Morgunblaðið - 16.04.2000, Qupperneq 64
ViÐSiUPTAHUGBÚNAOtW
A HEÍMSMÆiJKVAfíÖA
NÝHERJI
S: 569 7700
MORGUNBLAÐW, KRINGLUNNl 1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREWSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTII
SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Morgunblaðið/Golli
Þingvallavatn losnar úr klakaböndum
VORBOÐARNIR birtast nú hver
á fætur öðrum í náttúrunni, eftir
þvi sem sólin hækkar á lofti og
dagurinn lengist. Sést munur dag
frá degi. Þingvallavatn er nú óð-
um að brjóta af sér klakabönd
vetrarins og ísflekar af öllum
stærðum og gerðum fljóta um
vatnið, eins og myndin sem Ijtís-
myndarinn tók á flugi yfir sumar-
húsabyggð í Grafningnum ber
með sér.
Ung kona í Keflavík lést af völdum
áverka eftir bitvopn í fyrrinótt
Tvítugur piltur
grunaður um
verknaðinn
ÞRÍR karlmenn um og yfir tvítugt
voru í haldi lögreglunnar í Keflavík í
gær vegna láts nítján ára stúlku þar í
bæ í fyrrinótt.
Klukkan 4:35 aðfaranótt laugar-
dags barst lögreglunni í Keflavík til-
kynning um að ung kona væri með
alvarlega áverka eftir bitvopn á
heimili sínu í Keflavík. Konan var
flutt með sjúkrabifreið á Landspítal-
ann í Fossvogi þar sem hún lést
skömmu síðar.
Lögreglan handtók í gærmorgun
tvítugan mann sem kom á heimili
hinnar látnu þá um morguninn. Er
hann grunaður um að hafa veitt
stúlkunni umrædda áverka í gleð-
skap á heimili hennar um nóttina. Þá
voru tveir karlmenn aðrir handtekn-
ir vegna málsins sem hugsanleg
vitni.
Þegar Morgunblaðið fór í prentun
í gærdag stóð yfir vettvangsrann-
sókn og undirbúningur að fyrirtök-
um. Þórir Maronsson, yfirlögreglu-
þjónn, sagði að rannsókn málsins
miðaði vel.
---------------
Þota í innan-
landsflugi
ÞOTA var notuð í flugi í gærmorgun
á milli Akureyrar og Reykjavíkur.
Allt flug lá niðri seinnipart föstudags
og á Akureyri biðu hátt í 250 farþeg-
ar í gærmorgun. Flugfélagið sendi
því 150 manna þotu til Akureyrar,
ásamt einni Fokkervél, og lenti þot-
an í Keflavík í gærmorgun en Fokk-
ervélar fóru til annarra áfangastaða.
Sala KEA á hlutabréfum í Húsasmiðjunni
Haldið upp á sextugsafmæli Margrétar Danadrottningar
Hagnaðist um
hálfan milljarð
KAUPFÉLAG Eyfirðinga hagnað-
ist um hálfan milljarð króna með
sölu á 20% hlut sínum í Húsasmiðj-
unni, að því er fram kom í máli Ei-
ríks S. Jóhannssonar kaupfélags-
stjóra á aðalfundi félagsins sem
ldinn var í gær.
Vesturlína
dattút
RAFMAGN fór af á öllum Vestfjörð-
um, nema Hólmavík og nágrenni, á
föstudagsmorgun þegar vesturlína
Landsvirkjunar datt út.
Rafmagnsleysið varði ekki lengi
þar sem keyrt var áfram á vararaf-
magni. Sölvi Sólbergsson, starfs-
maður Orkubús Vestfjarða, sagði í
gærmorgun að vesturlínan hefði orð-
ið fyrir skemmdum í Gufudal, líklega
af völdum talsverðs hvassviðris þar á
T&studag.
Viðgerðarmenn héldu í Gufudal
strax og bilunarinnar varð vart og
tókst þeim að koma línunni í lag síð-
degis á föstudag.
Húsasmiðjan keypti á síðasta ári
byggingavörudeild KEA á Lóns-
bakka og eignaðist KEA við það 20%
hlut í Húsasmiðjunni hf. Hlutabréfin
voru seld Islandsbanka fyrr á þessu
ári og nam söluhagnaður KEA um
hálfum milljarði króna.
Viðræður við Skagfirðinga
Eiríkur greindi frá því á fundinum
að innan tíðar myndi Kaupfélag Ey-
firðinga gefa út nýtt greiðslukort í
samvinnu við Visa ísland. Um verð-
ur að ræða eins konar tryggðarkort
og er markmiðið með útgáfu þess að
tengja félagsmenn KEA með við-
skiptalegum hætti við félagið sem og
að örva viðskipti, en handhöfum
kortsins munu bjóðast margvísleg
hagstæð kjör hjá verslunum félags-
ins.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson
stjórnarformaður sagði á fundinum
að viðræður hefðu að undanfömu
staðið yfir milli forsvarsmanna fé-
lagsins og Kaupfélags Skagfirðinga
um samvinnu þessara tveggja kaup-
félaga og væri einlægur vilji til þess
að auka samstarf þeirra á næstu
misserum.
