverum ýmsum, hræri-
vélum, höndum og hausum. Hildur Lofts-
dóttir reyndi að troða sér þangað inn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stefán Jörgen er að vinna að því að elda vin um nokkra áratugi,
Geimvera úr Oiko logos.
EG ER ekki sammála
Óskarsverðlaununum
hvað förðunina varðar.
Mér finnst Rick Baker
eiga þau skilið fyrir
myndina Life með Eddie Murphy
og Martin Lawrence," segir Stefán
jjjörgen Agústsson 23ja ára áhuga-
maður um þessi mál.
„A ensku heitir þetta „special ma-
ke-up effects“, en íslenska þýðingin
á því er misjöfn. Mér finnst fiottast
að segja tæknibrelluförðun, af því
að það er verið að blanda saman
brellum og förðun."
Og Stefán Jörgen veit um hvað
hann er að tala því hann hefur sjálf-
ur verið að farða leikara, búa til
grímur og brúður, og er auk þess að
kenna grundvallaratriði í gn'mugerð
í Förðunarskóla Islands. „Eg er að
l^enna þeim að smíða aukastykki í
andlit, mótleira, teikna og allt sem
þessu fylgir."
Stefán Jörgen hefur þegar fengið
nokkur stór verkefni ásamt aðstoð-
armanni sínum Sigurjóni Garðars-
syni við Myrkrahöfðingja Hrafns
Gunnlaugssonar, Oiko logos stutt-
mynd Rúnars Rúnarssonar og
Gríms Hákonarsonar og Latabæ
„og svo nokkur minni verkefni. Ég
bjó til gervisár fyrir myndina Popp í
Reykjavík og var aðstoðarmaður í
Stikkfrí, þar sem ég hjálpaði til við
að gera litlu stelpuna sjálflýsandi,“
segir Stefán Jörgen. Herbergið
hans Stefán Jörgens er vægast sagt
ótrúlegt einsog hálfóhuggulegur
ævintýraheimur; fullur af skrímsl-
um, blóðugum hausum og það liggur
meira að segja lík við hurðina!
Blaðamaður er þó hræddari við
risastóra dalmatíuhundinn sem vill
endilega koma með inn í herbergið,
en má það sem betur fer ekki.
„Ég hef alltaf haft áhuga á
þessu,“ rifjar Stefán Jörgen upp.
„Ég man að við afi vorum að líma
saman beinagrind með sílíkoni og
þá fannst mér þetta mjúka efni svo
skemmtilegt en þá var ég alltaf að
leira og föndra. Þegar ég var tíu ára
þráði ég af öllu hjarta að eignast
grímur einsog þær í kvikmyndun-
um; Svarthöfða og fleiri, og reyndi
að búa þær til, án þess að kunna
neitt, og með þrjóskunni varð ég
laginn.
Þegar ég er 15 eða 16 ára fékk ég
fyrstu bókina um brellugerð, en þar
sem ég kunni ekki að lesa ensku
skoðaði ég bara myndinar og rýndi í
hvaða verkfæri voru notuð og hvaða
aðferðum var beitt, og þannig hef ég
lært tæknibrelluförðun sem er aðal-
áhugamálið mitt í dag og mig langar
til að vinna við í framtíðinni.“
- Er þetta ekki frekar þrá-
hyggja?
„Jú, ég er alltaf að eins og sést á
herberginu mínu. Það eru ekki
margir sem myndu nenna að sofa í
fullu herbergi af drasli og kynjaver-
um, mótum, hausum og höndum. Ef
ég er ekki að gera eitthvað, er ég að
hugsa um það og pæla hvernig ég
geti gert þetta og hitt betur, reyna
að finna einhverjar nýjar aðferðir.
Ég ætlaði alltaf að verða upp-
finningamaður þegar ég var lítill og
þetta er mjög svipað því.“
Geimverur og dúkkur í þrívídd
Innan um afskorna hausa og
hendur leynast áhöld meistarans
eins og hrærivél, örbylgjuofn og
Skemmtun • menning • útivist • matur • hvíld
'V
Frábær páskastemmng á Hótel Örk dagana 19.-25. apríl
CJ-iJ
Njótið páskanna á ógleymanlegan hátt í
fögru umhverfi. Dagarnir líða við endur-
nærandi útivist; hestaferðir, vélsleðaferðir
eða gönguferðir. Á hótelinu er falleg
sundlaug og heitir pottar þar sem hægt er
*' að slaka vel á. Til að kitla bragðlaukana
verður haldin kynning á vínum og mat.
Frábær skemmtiatriði verða síðan öll kvöldin:
Bergþór Pálsson, Margrét Eir, Helgi Björns
og Jóhann Örn dansari. Furstarnir spila
fyrir dansi en þar eru innanborðs þeir Geir
Ólafsson, Karl Möller og Guðmundur
Steingrímsson. Bókanir og nánari upp-
lýsingar í síma 483 4700.
mciL
HÖHL
Hótel örk
Hveragerði
Sími 483 4700
ínjurJj/jnlir n
r í yerdsj/jjr
pbiinur /jJuíuíjj I Jí/j<j}y
IG VBrbur £i //joryu/j, /5
oy //jiíiyjJujdcJtj í
Á'jziíiniir-aíi 3.
lULTRY MOMENTS
isamt nýjum litum
KYNNIN(
"ðosturstræú 3