Morgunblaðið - 05.05.2000, Page 63

Morgunblaðið - 05.05.2000, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2000 G3'» GREINARGERÐ Morgunblaðið/RAX fær landbúnaðarráðherra marghátt- aðar heimildir. Ef ekki fæst fjár- magn til nauðsynlegra girðinga verða bændur ekki látnir gjalda þess, vottunaraðili verður að sækja lögg- ildingu til ráðherra og ráðherra skip- ar úrskurðarnefnd um ágreinings- mál. Ljóst er að hin margvíslegu hlut- verk landbúnaðarráðherra sem hon- um eru falin við framkvæmd landnýtingarþáttar gæðastjórnunar- innar fara ekki saman og má því telja að honum sé framselt of mikið vald. Tilgangur gæðastýringar I frumvarpinu er kveðið á um að beingreiðslur til sauðfjárbænda skuli á fimm síðari árum samningsins lækka um 22,5%. Skerðingarfénu á svo að úthluta aftur á grundvelli gæðastýiingarinnar. Petta er henn- ar hlutverk. Menn skyldu ætla að með gæðastýringunni væri fundin leið til að vernda landið þar sem sár- ast kann að brenna. Svo er þó aldeilis ekki því nýtingu landsins eru ekki sett nein sérstök takmörk með gæða- stýringunni. Fræðilega má finna rök fyrir því að þessi beiting gæðastýr- ingarinnar verki í þveröfuga átt. Með skerðingu beingreiðsla án þess að annað komi á móti þrengist hagur þeirra sem fyrir verða. Fremur en að skerða kost heimilishaldsins mun verða leitast við að draga úr aðföng- um til reksturs þeirra búa sem gæða- stýringin lækkar um 22,5% af tekjum sínum, þ.e. þeirra beingreiðsla sem þeir áttu rétt til áður. Landið verður að gefa meh-a og álag á það eykst. Þótt einkennilegt megi virðast hef- ur þó gleymst við þá samningsgerð sem hér er verið að lögleiða að borg- arar eiga að búa við réttaröryggi og það gildir jafnt um sauðfjárbændur sem aðra og hvort heldur sem þeir eða störf þeirra kunna að vera gæða- stýringunni þókanleg eða ekki. En grundvallaratriði er að tilurð gæða- stýiingarinnar er ekki lögákveðin og fullkbmlega má draga í efa að fram- kvæmd hennar standist stjórnarskrá íslenska lýðveldisins, þar sem svo er fyrirmælt að allir skuli vera jafnir að lögum. Hér er því eindregið lagt til við landbúnaðarnefnd Alþingis að úr verði bætt og þá á grundvelli eftir- farandi tillagna. Breytingartillögur í kjölfar samnings um framleiðslu sauðfjárafurða sem gerður var árið 1995 voru lögtekin ákvæði í IX. kafla laga nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, til staðfestingar á samningnum. Nú hefur verið gerður nýr samningur sama efnis og hefur landbúnaðarráð- herra lagt fram frumvarp til breyt- ingar á IX. kafla laga nr. 99/1993 til samræmis við hann. I 37. gr. núgildandi laga segir ein- faldlega: „Frá og með 1. janúar 1996 verður beingreiðslumark sauðfjár- afurða 1.480 millj. kr. á almanaksári og skiptist hlutfallslega eins milli lögbýla og heildargreiðslumark sauðfjár verðlagsárið 1995/1996 gerði. Þá segir í 1. mgr. 39. gr. lag- anna: „Beingreiðsla greiðist úr ríkis- sjóði til handhafa í samræmi við greiðslumark lögbýlisins eins og það er á hverjum tíma. Beingreiðsla skal vera 3.734 kr. á hvert ærgildi á ári.