Nýr spennandi fjárfestingakostur
ÍKT
Ibsí;
BUNAÐARBANKINN
VERÐBRÉF
Forseti gefur silfur-
skjöld með frétt um fæð-
ingu drottningar
ISEXTUGSAFMÆLI Mar-
náttúru og allt hvflir þetta svo
á góðu íslensku grjóti."
grétar Danadrottningar í dag
mun forseti íslands, Olafur
Ragnar Grímsson, færa henni
að gjöf silfurskjöld sem fréttir
Morgunblaðsins af fæðingu
hennar og skím hafa verið
grafnar í. Skjöldurinn styðst
við tvær súlur sem einnig em
úr silfri og standa á grágrýtis-
steini. Gripurinn er gerður af
Guðbrandi J. Jezorski gull-
smiði.
„Þegar ég fór að hugleiða
hvað gefa ætti Margréti
drottningu á þessum tímamót-
um, þá var nokkur vandi á
höndum því bæði hún, Qöl-
skylda hennar og ætt öll eiga
margt stórra gripa," segir
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
seti íslands, í samtali við
Morgunblaðið af þessu tilefni.
„Þá kom mér í hug að kanna
með hvaða hætti íslensk blöð
hefðu greint frá fæðingu
hennar og skírn og þegar
Morgunblaðinu var flett kom í
ljós ansi skemmtileg frétt í
blaðinu í aprfl 1940. Fyrst
greindi blaðið frá fæðingu
prinsessu í Danmörku, fyrsta
barns ríkisarfans Friðriks konungs
og Ingiríðar krónprinsessu, með
mjög skemmtilegri mynd af Ingi-
ríði. Nokkru síðar greindi blaðið
frá því að litla stúlkan hefði auk
nafnsins Margrét verið skírð ís-
Ienska nafninu Þórhildur.
Margrét var að sjálfsögðu á
þeirri tíð íslensk prinsessa eins og
dönsk og þegar ég sá hvernig blað-
ið greindi frá þessum viðburði mót-
aðist með mér sú hugmynd að fá ís-
lenskan gullsmið til þess að kanna
Skemmtilegt verkefni
Guðbrandur J. Jezorski
gullsmiður segir að hugmynd-
in að afmælisgjöfinni hafi
komið frá forsetanum og síð-
an þróast þeirra í milli þar til
endanleg útfærsla lá fyrir.
Hann segir að starfsmenn
Morgunblaðsins hafi stækkað
fréttina upp og síðan hafí
hann fengið fyrirtæki í Þýska-
landi til að grafa hana á silf-
urskjöldinn með geislatækni.
Umrædd frétt birtist í
Morgunblaðinu 17. aprfl 1940
og bar fyrirsögnina: Ingiríður
prinsessa eignaðist dóttur í
gær. Fréttin um skím Mar-
grétar birtist síðan í blaðinu
25. maí.
Guðbrandur segist aldrei
hafa gert neitt þessu líkt, en
verkefnið hafi verið skemmti-
legt og haxm segist ánægður
með útkomuna.
„Ég vona að drottningin á
afmæli sínu kunni að meta það
að fá í hendur silfurslegna
þessa frásögn Morgunblaðsins
af fæðingu hennar og skírn,“ segir
Ólafur Ragnar, „og skilji það sem
vináttuvott og virðingu okkar ís-
lendinga, bæði gagnvart henni og
fjölskyldu hennar. Mér finnst einn-
ig skemmtilegt að Ingiríður drottn-
ing, sem á myndinni í Morgunblað-
inu birtist sem glæsileg móðir, skuli
nýlega hafa haldið upp á 90 ára af-
mæli sitt.
Það verður gaman að sýna þeim
báðum þennan grip og þessa frá-
sögn,“ segir forseti íslands.
Morgunblaðið/Jim Smart
Afmælisgjöf forseta Islands til Margrétar
Danadrottningar.
það fyrir mig hvort hægt væri að
greypa fréttina í silfur, óafmáan-
lega, og gera í kringum það um-
gjörð sem minnti á Island.
Það ánægjulega er að Guðbrandi
Jezorski hefur tekist að leysa þetta
á skemmtilegan hátt, með því að
beita nýjustu geislatækni til þess að
fella fréttina inn í silfrið þó að hún
líti út fyrir að svífa á fletinum. I
kringum fréttina eru súlur, eins-
konar öndvegissúlur, sem í litadýrð
minna á margbreytileika íslenskrar