Morgunblaðið - 05.05.2000, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.05.2000, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ■ Morgunblaðið/Ásdís Rólað sem ákafast ÞAU skemmtu sér hið besta krakkarnir í dekkjaról- unni á Lindarborg þegar Ijósmyndara bar þar að garði fyrir skemmstu.Þótt vorsólin hafi brotist fram höfðu krakkarnir samt varann á sér og settu upp húfu og vettlinga á meðan þau róluðu sér sem ákaf- ast. Útlit er fyrir milt og vætusamt veður fram yflr helgi sunnan- og vestanlands. Svar við fyrirspurn um komu útlendinga til Islands Umsóknum um hæli fjölgar mjög ÞEIM sem sótt hafa um hæli hér á landi af pólitískum ástæðum eða mannúðarástæðum hefur fjölgað til muna á síðustu tveimur árum. Á árunum 1995 til 1999 sóttu 63 út- lendingar um hæli, þar af 24 árið 1998 og 25 árið 1999. Af þessum 63 hefur 26 verið veitt dvalarleyfí og einum veitt pólitískt hæli. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í sv&ri dómsmálaráðherra við fyór^p^n Ögmundar Jónas- sonar þingmanns vinstrigrænna um komu útlendinga til Islands síðastliðin fimm ár. Á annan tug umsækjenda hefur farið af landi brott að sjálfsdáðum áður en til afgreiðslu umsókna þeirra kom. Annar eins fjöldi hef- ur verið sendur til nágrannaríkja Islands, einkúm Norðurlandanna, þar sem talið hefur verið að þeir gætu sótt um hæli. Enginn var sendur til heimalands síns. Ástæður fyrir synjun landgönguleyfis útlendinga árin 1989-99 Ails var 143 einst. snúið til baka Ástæða Fjöldi Án vegabréfsáritunar 50 Ónóg fjárráð 30 Vegabréf falsað/stolið 25 Án farmiða 24 Án skilríkja 7 Skilríki fölsuð/stolin 5 Án vegabréfs 4 Ekki skilgreint 5 Stundum er fleiri en ein ástæða skráð fyrirsynjun. Heimiid: pskj.1121 Umsóknir nokkurra útlendinga sem hér sóttu um hæli á árinu 1999 hafa ekki enn hlotið endan- lega afgréiðslu. í svari dómsmála- ráðherra kemur einnig fram að á síðustu fimm árum hefur 84 ein- staklingum verið snúið til baka frá Keflavíkurflugvelii en heildarfjöldi þeirra sem synjað hefur verið um landgönguleyfi síðustu 10 ár er 143. Helstu ástæður synjunar á því tímabili hafa verið skortur á vegabréfsáritun, ónóg fjárráð, fals- að eða stolið vegabréf og skortur á farmiða. Endurkoma bönnuð Þá greinir dómsmálaráðherra frá því að dæmi séu um að erlend- um einstaklingum sem komið hafa löglega til landsins hafi verið vísað úr landi og meinuð endurkoma. Dómstólar og Útlendingaeftirlitið geta gripið til þessá úrræðis ef einstaklingarnir hafa gerst brot- legir við hegningarlög eða sér- refsilög. Stofnanir fyrir aldraða Mannekla veld- ur erfiðleikum ERFIÐLEGA hefur gengið að ráða ófaglært fólk til umönnunarstarfa á stofnanm aldraðra og hefur m.a. ekki verið hægt að ráðstafa fjórum lausum rúmum á Droplaugarstöðum. Hjúkr- unarforstjórar eru sammála um að lág laun séu aðalástæðan fyrir hversu erfiðlega gengur að fá fólk til starfa. Sömu sögu er að segja um heima- þjónustu aldraðra. Þar hefur gengið illa að fá fólk en þó fer það nokkuð eftir hverfum. Ingibjörg Bernhöft, hjúkrunarfor- stjóri á Droplaugarstöðum, sagði að ástandið þar væri mjög slæmt. „Okk- ur vantar fólk,“ sagði hún. „Við erum með fjögur laus pláss vegna mann- eklu og það hefur aldrei gerst áður. Það vantar oft einn og tvo starfsmenn á hverja vakt nema á næturnar enda eru þá færri starfsmenn. Og um leið og starfsmenn veikjast er komið í óefni. Það er svo erfitt að fá fólk til að taka að sér aukavinnu vegna álags og þreytu.“ Ingibjörg sagðist hafa gripið til þess að ráða erlenda starfsmenn til starfa eins og víða hefur verið gert á öðrum stofnunum. „Margt af því tal- ar illa íslensku og þess vegna er vont að láta það vinna við aðhlynninguna," sagði hún. „Eg er búin að vera hér í sex ár og hef aldrei þurft að loka rúm- um fyrr þ.e. að taka ekki inn í pláss. Ég er með 99% nýtingu en núna eru pláss lokuð viku eftir viku. Þetta er alveg hræðilegt eins og þörfin er mik- il. Það verður að gera eitthvað.“ Of láglaun Ingibjörg Hjaltadóttir, hjúknmar- forstjóri á Landakoti, og Áslaug Bjömsdóttir, hjúkrunarforstjóri í Sunnuhlíð í Kópavogi, taka í sama streng og Ingibjörg Bemhöft og segja að fyrst og fremst sé lágura launum um að kenna. „Við emm ekki að loka rúmum vegna manneklu og I augnablikinu horfir ekki mjög illa eþ þetta er búið að vera mjög erfitt," sagði Áslaug. „Fólk hefur verið að segja upp og það gott starfsfólk sem hefur verið hér lengi og er mjög sárt að sjá á eftif; því. Þegar verst lét vantaði í tvær til þijár stöður.“ Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, yfirv maður öldmnarþjónustudeildar Fœ lagsþjónustu Reykjavíkurborgar, sagði að langt væri liðið síðan jafn erfitt hefði verið að fá fólk til starfa. „Aðallega em það sumarafleysing- amar,“ sagði hún. „Við stöndum frammi fyrir fremur afleitu sumii Ástandið er misjafnt eftir hverfum og svo virðist sem það sé ekki eins slæmt hjá heimaþjónustunni og á stofnununum. Yfirleitt hefur heima- þjónustan verið síður vinsæl en þetta er einhverra hluta vegna að snúast við núna. Vera má að það sé vcgna þess að vinnutíminn er sveigjanleg og engar vaktir. Þetta er tilfinnin| okkar sém vinnuin við þetta.“ Þórdís sagði að sum hverfi bórga innar hefðu verið vel mönnuð sam| starfsfólki í vetur en í öðmm hefði ekki gengið eins vel. Best gengi að manna hverfi þar sem íbúar væru eldri en síður þar sem íbúar væru yngri og þá oft námsmenn. „Við erara með tryggari starfsmenn núna held- ur en áður en unga fólkið sem ráðið er tímabundið sést ekki,“ sagði hún. „Það fer í verslanir þar sem launin em hærri.“ Könnun á Suðurnesjum 64,5% seldu unglingum undir lögaldn tdbak FYRSTA. könnun af þremur á sölu tóbaks til unglinga yngri en 18 ára í verslunum á Suðumesjum leiddi í ljós að 20 af 31 sélfíú unglingum und- ir lögaldri tóbak eða 64,5% sölu- staða. Klemenz Sæmundsson deildar- stjóri Heilbrigðiseftirlits Suðumesja, sagði að samið hefði verið við Samtök félagsmiðstöðva á Suðumesjum um að geraþrjár kámianiráþessu ári og var þetta fyrsta könnunin. Klemenz sagði að niðurstaðan hefði komið nokkuð á óvárt þar sem forsvars- mönnum verslananna hefði verið kynnt bæði bréflega og með heim- sóknum að hún stæði fyrir dymrn. „Samkvæmt lögum má ekki selja eða afhénda einstaklingi yngii en 18 ára tóbak og leiki vafi á um aldur verður að framvísa skírteini um að hann sé 18 ára,“ sagði hann. „Brot varðar sektum og banni á sölu á tó- baki í viðkomandi verslun." f ' í framhaldi af könnuninni var fyi'f irtækjunum kynnt niðurstaðan bréð-. lega og þau fyrirtæki, sem afgreitl höfðu unglingana fengu aðvömn um að ný könnun yrði gerð á haustdög- um og jafnframt var bent á að ef sölu á tóbaki til unglinganna yrði ekki hætt yrði öll tóbakssala stöðvuð í vify komandi verslun. Þakskífur með 25 ára ábyrgð fegra húsið þitt. Kynntu þér málið á www.bmvalla.is. Söludeild í Fornalundi Breiðhöfða 3 • Sími 585 5050 www.bmvalla.is Erfiðar aðstæður hjá Haraldi AÐSTÆÐUR hjá Haraldi Erni Ólafssyni ptílfara voru mjög erf- iðar á miðvikudag. Hann lagði engu að síður 15 km að baki þann dag og á 139 km eftir tífarna á ptílinn. Hann býst við að ná á ptílinn á tímabilinu 10.-15, maí. Hai-aldur sagði að færið hefði verið herfilegi á miðvikudag, fs- inn mjög brotinn og hefði hann því oft orðið að taka af sér skfðin til að bijtítast yfir íshryggi og brothrauka með sleðann. Hefðu fyrstu tveir klukkutímarnir ein- kennst af samfelldu brölti af því tagi. Virtist honum ísinn vera til- tölulega þunnur á þessum sltíðum og hann látið undan miklum þrýstingi og brotnað. Haraldur sagði að sléttu kafiarnir á milli hryggja hefðu smám saman lengst og seint um daginn hefði hann komist inn á gríðarlega sttíra sléttu rétt vestan við sltíð sína og gengið til norð- urs eftir henni. Hann ætlaði að ganga eftir henni í gær og vonaðist til að færið yrði betra en ttík fram að aldrei væri að vita hvers konar færi biði handan við næsta hrygg. Óðum styttist á ptílinn og er Haraldur farinn að hlakka til ferðalokanna. „Það er mikil til- hlökkun í mér að komast aftur heim,“ sagði hann í samtali við bakvarðasveit sína í versluninni Útilífi í hádeginu í gær. Ekki einn á ferð „Það er eitthvert líf hérna og greinilegt að ég er ekki einn á ferð á þessum sltíðum," sagði hann er hann skýrði frá því að hafa séð refaspor í snjtínum ann- an daginn í röð. „Þetta hefur lík- lega verið sami refur, hann hef- ur ráfað hér fram og aftur, þvers og kruss.“ Haraldur sagðist hafa lagt talsvert á sig undanfarna daga til að halda 14-15 km yfirferð. Aukið hefði á vandann að skýjað hefði verið í u.þ.b. viku og því engir skuggar sem hjálpuðu hon- um að halda stefnu án þess að nota áttavita. „í stílarleysinu hef ég mun oftar þurft að gaigjast á vitann," sagði hann. Þegar Haraldur Örn hætti göngu á miðvikudagskvöld var hann staddur á 88:44,69. gráðu norðlægrar breiddar og 61:18,25. vestlægrar lengdar en rak í fyrrintítt um 1,67 km til austurs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.