Morgunblaðið - 05.05.2000, Blaðsíða 28
moA.ifl’/urmoK
MORGUNBLAÐIÐ
iS 0002 IAM ð flUOAaiJTRÖfl
28 FÖSTUDAGUR 5. MAI 2000
LISTIR
MEÐ tónleikunum í kvöld lýkur öðru
starfsári Ricos Saccanis sem aðal-
hljómsveitarstjóra Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands. „Ég hlakka mikið til
að fá aftur tækifæri til að vinna með
„maestro“ Rico,“ segir Erling Blön-
dal Bengtsson og kveðst hafa spilað
með honum einu sinni áður. Það var
árið 1996, þegar hann minntist 50 ára
tónleikaafmælis síns með því að leika
einleik með Sinfóníuhljómsveitinni.
„Við Rico eigum það sameiginlegt að
hann stundaði nám við háskólann þar
sem ég kenni núna,“ heldur Erling
áfram, en hann hefur síðastliðin tíu
ár verið prófessor við Tónlistarhá-
skóla Michigan í Ann Arbor.
„Báðir eru konsertamir sem ég
mun leika á tónleikunum, Rococotil-
brigði Tsjajkovskíjs og Sellókonsert
Saint-Saéns, meðal hornsteina selló-
tónbókmenntanna. Og reyndar spil-
aði ég þá báða á fyrstu tónleikum
mínum á íslandi, sem haldnir voru í
Gamla bíói á vegum Tónlistarfélags-
ins árið 1946. Þá spilaði faðir minn
með á píanó. Síðan hef ég spilað báða
konsertana mörgum sinnum með
Sinfóníuhljómsveit íslands, nú síðast
Rococotilbrigðin á tónleikaferð
hljómsveitarinnar á Austurlandi fyr-
ir nokkrum árum,“ segir hann. En
ekki nóg með það, hann hefur líka
hljóðritað þá báða á geisladisk ásamt
Arthur Rubinstein-fílharmón-
íuhljómsveitinni í Lodz í Póllandi.
ísafjarðarferð og upptökur
með Kammersveitinni
Eriing hyggst slá margar flugur í
einu höggi i þessari íslandsheim-
sókn. A morgun heimsækir hann
heimabæ móður sinnar, ísafjörð, og
leikur þrjár einleikssvítur eftir Bach
á tónleikum í ísafjarðarkirkju. „Ég
hlakka mjög mikið til að koma vestur
en því miður verður þetta mjög stutt
heimsókn að þessu sinni. A sunnu-
daginn fer ég beint suður aftur til
þess að taka upp með Kammersveit
Reykjavíkur sellókonsert vinar míns,
Atla Heimis Sveinssonar, Erjur, sem
við frumfluttum á tónleikum Kam-
mersveitarinnar í Salnum í Kópavogi
í janúar á síðasta ári.“ í upptökumar
fara þrír dagar en í lokin hyggjast
Erling og eiginkona hans, Merete,
eiga tveggja daga frí og heimsækja
Líkar vel þegar
flugfreyjan segir
„velkomin heim“
Á efnisskrá tónleika Sinfóníuhljómsveitar íslands í Háskólabíói í
kvöld kl. 20 eru Rococotilbrigði Tsjajkovskíjs og Sellókonsert og
Orgelsinfónía Saint-Saens. Einleikari í tveimur fyrrnefndu verk-
unum er sellóleikarinn góðkunni Erling Blöndal Bengtsson. I sam-
tali við hann komst Margrét Sveinbjörnsdóttir að því að hann spil-
aði bæði verkin á tónleikum í Gamla bíói aðeins þrettán ára að
aldri, en það voru fyrstu tónleikar hans hér á landi.
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Erling Blöndal Bengtsson og Rico Saccani á æfingu í Háskólabíói.
ættingja og vini. Starfi hans íylgja
eðlilega mikil ferðalög og á seinni ár-
um hefur Merete oftast fylgt honum
á tónleikaferðum. „Núna get ég gert
það, þegar maður er ekki lengur með
lítil börn,“ segir hún og hlær þegar
hún er spurð hve gömul „börnin"
þeirra eru orðin. „Þau eru 36 og 40
ára,“ segir hún. „Það voru mörg ár
sem hún gat ekki ferðast með mér,
svo nú erum við að vinna þau upp,“
segir eiginmaðurinn ánægður. Hún
segir Islandsferðirnar vera í algjör-
um sérflokki en hún kom hingað
fyrst árið 1959. „Það er svo yndislegt
þegar flugvélin lendir og flugfreyjan
segir í hátalarakerfinu: „Velkomin
heim.“ Það líkar mér vel,“ segir Erl-
ing Blöndal Bengtsson, sem er Is-
lendingur að einum fjórða.
