Morgunblaðið - 05.05.2000, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 05.05.2000, Blaðsíða 71
' MÓktíUNBLAÐÍÐ FÖSTÚDAGUR 5.' MÁÍ 2ÖÓ0 BREF TIL BLAÐSINS * 1 Persónufrelsið mörgum myndum Frá Hákoni H. Kristjónssyni: EINHVERNTÍMANN í svartasta skammdeginu í vetur fékk ég þá flugu í höfuðið að gaman væri nú að eiga mynd af krökkunum í gamla, góða D-bekknum í Gamla barnaskól- anum. Ég labbaði mig því niður á 1’ryggvagötu og síðan inn í Borgar- tún og spurðist fyrir í ljósmynda- söfnunum sem þar eru hvort ekki væru til bekkjarmyndir úr Miðbæj- arbarnaskólanum frá árunum kring- um 1938 og hvort ekki væri hægt að fletta í gegnum ljósmyndasöfnin hjá þeim og leita. Nei, hvorugur staður- inn hafði haft mannskap eða peninga til að vinna skipulega við myndasöfn- in og einnig var mér sagt að ekki væri hægt að leyfa hverjum sem væri að skoða myndasöfnin, en mér var bent á að um fleiri myndasöfn væri að ræða þar sem ég gæti spurst fyrir um þetta. Ég hafði á orði að nú væri hver síðastur að finna fólk sem líkindi væru til að gæti þekkt ein- hverjar manneskjur á þessum gömlu myndum. Margir væru dánir og aðr- ir sjóndaprir eða ruglaðm og því væri þeim varlega treystandi. Af ein- hverjum óskiljanlegum ástæðum missti ég áhugann á þessu enda mundi ég, eftir á að hyggja, ekki til að hópmynd hefði nokkurntíma verið tekin af D-bekknum mínum. Af lestri blaða undanfarið sé ég líka að það er hinn mesti misskilningur minn að nokkur fróðleikur sé fyrir komandi kynslóðh- að vitað sé, hvaða fólk er á gömlum myndum og það er auðvitað hin mesta frekja og dónaskapur gagnvart grandalausum að hnýsast með þessu móti inn í einkamál lát- inna og lifandi. Þessvegna skulum við gæta þessa menningararfs okkar á þann hátt (til þess að enginn móðg- ist), að sem fæstir sjái hann. Birta hann alls ekki fyrr en öruggt er að allir séu dauðir og grafnir sem mögulegt er að áætla að geti þekkt fólkið á myndunum. Það er því hið versta mál að birta þessir myndir á Netinu eins og einhver vildi. Enda yrði sú myndbirting öll í skötulíki. Ja hérna, þetta má nú æra óstöðugan. Maður skyldi aldrei ofmeta persónu- frelsið eða vanmeta persónufrelsið eða hvernig á að segja þetta. Annað mál skylt: Þeir sem fara niður á Lækjartorg, hvort sem er að nóttu eða degi, og hvort sem þeir fara í siðsamlegum tilgangi eða til að djöflast þar, eiga auðvitað allir jafna heimtingu á að myndum úr eftirlits- myndavélunum sem þar eru, sé eytt með reglulegu millibili. Og sá sem er á móti því að þessar myndavélar séu þama ætlar sér örugglega að af- þakka það að lögreglan noti mynd- irnar úr þeim myndavélum til að finna þann sem á hann (alsaklausan) kynni að hafa ráðist, ef hann fyrir einskæra, mjög ósennilega tilviljun lenti í því að upp á hann væri abbast þarna í Kvosinni. En auðvitað verður að ítreka enn og aftur að mjög litlar líkur era til að á slíkan mann yrði ráðist í miðbænum. Meira um sama mál: Sama er um þá sem notfært hafa sér sinn prívat og persónulega einkarétt til að vera ekki með í gagnagrunninum marg- fræga hans Kára. Sá er örugglega svo stór persóna í sniðum, að honum dettur ekki í hug að láta læknast af hugsanlegum meðfæddum eða áunn- um kvillum sínum fyrir tilstuðlan tækni eða þekkingar sem byggist á vitneskju, sem safnað hefur verið í gagnagrunninn. Oft sparar leiður sem ljúfum var ætlað. En auðvitað er þessum hópi ekki hættara við að veikjast en öðrum. Það nýjasta í bransanum er DNA- bankinn, sem settur er til höfuðs þjóðlegum og alþjóðlegum glæpon- um. Auðvitað eiga krimmarnir ásamt öllu öðru góðu fólki heimtingu á að öllum upplýsingum um þá sé eytt innan tiltekins tíma svo ekki verði hægt að tengja þá í nýjum málum við eldri mál, ef þeir voru ekki sakfelldir þá. Ég sé hins vegar möguleika á að allt venjulegt fólk vilji vera skráð í þennan upplýsingabanka til að fyrir- byggja að böndin berist að þeim og þeir verði ekki fyrir óþarfa umstangi af hálfu lögreglu, ef upp koma mál sem það að öðrum kosti gæti hugsan- lega tengst. HÁKON H. KRISTJÓNSSON, Hverfisgötu 16a, Reykjavík. SJALFSDALEIÐSLA MEIRA SJALFSORYGGI Námskeið/einkatímar, sími 694 5494 Næsta námskeið hefst 9. maí Með dáleiðslu getur þú sigrast á kvíða og ójafnvægi og aukið getu þína og jákvæða uppbyggingu á öllum sviðum. Hringdu núna Leiðbeinandi: Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur Gömlu dansarnir í Hreyfilshúsinu í kvöld kl 22.00—02.00. Félag harmonikuunnenda Ný sending Buxur - Pils - Jokkar - Toppar Sundbolir - Inniskór Amerískar Verðdæmi Queen: Verð áður kr. Jf02.'|5tT Nú kr. 87.000 Alþjóðasamtök Chiropractora mæla með King Koil heilsudýnunum. Skipholti 35 • Sími: 588-1955 Hverfisgötu 50 O Sími 551 5222 Hættu að raka á þér fótleggina! Notaðu One Touch háreyðingarkrem! Sársaukalaus ogfljótleg aðferð sem skýrir vinsældir One Touch á Íslandi 112 ár. 1 'VT\ .JSíLí ON€@ TOUCH Svo einfalt er það Rúllið kreminu yfir hársvæðið og strjúkið það síðan afmeð rökum þvottaklút. (Sjá leiðbeiningar.) Húðin verður mjúk, ekki hrjúf! One Touch er ofnæmisprófað Margra ára reynsla segir sína sögu! Fæst t apótekum og stórmörkuðum. Sensitive .fyfir viðkvæma húð Regular jrir veni <egul fyrit &a Bikini Mr svæði STOFNAÐ VínHússins) Er gfrillvíniá tilkúið ! »v Víngerðarversíunin Jín! Opiá: Mán.-Fös.: 10:00-18:30 • Lau.U:00-14:00 * Armúla 23 -108 Reykjavík - Sími: 533 3070 - Fax: 533 3071 Gæðavara á góáu verði Líttu við, skoðaðu úrvalið og fáðu faglega ráðgjöf! PAVOURIT^ PagJeg fjónusta - Frábær vara 'vne- Fremstir síáan 1959 M
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.