Morgunblaðið - 05.05.2000, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 05.05.2000, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2000 37 LISTIR Nær öldungis ruglaður drengur Burt- fararpróf frá FÍH ÞÓRA Passauer sóprau heldur burtfarai-prófstón- leika í klassfekum söng í sal Tónlist- arskóla FÍH í Rauðagerði 27 í kvöld, föstudag- skvöld, kl. 20. Flutt verða verk eftir Grieg, Al- fvén, Sigfus Einarsson, Jórunni Viðai’, Bi-ahms, Strauss, Tchaikovsky, Mus- sorgsky og Gerschwin. Þóra hóf nám við Söngskólann í Reykjavik þar sem kennarar hennai’ voru Valgerður J. Gunnarsdóttir og Guðmundur Jónsson. Hún hélt áfram námi við Tónlistarskóla FÍH hjá Jó- hönnu Linnet haustið 1997. Keimarar Þóru í vetur hafa verið Björk Jónsdótt- ir og Þóra Fríða SæmuncLsdóttir. Með- leikari hennar á tónleikunum er Þóra Fríða Sæmundsdóttir. Þetta eru jafn- framt fyrstu burtfararprófstónleikar- nir í klassfekum söng frá skólanum. -------------------------- ixyjar DæKur • NAFNABÓKIN okkar er skrá yfir öll leyfileg, íslensk mannan- öfn um síðustu áramót, um 2.500 talsins. Þá er átt við þau nöfn sem nú má nota við nafngjafir. Þessari nafnaskrá í bókinni fylgja fræðilegar skýringar á uppruna og merkingu nafnanna, en þær annaðist Olöf Margrét Snorra- dóttir, BA í málvísindum, starfs- maður Orðabókar Háskóla fs- lands, og naut við það leiðsagnar dr. Guðrúnar Kvaran, for- stöðumanns Orðabókarinnar. I fréttatilkynningu segir að þetta sé eina bókin þessarar tegundar sem komið hefur út síðan 1991 og sú eina sem er með nær tæmandi skrá yfir lögleyfð mannanöfn, en ný mann- anafnalög tóku gildi í byijun ársins 1997. í bókinm eru einnig skrár um eiginnöfn sem hefur verið hafnað af mannanafnaneftid síðan þá, um ai- menn leyfileg millinöfh og slík nöfn sem hafnað hefur verið, og um al- gengustu nöfnin á nokkrum tímabil- um. Þá eru í bókinni raktar helstu reglur um nafngjafir eftir gildandi lögum og lögin sjálf birt. Ennfremur segir: „Gildandi mann- anafnalög frá ársbyijun 1997 fela í sér ýmsar breytingar frá eldii lögum. Nefna má að umsóknir um ný nöfn á nafnaskrána eru einfaldar í fram- væmd. Þá var söðlað um í afstöðu til nafnabreytinga nýrra ríkisborgara með erlend nöfti. Þeir geta haldið nöfhum sínum og þeir sem áður hafa orðið að taka uþp íslensk nöfh geta fengið þeim breytt í upphafleg nöfti.“ Utgefandi er Islendingasagnaútgáf- an ehf. / Muninn bókaútgáfa. Bókin er 170 síður. Ritstjóri er Herbert Guðmundsson. Verð: 3.480 kr. LEIKLIST Lcikfélag Sauðárkróks NÖRD NÆR ÖLDUNGIS RUGLAÐUR DRENGUR Eftir Larry Shue. Leikstjóri Guðjón Sigvaldason. Félagsheimilið Bifröst,Sauðárkróki, 30.4. ÞAÐ má færa rök fyrir því að sæluviku Skagfirðinga fylgi hlátur og gleði ásamt menningaraukum af ýmsu tagi. Leikfélag Sauðárkróks hefur að þessu sinni valið að sinna hinu fyrrnefnda hlutverkinu og láta menningaraukann í hendur annarra á þessari sæluviku. Verkefni þeirra, NÓRD er bandarískt að uppruna var reyndar leikið hér af Ladda, Gísla Rúnari og Eddu Björgvins ásamt fleirum fyrir hálfum öðrum áratug eða svo á Hótel íslandi. Nokkur til- raun hefur verið gerð til að færa verkið fram til dagsins í dag með til- vísunum ýmiss konar en í leiðinni hefur gleymst að þar sem útgangs- punktur verksins er að Nördinn var stríðshetja í Víetnam og bjargaði þar lífi annarrar aðalpersónunnar þá væru þeir orðnir nokkuð aldraðri, nú þrjátíu árum síðar en raun ber vitni. Ekki verður við öllu séð. Nördinn, Rick Steadman, kemur í