“ Réttur bónda til beingreiðslu sam- kvæmt núgildandi lögum er því skýr og ótvíræður og tekur einungis mið af þvi ef greiðslumark flyst milli lög- býla skv. þröngum heimildum í 4. mgr. 38. gr. laganna eða ákvörðunar ráðheiTa um árlegt ásetningshlutfall eða of mikið beitarálag. Þessi ákvæði munu að mestu vera óbreytt og eru því ekki gerð að sérstöku umtalsefni hér. I frumvarpi því sem landbúnaðar- ráðherra hefur lagt fram í þingskjali nr. 855 er gert ráð fyrir því að beingreiðslur til rétthafa í samræmi við greiðslumark lögbýlis verði 1.740 milljónir kr. á ári og skiptist fyrst í stað hlutfallslega milli framleiðenda, eins og beingreiðslur gera á þessu ári, en taki síðan breytingum til sam- ræmis við uppkaup ríkisins og einnig frá árinu 2003 til samræmis við álagsgreiðslur á gæðastýrða fram- leiðslu sem getið er um í nýgerðum sauðfjársamningi. I 5. gr. frv. er lagt til að að bein- greiðslumarkið verði 1.740 millj. kr. á ári en taki mið af framsali greiðslu- mai-ks, uppkaupum ríkisssjóðs og skilyrði um gæðastýrða framleiðslu. 17. gr. frv. er lagt til að 1. mgr. 39. gr. orðist þannig: „Beingreiðslur greiðast úr ríkis- sjóði til handhafa í samræmi við greiðslumark lögbýlis eins og það er á hverjum tíma. Beingreiðslur skulu vera 4.399 kr. á hvert ærgildi á ár- unum 2001 og 2002 en lækka árlega eftir það miðað við framangreinda fjárhæð sem hér segir: Árið 2003 um 12,5%, árið 2004 um 15%, árið 2005 um 17,5%, árið 2006 um 20% og árið 2007 um 22,5%.“ Ákvæðið felur þannig í sér skerð- ingu á beingreiðslum úr ríkissjóði en á undanfömum árum hafa þær num- ið fastri greiðslu. Ljóst er að bein- greiðsla á hvert ærgildi verður 22,5% minni árið 2007 en hún var árið 2002 ef löggjafinn samþykkir þetta ákvæði. Þá kemur til sögunnar 9. gr. frv. sem breytir 41. gr. laganna. Þar seg- ir: „Sauðfjárframleiðendur sem á ár- unum 2003-2007 uppfylla skilyrði um gæðastýrða framleiðslu samkvæmt reglum sem landbúnaðarráðherra setur í reglugerð eiga rétt til sér- stakra álagsgreiðslna úr ríkissjóði. Álagsgreiðslur skulu greiddar af uppkaupaálagi, sbr. 5. mgr. 38. gr„ og af þeim fjármunum sem bein- greiðslur lækka um skv. 1. mgr. 39. gr. Álagsgreiðslur skulu greiddar fyrir tiltekna gæðaflokka dilkakjöts samkvæmt ákvörðun landbúnaðar- ráðherra að fengnum tillögum fram- kvæmdanefndar búvörusamninga. Álagsgreiðslur geta að hámarki numið 100 kr. á hvert kg dilkakjöts.“ Þannig gerir frumvarpið ráð fyrir því að tekjur sauðfjárbænda séu skertar verulega með ákvörðun löggjafans en jafnframt gefur lög- gjafinn sauðfjárbændum óljósa von um að þeir geti aukið tekjur sínar eitthvað með því að „uppfylla skilyrði um gæðastýrða framleiðslu sam- kvæmt reglum sem landbúnaðarráð- herra setur í reglugerð". Víðtæka reglugerðarheimild til handa land- búnaðaiTáðherra er svo að finna í 10. gr. frv. Það er umhugsunar- og áhyggju- efni að löggjafanum skuli ætlað að skerða tekjur sauðfjárbænda með svo íþyngjandi og afdráttarlausum hætti sem 7. gr. frv. kveður á um en um leið er honum ætlað að framselja allar ákvörðanir um hvaða skilyrði þessir sömu bændur þurfa að upp- fylla til þess að geta aukið tekjur sín- ar skv. 9. gr. fi-v. Ljóst er að sauðfjár- samningurinn byggist á tveimur viljayfirlýsingum frá 11. mars sl. um gæðastýrða sauðfjárrækt og um mat á landnýtingu vegna gæðastýringar- þáttar í samningi um framleiðslu sauðfjárafurða. Ekkert er fast í hendi um útfærslu gæðastýringar- innar og framkvæmd verkefnisins hefur ekki hafist. Þrátt fyrir að sérstök áætlun um uppbyggingu gæðastýringar í sauð- fjárrækt liggi til grundvallar getur löggjafinn ekki byggt á svo veikum grunni við mismunun milli sauðfjár- bænda. Til þess eru ekki enn for- sendur og lög verða að vera þannig úr garði gerð að þau séu skýr og ótví- ræð, sérstaklega þegar um íþyngj- andi ákvarðanir er að ræða. Því er lagt til að frumvarpinu verði breytt á þann veg að: 1. Úr 1. málsl. efnismgr. 