Samvinna við tengdadóttur
Þegar hann er beðinn að segja
undan og ofan af því hvað hann hefur
verið að gera upp á síðkastið og hvað
sé framundan kemur í ljós að það er
æði margt. „Ég er t.d. nýbúinn að
vera með tónleika í Rockefeller-há-
skólanum í New York. Svo var ég í
Danmörku fyrir um mánuði, þar sem
ég lék einleik með Dönsku útvarps-
hljómsveitinni á 75 ára afmælistón-
leikum hennar. Þeir höfðu komist að
því að ég er sá tónlistarmaður sem
hefur lengst manna verið í tengslum
við hljómsveitina, en ég spilaði fyrst
með henni árið 1947. Þetta voru mjög
hátíðlegir og skemmtilegir tónleikar,
Margrét drottning var viðstödd og
þeir voru sendir beint út í danska
sjónvarpinu. Eftir mánuð tek ég svo
þátt í þriðja heimsmóti sellóleikara
sem haldið verður í Baltimore. Þang-
að koma sellóleikarar frá öllum
heimshornum, hittast og halda tón-
leika og masterklassnámskeið. Ég er
viss um að það verður mjög gaman.“
Fyrir utan tónleikahald og kennslu
hefur Erling gert mikið af því á síð-
ustu árum að leika inn á geisladiska,
nú síðast með tengdadóttur sinni,
sem er rússneskur píanóleikari og
heitir Nina Kavtaradze. „Nú erum
við t.d. nýbúin að taka upp disk með
Brahms-sónötum fyrir selló og píanó
og í sumar tökum við upp verk eftir
Prokofieff, Debussy og Samuel Bar-
ber,“ segir hann.
Tenging Hallgrímskirkju og Háskólabíós
Mynd- og hljóðflutningur í báðar áttir
Pípuorgel
Hljóðnemar
Myndavél
Oigel-
lelkarl
□
Móttaka
Sendir
*
- Ljósleiðari -
- Ljósleiðari -
Móttaka
Sendir
Myndvarpi
Sýningartjald
Magnara-
kerfi
Myndavél
Sinfóníuhljómsveitin
f f f f f fl
Stjömandinn
I Magnarakerfi
Hallgrímskirkja
Hljóðnemar
Háskólabíó
Orgeltónar fluttir úr Hall-
grímskirkju í Háskólabíó
Tónleikar Erlings
Blöndals Bengtsson-
ar í Isafjarðarkirkju
SINFÓNIUHLJÓMSVEITIN hefur
tekið ljósleiðaratæknina íþjónustu
sma og mun flytja orgelleik Harðar
Áskelssonar úr Hallgrírnskirkju yf-
ir í Iláskólabíó þar sem hljómsveitin
undir stjóm Ricos Saccanis leikur
ásamt Herði Sinfóniu nr. 3 í c-moll
op. 78, öðru nafni Orgelsinfóníuna,
eftir Camille Saint-Saéns.
Hljóð og myncjverða flutt um
Ijósfeiðara og munu orgeltónamir
hljóma úr hátölurum og mynd af
Herði við orgelið verður varpað á
breiðtjald að baki hljúmsveitinni á
sviði Háskóiabíós. Organistinn mun
einnig sjá hljómsveitarstjórann á
skjá fyrir framan sig í kirkjunni. Á
meðfylgjandi skýringarmynd frá
Landssímanum má sjá hvernig hljóð
og mynd er flutt. Umsjón með verk-
efninu hafa hljóðtæknimcnn frá
EXTON, Rfldsútvarpinu, Landssím-
anum og Háskólabíói.
f tónleikaskrá segir að þótt Saint-
Saéns hafi samið yfir 300 hljóm-
sveitarverk, þar á meðal fimm
píanókonserta, tvo fiðlukonserta og
sellókonsertinn sem lcikinn verður
á tónleikunum í kvöld, auk fjöhla
forleikja og tónaljóða, þá hafi hann
einungis samið þrjár sinfóníur, tvær
þeirra áður en hann varð myndug-
ur, 21 árs gamall. Þriðju sinfóniuna
hafi hann hins vegar samið rúmlega
fimmtugur, árið 1886, og telst hún,
ásamt sumum píanúkonsertunum,
til hans merkustu verka.
Ennfremur segir í tónleikaskrá:
„Yfirbragð þriðju sinfóníunnar er
vissulega rómantískt og má þar
rekja margt til hugmyndaheims
Franz Liszt, sem hún var reyndar
samin til minningar um. Grunnur
hennar er klassískur, sumir myndu
segja íhaldssamur ímeira lagi. Hún
er í tveim aðalhlutum sem báðum
má skipta í tvennt. Fyrri hlutinn er
klassrskur stór fyrsti þáttur í c-moll,
sem leiðir yfir í hátíðlegt Adagio.