heimsókn og sest upp hjá Will sem á erfitt með að neita lífgjafa sínum um nokkuð. Rick reynist ótrúlega leiðin- legur, en er mesta gæðablóð inni við beinið og eftir að hafa lagt líf Wills snyrtilega í rúst leysist farsællega úr málunum eins og vera ber. Leikritið stendur nánast og fellur með frammistöðu þess sem fer með hlutverk Nördsins. Styrmir Gíslason stendur sig framúrskarandi vel, er óþvingaður og öruggur í hlutverkinu og nær góðum tökum á kómískum HINIR árlegu vortónleikar Lúðra- sveitar Verkalýðsins verða haldnir í Vélamiðstöð Reykjavíkurborgar að Skúlatúni 1 á morgun, laugardag kl. 13:30. A efnisskránni kennir ýmissa grasa en ákveðið samræmi er milli verkanna, sem leikin eru fyrir hlé og þeirra sem leikin eru eftir hlé. Flutt möguleikum þess. Ekki spillir útlitið, sérsmíðaður tanngarður og nauðra- kað höfuðið hjálpa til við að skapa sérkennilega persónu. Styrmir er greinilega góðum leikhæfileikum gæddur og heldur uppi leiksýning- unni án vandkvæða. Aðrir leikendur þurfa að hafa sig meira við þar sem ekkert hinna hlut- verkanna býður upp á mikil tilþrif í gamanleik; eru öllu heldur eins kon- ar stuðningsmenn þess eina leikara sem leikur Nördinn. Hann á alla brandarana. Feðgarnir Sigurður Freyr Emilsson og Arnar Þór Sig- urðsson standa sig ágætlega og Unnur Eygló Bjarnadóttir skapaði skemmtilega manngerð úr móður- inni taugaveikluðu. Þá eru Guð- brandur J. Guðbrandsson, Sigurlaug Vordis Eysteinsdóttir og Sigurður Halldórsson ágætlega með á nótun- um og halda vel á sínu. Ekki var laust að manni fyndist að leikstjórinn hefði mátt stytta lengstu samtalskaflana sem eni nokkuð end- urtekningasamir og bæta engu við. Sýningin verður fyrir vikið í lengsta lagi og gæti sem hægast hafa verið allt að hálftíma styttri. Þá hefði leik- stjórinn að ósekju mátt leggja sig meira fram við að skapa léttari stemmningu um sýninguna með vali á tónlist á milli atriða og fyrir sýn- inguna; gefa skýrar upp boltann um að hér sé ósvikið gamanleikrit á ferð- inni. Það er galli á annars greinar- góðri leikskrá að þýðanda verksins er hvergi getið og hefur þetta nánast verið frekar regla en undantekning í leikskrám að sýningum þeirra áhugaleikfélaga sem undirritaður hefur fengið í hendur í vetur. Að öðru leyti er þetta vel fram- bærileg sýning og á vafalaust eftir að skemmta Skagfirðingum það sem eftir lifir Sæluviku og jafnvel lengur. verður m.a. tónlist eftir Suppé, Bach, Holst, og A. L. Webber en einnig verður frumfluttur á íslandi nýr mars, sem pantaður var af norska menningaiTáðinu, eftir stjómanda sveitarinnar, Tryggva M. Baldvins- son. Aðgangur er ókeypis. Hávar Sigurjónsson Lúðrar hljóma í Vélamiðstöðinni Guðmundur Hermannsson úrsmiður "Tír Antikklukkur frá 18. og 19. öld. Margt fágætra safngripa. Sérhæfð viðgerðarþjónusta á klukkum og úrum. Ath! Er fluttur frá Laugavegi í Bæjarlind 1, Kópavogi. Upplýsingar í sima 554 7770 www.ur.is. Opið laugardag og sunnudag. Hreinlætis- tæki a da O I* dl HÚSASMIDJAN Sími 525 3000 • www.husa.is IVIBIA - RUSSELL ATULETIC - CÖLUMBIA - RUSSELL ATHLEI'IC - COLUMBIA - RUSSELL ATHLETIC - COLUMBIA - RUSSELL AU ILETIC - COLUMBIA - RUSSELL ATHLLH'IC - CQLUMBIA - RUSSELL ATHLETIC nRUSSELL ' ATHLETIC ♦Columbia Sportswear Company* Aðeins brot af úrvalinu... HREYSTI ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL ---Skeifunni 19 - S. 568 1717- www.hreysti.is Netverslun með fæðubótarefni á betra verði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.