Morgunblaðið - 05.05.2000, Side 1
STOFNAÐ 1913
TBL. 88. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Livingstone
spáð yfír-
burða sigri
London. Morgunblaðið.
KOSNINGASPÁR á tólfta tímanum
í gærkvöldi spáðu Ken Livingstone
sigri í borgarstjórakosningunum í
London, reyndar með aðeins 42% at-
kvæða í fyrsta sæti, en 51% í fyrsta
og annað. Samkvæmt sömu spám
hafði Ihaldsflokkurinn náð því marki
að vinna 400 sveitarstjórnarsæti,
sem var talið ótvírætt merki um að
flokkurinn væri að styrkjast. Kosn-
ingaþátttaka var aðeins 27%.
Ken Livingstone lét í sjónvarps-
viðtali í gærkvöldi í það skína að
hann muni láta sverfa til stáls milli
sín og ríkisstjórnarinnar um málefni
neðanjarðarlestanna í London. Pá
AP
Coulthard til
Spánar
BRESKI kappakstursmaðurinn
David Coulthard, sem slapp með
minniháttar meiðsl er þota sem
hann hafði tekið á leigu brotlenti í
Lyon í Frakklandi í byrjun vikunn-
ar, sést hér við komuna til Barce-
lona í gær. Coulthard tekur þátt í
Spánarkappakstrinum á sunnudag.
Hann ræddi í gær í fyrsta skipti við
fjölmiðla um flugslysið, en báðir
flugmenn vélarinnar létu lifíð.
Coulthard, vinkona hans og þjálfari
sluppu hins vegar lítið meidd og
gátu þau klifrað út úr braki vélar-
innar eftir að nauðlending mis-
tókst.
kvaðst Livingstone vilja vinna að
sigri Verkamannaflokksins í næstu
þingkosningum, en Keith Hill, sem
fer með málefni London, sagði sömu
reglur gilda um Livingstone og aðra,
honum hefði verið vikið úr flokknum
til fimm ára og þar við sæti.
Meirihluti með frjálslyndum
Af 25 sætum í borgarráði London
stefndi í að Verkamannaflokkurinn
fengi 8-10, íhaldsflokkurinn 7-9,
frjálslyndir 4-6 og grænir 3. Verka-
mannaflokkurinn ætti því að geta
myndað meirihluta með frjálslynd-
um og þannig haft hemil á Living-
stone.
Miðað við atkvæðatölur á lands-
vísu var hlutur Ihaldsflokksins 37%,
sem er það hlutfall sem flokkurinn
fékk í síðustu aukakosningum.
Verkamannaflokkurinn hlaut 30%
og Frjálslyndir 28%.
Reuters
Uppblásnar blöðrur af frambjtíðendum fyrir embætti borgarstjtíra London. Kosningamar fóru fram í gær og
var þetta í fyrsta skipti sem kosið er um embætti borgarstjtíra. Óháði frambjtíðandinn, Ken Livingstone, þykir
líklegastur til að bera sigur úr býtum, en blaðran lengst til hægri á myndinni er í líki Livingstones.
95.000 félagar norska alþýðusambandsins í verkfalli
Hert skal á verk-
fallsaðgerðum
Ósld. Morg-unblaðiO.
NORSKA alþýðusambandið sam-
þykkti í gær að herða enn frekar á
verkfallsaðgerðum í alvarlegasta
verkfalli sem komið hefur til í land-
inu sl. 14 ár. Um 85.000 launþegar
eru nú þegar í verkfalli og nk. þriðju-
dag munu 10.000 manns til viðbótar
leggja niður vinnu.
Við þær aðgerðir mun um 30% af
fiskútflutningi Norðmanna til
Evrópu stöðvast, auk þess sem
áhrifa verður vart í áfengissölu,
pappírsframleiðslu, hótelrekstri og
jafnvel hjá íþróttafélögum.
„Aiþýðusambandið ætlar sér að
valda slíkum usla að vinnuveitendur
neyðist til að setjast að samninga-
borðinu og leggja fram nýjar tillög-
ur,“ sagði Yngve Hágesen, formaður
alþýðusambandsins. Sambandið hef-
ur þó gætt þess að fara ekki yfir
strikið þannig að sérstakri launa-
nefnd verði falið að blanda sér í mál-
ið. Teljist verkfallið hins vegar stéfna
lífi og heilsu fólks í hættu kann til
þess að koma. Dagblaðið Aftenpost-
en lýsti hertum verkfallsaðgerðum
vegna þessa sem „varkárum.“
Nú þegar hafa verkfallsaðgerðirn-
ar áhrif á flugumferð, eldsneytis-
vinnslu, ferjusiglingar og dagblaða-
útgáfu. Olíuvinnsla er hins vegar enn
í gangi og hefur dráttarbátum verið
veitt undanþága til að aðstoða olíu-
skip. Fjölgi síðan þeim launþegum
sem í verkfalli eru mun það einnig
hafa áhrif á fiskútflutning, nokkrar
greinar matvælaiðnaðarins, ferða-
iðnaðinn og starfsmenn í pappírs-
framleiðslu. Stöðvist pappírsfram-
leiðslan kann það að hafa enn
víðtækari áhrif á norska blaðaútgáfu
en orðið er.
