Morgunblaðið - 16.04.2000, Síða 57

Morgunblaðið - 16.04.2000, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000 57 FÓLK í FRÉTTUM Stefán Jörgen bjó til skrímslið úr myndinni Amerískum varúlfí í London. Hann ýtti inn hveiju einasta hári með þar til gerðri nál. loftpressa til að sprauta málningu á grímur og nota í mótagerð. „Hrærivélina nota ég til að hræra froðulatexið til að nota í grímur til að breyta andlitsfalli fólks. Það hef- ur verið notað mest í kvikmyndum. Ég geri afsteypu af leikaranum úr gifsi, leira síðan yfir það og bý til mót af því sem ég set froðulatex eða gelatín í og geri þannig grímu sem passar algjörlega á andlitið og þá getur leikarinn hreyft andlitið eðli- lega.“ - Ertu ekki kominn langt íþessu? „Það er fátt sem kemur mér á óvart lengur og ég hef lesið mér mjög mikið til.“ - Hvað gerðir þú í Myrkrahöfð- ingjanum? „Við Sigurjón unnum í tvo mánuði við myndina og gerðum drukknuðu konuna í vatninu, nokkur brennd höfuð, líkama til að henda á eldinn og líkið sem er á bak við hurðina. Þetta átti að vera náungi sem var búið að hengja, en var síðan ekki notaður. I Oiko lokos hjálpaði Sigurjón mér líka og þar gerðum við fimmtán grímur, og við unnum við það í tvö sumur. Það var mjög mikil vinna, en ég hannaði og gerði allar geimver- urnar, auk þess að sjá um förðunina. Svo vann ég með Guðmundi Kárasyni í fjóra mánuði við að smíða þrettán gúmmídúkkur fyrir Latabæ, sem var fin lífsreynsla." Skrímsli í uppeldinu - Hvort er skemmtilegra að hanna geimverur eða lík, eða fást við fólk og breyta því? „Mér finnst hvort tveggja jafn- spennandi og það er gott að geta skipt á milli upp á fjölbreytnina. Ef fæ ekki vinnu í sumar hér á landi, ætla ég að reyna erlendis. Mig lang- ar ekki í skóla. ég þarf bara enn meiri reynslu." - Er draumurinn að vinna með Rick Baker? „Já, að fá að vinna með frægustu köllum, Rick Baker og hitta Dick Smith. Hann er guðfaðir þessarar tegundar förðunar og fann upp fullt af aðferðum. Hann er afi allra tæknibrellu- og fórðunarkarla, en er hættur að farða og er að hjálpa ung- um mönnum að koma sér áfram og er með námskeið sem ég hef m.a. keypt.“ - Er þetta algjör karlagrein ? „Já, mér sýnist það. Ein frægasta forðunarkonan, Vanille, setur bara stykkin á, en býr þau ekki til. Fræg- ustu nöfnin eru allt karlar. Ég veit ekki af hverju. Ætli það hafi ekki með uppeldið að gera. Strákar eru aldir upp við það að „fíla“ skrímsh og ógeð, á meðan stelpurnar eru í barbíleik. En annars er ég að kenna núna fjórum stelpum sem sýna að þær hafa hæfileika og það gæti vel orðið eitthvað úr þeim.“ NO NAME ----COSMETICS---- Snyrtivöru- kynning Þriójud. 18. apríl Miðvikud. 19. apriT Silla Make Up Studio Lyf og heilsa Firóinum, Hafnarfirði Melhaga 20-22 kl. 14-1» kl. 13-17 Miðvikud. 19. apríl Silla Make Up Studio, Firðinum, Hafnarfirði, kl. 14-18 FÖRÐUNARFRÆÐINGUR NO NAME veitir ráðleggingar Viitu skyggnast inn í heim Netsins? Netið er nýtt sérblað sem fylgir Morgunblaðinu annan hvern miðvikudag. í Netinu er að finna fullt af fréttum, greinum, viðtölum og fróðleik um Netið. . >. Skilafrestur auglýsingapantana f næsta blað er til kl. 16.00 þriðjudaginn 18. apríl. Sími: 569 1111 * Brétsími: 569 1115’ Netfang: augl@mhl.is INGÓLFSSTRÆTI 5 • 101 REYKJAVÍK • S í M I 551 5080 GOTT fðU McCANN-EltlCICSON ■ SlA ■ 10156

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.