9. gr. falli brott orðin „ samkvæmt reglum sem landbúnaðarráðherra setur í reglu- gerð“ og jafnframt að 3. málsl. efnis- mgr. falli brott, en hann er svohljóð- andi: „Álagsgreiðslur skulu greiddar fyrir tiltekna gæðaflokka dilkakjöts samkvæmt ákvörðun landbúnaðar- ráðherra að fengnum tillögum fram- kvæmdanefndar búvörusamninga." 2.10. gr. frv. falli brott. 3. Við frv. bætist ákvæði til bráða- birgða, svohljóðandi: Landbúnaðarráðherra leggur fyr- ir Alþingi eigi síðar en 1. mars 2002 frumvarp til breytingar á IX. kafla laganna með nánari ákvæðum um greiðslumark lögbýla, beingreiðslur, framkvæmd og tilhögun þeirra, frá- vik frá ásetningshlutfalli, jöfnunar- greiðslur, álagsgreiðslur, kaup ríkis- sjóðs á greiðslumarki, aðilaskipti að greiðslumarki o.fl. Með samþykkt þessara breyting- artillagna tryggir löggjafinn sauð- fjárbændum það réttaröryggi að framkvæmd gæðastýringar, og þær ákvarðanir sem af henni leiða, verði ákveðin í lögum í stað þess að fram- selja þá ákvörðun framkvæmdavald- inu. Úm greiðslur úr ríkissjóði er að ræða sem hafa verið lögákveðnar hingað til. Því hlýtur löggjafinn að hugsa sig tvisvar um áður en hann framselur vald sitt á þann hátt sem fyrirliggjandi finmvarp landbúnað- arráðherra gerir ráð fyrir. En auk þessa myndi af þessum breytingum leiða að óvissa um lagalega stöðu þessara mála væri ekki lengur fyrir hendi, öll vinna við undirbúning og framgang þeirra yrði skilvirkari og nákvæmari og það sem orkar tví- mælis í þessu frumvarpi óbreyttu myndi ekki lengui- valda áhyggjum meðal sauðfjárbænda. Landbúnaðamefnd Alþingis em færðar þakkir fyrir að hafa sent Framleiðnisjóði landbúnaðarins þetta mál til umsagnar. Með því hef- ur undirritaður, sem skilar hér sér- áliti, átt þess kost að koma þeim mik- ilvægu tillögum á framfæri við nefndina sem að framan em greind- ar. Með góðum kveðjum og ósk um velgengni í störfum. DfCLCOS P A 8 I S hrífandi heimur! fegurð, slökun og uppbygging Decleor-snyrtivöruKnan er leið- andi merki á heilsusetrum og SPA-stöðum um allan heim. Hún hefur slakandi áhrif, er örvandi, nærandi, grennandi, vatnslosandi og byggir upp húðina á sérstakan hátt vegna þess að hún er unnin beint úr náttúrunni. Nú er um að gera að grípa tækifærið og gera það sem við köllum GÓÐ KAUP! föstud. 9-18 laugard. 10-17 Sunnud. 13-17 TSfmi581-2275 m 560-5375» Fax 568-5275 .tokuvD $%&*****' 0Á\- " Hja okkureru Visa- og Euroraösamningar ávisun á stadgreidslu Armúla 8 - 108 Reykjavik Kynning verður á Decleor- snyrtivörullnunni þriðjudaginn 2. maí til föstudagsins 5. mal I Planet Esju, Suðurlandsbraut 2 (Hótel Esju), annari hæð, milli kl. 20.00 og 22.00. Þeir sem koma á kynninguna geta fengið frlan prufutlma á Planet Esju. Athugið að sllkan tima verður að panta hjá ráðgjafa. t- ICELAND Umboós- og heildverslun Hótel Esju • Suóurfandsbraut 2 • Sími: 588 1700 > GULLNA HIIÐIÐ- piaOO 295

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.