Seinni hlutinn hefst á skertsói sem
sver sig allnokkuð í Beethovenætt-
ina og stigur siðan upp í magnaðan
en virðulegan lokaþátt í C-dúr.
Hijómsveitarskipunin er all-
óvenjuleg fyrir sinn tíma'því tón-
skáldið notar hér orgel og píanó
sem leikið er fjórhent á. Orgelið
kemur fyrst til sögunnar í upphafi
annars kafla í fyrri hlutanum (poco
adagio) og gegnir þar vissulega
áhrifamiklu og sjálfstæðu hlut-
verki. Sama má segja um upphafið á
lokakaflanum en þar, eins og í
skertsóinu, á píanóið stóran þátt í
að skapa glæsilegan hljóm. Það var
félagsskapurinn London Philharm-
onic Society sem pantaði verkið hjá
tónskáldinu og var sinfónían frum-
fluttþar í borg 19. maí 1886.“
ERLING Blöndal Bengtsson leik-
ur þrjár einleikssvítur eftir
Johann Sebastian Bach í heimabæ
móður sinnar, ísafirði, á morgun,
laugardag, kl. 17. Tónlistarfélag
ísafjarðar stendur fyrir tónleikun-
um, sem verða í Isafjarðarkirkju
og eru fjórðu áskriftartónleikar fé-
lagsins á starfsárinu.
„Erling er af ísfirsku bergi brot-
inn, móðir hans hét Sigríður Niel-
sen, fædd og uppalin á Eyrinni,
dóttir Sophusar Nielsen, kaup-
manns og bæjargjaldkera á ísa-
firði. Sophus var mikill áhugamað-
ur um menningarmál og hafði
forgöngu um að kaupa orgel-harm-
óníum í Eyrarkirkju, hið fyrsta í
kirkjunni, árið 1874. Hann átti
sæti í byggingarnefnd, þegar
gamla barnaskólahúsið var byggt
1901, sat í mörgum fleiri nefndum
og var m.a. einn helsti stuðnings-
maður bókasafnsins á ísafirði.
Sophus eignaðist 23 börn og hvíla
margir afkomenda hans ásamt
honum og konu hans í gamla
kirkjugarðinum á ísafirði.
Erling Blöndal Bengtsson hélt
sína fyrstu tónleika á Islandi árið
1946, aðeins 13 ára gamalt undra-
barn. Hann lék ásamt föður sínum
á tónleikum í Gamla bíói í Reykja-
vík og síðan á ísafirði. Erling kom
síðast til ísafjarðar haustið 1996
og lék þá einleik með Sinfón-
íuhljómsveit Islands til að minnast
50 ára tónleikaafmælis síns. Hann
varð mjög hrifinn af móttökunum
á ísafirði og ísfirsku tónlistarlífi
og lét í ljós ósk um að koma og
leika þar aftur,“ segir í fréttatil-
kynningu frá Tónlistarfélagi ísa-
fjarðar.
Á tónleikunum í Isafjarðar-
kirkju leikur Erling Blöndal
Bengtsson þau verk sem hann er
hvað þekktastur fyrir, þ.e. ein-
leikssvítur Bachs fyrir selló, nr. 2,
3 og 5. „Hann hefur gefið út yfir
50 hljómplötur en hefur hlotið sér-
stakar viðurkenningar fyrir leik
sinn á einleikssvítum Bachs.
Margir telja þær með því merk-
asta, sem mannsandinn hefur
skapað á sviði tónlistar, og er hér
því einstakt tækifæri að heyra þær
fluttar af slíkum listamanni," segir
ennfremur í fréttatilkynningunni.
----------------
100 raddir
á tónleikum
SVÍF þú blær nefnast tónleikar
sem haldnir verða í Kópavogskirkju
á morgun kl. 13.30 og í Grindavík-
urkirkju kl. 17. Um er að ræða vor-
tónleika þriggja kóra ásamt nem-
endum Söngseturs Estherar Helgu.
Kórarnir eru Regnbogakórinn,
samkór frá Reykjavík; Léttur sem
klettur; starfsmannakór Rauða
kross Islands; Brimkórinn, samkór
frá Grindavík. Alls eru þetta um
100 söngraddir sem flytja íslensk
og erlend sönglög ásamt syrpu úr
Sister Act II og Gospel. Stjórnandi
er Esther Helga Guðmundsdóttir.
Undirleikari er Hreiðar Ingi Þor-
steinsson.