Sænskir kaupmenn fagna
Þótt verkfallið valdi miklum afföll-
um í atvinnulífinu segir Aftenposten
það ekki torvelda líf hins almenna
borgara svo nokkru nemi. Skortur á
ferjusamgöngum kunni þó að valda
ýmsum erfiðleikum.
Sænskir kaupmenn eru sagðir
ánægðir. Tómar hillur norskra versl-
ana hafi það nefnilega £ för með sér
að margir Norðmenn leiti nú yfir
landamærinn til Svíþjóðar til matar-
innkaupa.
Skæður tölvuvírus dreifír sér með örskotshraða um heim allan
New York, Washington. AP, AFP.
,ÁSTARTÖLVUVÍRUSINN“ svo-
kallaði fór eins og eldur í sinu um
tölvukerfi heimsins í gær. Hann
olli miklum usla hjá fyi-irtækjum
og stofnunum í Evrópu, Bandaríkj-
unum og Asíu og var snemma í
gærkvöldi talið að tæplega 1,3
milljónir tölva hefðu smitast og
þurfti m.a. að loka tölvukerfi neðri
deildar breska þingsins um tíma.
Vírusinn telja tölvusérfræðingar
í Hong Kong vera kominn frá
Filippseyjum. Hann fór á kreik að-
faranótt fimmtudags og ferðaðist
með örskotshraða um heim allan í
formi tölvubréfa merktra ILOVE-
Yfír milljón
tölvur smitaðar
YOU. Vírusinn margfaldaði sig síð-
an í hvert sinn við það að tölvubréf-
in voru opnuð, sendi póst á önnur
netföng í netfangaskrá tölvunnar
og lokaði fyrir annan póst.
Loka þurfti tölvupóstkerfum
Hvíta hússins, bandaríska varnar-
málaráðuneytisins og Bandaríkja-
þings um tíma vegna tölvubréfa
sem innihéldu „ástarvfrusinn." Þá
varð tölvukerfi danska þingsins
einnig fyrir skaða sem og fjar-
skiptafyrirtækið Tele Danmark,
sjónvarpsstöðin TV2 og danska
umhverfis- og orkuráðuneytið.
Það voru einkum fjármálafyrir-
tæki, eða fyrirtæki á sviði al-
mannatengsla sem urðu fyrir barð-
inu á vírusnum. Dow Jones
fréttaþjónustan í Asíu og asíska út-
gáfa dagblaðsins Wall Street
Journal voru þeirra á meðal. Þá
varð einnig að loka tölvupóstkerfi
um 30% breskra fyrirtækja um
tíma og í Svíþjóð náði þessi tala
80%.
Vírusinn byggist á öryggisgalla í
Outlook-tölvupóstforritunum. Veir-
an er skrifuð á Visual Basic Script-
forritunarmálinu og treystir á
svokallaða fjölvakeyrslu í Micro-
soft-forritum.
■ Útbreiddasti/2
Hyggjast
einrækta
útdautt
pokadýr
Sydney. AP, AFP.
ÁSTRALSKIR vísindamenn
sögðust í gær hafa fundið arf-
bera útdauðrar dýrategundar,
tasmaníuúlfsins, og ætla að
endurskapa hana með nýjustu
tækni á sviði einræktunar.
Tasmaníuúlfur, rándýr af
gokaúlfaætt, var algengur í
Ástralíu og lifði síðast á Tasm-
aníu. Síðasta þekkta dýrið náð-
ist lifandi árið 1933 en drapst í
dýragarði þremur árum síðar.
Vísindamennirnir náðu DNA-
sýnum úr pokaylfingi og telja
líklegt að hægt verði að ein-
rækta dýrið, en pokaylfingur-
inn fannst í geymslu á safni í
Ástralíu fyrir ári.
Einn vísindamannanna, Don
Colgan, sagði þá telja að í sýn-
unum væru nógu margir arf-
berar nánast allra gena tasm-
aníuúlfsins til að hægt yrði að
einrækta hann. Næsta skref
væri að rannsaka og flokka arf-
berana og stefnt væri að því að
einrækta dýrið innan nokkurra
ára. Frumukjarni úr ylfingnum
yrði þá settur í eggfrumu ann-
ars dýrs, líklegast tasmaníu-
skolla, pokadýrs sem liflr nú
eingöngu á Tasmaníu.
Colgan sagði að ef tilraunin
tækist væri líklega hægt að ein-
rækta mörg önnur útdauð dýr.
MORGUNBLAÐK) 5. MAI 2000
690900
090000